Mánudagsblaðið - 07.02.1966, Síða 4
4
Mánudagsblaðið
j,
Mánudagur 7. febrúar 1669
Mysticus skrífar:
Undir koddanum
Grein Jónasar
Það er vist oft sagt um mig,
að ég sé taugaveiklaður og hafi
allt of miikið ímyndunarafl, en
mér finnst þetta vera vitleysa.
Ég hef alltaf haft næma at-
hyglisgáfu, og ég hugsa mikið,
en mér finnst það nú ekki vera
nein taugaveiklun. En pabbi er
búinn að bíta sig í það að ég sé
svo voðalega slæmur á taug-
um, og hann hefur stundum
drifið mig í rannsókn til tauga
læknis, þó að mér væri það
þvert um geð. Og læknirinn
rausaði einhver ósköp um taug
arnar í mér og allt mitt sálar-
líf. Hann var að tyggja upp
þennan gamla Söng um það,
hvað ég væri taugaveiklaður og
það gæti versnað ef ég færi
ekki varlega. Hann var alltaf
að staglast á því, að líklega
mundi ég hafa hallúsínasjónir,
en ég veit nú bara ekki hvað
Um áramótin gaf Hagtrygg-
ing h.f. ú\ almanak, sem sér-
staklega er helgað umferðarör-
yggi. Þar eru leiðbeiningar og
áminningar til ökumanna varð-
andi akstur eftir árstíðum. 1
janúar og febrúar eru leið-
beiningar um vetraraksturinn,
þær eru gagnorðar og skýrar.
Þótt þær séu fáar er þar
minnzt á ýmis meginatriði, sem
komið geta í veg fyrir fjölda
slysa. Um þessar mundir hafa
orðið fjölmargir árekstrar
vegna erfiðleika vetrarakst-
ursins, erfiðleika, sem ökumenn
hefir skort bæði leikni og þjálf
un til þess að ráða við. Reynsl-
an sýnir ótvírætt að mörgum
ökumanni mun hollt að kynna
sér þessi mál nokkru nánar og
fara því hér á eftir 6 vetrar-
ökureglur úr almanaki Hag-
tryggingar.
1. Akstur í hálku krefst sér-
stakrar þekkingar og þjálfun-
ar, notið snjódekk og keðjur.
2. Stillið hraða í hóf, hafið
rúmt bil milli bifreiða í akstri.
3. Treystið ekki hemlum í
hálku, notið þá með sérstakri
varúð.
það orð þýðir, þessir læknar
geta aldrei talað mælt mál.
Kannske er þetta nafn á ein
hverri bakteríu. Svo lét lækn-
irinn mig hafa einhverjar tauga
mixtúrur, en ég fann nú lítil
áhrif af þeim, nema hvað mér
fannst ég alltaf verða syfjaðri
eftir að ég tók þær inn.. Nei,
ég hef ekki mikla trú á þess-
um læknum, þó að þeir setji
upp einhvern spekingssvip.
Ég tek vel eftir hlutunum,
frá því ég var krakki hef ég
tekið eftir mörgu, sem aðrir
gefa engan gaum. Þegar ég
var um fermingu kom stór leð-
urblaka á gluggann hjá mér
nótt eftir nótt. Ég varð svo
hræddur, að ég varð að sofa
inni hjá pabba, en þá hætti
leðurblakan að koma. Pabbi
sagði, að þetta væri tóm vit-
leysa, á Islandi væru ekki til
4. Virðið ætíð umferðarrétt
og hafið vakandi auga á veg-
farendum.
5. 1 borgarakstri er heilla-
ráð að gera sér grein fyrir
hvaða leið skuli valin milli á-
fangastaða, áður en lagt er af
stað.
6 Breytið aldrei um akrein
eða akstursstefnu að óyfirveg-
uðu ráði.
Samkvæmt skýrslum lögregl-
unnar verða rúm 20% af bif-
reiðaárekstrum vegna þess að
umferðarréttur er ekki virtur
og tæp 20% orsakast af því að
of stutt bil er á milli bifreiða
í akstri. Ranglega breytt um
akstursstefnu orsakar 10% um-
ferðaróhappanna og of hraður
akstur er lika veigamikil or-
sök árakstra.
1 þessum 6 stuttu atriðum
er því varað við og leiðbeint
um orsakir þess sem valda um
60% umferðaróhappa í vetrar-
akstri. Það er því vel þess virði
fyrir alla ökumenn að kynna
sér þessar fáu en veigamiklu
reglur, varðandi vetrarakstur-
inn.
neinar leðurblökur, þetta væru
bara skuggar. En ég vissi nú
betur, ég sá leðurblökuna svo
greinilega.
Það var eitthvað þremur ár-
um seinna, að ég heyrði andar-
dráttinn undir rúminu mínu.
