Tíminn - 03.05.1977, Síða 8
8
Þriöjudagur 3. mal 1977
Þaö var ekki i litið ráöizt á
sinni tiö þegar félagshyggjuöfl-
in á Islandi tóku sér fyrir hend-
ur að breyta þjóöfélaginu i þvi
skyni að hér yröi sannkallað
frjálst velferðarþjóðfélag.
Baráttan hófst með rikisstjórn
Tryggva Þórhallssonar 1927, en
mörg stærstu skrefin voru stigin
I miðri heimskreppunni undir
forystu rikisstjórnar Hermanns
Jónassonar á árunum eftir 1935.
Svo virðist sem allmargir hafi
gieymt þessari baráttu. Nú þyk-
ir árangur hennar sjálfsagt mál
sem yngri kynslóðin leiðir ekki
hugann að. Nú þykist hver sá
mestur sem virðir árangur ára-
tugabaráttu þjóðarinnar aö
vettugi. Herópið er nú: „bákniö
burt”, og jafnvel á hátiðisdegi
verkalýðsins var úr ræðustóli
spurt: „Hvar eru allir pening-
arnir okkar?” án þess að ræðu-
maðurinn hefði fyrir þvi að lit-
ast um i landinu eftir svari.
Velferðarsamfélegið á i vök
að verjast fyrir þeim árásum
sem að þvi er stefnt um þessar
mundir. Allir þeir sem unna
félagshyggju, frelsi, öryggi og
jöfnuði verða að gera sér grein
fyrirþessu og snúasttil varnar.
Krónurnar í umslaginu
I áróörinum gegn velferðar-
samfélaginu er þvi einkum beitt
að laun séu lág á Islandi, lifs-
kjörin slæm, og er þá jafnan
gripið til samanburðar við
Skandinaviu. Það er satt að hér
stendur margt til bóta, ekki sizt
i launamálum. En hinu má ekki
gleyma aðsamneyzlan, framlög
til mennta-, heilbrigðis- og
tryggingamála og til verklegra
framkvæmda o.fl., er hluti
hinna almennu lifskjara þótt
þetta fé birtist ekki i launaum-
slögunum.
bað er blekking eða skjimm-
sýni þegar launþegar einblina á
krónurnar sem þeir fá greiddar
i laun, án þess að minnast þess
fjár sem rennur til almanna-
þarfa. Með þessu er engan veg-
inn sagt aö allt sé gott og bless-
að og ekkimegihrófla við neinu.
Siður en svo. En menn verða að
horfast i augu við staðreyndir
oggerasér þær ljósar efmarká
að verða að aðgerðum.
Þaö er mikill misskilningur
aðunnt sé að bera tsland saman
við Skandinaviu fyrirvaralaust.
Hér er fámenni og mikil fólks-
fjölgun: þar búa milljónir og
fólksfjöldi þar hefur lengi verið
tiltölulega stöðugur. Við búum i
harðbýlu eylandi sem er mjög
viðáttumikið miðað við mann-
fjölda: þeir tilheyra meginland-
inu. Efnahagslif okkar er háð
fiskveiðum og þvi mjög sveiflu-
kennt, en atvinnulif þeirra mið1
ast við iðnaðarframleiðslu sem
lýtur allt öðrum lögmálum.
Aðeins þessi atriði sýna hver
reginmunur hér er á, og hversu
erfitt er að koma raunhlltum
samanburði við.
Staðreyndir
Það má vera að á íslandi sé að
einhverju leyti verr farið með fé
en tiðkast I nágrannalöndunum.
Hinu verður aftur á móti ekki
neitað með rökum að t.d. sam-
göngur hér eru og verða miklu
dýrari en tiðkast á meginlandi
Evrópu, og þegar tekið er tillit
til fámennisins hér er ekki að
undra að samgöngukerfi lands-
ins sé þyngra en þar tiðkast. Þvi
verður ekki heldur neitað, að
allur þorri landsmanna vill búa
ieigin húsnæði og njóta ýmissar
aðstöðu i heimahúsum sem ekki
eralmennt fyrir hendi meðal al-
þýðu I öðrum löndum.
