Mánudagsblaðið - 20.07.1970, Síða 1
\
Blaófyrir alla
%laSiS
22. árgangur
Mánudagur 20. júií 1970
28. tölublað
Hvað gerir dr. Gunnar Thor ?
Ýmsar hugmyndir á lofti - í hlutveirki de Gaulles —
Hvað gerist í málum Sjálfstæðisflokksins? er sú spurning,
sem nú er á flestra vörum. Menn leita í huganum að eftir-
manni dr. Bjarna Benediktssonar, en verður næsta fátt um
svör. Ýmsir eru þó tilnefndir, en fáir útvaldir. Það er mjög
títt, að talað sé um Gunnar Thoroddsen, dómara, sem til-
vonandi „stóra“ mann flokksins, þótt fullyrða megi, að Gunn-
ar hreyfi sig lítt eða ekki pólitiskt að svo stöddu máli.
í þessu sambandi benda
menn á það, að Gunnar hafi
enn miklum vinsældum að
fagna, og hafði, á sínum tíma,
flest atkvæði að baki sér, í
borgarstjórnarkosningu, ef
frá er dreginn kosningasigur
dr. Kristjáns Eldjárns. Þá er
og bent á, að Gunnar hafi
ýmsa leiðtogahæfileika til að
bera, samningslipurð, reynslu,
glæsimennsku og skarpar gáf-
ur.
AÐ BÍÐA
Aðrir telja að ekki þýði fyrir
Gunnar að hafa afskipti af
stjórnmálum enn sem komið
er, en bíða heldur fram á haust
ið, er séð verður hversu leikar
fara með þeim, sem nú eru
taldir líklegastir til leiðtoga.
Myndi hann þannig vita vel
hvernig vindar blésu og haga
sér í samræmi við það.
ÚRSLIT
Það ertalið líklegt, að innan
skamms muni draga til úrslita
innan flokksins og eru sagðir
all-margir sem ætla sér hinar
æðstu vegtyllur. Talið er að
kosningar séu í vændum, enda
líklegt, að Alþýðuflokkurinn
vilji kenna sig við aðra stefnu,
en þá sem Sjálfstæðisflokkur-
inn er kenndur við.
TIL AFREKA
Vinir Gunnars segjast sjá
hann í hlutverki de Gaulles,
hins franska, sem beið um
árabil eftir kalli þjóðarinnar
og, reyndar, náði landi og
þjóð upp úr feni algerrar nið-
urlægingar, stjórnarskipta og
fallandi gengis frankans.
Segja þeir Gunnar nú drjúgum
súpa af brunni gamallar
reynslu og að hann muni ekki
rísa úr eldstó fyrr en til afreka
komi.
EKKERT VITAÐ
Gunnarí hlutverki de Gaulles
er vafasamt. svo ekki sé sagt
í BLAÐINU í DAG:
meira. Kosti hans metur al-
menningur að vísu, en margir
telja að hann sé þreyttur og
slitinn og kjósi helzt að sitja
á friðarstóli. Þetta mun langt
frá því að vera satt. Gunnar er
enn á bezta starfsaldri og hef-
ur marga kosti framyfir þá er
nú munu seilasttil valda. Hann
er því nú, eins og kallað er í
erlendum stjórnmálum „black
horse“, sá svarti jór, sem eng-
inn veit neitt um.
Michelsen
eða
Axminster
Það hefur vakið furðu
margra, einkum kaupsýslu-
manna, að í umferð eru svo-
nefndar ,,bóka“-eldspýtur, i
með auglýsingum á hlið
stokksins, sem auðveldlega
verða rifnar af. Ytri auglýs-
ingin er frá Franch Michel-
sen, sem auglýsir Ginsbo-
úr, en þegar hún er rifin af
kemur í Ijós „Axminster —
Annað ekki“, sem er kunn
auglýsing frá fyrirtækinu.
Þetta kemur mönnum
spanskt fyrir sjónir, því sýni
legt er að Axminster aug-
lýsingin er sú upprunalega.
Eldspltur þessar má fá
víða, en mönnum er ekki al-
veg Ijóst hverskonar ,,trikk“
er hér um að ræða, enda
kynleg athöfn af hálfu fyrir-
tækjanna.
MISTÖKIN VERBA
ENÐURTEKIN
Nýja „Hekla" óbreytt —
Enginn sjómaður í ráðum
Ceir ráðherra —
Hvar eru loforð?
Ingólfur Jónsson álitinn
heppilegur forsvarsmaður
Telja má líklegt, að Geir Hallgrímsson, borgarstjóri,
taki nú sæti á þingi sem fyrsti varamaður dr. Bjarna.
Þetta hefur gefið tilefni til nokkurra þanka í sambandi
við göngu Geirs upp mannvirðingastigann.
