Tíminn - 16.04.1977, Blaðsíða 17

Tíminn - 16.04.1977, Blaðsíða 17
Laugardagur 16. april 1977 17 Eyja- maður — skaut Víkingi upp á toppinn í Reykjavíkur mótinu i knattspyrnu — V-Þjóðverjar eru með mjög sterkt lið”, segir Pétur Bjarnason, þjálfari kvennalandsliðsins í handknattleik, sem mætir V-Þýzkalandi i dag Vestmannacyingurinn Viöar Eliasson tryggöi Vikingum sigur (2:1) gegn KR-ingum i Reykja- vikurmótinu iknattspyrnu, þegar hann skoraöi úrslitamarkiö. Birgir Guöjónsson skoraöi mark Vesturbæjarliösins, en Kári Kaaber jafnaöi fyrir Austurbæj- arliöiö i siöari hálfleik og siöan kom sigurmarkiö frá Viöari. Fyrrum félagi Viöars I Vest- mannaeyjaliöinu, örn Óskarsson, lék meö KR-liöinu gegn Vikingi — þaö bar litiö á honum i leiknum, þar sem hann fékk fáar sendingar til aö vinna úr. KR-ingar voru mjög liflegir fyrstu 20 min. i leiknum, en eftir þaö tóku á- kveönir Vikingar völdin i sinar hendur. Meö þvi aö sigra KR tóku Vik- ingar forystuna i Reykjavikur- mótinu, en staöan er nú þessi i mótinu: Vikingur Fram ... Þróttur. KR...... Valur... Ármann Beztu fimleika- menn landsins — taka þátt i firmakeppni FSÍ á morgun Firmakeppni FSI i fimleikum fer fram i Laugardalshöllinni á morgun kl. 3 — og taka allir þeir fimleikamenn, sem hafa staöiö sig bezt á fimleikamótum aö und- anförnu, þátt I keppninni, sem fer fram meö forgjafarsniöi, þannig aö allir keppendur eiga jafnan möguleika á aö bera sigur úr být- um, en meöaleinkunn keppenda verður notuö til viömiöunar I keppninni. — Ég er ekki of bjart- sýnn fyrir leikina gegn V- Þjóöverjum. Það er greini- legt að þeir hafa lagt mikla rækt við kvennalandslið sitt að undanförnu/ sagði Pétur Bjarnason, þjálfari íslenzka kvennalandsliðs- ins í handknattleik, sem leikur svo landsleiki gegn V-Þjóðverjum um helgina í Laugardalshöllinni. Pétur sagöi, aö v-þýzka liöiö hafi leikiö 22 til 23 landsleiki siöan islenzku stúlkurnar léku gegn þvi i V-Þýzkalandi fyrir ári. bá sigr- uöu V-Þjóðverjar 10:7 og 15:8. — Ég tel að islenzka landsliðið sé ekki eins gott og þá, og munar þar mestu, aö Magnea Magnúsdóttir, markvörður úr Armanni, sem átti þá mjög góöa leiki, getur ekki leikið meö nú, sagöi Pétur. — V-Þjóðverjarnir eru örugg- lega gifurlega sterkir, þeir komu meö allar sinar beztu stúlkur og leika þær sterkan handknattleik. Ég vona allt það bezta, sagöi Pét- ur. tslenzka landsliöiö, sem leikur gegn v-þýzku stúlkunum I Laug- ardalshöllinni kl. 15.30 i dag, hef- ur verið valið, og er það skipaö þessum stúlkum: Markverðir: Kolbrún Jóhannsdóttir, Fram Sigurbjörg Pétursdóttir, Val Aörir leikmenn: Björg Guðmundsdóttir, Val Ragnheiður Lárusdóttir Val Agústa Dúa Jónsdóttir, Val Guörún Sverrisdóttir, Fram Framhald á bls. 19. Hreinn í lyftinga- landsliðinu — sem tekur þátt í N orðurlandamótinu í lyftingum HREINN Halldórsson, Evrópu- meistari I kúluvarpi úr KR, hef- ur veriö valinn I landsliðið I lyft- ingum, sem tekur þátt I Norö- urlandamótinu I lyftingum, en það fer fram i Reykjavlk 23. og 24. april n.k. Allir sterkustu lyftingamenn okkar taka þátt I NM-mótinu, þar af þrir lyftingamenn frá Akureyri, sem hafa veriö valdir i landsliðiö, en landsliöið er skipaö þessum mönnum: 52 kg — Haraldur ölafss. Ak. 56 kg — Viöar Eövarðss. Ak. 60 kg — Kári Eliass. Armanni. 