Þegar ég ætlaði að fara að
sofna á kvöldin heyrði ég hann
greinilega. Stundum var hann
hægur, en stundum komu djúp
sog, og það var eins og korr-
aði í einhverjum.
Ég kallaði stundum á hjálp,
en þegar pabbi kom og skoðaði
undir rúmið, sagði hann að þar
væri ekki neitt, mig hefði bara
dreymt þetta. En þegar hann
var farinn kom andardráttur-
inn stundum aftur. Einu sinni
þegar gekk á þessu, herti ég
upp hugann og gáði undir rúm
ið. Ég sá nú ekki neitt greini-
lega, en þó fannst mér bregða
fyrir skugga eins og eitthvað
væri að skjótast undan rúm-
inu. Þetta hætti ekki fyrr en
ég fékk mér annað rúm.
Þetta var ekki skemmtilegt
með leðurblökuna og andar-
dráttinn, en núna finnst mér
það bara barnaleikur á móts
við það, sem er undir koddan-
uni mínum. Það er núna rúmur
mánuður síðan ég tók fyrst
eftir þessu. Þegar ég var lagzt-
ur út af eitt kvöldlð fann ég
ekki betur en að eitthvað væri
að iða undir koddanum. Ég var
ekki mjög hræddur fyrst og
gáði undir koddann, en gat ekki
séð neitt þar. Ég varð ekki var
við meira það kvöldið. En
næsta kvöld fann ég aftur að
það var eitthvað á seyði undir
koddanum. Hann fór aftur að
iða, og það var eins og verið
væri að muldra eitthvað undir
honum. Stundum var eins og
þetta hljóð væri langt niðri,
stundum fannst mér það vera
alveg við eyrað á mér. Og ég
gat ekki áttað mig á þessu
hljóði. Mér fannst það ólíkt
öllu, sem ég hafði áður heyrt.
Stundum fannst mér það einna
líkast muldri í manni með
djúpa bassarödd, en oftar
fannst mér það þó líkast hljóði
í einhverju dýri, þó ekki neinu
dýri, sem ég hafði áður þekkt.
Eftir því sem lengra leið varð
ég æ sannfærðari nm, að þetta
væri eitthvert dýr. Mér fannst
ég líka stundum finna lyktina
af dýrinu, ramma, annarlega
og framandi. Þegar ég gáði und
ir koddann sá ég ekki neitt, en
þó fannst mér dýrið vera á-
fram á næstu grösum. Þegar
ég var aftur lagztur á kodd-
ann, byrjaði það oftast að
muldra að nýju. Eins og nærri
má geta svaf ég ekki vel við
þessar aðstæður, en ég hafði á-
kveðið að reyna að harka þetta
af mér. Stundum var ég að
hugsa um að fá mér annan
kodda, en ég lét ekki verða af
því.
Einn morguninn þegar ég
skoðaði undir koddann, fann ég
langt brúnt hár undir honum.
Mér fannst ég aldrei hafa séð
svona hár áður, en pabbi bara
hló, og sagði að þetta væri hár
af mér sjálfum. Eg sagði ekki
margt, en ég var svo sem ekki
í neinum vafa um það, hvaðan
hárið væri komið. Ég fann, að
það var af því sama undarlega
lyktin og ég hafði stundum áð-
ur fundið undan koddanum. Eg
sagði taugalækninum frá þessu
með hárið, en hann fór bara
aftur að rausa um þessar hall-
úsínasjónir. Læknar skilja ekki
neitt, eins og ég hef alltaf sagt.
Næstu nótt var dýrið hávær-
ara en nokkru sinni fyrr. Mér
fannst hljóðið í því, hljóta að
heyrast um allt húsið. Og það
var alltaf að kippast til undir
koddanum, stundum svo harka-
lega, að það brakaði í höfða-
gaflinum. Og lyktin af því var
svo römm, að ég nærri því tók
andköf. Loksins stóðst ég ekki
mátið lengur. Eg kveikti ekki
en ég rak höndina langt inn
undir koddann. Og samstundis
rak ég upp hátt skelfingarvein,
að mér er sagt, að það hafi
heyrzt í næstu hús. Eg rak
höndina í eitthvað kafloðið og
iðandi og um leið magnaðist
muldrið um allan helming, það
fyllti herbergið eins og foss-
niður eða brimhljóð. Pabbi kom
þjótandi inn og spurði, hvað
gengi á.
„Sjáðu!“ hrópaði ég. „Sjáðu
undir koddann. Það er þar dýr-
ið, voðalega, ég var að reka
höndina í það."