Ekki verður þvi heldur neitað
að staða islenzks iðnaöar er að
mörgu leyti mjög veik, og verð-
ur þvi að beita sérstökum
aðgerðum honum til vemdar og
hljóta þær t.d. að koma fram i
vöruverði að einhverju leyti.
Á hinn bóginn hafa tslending-
ar nú um nokkurra ára skeið
lagt verulegt fé i atvinnuupp-
byggingu viða um land.
Byggðasjóöurfær 2% rikistekna
til ráðstöfunar. 1 landinu standa
yfir geysilegar og fjárfrekar
orkuframkvæmdir, en þeim er
ætlað að verða grundvöllur
bættra kjara i framtiðinni. A
nokkrum undanförnum árum
hefur verið gerð bylting i hrað-
frystiiðnaðinum og útgerð tog-
ara endursköpuö um allt land.
Enda þótt erlendar lántökur
hafi aö talsverðu leyti létt þenn-
an róður þurfa menn ekki að
halda aö þessi stórvirki falli af
himnum ofan eins og guðsgjöf,
og skuldirnar falla i gjalddaga.
Það stýrir engriheill að neita að
virða þessar staðreyndir, böl-
sótastyfir skuldasöfnun erlend-
is og opinberum framlögum
sem fjármögnuð eru með
sköttunum okkar, en heimta þó
um leið næga atvinnu, hraða
iönþróun, ókeypis skólavist fyr-
ir börnin og mannsæmandi
tryggingabætur.
Glöggt er gests augað
Fyrir nokkru var sagt hér i
blaðinu frá heimsókn norskra
sjávarútvegsfræöinema hingað
tillands. Þeir höfðukynnt sér is
lenzkan útveg og fiskverkun frá
ýmsum sjónarhólum og þótti
margt nýstárlegt i skipulagi
þessara mála hér á landi. 1
fyrsta lagi bentu þeir á hið lága
timakaup en langan vinnudag
og mikla möguleika á auka-
vinnu. I öðru lagi bentu þeir á þá
staðreynd, að margviða gengu
atvinnurekendurnir til vinnu
meðal starfsfólksins. 1 þriðja
lagi töldu þeir vinnuumhverfið
yfirleitt betra hér en i Noregi og
að hér væri spenna og streita
ekki eins mikil við vinnuna.
Með tilliti til kaupsins furðaði
þá á þvi hve fjárhagsstaða fyr-
irtækjanna var veik. En þegar
nánar var að gætt kom i ljós að
fyrirtækin stóðu undir ýmsum
framlögum til almannaþarfa
sem fjármögnuð eru á annan
hátt iNoregi. Svipað varð uppi á
teningnum þegar fiskverðið var
athugaö. Það er hærra i Noregi,
en norski flotinn greiðir iika
ýmislegt sem fyrirtækjum I
fiskverkun er gert að greiöa
hér.
Viðtalið við norsku sjávarút-
vegsnemana sýndi að launakjör
verða ekki borin saman á Is-
landi og i Skandinaviu án þess
að allar aðstæöur séu hafðar i
huga jafnframt. Þaö verður aö
kanna um leið launatengd gjöid,
lifeyrissjóðsgreiöslur, framlög
til atvinnuleysistrygginga og
margt fleira. Jafnframt veröur
að hafa i huga hvort ýmsir opin-
berir sjóðir eru fjármagnaðir af
almannafé og sköttum eða með
millifærslu beint frá atvinnu-
vegunum.
Af þvi sem helzt verður séð er
skipulag þessara mála á ýmsa
lund allt annaö hér á landi en
tiökast i nágrannalöndunum.
Það má vissulega deila um það
hvort okkar kerfi er betra eða
lakara en þær aðferðir sem aðr-
ar þjóðir viðhafa .Enþaðerekki
hægt að bera aðstöðuna I ýms-
um löndum saman án þess að
taka tillit til staðreyndanna.
Betri nýting
A nokkrum sviðum eru að-
stæður greinilega talsvert betri
i Skandinaviu, en hér tiðkast.
Nefna má léttari byrðar vegna
samgöngukerfisins, ódýrari
ferðir, bifreiðar og oliuvörur.
