Mánudagsblaðið - 07.02.1966, Qupperneq 5
Mánudagsblaðið
5
FRAMHALDSSAGA
STOUN
60Ð
EFTIR E PHILLIPS
OPPENHEIM 18
að spyrja, hvað ráðið hefur val
inu ?“
„Eg ímynda mér, að tilviljun
hafi ráðið mestu um það,“ svar
aði herra Johnson. „Mig lang-
aði að setjast að í Englandi um
hríð, og öllum, sem ég talaði
við, kom saman um, að Nor-
folk væri ákjósanlegur staður.“
1 þessu bili kom Gregory inn.
„Þettat, er sonur minn, Gre-
gory,“ sagði Sir Bertram. „Gre-
gory, þetta er nýi leigjandinn
okkar, herra Johnson.“
„Það gleður mig að kynnast
yður,“ sagði herra Johnson.
En Gregory var sem þrumu
lostinn. Þessi maður, sem rétti
honum höndina og lét eins og
hann hefði aldrei seð hann
fyrr, gat það verið sami mað-
urinn, sem einu sinni hafði
bjargað honum úr klóm Wu
Abst, kínverska sjóræningjans.
Þá hafði hann verið í kínversk
um búningi og samið sig að
háttum Kínverja, þótt ekki
væri hann með fléttu. „Eg
tala lítið í ensku, hafði hann
sagt, en ég skil allt.“ Það var
varla um að villast og þó —
„Vissulega höfum við hitzt
áður?“ sagði hann að lokum.
Herra Johnson hristi höfuð-
ið hægt, eins og hann væri að
reyna að koma honum fyrir
sig.
„Ekki svo ég muni,“ sagði
hann svo.
Aftur varð stutt þögn. Undr-
unarsvipurinn hvarf ekki af
andliti Gregorys, en um síðir
rétti hann hinum höndina.
,,Eg bið yður að afsaka þenn
an álfaskap minn,“ sagði hann
kurteislega. „En ég er enn hálf
ruglaður. Hittumst við áreiðan-
lega ekki fyrir hálfu öðru ári
í Kína — Wu Ling — fyrir-
tækið Johnson og Co.“
Gesturinn hristi höfuðið.
Hann brosti góðlátlega, en
skarpskyggn athugandi mundi
hafa kallað brosið tvírætt.
„Þér villist á mér og einhverj
um öðrum,“ sagði hann hæ-
versklega, „ég heiti vissulega
Johnson, en það er ekki óal-
gengt nafn, og ég er alveg
viss um, að þetta er fyrsta
skiptið, sem við höfum hitzt.“
„Þá er það misminni hjá mér“,
sagði Gregory og reyndi að
láta sem ekkert væri. „Leyfið
mér að bjóða yður velkominn,
herra Johnson. Rawson,“ sagði
hann við þjóninn, „láttu mig
fá glas af sherry. Mér veitir
sannarlega ekki af því"!
„Eg sagði syni mínum í
morgun," sagði Sir Bertram,
eft'. að þeir voru setztir að
borðum, „að ég teldi það mjög
ámælisvert af umboðsmanni
okkar, herra Burroughs, að
hafa ekki sagt yður, áður en
þér tókuð stóra húsið á leigu,
hvað þar hefði gerzt ekki alls
fyrir löngu.“
„Já, ef til vill hefði það verið
betra,“ sagði herra Johnson.
„Samt sem áður hefði það engu
breytt um þá ákvörðun mína
að setjast hér að. En vel á
minnzt, höfðuð þér nokkur per-
sónuleg kynni af þessum fyrir-
rennara mínum, sem hlaut svo
sorgleg afdrif."
„Við vorum málkunnugir,“
sagði Sir Bertram, „en kunn-
ingsskapurinn náði aldrei
lengra en gengur og gerist
milli nágranna. En ef hann
hefði ekki látizt svo snögglega,
hefðum við sennilega kynnzt
betur. Svo vill til, að herra
Endacott var bróðir gamallar
vinkonu minnar, de Fourgenet
greifafrúr, sem á heima í Litla
húsinu. Það var þess vegna, að
ég held, að hann kaus að setj-
ast að í nágrenninu.“
„Og var ekki frænka hans í
fylgd með honum?“ spurði
herra Johnson.
„Jú, mjög aðlaðandi stúlka,“
svaraði Sir Bertram. „Vitaskuld
fór hún héðan skömmu síðar.
En mér skilst, að búizt sé við
henni í heimsókn innan
skamms.“
Borðhaldinu var að ljúka.
Dýrindis portvín, gamalt, var
borið fram og drukkið að
mestu í þögn. Sir Bertram stóð
á fætur.