En þegar pabbi kveikti og
skoðaði undir koddann var ekk-
ert að sjá, og muldrið var horf
ið. Lyktin af dýrinu var ennþá
megn, en pabbi sagðist alls
ekki finna hana. Hann sagði,
að þetta væri bara martröð. En
ég var nú ekki á því. Hræðslan
rann ekki af mér í þetta skipti,
þvert á móti ágerðist hún, því
að ég vissi vel, að dýrið myndi
koma aftur. Eg settist í stól,
og pabbi varð að halda í hönd-
ina á mér, það sem eftir var
næiur, ef hann sleppti hendinni
fór ég að hljóða óskaplega. Og
mér fannst höndin vera dofin
og tilfinningarlaus, þar sem
hún hafði snert dýrið.
Um morguninn kom tauga-
læknirinn. Hann vildi láta mig
segja sér eitthvað meira um
dýrið og lézt trúa því, að það
væri til, en ég vissi vel að það
var allt bara plat. Það halda
allir, að þetta roeð dýrið sé
bara vitleysa og ímyndun í mér,
en ég veit nú betur. Dýrið er
jafn raunverulegt og stóllinn,
sem ég sit á og þetta dýr er
það voðalegasta, sem til er í
allri tilverunni. Ég veit ekki
hvers vegna það fór að búa
einmitt undir koddanum mín-
um.
Nú er búið að láta mig á
Klepp. Það er auðvitað tauga-
læknirinn, sem stendur á bak
við það, ég vissi alltaf, að hann
trúði ekki þessu með dýrið. Ég
er ákaflega órólegur, ég er svo
hræddur um að dýrið elti mig
hingað og komi líka undir kodd-
ann minn hérna.
Mysticus
Framhald af 2. síðu.
RITFÆRNI FRAKKA
Frakkar urðu leiðtogar meðal
endurreisnarríkjanna að taka
upp samfellda sókn í veraldleg-
um og andlegum málum. 1 bók-
menntum og allri meðferð tung-
unnar. Þeir hafa aldrei látið
það merki falla. Frakkar unna
og dásama tungu sína og hver
ný kynslóð tekur við af annarri
þegar hlynna skal að frönsku
máli. Stórar bylgjur og sumar
geigvænlegar hafa risið í
frönsku þjóðlífi. Þar hermir
sagan frá stóram ósigrum og
miklu veraldargengi. En frönsk
tunga hefur að baki sér ó-
skipta og heilhuga þjóð. Segja
má að þjóðin sé svo einhuga í
þessu efni að gert sé ráð fyrir
að í einkabréfum manna eða
fréttadálkum blaðanna sé leit-
azt við að vel ritfær maður sé
hvarvetna að verki.
Norrænu þjóðirnar, frændur
okkar, hafa ve rið líkt settir og
latnesku þjóðirnar. Hin sterku
LÁRÉTT:
1 Svefn
5 Ósaðin
8 Tófu
9 Hæð
10 Hestur
11 Hár
12 Tengdur
14 Málmur
15 Blóm
18 Verzlunarmál
20 Söngur
21 Mun
22 Hæð
24 Vclk
26 Byklija
28 Æða
29 Vondur
kynni norrænu þjóðanna við
Þýzkaland, sem var óeðlflega
lengi án sjálfstæðra bók-
mennta, leiddi til norrrænnar
hjálendu aðstöðu í þessum efn-
um. Það var Holberg skáld,
sem gekk fýrstur Skandinava
fram á vígvöllinn og byrjaði
að móta sjálfstæðar bókmennt-
ir, norrænar að orðfæri, eins
og málum var nú komið, en
franskar að tækni. Frændþjóðir
Islendinga hafa fram eftir árum
fetað í spor Holbergs, en aldrei
getað náð fótfestu í sambandi
við uppruna sinn.
Það er gæfa Islendinga að
hafa á þúsund ára ferli aldrei
villst af leiðum feðra sinna og
mæðra. Skylda hinna ungu Is-
lendinga er að nema sér til
aukins manndóms, af sögu og
uppeldisháttum forfeðranna.
Vel má vera að Islendingum
kunni að henta að kynnast
nokkuð málvöndun og málfág-
un þeirrar erlendu þjóðar, sem
mesta og fullkomnasta reynslu
hefur í þessu efni.
LÓÐRÉTT:
1 Logandi
2 Lítur í bók
3 Þakskegg
4 Umdæmisstafir
5 Sleipir
6 Upphafsstafir
7 Tilfinning
9 Flúðir
13 Veiðarfæri
17 Lækurinn
19 Söfnun
21 Húsdýr
23 Heimskaut
25 Meiðsli
27 Ósamstæðir
ATHUGIÐ!
Þeir sem þurfa að koma auglýs-
ingum eða öðru efni í Mánudags-
blaðið — þurfa að koma því til
ritstj. í síðasta lagi á miðviku-
dag næstan á undan útkomudegi
blaðsins.
Umferiaralmanak
SÖLUBÖRN
Mánudagsblaðið vantar söluböm, sem búa
í úthverfumim.
Blaðið verður sent til þeirra sem óska.
MANUDAGSBLAÐIÐ
— Sími 13975 — 13496.
KR0SSGÁTAN
30 Sjór