Þar er einnig meira úrval eigin
framleiðslu innanlands, ódýrari
húsgögn og heimilistæki. En
þetta leiðir beinlinis af mann-
fjölda og landfræðilegri legu.
Lifskjör á Islandi á mann yrðu
að vera talsvert betri en þar er
ef við ættum að standa Skandi-
növum jafnfætis að þessu leyti.
Þvi veröur ekki neitað, að að-
staða Islendinga er betri en ná-
grannaþjóðanna að þvi er snert-
ir mengun, útivist og persónu-
legra umhverfi. Við búum ekki
heldur við þá greinilegu stétta-
skiptingu eða þau ótviræðu stór-
borgaeinkenni sem setja mark
sitt á þjóölíf þeirra. Og hvað
sem sagt veröur um „bákniö” á
Islandi þá er það hreinn barna-
leikur miðaö við þaö sem t.d.
Sviar hafa búið við um árabil.
Það sem við verðum að læra
af nágrönnum okkar i Skandi-
naviu virðist um fram allt vera
meiri samræming aðgerða og
betri nýting fjármunanna. Við
verðum að hætta hinum land-
læga smákóngahugsunarhætti,
og læra að standa saman um
nauðsynlegar aðgerðir, velja
það sem mestu skiptir en slá
öðru á frest. Það er mikill mun-
ur á hve miklu betur
Skandinavarnir nýta fram-
leiösluþættina heldur en Is-
lendingum hefur auönazt til
þessa. Þetta kemur skýrast
fram i þeim skammarlega
langa vinnutima sem hér er viö
lýði.
Hér var iþessum þáttum fyrir
nokkru vikið að þvi að langur
vinnutimi gefur alls ekki af sér
aukna eða bætta framleiðslu.
Það má hiklaustfullyrða að það
yrði atvinnuvegunum stórkost-
legur hagur, ekki siður en laun-
þegum, að skipulag rekstrar og
fjárfestingar yrði við það miðað
að nýta vinnutimann betur en
gert er. Vinnuþrælkunin á Is-
landi er til skammar, og hún er
ekki einu sinni skynsamleg eða
nauðsynleg i þeim mæli sem nú
er til að tryggja vinnslu verð-
mætanna.
*
Urslit fengust ekki i skák við Englendinga:
Sigur blas-
ir þó við
Gsal-Reykjavik — tirslit feng-
ust ekki I landskeppninni við
Englendinga I skák, sem fram
fór á laugardaginn. Tveimur
skákum var visað I dóm eftir 8
kiukkustunda setu skákmanna,
skák Ingvars Asmundssonar á
5. borði og skák Margeirs
Péturssonar á unglingaborði.
Er Ingvar talinn með unna
stöðu, en Margeir tapaða.
Guðmundur Sigurjónsson
vann skák sina við Stean á 2.
borði, en Guðlaug Þorsteins-
dóttir tapaði fyrir Sheiiu Jack-
son á kvennaborði, sem er 7.
borð. Jafntefli varð I skákunum
hjá Inga R. Jóhannssyni á 3.
borði, Jóni L. Árnasyni á 4.
borði og Ásgeiri Þ. Árnasyni á 6.
boröi.
Staðan eftir þær sex skákir,
sem lokiö var við, er þvi 3:3, en
þar sem við unnum á 2. borði en
töpuöum á 7. boröi, myndum við
teljast sigurvegarar I keppn-
inni, ef þetta væru endanleg úr-
slit, þar sem hærri stig eru gefin
fyrir sigur á hærri borðum. Fari
svo, sem liklegt er talið, að Ing-
var vinni slna skák á 5. borði og
Margeir tapi sinni skák á 8.
