Mánudagsblaðið - 26.07.1971, Síða 1
23. árgangur Mánudagur 26. júlí 1971_________________________27, tölublaS
FiskveiSilögsagan:
Olafur tapaði 1. lotunni
Neitaði BBC um sjónvarpsviðtal - Missti ónœgjulegt
tœkifœri fyrir þjóðarmólstaðinn - Allir undrandi
Það tók nákvæmlega eina viku fyrir Ólaf Jóhannesson aS
gera okkur að alþjóðaathlægi. Rembingur og búralegt mont
forsætishreppstjórans varð til þess að hann neitaði BBC um
viðtal í sjónvarpi sem hver heimsleiðtoginn á fætur öðrum
myndi þakka fyrir að skýra málstað sinn í.
Of fínn!
Að vísu verður að telja, að
Ólafur þykist í heldur fákænu
kompaníi, þegar hann kemst
á lista BBC-manna, en þar
taka persónur eins og Indira
Gandhi, Heath, Pompidou og
Brandt með þökkum ef þeir
hafa tækifæri að skýra mál-
stað sinn í svo virðulegum al-
þjóðafjölmiðli. Þessir kappar,
sem Ólafur forsætishrepp-
stjóri, telur sér ekki sæma að
vera í hópi með, stjórna auk
þess milljónaþjóðum og sumir,
fleiri en einu ráðherraembætti.
Ólíkir áróðursmiðlar
Þó er það verst, að í upp-
siglingu eru deilur, harðvítug-
ar, um víkkun fiskveiðilögsög-
unnar, og á öllu ríður að mál-
staður okkar sé kynntur sem
bezt og víðast. Andstæðingar
okkar kynna málstað sinn í
víðlesnustu blöðum heims,
sem öll eru lesin af ráðamönn-
um þeirra þjóða sem hér um
fjalla. Auk þess hlusta þeir á
flutning BBC og fá þannig að-
eins brezk og önnur erlend
sjónarmið, því við drögum
stórlega í efa að Tíminn og
Þjóðviljinn séu lesin gaum-
gæfilega af þessum aðilum,
þótt eitthvað mjálm heyrist í
fréttariturum héðan, aðallega
til norrænu blaðanna. Ólafur
Jóhannesson er svo ósvífin og
naive, að hann ætlar almenn-
ingi hér að kyngja þeirri skýr-
ingu sinni að hann hafi verið
búinn að ákveða „fundi“ og
„viðtöl" við innlenda aðila og
þess vegna ekki getað sinnt
BBC!
Gullnu tækifæri glatað
Þessi ósvífni nær engri átt
og Guð forði landinu frá því,
að þessi maður verði látinn
leika lausum hala í skiptum
við alvörufólk erlendis frá með
fjöregg þjóðarinnar í hendi
sér. Til þess að sinna ein-
hverju ómerkilegu kvabbi í
ráðuneytinu, þá kastar þessi
ráðherra niður einu helzta og
áhrifamesta tækifæri sem
nokkurri smáþjóð i stórum
deilum við ráðaþjóðir gat boð-
izt. Hver ósköpin gátu gengið
á í ráðuneytinu sem afsökuðu
þessa fáheyrðu framkomu ráð-
herrans? Það hlýtur að vera
erfitt að stjórna þessu landi,
ef ráðherra getur ekki gefið
nokkrar mínútur af tíma sínum
til að skýra veigamesta mál
þjóðarinnar á þann bezta og
áhrifaríkasta hátt sem mögu-
legt var.
Kalbóndinn
Hér kemur strax fram sem
við fullyrtum. Ólafur er með
ráðherranafnbót en hrepp-
stjórasjónarmið. Hann kann
ekki að neyta tækifæra, en
heldur að það dugi vel að
berja sér eins og kalbændur.
Ólafi ætti að verða Ijóst, að
hér er ekki deilt um ásetu fyr-
ir næsta vetur, heldur lífæð
þjóðarinnar. Honum ætti að
vera Ijóst, að hann hefurvegna
vegtylluóska, samþykkt fárán-
lega og hættulega afstöðu ti!
varnarbandalags V-Evrópu s.
s. að slíta þjóðina úr tengslum
við Nato — „en vera samt
áfram í Nato!!!“ Sú þjóðasam-
steypa og samvinna okkar er
Afstaða sterkari hluta ríkis-
stjórnarinnar, Alþýðubanda-
lagsins, og eindæma linkind
Framsóknar, hafa nú skapað
slíka andúðaröldu meðal al-
mennings, að ýmsir ráðamenn
Framsóknar eru orðnir ugg-
andi um framvindu mála og
flokksins sjálfs.
