Tíminn - 30.04.1977, Page 17
Laugardagur 30. april 1977
17
Passiukórinn á Akureyri, stjórnandi er Roar Kvam.
Tónlistarhátíð á Akureyri
5-8. maí
Messías eftir Hándel fluttur í
fyrsta skipti utan Reykjavíkur
KS-Akureyri. — Tónlistarfélag
Akureyrar i samvinnu viö
Passíukórinn, mun efna til tón-
listarhátíöar á Akureyri dagana
5.-8. maf næstkomandi. A há-
tiðinni, sem ber y firskriftina
„Tónlistardagar í mai 1977” eru
þrennir tónleikar, sem alla má
teija einstæða viðburði á
Noröuriandi.
A fyrstu tónleikunum, sem
haldnir verða 5. maí I Akureyr-
arkirkju, flytja söngvararnir
Sieglinde Kahmann, Rut Magn-
ússon, Sigurður Björnsson,
Haildór Vilhelmsson og píanó-
leikararnir Óiafur Vignir
Albertsson og Guðrún Kristins-
dóttir söngskrá með innlendum
og erlendum iögum, en há-
punktur tónleikanna er flutning-
ur á „Astarsöngvavölsunum”,
lagaflokki op. 26 eftir Brahms,
en I flutningi þeirra taka þátt
m.a. framantaldir 6 listamenn.
Hjónin Sieglinde Kahmann og
Sigurður Björnsson koma nú I
fyrsta skipti fram á tónleikum á
Akureyri, en þau hafa á undan-
förnum árum hlotið margs kon-
ar viðurkenningu fyrirsöng sinn
við þekktustu óperuhús I
Evrópu.
Föstudaginn 6. mai mun Sin-
fóniuhljómsveit Islands koma
norður og leika i Iþróttaskemm-
unni undir stjórn Hubert Sou-
dant, en einleikari á þeim tón-
leikum mun verða sellóleikar-
inn frægi, Erling Blöndal
Bengtsson. A efnisskránni verð-
ur ein vinsælasta tónsmiö allra
tima, Sellókonsert I H-moll eftir
Dvorak, en einnig verður 2. sin-
fónia Brahms flutt.
Þetta verður I fyrsta skipti,
sem einhverjir beztu tónleikar
vetrardagskrár Sinfóniuhljóm-
sveitarinnar eru endurfluttir á
Akureyri jafnframt þvi, að nú
eru réttfjögur ár liðin frá þvi að
hljómsveitin kom sfðast til
Akureyrar.
Sunnudaginn 8. mai hefst I
Ibróttaskemmunni flutningur á
einu þekktasta stórvirki tónbók-
menntanna, óratóriunni Messi-
as eftir Handel. Flytjendur eru:
Passiukórinn á Akureyri, 25
manna kammersveit sk'ipuö fé-
lögum úr Sinfóniuhljómsveit-
inni, kontinnu- og einleikarar
eru: Helga Ingólfsdóttir á
sembal, Nina G. Flyer á selló,
Lárus Sveinsson á trompet.
Einsöngvarar eru: Halldór Vil-
helmsson, Michael Clarke, Rut
Magnússon, Sigrún Gestsdóttir
og Sigurður Björnsson.
Konsertmeistari er Guöný
Guðmundsdóttir og stjórnandi
Roar Kvam.
Hér er um að ræöa
lang-stærsta tónverk sem flutt
hefur verið á Akureyri, og
fyrstu heildaruppfærslu á
Messiasi utan Reykjavikur.
Passiukórinn hefur æft Messias
I nærfellt ár, en félagar kórsins
eru rösklega 50 talsins.
Meö þessari tónlistarhátiö
vilja Tónlistarfélagið og Passíu-
kórinn gefa Akureyringum og
Norðlendingum tækifæri til að
njóta tónlistarflutnings, sem
jafna má viö þaö bezta sem boð-
iö er upp á hérlendis.
Héreru aöalmenn i tonlistarlifi Akureyrar. Taliö frá vinstri: Jón
Hlööver Askelsson, form. Tónlistarfélagsins, Jón Helgi Þórar-
insson, form. Passiukórsins og Roar Kvam, stjórnandi Passiu-
kórsins.
1. maí
Fyrsta
kattasýningin
á íslandi
F.I. Reykjavik. — Guðrún A.
Símonar mun halda kattasýn-
ingu i Kristalsal Ilótel Loft-
leiöa sunnudaginn 1. mai nk. kl.
2-6. Þetta er fyrsta kattasýning-
in á tsiandi og veröur hún opin
aðeins þennan eina dag. Sýndir
verða Siamskettir í tveim litum,
afbrigði af persneskum ketti,
einnig þriiitir, tvilitir og einlitir
kettir. AUs verða sýndir miili 25
og 30 kettir.
Til skemmtunar veröur söng-
ur og munu Guðrún A. Simonar
og Þurlöur Pálsdóttir syngja
kattadúettinn eftir Rossini. Þá
mun Guðrún A. Simonar syngja
lag eftir Skúla Halldórsson viö
texta eftir Guöjón Bjarna Guð-
laugsson, en lagið var sérstak-
lega samið fyrir Siamsköttinn
Kikki. Þá munu nokkrir söngfé-
lagar Guðrúnar syngja nokkur
lög.
Margt fleira verður á dag-
skrá, svo sem sýningar á katta-
mat i dósum, ólum fyrir ketti,
þurrmat, sandi og leikföngum.
Börn eiga að koma I fylgd með
fullorðnum.
Síamskötturinn Kikki mun verða á kattasýningunni 1. maí á-
samt fjölskyldu sinni, frú börnum og barnabörnum. Hér á mynd-
inni er hann ásamt vinkonu sinni LIsu.
Innkaupastjóri
óskast
Stór stofnun með fjölþætt verkefni óskar
eftir að ráða innkaupastjóra.
Æskileg menntun viðskiptafræðipróf, eða
mikil starfsreynsla. Umsóknum ásamt
upplýsingum um aldur, menntun, fyrri
störf og hvenær umsaakjandi getur hafið
starf óskast skilað til afgreiðslu blaðsins
sem fyrst og eigi siðar en 10. mai n.k.
merktum „Mai.-10-1977”.
AUGLÝSIÐ í TÍMANUM
Orlofshús V.R.
DVALARLEYFI
Frá og með 2. mainæstkomandiverðf,afgreidd dvalarleyfi
i orlofshúsum Verslunarmannafélags Reykjavikur að
Ölfusborgum i Hveragerði, Illugastöðum i
Fnjóskadal, Svignaskarði og Húsafelli i
Borgarfirði.
Þeirsem ekkihafaáður dvalið i orlofshúsunum á tímabil-
inu frá 2. mai til 15. sept., sitja fyrir dvalarleyfum til 9
mai næstkomandi. Leiga verður kr. 9.000 á viku og greiðist
við úthlutun.
Dvalarleyfi verða afgreidd á skrifstofu V.R. að Hagamel
frá og með mánudeginum 2. mal næstkomandi.
Úthlutað verður eftir þeirri röð, sem umsóknir berast,
gegn framvisun féíagsskirteina. Ekki verður tekið á móti
umsóknum bréflega eða simleiðis.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
NÝTT SÍMANÚMER
Flugleiðir — Innanlandsflug
Frá og með 1. maí 1977 verður símanúmer okkar
2-66-22
FLUGLEIÐIR
Innanlandsflug
-
/