borði — er sigurinn okkar, þótt
jafnt veröi, 4:4, þvi við ynnum þá keppnina á stigum. bandið fær einhverjum skák- dómurum þaö verkefni að segja sal (Jtvegsbankans, Hvitt : Stean þar sem þessi mynd var tekin. Timamynd: Róbert
Forföll voru I báðum liðunum, brezku stórmeistararnir Miles til um úrslit skákanna aö viku liöinni, en þá eiga keppendur aö Svart : Guðmundur Sigurjóns- son nviu : r rioriK uiaisson Svart : W. Hartston
og Keene, sem tefla áttu á 1. og hafa sent stöðuna og útskýring- 1. e4 c5 1. e4 c5
2. boröi fyrir Englendinga, ar á framhaldi skákarinnar til 2.Rf3 d6 2. Rf3 e6
komust ekki til keppninnar, og FIDE. Þannig veröur Ingvar 3. d4 cxd4 3. d4 Cxd4
hjá okkur vantaöi Helga Ólafs- t.d. að sýna algjörlega fram á, 4. Rxd4 Rf6 4. Rxd4 Rf6
son, sem tefla átti á 5. borði. að hann vinni skák slna og 5. Rc3 a6 5. Rc3 d6
Keppni þessi milli þjóðanna senda FIDE útskýringar á þvi, 6. Bg5 e6 6. Be2 Rc6
er I 1. umferð hinnar nýju hvernig hann hyggst gera þaö. 7. f4 b5 7. Be3 Be7
Olympiu-fjarrita-keppni. Teflt A sama hátt mun Margeir ef- 8. e5 dxe5 8. f4 a6
var I sal Otvegsbankans við laust reyna aö finna framhald I 9. fxe5 Dc7 9.0-0 0-0
Lækjartorg' og leikirnir jafn- skákinni, sem leiðir til jafn- 10. De2 Rfd7 lO.Del Rxd4
haröan sendir á fjarrita til Eng- teflis, og senda það til FIDE. 11.0-0-0 Bb7 11. Bxd4 b5
lands, þar sem ensku Aö viku liðinni mun svo dóm- 12. Dg4 Dxe5 12. Hdl Dc7
keppendurnir voru, ásamt ur þessi kveða upp sinn úrskurð, 13. Be2 Bc5 13. e5 Dxe5
Baldvini Einarssyni fulltrúa Is- og fæst þá úr þvi skoriö hvor 14.BÍ3 Bxd4 14. fxe5 Rd7
lands þar. þjóöin kemst áfram i 2. umferð 15. Bxb7 Bxc3 15. Re4 Bb7
Umhugsunartimi keppenda keppninnar, en þetta er út- 16. bxc3 Ha7 ' 16.RÍ6+ Kh8
var ein og hálf klukkustund á 45 sláttarkeppni. 17. Hhel h5 17. Dh4 h6
fyrstuleikina.en vegna þess hve Flestar skákirnar á laugar- 18. Dh4 Dxc3 18. Dh5 Had8
mikill timi fór I það að senda daginn voru mjög skemmtileg- 19. He3 Dal+ 19. c3 Bc 5
leikina á milli, dróst keppnin ar. Til þess að gefa lesendum 20. Kd2 Dxa2 20. Rg4 Be4
fram eftir kvöldi. Tvær skákir lítils háttar sýnishorn af keppn- 21. Db4 f6 21. Hxf7 Hxf7
fóru fram yfir 45 leikja mörkin, inni, birtum við hér tvær skákir, 22. Dd6 Hxb7 22. Dxf7 Bd5
og voru þær stuttu siðar settar i annars vegar sigurskák Guö- 23. Hxe6-t- Kd8 23. Dh5 Rf8
dóm að ósk Englendinganna, mundar yfir Stean og hins vegar 24.BÍ4 Kc8 24. a3 Bb3
enda kveða reglur keppninnar jafnteflisskák Friöriks og Har- 25. Hdel Da5+ 25. Hfl Bc4
svo á, að keppendur megi ekki stons, en i þeirri skák yfirsást 26. Kcl Hd8 26. Re3 Bxd4
sitja aö tafli lengur en 8 tima I Friðriki 23. Bd3 og lék þess i 27. He8 Dal+ 27. cxd4 Db6
einni lotu. Fara skákirnar þá I dóm, þ.e. að alþjóðaskáksam- stað Dh5. 23. Bd3 heföi aö öllum líkindum fært Friöriki sigurinn. 28. Kd2 gefið Dxel 28. Bxc4 29. De2 bxc4 jafntefli