Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 22.12.1969, Blaðsíða 3

Mánudagsblaðið - 22.12.1969, Blaðsíða 3
Mánudagur 22. desember 1969 Mánudagsblaðið 3 IIIIIl: iiilliiili Brautryöjandi íslenzkra samgöngumála. Siglingar eru nauðsyn Hlutverk Eimskipaíélagsins hefur frá upphafi I verið fyrst og fremst að bæta samgöngur. I Eimskipafélagið er félag allra landsmanna, Jf hluthafar eru um 11 þúsund. 11 Vöxtur félagsins og viðgangur er þáttur í B bættum lífskjörum þjóðarinnar. m Um aldamótin kvað Hannes Hafstein: Sé ég í anda knör og vagna knúða krafti, sem vannst úr fossa þinna skrúða; stritandi vélar, starfsmenn glaða og prúða, stjórnfrjálsa þjóð meö verzlun eigin búða. Hannes Hafstein. Þjóðdóðin snjalla, ísiendinga orkan, áfram upp hallann! Skin á tindum er. Áfram, svo mjallhvít, helköld haffsstorkan hopi að kalla og gljúpni íyrir þér. Jakob Thorarensen skáld ísafold, 14. júlí 1915 Sem lútandi gestur á leigðri gnoð ei lengur vill Frónbúinn standa. Hann sjálfur vill ráða‘ yfir súð og voð og siglingu milli landa. Og íslenzkur fáni á efstu skal stöng af íslending dreginn, við frónskan söng, þá sýna ■erlendum svæðum vort sækonungsblóö t æðum. Hannes S. Blöndal, skáld ísafold, 2. apríl 1913 Það er bjart yfir Eimskipafélaginu f dag. Það er bjart yfir þjóð vorri, því að þetta félag er runnið af samúð allrar þjóðarinnar. Þjóðin hefir ekki aðeins iagt fé í fyrirtækið, hún hefir lagt það, sem meira er, hún hefir Iagt vonir sínar í það. Þetta fyrirtæki sýnir fremur öllú öðru, hvað vér getum áorkað miklu, er vér stöndum allir fast saman. Auknar samgöngur eru lykillinn að framtíð vorri. sígurður Eggerz, ráðherra íslands, 16^ apríl 1915. H.F. EIMSKIPAFELAG ISLANDS

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.