75 kg — Már Vilhjálmss. Arm. 82.5 kg — Hjörtur Gislas. Ak. 90 kg — Arni Þ. Helgas. KR 90 kg — Ölafur Sigurgeirss. KR 100 kg — Guðmundur Siguröss. Arm. 110 kg — Gústaf Agnarss. Arm. 110 kg —Hreinn Halldórss. KR. Arni Þór Helgason úr KR, hefur dvalist við æfingar I Dan- mörku undanfarin ár, þar sem hann hefur veriö margfaldur Jótlandsmeistari i lyftingum. Miklar vonir eru bundnar við þá Guðmund Sigurðsson og Gústaf Agnarsson á NM-mót- inu, en þeir eru llklegir til af- reka þar. KVENNAKNATTSPYRNA? — Nel, þessa skemmtilegu mynd tók Gunnar Ijósmyndari þegar FH og Armann léku I 1. deildarkeppninni i handknattleik kvenna á dögunum. Handknattleiksstúlkur okkar veröa I sviösljósinu um helgina — leika tvo landsleiki gegn V-Þjóöverjum I Laugardalshöllinni. Húsvíkingar fá grasvöll íþróttafélagið Völsungur á Húsavík varð 50 ára um páskana Valsmenn feti frá meistara- titlinum Valsmenn unnu auöveldan sigur (25:14) yfir slöku Framliði i 1. deildarkeppninni I handknattleik i gærkvöldi I Laugardalshöllinni. Leikurinn var afar lélegur — sér- staklega aö hálfu Framara, sem skoruöu nær helming marka sinna úr vitaköstum. Staöan var 12:5 I hálfleik fyrir Valsmenn, sem þurfa nú aöeins jafntefli gegn Fram á þriöjudaginn kem- ur, til aö tryggja sér íslands- meistaratitilinn. Jón Pétur Jóns- son skoraöi flest mörk Vals — 8; en Arnar og Pálmi 4 mörl hvor fyrir Fram. nji Sigmundur Ó. * Steinarsson ÍÞRÓTTIR tþróttafélagiö Völsungur á Húsavik varö 50 ára 12. þ.m. Þaö hélt upp á afmæli sitt meö kaffi- veitingum og hátiöarfundi I Fé- lagsheimili Húsavikur á annan I páskum, 11. april. Fyrr um dag- inn var tekiö á móti börnum á grunnskolaaldri og þeim vcittar góögeröir. Efnt var til sýninga á margskonar gripum, búningum, myndum og fleiri minjum frá ýmsum timum I sögu félagsins. Þar voru einnig sýndar myndir, er teknar höföu veriö af iþrótta- iökunum á Húsavik allt frá árinu 1909. Um kvöldiö var landsleikur i félagsheimilinu fyrir yngri og eldri Völsunga. Afmælisdaginn, 12. april, var efnt til Iþróttahátiðar i iþróttaáal skólanna á Húsavik. Þar voru sýndir knattleikir, leikfimi, list- rænn dans, spaugiþróttir, skrúö- ganga iþróttafólks o.fl. Stúlkur úr æskulýösfélagi kirkjunnar sungu. Rúmlega þúsund manns sótti af- mælisfagnað Völsungs þessa tvo daga. Félaginu bárust stórar gjafir I tilefni afmælisins, einnig blóm og mörg heillaskeyti. Húsavikurbær gaf félaginu kr. 100.000.00 til aö láta rita fyrstu 50 ára sögu félags- ins. Bæjarstjórn Húsavikur hefur ákveöið, að framkvæmdir viö grasvöll skuli verða forgangs- verkefni hjá bæjarsjóði á kom- andi sumri, og skal stefnt að þvi aö taka I notkun I ár knattspyrnu völl og hlaupabrautir. Lions- klúbbur Húsavikur sendi félaginu gjafabréf um kaup á frjáls- iþróttatækjum fyrirkr. 150.000.00. Framhald á bls. 19. „Ég er ekki of bjartsýnn..

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.