þyngst á metaskálunum í víkk-
un fiskveiðilögsögunnar, þótt
Ólafi sé það ekki Ijóst.
Samanburður við Frakka!!!
Svo barnsleg eru rök hans,
að hann lætur birta bréf í
Framhald á 5. síðu.
Leiguþý að austan
Raunhæfari menn Fram-
sóknar eru nú farnir að skilja,
að launaðir útsendarar komm-
únista t. d. Baldur Óskarsson,
húsvörður, Ólafur Ragnar
Grímsson o. fl. drógu formann
flokksins á asnaeyrunum, og
hræddu hann til að slaka til
og hunza vilja alls þorra
flokksmanna og flestra betri
leiðtoga flokksins. Ólafur Jó-
hannesson hefur sýnt svo fá-
dæma ragmennsku og ein-
dæma vegtyllusótt, að hann
hefur ekki hikað við að stofna
flokki sínum í hættu, heldur
og þjóðinni sjálfri.
Urgurá
Mogga -
Gylfi klagar
Enn eru ókyrrleikar mikl-
ir á ritstjórnarskrifstofum
Mbl. vegna einræðis og
uppvöðslu Eyjólfs Konráðs
og endalausrar ritræpu
Styrmis Stúfs. Hefur nú
verið talsvert stjákkað nið-
ur í Stúf, en Eykon telur sig
hafa og hefur fullkominn
styrk Geirs Hallgrímssonar
og vegur úr því skjóli á
báða bóga.
Þá hefur loksins verið
reynt að minnka byrðar
Matthíasar, en hann hefur í
rauninni borið hita og
þunga daglegs rekstrar
blaðsins, jafnvel ritað leið-
ara þess. Var þetta afar erf-
itt og reyndi mjög á Matta
einkum meðan Eykon var
nyðra í vinsældaleiðangri
uns Norðanmenn skiluðu
honum aftur. Mogginn lætur
dr. Gylfa kvarta yfir því !
viðtali, að Mánudagsblaðið
hafi fellt fylgi flokksins í
borgarstjórnarkosningun-
um af því það taldi að
flokkar sem vinna saman á
þingi í tólf ár ættu að vinna
saman í borgarstjórn.
Svo fór að Kratar nálega
þurrkuðust út, svo segja
má, á vissan hátt, að eitt-
hvað gagn hafi verið af
blaðinu en af Alþýðublað-
inu alls ekkert.
Er það satt, að Haukur
Björnsson, stórkaupmaður, sé
orðinn aðstoðarviðskiptamála-
ráðherra!
Nei, þetta eru ekki
morgunœfingar í
Saltvik eða Húsa-
felli. Þessi hjákát-
lega mynd er af
þýzkum íþrátta-
konum, sem eru að
œfa undir Olyni■
píuleikana í
Múnchen naista
suvtar. Meiningin
er sú, að keppend-
ur verði naktir.
Flugfélag íslands
ku hafa flug-
nmboðið frá
íslandi.
Framhald á 5. síðu.
Hvað verður um Loftleiðir
— varnarliðið fer?
Ef þessarri ríkisstjórn, sem enn situr við völd, tekst
að koma okkur úr Nato þ. e. reka varnarliðið burtu,
hvernig fer þá með flug Loftleiða á Bandaríkin?
Samkeppnin um Atlanzhafsfluaið er nú komin á það
stig, að félögin, jafnvel þau mestu og auðugustu um
allan heim, keppast um hvern farþega.
Skyldu bandarísku félögin, vera yfrið hrifin af því, að
sú þjóð, sem að gamni sínu, í rælni, stefnir vináttu-
og samvinnuslitum við Bandaríkin og vestrænt varnar-
bandalag, fái einhver réttindi til flugs á U.S.A., en það
vita allir að 90—95% af farþegum Loftleiða eru banda-
!skir þegnar, sem stæði næst að ferðast með sigin
élum.
Ætli svo færi ekki, að einu mesta fyrirtæki landsins
g einum hæsta greiðanda opinberra gjalda í ríkis-
n'tina yrði sparkað úr Ameríkufluginu?
Upplausn og úlfúð
innan Framsóknar
Linkind forustunnar veldur
áhyggjum — Kommar kætast