Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 07.06.1965, Síða 4

Mánudagsblaðið - 07.06.1965, Síða 4
4 Mánudagsblaðið Mánudagur 7. júní 1964 LARÉTT: 1. BIis 8 Fiskur 10 Fangamaa-k 12 Skrök\Ta 13 Fangamark 14 Kvæði 16 Klæðleysi 18 Drykkur 19 Gæfa 20 Hiti 22 Kvenmannsnafn 23 Ósamstæðir 24 Allslaus 26 Hreyfing 27 Leikfanga 29 Dottinn. LÓÐRÉTT: 2 Ósamstæðir 3 Allsieysi 4 Skref (fornt) 5 Líkamshluti 6 Tónn 7Ránfuglinn 9 Brynnti 11 Flík 13 Hús 15 Keyrði 17 Samhljóði 21 Söngi 22 Náttúra 25 Hár 27 Fangamark 28 Verzlur irroál HAPPDRÆTTS HÁSKÓLA ÍSLANDS AÐAL SKRIFSTOFAN VERÐUR LOKUÐ ÁLAUGARDÖGUM YFIR SUMARMÁNUÐINA. HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS TJARNARGÖTU 4. Jöklar hf. í alþjóðasiglingum Ný fatahreinsun Fljóthreinsun hf. opnaði 2. júní Á undanfömum mánuðum hefur orðið veruleg breyting á rekstri frystiskipa félagsins frá því sem áður var. Stofnendur h.f. Jökla voru allir frystiþúsaeigendur innan SH 1945 og var félagið stofn- að til að þjóna hraðfrystihúsun um á sem hagkvæmastan hátt m.a. með hröðum afskipunum hvar sem var á landinu og lág um farmgjöldum. Þessu hlut- verki sínu hefur félagið þjón- að í 18 ár eða þar til 1. apríl B.I., þegar Sölumiðstöð Hrað- frystihúsanna gerði samning við Eimskipafélag Islands h.f. um flutninga á allri framleiðslu frystihúsa innan S.H. á flutn- ingsgjaldi sem er langt fyrir neðan eðlilegan rekstursgrund- völl frystiskipa. Stjóm h.f. Jö'kla tók þá ákvörðun að fara ekki í farmgjaldastríð á óraun- hæfum samkeppnisgrundvelli, heldur leita fyrir sér um hag- nýtingu frystiskipanna í al- þjóðasiglingum. Á árinu 1964 vom gerðar tilraunir á þessu sviði og lestaðir alls fimm frystifarmar frá Ameríku til Evrópu. Þar sem á þessari leið hafði þegar fengizt nokkur reynsla, ákvað stjórn Jökla h.f. eftir ofangreinda samningsgerð S.H. og Eimskips að leggja höfuðá- herzlu á frystiflutninga annars vegar frá Ameriku til Evrópu og hinsvegar flutninga til Is- lands frá Evrópu. Jafnframt þvi að taka að sér flutninga frá Evrópu til Ameríku eftir því sem fært og hagkvæmt þyk ir. Jöklar hafa í fömm fjögur skip, auk leiguskipa. Þar af ern þrjú nýtízku frystiskip m.s. Langjökull, m.s. Drangajökull og m.s. Hofsjökull, sem öll em í siglingum milli Ameríku, Ev- rópu og Islands, og m.s. Vatna jökull, sem er í reglubundnum siglingum milli íslands og Ev- rópu. Hið nýja fyrirkomulag i siglingum skipanna felur í sér aukna þjónustu við íslenzka innflytjendur í flutningum frá Evrópu. M.s. Hofsjökull kemur nú fullhlaðinn stykkjavömm og bifreiðum frá Evrópu. Skipið fór síðast frá landinu 3. marz s.l. til Bandaríkjanna og hefur síðan lestað tvo farma af fryst um kjöfafurðum -frá Bandaríkj unum til Evrópu og flutt einn farm af bifreiðum til Ameríku frá Englandi. M.s. Langjökull er nú að losa í Eyrópu annan farminn sem hann flytur frá Bandarikj- unum og Kanada frá því, að hann tók síðasta fiskfarminn fyrir S.H., sem var í lok fe- brúar s.l. Eftir fyrri ferð- ina lestaði skipið í Danmörku á fimmta hundrað tonn af fryst um fiskflökum til Ameríku og fyllti sig í Evrópuhöfnum af stykkjavöru til Islands. M.s. Drangajökull kom í s.l. viku fil Evrópu með sinn fyrsta frystifarm frá Ameríku. Segja má að byrjunarfram- kvæmdir Jökla í alþjóðasigling um hafi til þessa tekizt vonum framar. Byggist framkvæmdin á því, að skipin sigli hringferð um Norður-Atlantshaf með við komu á Islandi á vesturleið, þegar unnt er að koma því við. Það skapar erfiðleika, hvað erfitt er að fá hagkvæma fluts