Við skulum flytja okkur inn
í bókaherbergið, herra John-
son,“ sagði hann. ,Þar eru
vindlar og kaffi.“
Þeir gengu saman út úr her-
berginu. Gestur dagsins skoðaði
með áhuga öll listaverkin, sem
voru á leið þeirra gegnum for-
salinn. Gregory beindi athygli
hans að frægu málverki á
veggnum gegnt stiganum og
tafði hann þar, þangað til þeir
urðu um stund viðskila við Sir
Bertram og Henry.
„Ég verð að spyrja yður enn
einu sinni,“ sagði hann lágt, en
með ákefð. „Eg verð að spyrja
yður að þessu, herra Johnson.
Munið þér eftir manni — hug-
rökkum manni, því það var
hann — sem verzlaði upp eftir
Yun-Tse fljótinu meðal þorps-
búanna ?. Wu Ling kölluðu þeir
hann ?“
„Wu Ling?“ endurtók herra
Johnson. „Kínverji?"
„Hann vildi svo vera láta,“
sagðí Gregory. „En hann hefði
getað verið allra þjóða kvik-
indi. Hann hefði jafnvel getað
heitið Johnson.“
Leigjandi Stóra hússins brosti
góðlátlega.
„Wu Ling,“ sagði hann, „er
mjög fallegt nafn. En yfirleitt
tek ég þó mitt eigið nafn fram-
yfir. Mitt er og hefur alltaf ver
ið Johnson — Peter Johnson —
Peter Johnson frá New York.“
Gregory gekk á undan inn í
bókaherbergið. Honum fannst
það auðheyrt á öllu, að meira
væri ekki upp úr herra John-
son að hafa.
„Afsakið," sagði hann. „Yf-
irleitt er ég mannglöggur, og
ég diélt mér gæti ekki skjátl-
azt í þessu. En það gleður mig
að heyra, að við séum nágrann-
ar, herra Johnson. Hér er fað
ir minn og bróðir hans.“
Þeir drukku kaffi og ræddu
saman um stund, en síðan stóð
Henry Ballaston upp og bauð
þeim að koma inn í minna bóka-
herbergið. þar sem hann hafði
aðsetur.
„Þetta er nú helgidómurinn
minn“, sagði hann hróðugur.
„Bróðir minn lætur mig hafa
umsjón með öllu, sem viðvíkur
rekstri Ballástoneignanna og hér
afgreiði ég málin, áður en ég
fæ þau f hendur herra Burro-
ughs, umboðsmanni okkar.“
Gesturinn litaðist forvitnislega
um. Hátt var til lofts, en lít-
ið um fburð, bókahi'liur meðfram
veggjunum og öðru megin við
gluggann óvenjustórt skrifborð.
Hinumegin, á hillu sem felld
hafði verið inn í vegginn, stóð
falleg kínversk skál, full af
rauðum rósum. Sín hvoru meg-
in við skálina — Líkami og Sál.
Hr. Johnson horfði af annarri
myndinni á hina — hljóður,
svipbreytingalaus, niðursokkinn
1 sínar eigin hugsanir. Allir
heimsins lestir og vonzka glottu
til hans frá myndinni til vinstri
við þessar drúpandi rósir; en frá
myndirini tií1 hægri, var sem
andaði heilagur góðvilji og frið-
1 ur. Hr. Johnson mælti ekki orð,
hreyfði ekki neinni gagnrýni,
en þögn hans var mælsk á sinn ;
hátt.
Gregory hafði ekki augun af
honum og grunaði margt. Það
var Henry Ballaston, sem rauf
þögnipa.
„Yður finnst þessar litlu
Búddamyndir okkar merkilegar,
herra Johnson?" spurði hann.
En það var eins og herra
Johnson heyrði ekki til hans.
„Báðar héma!“ tautaði hann
fyrir munni sér. ,,Báðar!“
„Báðar?“ hváði Sir Bertram.
Herra Johnson ránkaði við
sér.
„Heyrið þið nú“, sagði hann.
„Þessar myndir eru áreiðanlega
mjög verðmætar. Ég sá myndir
af þeim, þegar ég var á ferð
um Austurlönd. Þeim var stoliö
úr musteri, einhversstaðar í
Kína, ef ég man rétt. Þetta eru
Búddamyndir, er það ekki?“
„Stolið!" tautaði Sir Bertram.
„Stolið!" endurtók Gregory.
„Þetta er mjög fróðlegt að
heyra“, sagði Hetiry. ,,Þær kom-
ust í okkar eigi á mjög óvenju
legan hátt. En þér haldið, að
ui phaflega hafi þeim líklega
verið stolið".
