Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 21.02.1966, Síða 6

Mánudagsblaðið - 21.02.1966, Síða 6
ÚR EINU í ANNAÐ Myntvitleysan í blöðunum — Pólitíið vaknar — Matur og leikfimi barna — Landkaup erlendis — Sprautuð kvenbrjóst — Bond og Tónabíó — Fleiri bannfélög. Flestum finnst heldur hvimleiður sá siður íslenzku dag- blaðanna að vera í tíma og ótíma að skýra frá peninga- málum bæði á t.d. sænsku og íslenzku. Sjö milljónir ís- lenzkar verða að 900.000 sænskum og sterlingspund og dollurum er jafnan breytt í íslenzkar upphæðir. Þetta er nú orðið með öllu ónauðsynlegt við skandinaviska gjald- eyrinn, sem við þekkjum, svo og flestar myntir í Vestur- Evrópu. Auk þess er þetta hálf klaufalegt. Jæja, seint kom að því en þó loksins. Lögregluþjónar hafa nú samþykkt, eins og Mánudagsblaðið hefur jafnan haldið fram, að laun þeirra séu svo lágkúruleg, að ekki fáist nýtur maður í „jobbið“ lengur og löggæzlan því al- gjörlega ófullnægjandi. Hið opinbera ætti að gera sér ljóst, að það er þjóðamauðsyn, svo ekki sé talað um höf- uðstaðinn, að hafa sterkt, nægilega fjölmennt og öruggt lögreglulið. Allar borgir hafa séð þetta, en hér hafa lög- reglumenn jafnan orðið að stunda einhverja líkamlega í- hlaupavinnu til að láta enda mætast. Vonandi verða laun þessarra manna þegar hækkuð, og þannig loku skotið fyr- ir óánægju um leið og starfið verður aðlaðandi fyrir nýja lögregluþjóna. Er það mjög hollt fyrir barnaskólakrakka, að þau séu í skólatímum til hádegis, en síðan látin skreppa heim að éta og beint í leikfimi klukkan eitt? Einhvem tíma var talið óhollt að reyna mikið á sig strax að lokinni máltíð, en máske hefur íþróttaráðgjafinn okkar aðra skoðuií á þessu máli. Krakkarnir, sumir, verða að gleypa í sig mat- inn, grípa leikfimiföt sin og vera mætt aftur í skólanum. Þetta hlýtur að vera voða hoilt. Það er dálítið spánskt þegar við birtum auglýsingar í dagblöðum um að kaupa sér landspildu í sólríkum Suður- löndum en ætlum svo vitlausir að verða detti útlendingi í hug að næja sér í kot hér heima. Það er sjálfsagt fyrir þá sem geta að ná sér í smáspildu í hitabeltinu, en hví mega ekki þeir sem hér vilja kaupa land kaupa það? Þess- ar öfgar og vandræða mikilmennska hjá okkur er að gera okkur að undri, enda ræðir Kakali þetta í pistli sínum í dag. Eins og kunnugt er láta sumar stúlkur sprauta efnum í brjóst sér til að þau sýnist stærri og meira sex-ý. 1 út- lenzku blaði láum við nú, að galli er á gjöf Njarðar, þvi oft vill svo til að efnið blæs út allsstaðar nema i brjóst- unum. Koma einskonar Kamel-hnúðar út á ólíklegustu stöðum, stúlkum þessum til skiljanlegs hugarangurs. Ein fékk t.d. feikna kúlu á magann og aðra á síðuna en önn- ur fékk „aukabrjóst". En — hvað er ekki gert til að heilla karlmennina ? Fer ekki að líða að því, að Tónabíó standi við orð sin og fari að sýna nýja James Bond-mynd; þær ágætu mynd- ir sem þegar hafa verið framleiddar hafa vonum engra brugðizt, en Tónabíó hefur aðeins fengið eina. Bíóið hafði á orði þegar það auglýsti síðustu mynd að önnur væri væntanleg, og við, fylgismenn Bonds og æfintýra hans þykjumst illa sviknir ef bíóið bregzt okkur. Segið svo, að ekki séu líka menningarsnobbar á Islandi. Okkur hefur meira en dottið í hug hvort ekki megi stofna vemdarfélag gegn ofáti, mjólkurdrykkju eða öðr- um skaðlegum venjum mannskepnunnar. Árlega drepa