Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 26.07.1971, Síða 5

Mánudagsblaðið - 26.07.1971, Síða 5
Mánudagur 26. júlí 1971 Mánudagsblaðið 5 Úr sögu lands og lýðs Framhald af 2. síðu. sá í gegn, og tróð sér inn í garið, en það var of þröngt, svo hún stóð þar föst og varð loks að steini í gatinu, og þar er hún enn. En karlsson komst heim með Búkollu sína, og urðu karl og kerling því ósköp fegin. Velvakandi og krædnr hm Einu sinni var karl og kerling. Þau áttu fimm syni, sinn á hverju ári. Ekki var fleira manna í kot- inu en þau hjónin og synir þeirra. Einu sinni sem oftar fóru hjónin út á engjar að slá, en skildu bræð- urna eina eftir heima, því þeir voru þá stálpaðir orðnir, að óhætt var að fara frá þeim. Veður var gott um daginn, og voru bræðurnir að leika sér úti í kringum bæinn. Þá kom til þeirra gömul og hrum kerl- ing. Hún bað sveinana að gefa sér að drekka. Þeir gjöra það. Þegar kerling var búin að svala sér, þakk- aði hún þeim kærlega fyrir sig og spurði, hvað þeir hétu. Bræðurnir segjast ekki heita neitt. Þá segir kerling: „Fegin varð ég að fá að drekka hjá ykkur, því ég var að þromm komin af þorsta; en nú er ég svo fátæk, að ég get ekki launað ykkur sem skyldi. Þó ætla ég að gefa ykkur sitt nafnið hverjum, og skal hinn elzri heita Velvakandi, sá annar Velhaldandi, sá þriðji Vel- höggvandi, sá fjórði Velsporrekj- andi, og sá fimmti Velbergklifr- andi. Heiti þessi gef ég ykkur fyrir svaladrykkinn, og vona ég, að renta fylgi nafni". Sfðan kvaddi kerling *bra“ðufna og bað þá að muna vel nöfnin. Fór hún svo Ieið sína. Um kvöldið, þegar foreldrar bracðranna komu heim, spurðu þau þá, hvort nokkur hefði komið um daginn. Þéir sögðu eins og var og svo um nöfnin sem kerling hafði gefið sér. Þau lém vel yfir því, karlinn og kerlingin. Uxu nú bræðurnir upp hjá for- eldrum síntim, þangað til þeir voru uppkomnir. Þá sögðust þeir vilja fara burm úr kotinu og reyna til að framast á öðrum stöðum. Foreldrar þeirra leyfðu þeim það. Lögðu þeir nú á stað, og segir ekki af ferðum þeirra, fyrr en þeir koma til kóngs- ins. Þeir biðja kónginn veturvistnr, en segjast vilja fá hana annað hvort allir eða enginn. Kóngur sagði, að þeir skyldu fá að vera hjá sér um veturinn, ef þeir vilji vaka yfir og gæta dætra sinna á jólanóttina. Þeir játa því og verða nú allir hjá kóngi. En svo stóð á, að kóngur hafði átt fimm dætur. En tvær seinustu jóla- næmrnar höfðu tvær þeirra horfið, sín hvora nótt, úr meyjaskemm- unni, og var þó vakað yfir þeim. Enginn vissi, hvernig þær hefðu horfið, og hvergi fundust þær, þrátt fyrir allar Ieitir og rannsóknir, sem kóngur hafði Iátið gjöra. Þegar bræðurnir vissu, hvernig ástatt var, létu þeir konung láta smíða nýja meyjaskemmu, einstaka sér og mjög rammgjörva. Nú komu jólin. Fóm þá kóngs- dæmrnar þrjár, sem eftir vom, í skemmuna og bræðurnir allir fimm. Ætluðu þeir nú að vaka á jólanótt- ina yfir kóngsdætmnum. En þeir sofnuðu allir nema hann Velvak- andi. Ljós var í skemmunni og hún harðlæst. Fyrri part nætur sér Vei- vakandi, að skugga ber á einn skemmugluggann og því næst seil- ist inn hönd, ógnarlega