„Ég er nokkurn veginn viss
um það,“ sagði hr. Johnson. „Ég
sá Ijósmynd af þeim f amerísku
tímariti fyrir um það bil ári.
Þá stóð risastór Búddamynd
milli þeirra. Þar stóð, að þeim
hefði verið stolið, og að þær
af einhverjum ástæðum, væru
óhemju verðmætar. Það var ung-
ur Ameríkani, sem rændi þeim
úr musterinu, en hann fannst
skorinn á háls í lestinni frá
Peking suður á bóginn. Enginn
virtist vita, hvar myndimar
væru niðurkomnar".
Þeim létti brœðrunum, Sir
Bertram og Henry, en Grégory
var enn á báðum áttum.
„Það er víst óhætt að segja,
að þessum myndum hafi ekki
verið stolið," sagði Henry. „Okk
ur áskotnuðust þær á þann hátt,
að slíkt væri útilokað. En sagan
er mjög fróðleg“.
Hr. Johnson sneri sér frá, án
þess að svara. Meira var ekki
rætt um myndimar. Þeir sýndu
honum nokkra fleiri dýrgripi
ættarinnar, og stundu síðar
kvaddi hann og fór.
„Ösköp venjulegur, náungi“
sagði Sir Bretram, „og meinlaus,
held ég“.
„Já, það komu þær stundir,
að ég hélt annað“, sagði bróðir
hans, ,,en yfirleitt er mér nær
að halda að svo sé“.
Gregory vissi ekki, hvað hann
átti að halda. Hann horfði á
eftir bílnum, þangað til hann
var kominn í hvarf, en gekk
svo á eftir hinum inn i húsið.
19. KAPÍTULI
Lögreglustjórinn var við og
tók herra' Johnson með mestu
virktum.
„Ég heiti Holmes“, sagði hann
og leit á nafnspjaldið, sem hann
hélt á í hendinni. „Hvað get ég
gert fyrir yður, herra John-
son?“
,,Ég er nýseztur hér að og hef
tekið Stóra húsið á leigu“.
„Stóra húsið! Já, einmitt. Svo
þér búið þar. Það er ekki langt
síðan þar varð sorglegt óhapp,
sem kostaði okkur mikinn tíma
og fyrirhöfn“.
„Svo er mér sagt,“ tautaði
hr. Johnson.
Lögreglustjórinn hallaði sér
aftur á bak í stólnum.
„Því miður verð ég að játa,
að þarna bættist Norfolklögregl-
unni mál, sem henni hefur ekki
tekizt að leysa. En við tökum
það ekki mjög nærri okkur, þvi
Scotland Yard tók að sér mál-
ið stuttu eftir að glæpurinn
var framinn". ,
„En ég ímynda mér“, sagði
herra Johnson, „að ykkur þætti
*
töluverð fremd í að upplýsa
mál, sem Scotland Yard hefur
orðið að hverfa frá.“
Lögreglustjórinn virti hann
fyrir sér efablandinn.
„Komið þér með nýjar upp-
lýsingar?“ spurði hann.
„Holmes“, sagði hr. Johnson.
,,Ég verð að biðja yður að skoða
sem trúnaðarmál allt það, sem
ég nú segi yður og ekki kemur
glæpnum beinlínis við“.
„Vitaskuld".
„Sá sem myrtur var, Etndacott,
og ég höfðum saman félag um
mjög stórt fyrirtæki, sem hafði
bækistöðvar í Kína, Alexandríu
og New York. Ég stofriaði það
fyrir tuttugu • érum, en síðustu
tfu árin rákum við það í sam-
einingu. Fyrir um það bil ári
leystum við það upp, og hann
sneri aftur til Englands vellauð-
ugur“.
..Voruð þér félagi hans?“
spurði lögréglustjórinn undrandi.
„Hér í nágrenninu véit enginn
neitt um samband mitt við
Endacott" hélt herra Johnson á-
fram. „Ég hef haldið því leyndu.
En nú er ég kominn að þeim
upplýsingum, sem ég get i té
látið. Um ‘ það bil mánuði áður
en Endacott fór frá 'Austurlönd-
um, var kínverskt musteri í
nánd við Peking rænt, og stolið
þaðan tveim hkneskjum úr tré,
en þau áttu sér undarlega sögu.