milljónir sig vegna ofáts og myndi þetta félag hafa það stefnumark að takmarka allar tegundir fæðu, sem geta valdið fitu. Við höfum krabbameinsfélög, hjarta- og æða- sjúkdómafélög, bannfélög og enn fleiri félög, sem vilja banna reykingar, vinneyzlu, frjálst val í hverri mynd sem hugsazt getur. Hvernig fyrri kynslóðir Islendinga höfðu þetta af án þessara félaga er óskiljanlegt. Myndu verða fjörugir fundir í sliiku félagi t.d. þegar kartöflusinnar ættust við rófusinna eða saltfiskmenn gegn skötudýrkend- um. Hví ekki stofna enn eitt bannfélagið? * Sjónvarpið þessa viku Sunnudagur 1600 Chapel of the Air 1630 Golf 1730 Where the Action Is 1800 Disney 1900 News 1915 The Christophers 1930 Bonanza 2030 Sunday Special 2130 Ed Sullivan 2230 News 2245 „Cosmic Monsters“ Forrest Tucker, Gaby Andre Mánudagur 1700 Robin Hood 1730 To Tell the Truth 1800 King Family 1830 Shotgun Slade 1900 News 1930 My Favorite Martian 2000 Survival 2030 Danny Kaye 2130 Riverboat 2230 News 2245 The Tonight Show Þriðjudagur 1700 „Charter Pilot“ Lloyd No- lan, Lynn Bari 1830 M-Squad 1900 News 1930 Andy Griffith 2000 Red Skelton 2100 Assignment Underwater 2130 Combat Gestur Richard Basehart (Admiral Nelson) 2230 News 2245 Lawrence Welk Miðvikudagur 1700 High Road to Danger 1730 F. D. Roosevelt 1800 Shindig 1900 News 1930 Dick Van Dyke 2000 Language in Action 2030 Hollywood Palace Milton Berke, Ceasar Rom- ero, Liberace 2130 Voyage to the Bottom of the Sea 2230 News 2245 „Rembrandt“ Charles Laughton, Elsa Lanchaster, Gertrude Lawrence (kona Laughtons heitins). Fimmtudagur 1700 Sjá sunnudagur kl. 11 1830 Beverly Hillbillies 1900 News 1930 Ben Casey 2030 The Greatest Show on Earth 2130 B'ell Telephone Hour 2230 News 2245 Sjá þriðjudagur kl. 5. Föstudagur 1700 Dobi? Gillis 1730 I’ve Got a Secret 1800 The Third Man 1830 Fractured Flickers 1900 News 1930 Jimmy Dean 2030 Rawhide 2130 Wrestling 2230 News 2245 „Secret of Convict Lake“ Glenn Ford, Gene Tierney, Zachary Scott, Ethel Barry- more Laugardagur 1330 Kiddies’ Corner 1500 Sports 1730 G. E. College Bowl 1800 Men into Space 1830 Ted Mack 1900 News 1915 Telenews 1930 Perry Mason 2030 Gunsmoke 2130 Twelve o’clock High 2230 News 2245 „Bond Street" Jean Kent, Kathleen Harrison, Hazel Court, Roland Young Blaðið tekur enga ábyrgð á dagskrár- breytingum. Mánudagur 21. febrúar 1966 Saltaustur á göturnar kostar borgar- búa miljónir í bíla og skótjóni Löngu úrelt aðíerð — Bönnuð í flestum borgum — Efndir, en ekki loforðin ein. Undanfarin ár hafa tugir milljóna farið í súginn vegna þeirr- ar firáleitu ákvörðunar borgaryfirvaldanna að ausa salti á göt- ur höfuðstaðarins þegar snjó Ieggur. I hálkú og snjó fara bif- reiðir borgarinnar öslandi úm götumar og bera salt á þser í þeim tilgangi að hefta slys á mönnum og árekstra bifreiða. Á- burðtir þessi geriir sitt gagn, en skemmdir þær sem hann veld- ur á bifreiðum eru í senn geypilegar og ónauðsynlegar. Arangur í umferS- armálum? Það væri gaman að fá úr þt'í Ieyst hvort umferðarnefnd — eftir allt slysabramboltið — er nú búin að missa með öllu áhugann á eftirliti með notk- un stefnuljósa? Það er algjörlega orðið ó- hætt að aka án þessara ljósa. Þá vekur athygli, að umræður hafa dottið alveg niður eftir hamaganginn mikla og árang- ur vissulega orðinn enginn nema sá, að blaðafulltrúinn er búinn að fá bílastyrk til að