inga frá Evrópu til Ameríku og svo til enga frá íslandi. Samkeppni um frystiflutn- inga frá Ameríku til Evrópu er mjög hörð og miklar sveifl- ur á þeim flutningum. Er því að svo stöddu erfitt að spá neinu um framtíðina og verður reynslan ein að sýna árangur- inn. Fatahreinsun í því formi sem flestir þekkja í dag hefir ætíð verið mjög flókin, tímafrek og dýr. Fyrir nokkrum árum byrj- aði bandaríska fyrirtækið Borg- Warner að framleiða sjálfvirk- ar þurrhreinsunarvélar, er geta hreinsað fjögur kíló af fatnaði eða öðru taui á aðeins fimm mínútum. Þessar þurrhreinsun- arvélar, sem framleiddar eru undir hinu kunna heimilistækja nafni NORGE, hafa síðan far- ið sigurför um heiminn. Miðvikudaginn 2. júní opn- aði Fljóthreinsun h.f. að Gnoðavogi 44 fatahreinsun með Norge útbúnaði. KROSSGÁTA Kaupmenn og kaupfélög Fyrirliggjandi bamableyjur. — Mjög hagstætt verð. Kr. Þorvaldsson & Co. Heildverzlun. — Grettisgötu 6. Símar: 24478 og 24730. Kaupmenn og kaupfélög BLÁAR OG BRÚNAR barna- og drengjagallabuxur fyrirliggjandi. Kr. Þorvaldsson & Co. Heildverzlun. — Grettisgötu 6. Símar: 24478 og 24730. Norge þurrhreinsunarvélam- ar eru þegar viðurkenndar fyr- ir gæði og vandvirkni, enda hafa hundruð Norge þurr- hreinsunarstaðir verið opnaðir í Ameríku og Evrópu og eru nú t.d. um 20 slíkir staðir í Kaup mannahöfn einni. Fjögur fyrir- tæki í Bandaríkjunum fram- leiða nú sjálfvirkar þurrhreins- unarvélar, en Norge hefir feng ið viðurkenningu fyrir að fram leiða beztu tækin, og þessvegna valdi Fljóthreinsun h.f., þessa gerð. Einn megin kosturinn við þessa nýtízku þurrhreinsun er sá, hve ódýrt og handhægt er að hreinsa í vélunum. Það tek- ur vélina fimmtíu. mínútur að skila fötunum hreinum og i flestum tilfellum þarf ekki að pressa þau á eftir. Norge þurr- hreinsunartækin nota hreinsun- arefni sem hafa verið marg- reynd og viðurkennd af sér- fræðingum. Eitt af hinum mörgu efnum sem notuð eru i hreinsilöginn gerir það að verk um að fötin koma þannig úr vélunum, að ekki þarf að pressa þau. Meðan fötin eru í þurrhreinsunarvélunum, getur húsmóðirin fylgzt með hreinsun ipni í gegnum glugga sem er á þeim. Þessi tæki eru ekki ósvipuð sambyggðri þvottavél og þurrk ara, en í staðinn fyrir vatn og sápu notar vélin sérstakan hreinsunarlög. Hreinsunarlöginn má nota endalaust, þar sem hann fer stöðugt í gegnum hreinsunar- ketil þar sem hanri er sigtáður og endurbættur með kemískum efnum. Þetta gerir það að verk um að öll óhreinindi eru jafn- óðum hreinsuð úr efninu. Eins og fyrr getur þá tekur það aðeing fimtíu mínútur að hreinsa í vélunum, en á sama tíma eru hreinsunarstigin mörg. Fötin eru sett í sívalning, sem snýst með misjafnlega miklum hraða á þessum fimmtíu mínút- úm meðan hreinsunarvökvinn fer tvær umferðir í gegnum það sem verið er að hreinsa, auk þess sem fötin eru undin og þurrkuð. Með tilkomu þessara nýtízku þurrhreinsunartækja geta hús- mæður fengið mikið magn af fötum, gluggatjöldum, rúmá- breiðum og hlífðarklæðnaði hreinsað á stuttum tíma og um leið á afar ódýran hátt. Það kostar aðeins kr. 114,00 að hreinsa fjögur kíló hjá Fljót- hreinsun h.f., og fatnaðurinn er afgreiddur sama daginn og get- ur viðskiptavinurinn einnig beð- ið eftir fötunum. Fljóthreinsun h.f. er til húsa að Gnoðavogi 44, rétt við Há- logaland I mjög skemmtilegu og björtu húsnæði. Með tilkomu hinna nýju Norge véla, þá er engin gnfa eða lykt á staðnum. Auglýsið ! MánNf'fapshlmSinii

x

Mánudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.