Opinbert loforð Geirs er að sinna, næstu fjögur árin,
starfi borgarstjóra. Að vísu gat hvorki hann né aðrir
séð fyrir hinn voðalega eldsvoða eystra. En þjóðfélag-
ið verður ekki stöðvað og hvað gerir Geir?
Margir ætla að Birgir Ísleifur muni taka við stöðu
Geirs í borgarstjórn, en Geir lyftist til a. m. k. tíma-
bundinna virðingastarfa í rikisstjórn. Þetta má telja
óliklegt. Ýmsar raddir telja, að aðrir verði til þess að
fylla embætti dómsmálaráðherra, því nú er Jóhann
Hafstein forsætisráðherra. Vitað er, að leitað muni til
lögfræðimenntaðra manna innan þingmannaliðsins.
Jónas Rafnar er talinn útilokaður, en sumir telja að
Friðjón Þórðarson, sýslu- og þingmaður, hafi nokkra
möguleika, en Mathías Matthiesen, þingmaður, er
einnig nefndur, en hann hyggur mjög á frama. Gömlu
hlunkarnir koma fæstir, ef nokkrir, til greina.
Ingólfur Jónsson, landbúnaðarráðherra, er nú títt
taiinn eitt heiliavænlegasta efni formanns flokksins
a.m.k. meðan óvissa ríkir. Ingólfur hefur það sér til
ágætis sem sjaldgæft er, að hann er i senn traustur og
áreiðanlegur, vinsæll og starfssamur. Þykir mönnum
að ekki væri úr vegi, að Ingólfur héldi um stjórnvöl-
inn, þartil mál skipast.
Ingólfi treysta allir menn, og vonandi tekst svo til
að flokknum hljótist sú gæfa að hafa öruggan og far-
sælan, óumdeildan mann í fararbroddi, meðan öldur
innan flokksins eru óværar.
Flokkur án leiðtoga
KAKALI
Síðu 4.
Bréf frá lesendum
Síðu 5.
Playboy fær keppinaut
Biskupinn og nektarmeyjan
Síðu 3.
Leiðari
Síðu 4.
Úr sögu lands og lýðs
Síðu 2.
Stríðsglæpir Bandamanna
Síðu 8 og 6.
O. m. fl.
Ekki er að sjá, að skipabygginganefnd Ríkisskips hafi nokk-
uð lært af þeim mistökum, sem áttu sér stað við byggingu
Hekiu, aðal strandferðaskips okkar. Hér er ekki aðeins átt við
þá vélargalla og annað, sem fram kom er Hekla hafði verið
í siglingum nokkrar vikur, heldur innréttingar allar og aðbún-
að. Nú er annað skip í smíðum nyrðra og hefur nefndin engar
tillögur um breytingar lagt fram, né heldur haft í ráðum starf-
andi sjómenn. Nýja skipið verður nákvæm eftirlíking af Heklu.
ENGIN SKÝRING
öll aðstaða til þjónustu er
erfiðasta. Matsalir á tveimur
hæðum, þrengsli til athafna
hjá starfsliði í eldhúsi og ná-
lega allt gert til að íþyngja
starfsfólki.
Eins og fram kom í blöðum var
mikil óánægja hjá farþegum, véla-
mönnum og áhöfn almennt. Slipp-
urinn gaf enga skýringu á mistök-
um, utan þeirra er fréttaritari Mbl.
birti eftir framkvæmdastjóra. Síð-
an hefur ekkert heyrzt, nema að
smíði hins nýja skips seinki.
Það er undarlegt, að ekki skulu
lögð drög að því, að breyta og lag-
færa þá galla sem fram hafa kom-
ið.
Vel má afsaka og skilja, að mis-
tök hafi orðið. En hversvegna er
ekki leitað til sjómanna og ann-
arra starfsmanna skipsins. Nefnd-
ina skipa þeir Brynjólfur Ingvars-
son, Ólafur S. Valdimarsson, Garð-
ar Ingvarsson, Hjálmar Bárðarson,
Örn Marinsson og Guðjón Teitss.
Þessum mönnum hljóta að vera
kunnir gallar skipsins og ætti að
vera í lófa lagið að fá þá lagfærða.
Margir bœndur mundu telja stúlkuna ad tarna notalega kaupakonu.
ENN TÆKIFÆRI
En því er ekki að heilsa. Þótt
áherzla hafi verið lögð á lest-
arrými, þá ber líka að gæta
hagsmuna starfsfólks og far-
þega. Þessu er engu sinnt.
Ennþá hefur skipið 3 sjónvörp,
en ekkert útvarp! Ferðalög
matreiðslufólks með diska og
föt milli hæða er hláleg og
ekki annað en óþörf fyrirhöfn.
Skipaútgerð ríkisins ætti að
sjá að sér í þessum efnum ái-
ur en það er um seinan.