líma miða á bíla utan veitinga- staða á nóttum. Það hefði átt að láta hærra. Bílstjóri. Raunir sjón- Framhald af 1. síðu. varpsins veitingalöggjöfin skipar fyrir, að ekki megi veita drukknum vín, og geti slíkt brot valdið leyfismissi. Svo lengi má brýna deigt járn, að það bíti, og ein- hvemtíma missa menn þolin- mæðina og snúa sér til lög- regluyfirvaldanna og krefjast aðgerða. En það er óþarfi að bíða svo lengi. Uppivöðslulýður á veitingahúsum Framhald af 1. síðu. horfin úr Waage-ættinni né hin um útblásnu íþróttamönnum hljómsveitarinnar. Verður nú sjónvarpið að „bíta í það súra epli“, eins og Egill bóndi Skalla grímsson á Borg sagði forðum, að enn sem komið er þá hefur það ekki aðrar myndir en þær, sem Vilhjálmur Þ. Gíslason hefur annaðhvort leikið í eða stjórnað. SALT BANNAÐ YTRA 1 höfuðborgum ýmissa landa m.a. í Danmörku er í líkum til- fellum og þessum, borið á göt- urnar sérstakt efni, smámul- inn sandur sem gerir nákvæm- lega sama gagnið og saltið hér en skemmir hvorki bifreiðír né eyðileggur skófatnað. bæði úreltar og kosta miljónir beint úr vasa borgaranna. Bíl- ar ryðga, vegna þess að saltið smígúr alltaf inn. Skótau hvítn- ar og eyðileggst og ýmsar vél- ar stórskemmast þegar frost eru tíð og hlákur. UMBÆTUR VINSÆLDIR OG AFKÖST Fyrir nokkrum árum var mál þetta rætt hér í blaðinu en þá hafði meirihlutinn tíu full- trúa, og auðvitað kom ekki verkstjórum hennar eða þeim vitskepnum, sem öllu verklegu stýra þar, til hugar að taka hið minnsta tillit til þessara stað- reynda. I ár er meirihlutaað- staðan ekki eins góð og ef álits hnakkir íhaldsins í borgar- stjórninni verður eitthvað álíka og hann er nú á þingi, verður öryggið ekki eins mikið að lokn um kosningum. Taka verður þó fram, að enn er álitið á þing- flokki oð ráðherrum flokksins langtum neðar því, en verið hefur síðustu áratugi, en Geir heldur víða velli og vel það í borgarstjórn. MILLJÓNATJÓN Það kostar borgaryfirvöldin lítinn pening að sannfærast um að þær aldamóta- og skemmdar aðferðir sem ábyrgir menn í götuáburði hafa leyft sér eru Það væri fróðlegt að vita hvoi't borgarstjórinn vill gera nokkrar þær ráðstafanir sem duga munu í þessu sambandi. Við vitum, að það er aðeins fyrir kosningar að hægt er að vonast eftir umbótum, en þau fjögur ár, sem á milli líða. er daufheyrzt við öllu slíku. Nú- verandi borgarstjóri hefur vissu lega látið til sín taka úm mörg ágætismál, sem fyrirrennari hans svaf á, en flestir trúa ekki fyrr en tekið er á. TÍMI TIL . . . r.u *•>'* rvr^'r" Það er skýlaus krafa hins al- menna borgara, að þegar verði gerðar ráðstafanir til að bæta úr þessum saltaustri. Ryðbæt- ingar bíla er kostnaðarsamur liður og skótauið ekki gefið. Borgin getur ekki látið ein- hverja lubba í þjónustu sinni ár eftir ár ausa þessum óþverra á göturnar og ætlazt til þess að þvi sé tekið með þökkum. Væntanlega verður breyting á þessu hið fyrsta. Endasprettur Gamanleikurinn Endasprettur hefur nú verið sýndur 18 sinnum í Þjóðleikhúsinu og verður næsta sýning leiksins á sunnudagskvöld. Þorsteinn Ö. Stephensen leikur aðalhluverk leiksins og hefujr hann hlotið mjög góða dóhia fyrir túlkun sína á hinum áttræða höfundi í þessum gaman- leik. — Myndin er af honum ásamt Ævari Kvaran. Róbert Arnfinnssyni og Gísla Alfreðssyni í hlutverkum sínum. t 4 I 6 4

x

Mánudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.