Tveir ungir menn frömdu rán-
ið — annar var Englendingur,
hinn Ameríkani. Ameríkumað-
urinn komst upp í jámbrautar-
lest. Stigamenn gerðu árás á
lestina og myrtu Ameríkanann,
en önnur myndin komst á ákvörð
unarstað. Englendingurinn var.
gripinn ' af musterisprestunum,
en þeir, samkvæmt trú sinnt,
mega ekki úthella blóði. svo þeir
seldu hann í hendur alræmds
sjóræningja með fyrirmælum
um, að honum skyldi fleygt fyrir
krókódíla. Ég heyrði söguna.
þegar ég var í verzlunarerindum
upp með Yung-Tse-ánni, og ég
bjargaði honum úr höndum
ræningjans og flutti hann niður
að ströndinni. Þessi ungi maður
var Gregory Ballaston.“
„Greg Ballaston," hrópaði lög
reglustjórinn upp. „Hamingjan
góða!“
„Hr. Gregory Ballston,“ hélt
sögumaður áfram, ,,fann mynd-
ina síná heila í gufuskipinu sem
hann ætlaði með til Englands,
þótt félagi hans væri dauður.
Hin myndin, sem ræningjamir
höfðu haft á brott með sért
kómst í mínar hendur, eftir ó-
bein viðskipti við þá. Ég sýndi
hr. Ballaston hana í vöruhúsinu
mínu. Hann ágimtist hana. Sam-
kvæmt hinni gömlu hjátrú, var
hans mynd án minnar gagns-
laus“.
„Gagnslaus til hvers?“ spurði
lögreglustjórinn undrandi.
„Gagnslaus vegna þess aS
báðar áttu að hafa að geyma
gimsteinasafn, sem tilheyrði
musterinu. Éf ég reyndi að skýra
þetta frekar, munduð þér halda
að ég væri að segja yður ævin-
týri. Ég læt mér því nægja að
segja, að samkvæmt gamalli
þjóðtrú, sem margir hafa lagt
trúnað á, sem til þekkja, var
önnur myndin gagnslaite, ef mað-
ur hafði ekki hina. Gregory
Ballaston fór til Englands og tók
með sér sína mynd. Þegar við
Ralph Endaoott leystum upp fyr-
irtækið, tók Ralph hina mynd-
ina með sér, ásamt ýmsum
gömlum handritum frá muster-
inu, sem komizt höfðu í okkar
hendur. AHt þar til er hann
var myrtur, eða að minnsta kosti
þar til fáum dögum áður, stóð
þessi mynd í bókaherbergi hans,
þar sem hann fannst skotinn.
Nú er þessi mynd í Ballaston-
höll“.
Holmes lögreglustjóri sat um
stund þögull og hugsi. Það var
tæplega að undra, þótt hann
væri vantrúaður á þessa sögu!
„Þetta er mjög kynleg saga,
sem þér hafið sagt mér, herra
Johnson“, sagði hann um síðir.
„Já, hún er sannarlega mjög
óvenjuleg“, svaraði hinn. ,,En
þér getið auðveldlega sannpróf-
að ýmis atriði í frásögn minni.
Til dæmis get ég vísað yður á
bankann minn f Londom en þar
munu þeir staðfesta, að ég var
forstjóri fyrirtækisins, sem En-
dacott var með mér í, og að ég
sé auðugur maður og velkunn-
ur og hafi aðstöðu til að vita.
hvað ég er að fara f þessum
málum. Það lá við að Gregory
Ballaston þekkti mig aftur, en
þar eð ég hafði í Kína samið
mig að háttum innfæddra, var
hann ekki viss í sinni sök. Ég
tamdi mér mjög snemma kín-
verska siðu og kínverskan klæða-
burð, því að það er eina leið-
in fyrir Vesturlandamenn til að
ná árangri í viðskiptum við
Kínverja inni í landinu.
Ég ber alls ekki illan hug
til þessa unga manns, Gregory
Ballaston — satt að segja ermér
fremur vel við hann — en En-
dacott var félagi minn og ég ber
ábyrgð á, að myndin lenti f
hans vörzlu“.
TILKYNNINC
Athygli innflytjenda skal hér með vakin á því, að sam-
kvæmt auglýsingu viðskiptamálaráðuneytisins dags.
21. janúar 1966, sem birtist í 6. tölublaði Lögbirtinga-
blaðsins 1966, fer fyrsta úthlutun gjaldeyris- og/eða
innflutningsleyfa árið 1966 fyrir þeim innflutnnigs-
kvótum sem taldir eru i auglýsingunni, fram í febrú-
ar 1966.
Umsóknir um þá úthlutun skulu hafa borizt Lands-
banka Islands eða Utvegsbanka Islands fyrir 15. febrú-
ar n.k.
LANDSBANKI ISLANDS
ÚTVEGSBANKI ISLANDS
1