stór og hrikaleg, og yfir rúm einnar kóngs- dótmrinnar. Þá vekur Velvakandi bræður sína í snatri, og þrífur Vel- haldandi í loppuna, sem inn seild- ist, svo sá gat ekki dregið hana að sér, sem átti, þó hann streittist við. Kom þá Velhöggvandi og hjó af hendina við gluggann. Hljóp þá sá frá, sem úti var, og eltu bræðurnir hann. Gat Velsporrekjandi rakið förin. Komu þeir loks að afar brött- um hömmm, sem enginn komst upp nema Velbergklifrandi. Hann klifraði upp hamarinn og kastaði festi niður til bræðranna. Dró hann þá svo upp alla. Vom þeir þá stadd- ir í hellismunna stóran. Þeir gengu inn í hann. Þar sáu þeir skessu; hún var grátandi. Þeir spurðu, hvað að henni gengi. Hún var treg til að segja þeim það, en þó gjörði hún það á endanum. Sagði hún, að karl- inn sinn hefði í nótt misst aðra höndina og því lægi svo illa á sér. Þeir báðu hana að huggast og bera sig vel, því þeir gætu læknað karl- inn. „En það má enginn horfa á okkur", segja þeir, „á meðan við erum að lækna, og erum við svo varkárir með leyndardóm okkar, að við bindum alla, sem nærri em, svo enginn geti komið að okkur, á meðan á Iækningunni stendur, því þar liggur mikið við". Buðu þeir nú skessunni að Iækna karl hennar undir eins, ef hún leyfði þeim að binda sig. Ekki var henni um það, en Iét þó til leiðast á endanurn. Bundu þeir skessuna nú rammlega °g gengu svo inn í hellinn til karls- ins. Var hann hið ferlegasta tröll, og höfðu þeir engar sveiflur á því nema drápu hann undir eins. Að því búnu fóru þeir til skessunnar og drápu hana. Síðan rannsökuðu þeir hellinn og fundu þar ekkert fémætt, sem þeir vildu hafa á burtu með sér. Ekki urðu þeir þar heldur fleiri trölla varir. En þegar þeir voru að rannsaka hellinn, komu þeir að afhelli dálitlum, og þegar þeir komu inn í hann, sáu þeir þar báðar hinar týndu kóngsdætur. Voru þær þar fjötraðar inni. Var önnur þeirra dável feit, en hin skinhoruð. Voru þær að barma sér yfir forlögum sínum, og sagðist sú feitari nú eiga að deyja í dag, því það ætti að hafa sig til jólanna. En | í þessu gengu bræðurnir inn til þeirra, Ieysm þær og sögðu þeim, hvar komið var. Glaðnaði þá yfir systrunum, sem von var, og höfðu bræðurnir þær heim með sér til hallarinnar og lém þær fara inn í skemmuna til systra sinná. Var þá enn ekki kominn dagur. En með degi kemur kóngur út þangað til að vita, hvernig þeim bræðmnum hefði tekizt að gæta systranna. En þegar hann heyrði allt, sem við hafði borið um nótt- ina, og sá allar dætur sínar þar saman komnar, varð hann svo glað- ur, að hann réð sér varla fyrir fögnuði. Efndi hann þá til stóreflis veizlu, og iyktaði sú veizla með því, að bræðurnir dmkku brúðkaup sitt til sinnar kóngsdótturinnar hver. Urðu þeir bræður síðan allir hinir mestu menn og lifðu bæði vel og lengi í mesta gengi. Og tiú er þessi saga úti. Olafur tapaði Framhald af 1. síðu. málgagni sínu, um að Frakk- ar!!! hafi gert það sama. Er ráðherrann með fullu viti, eða meinar hann það sambærilegt, að herveldi á meginiandi Evrópu, kjarnorkuveldi, segi sig — að nokkru leyti — úr samtökum Nato, eða varnar- laus, fámenn, en ákaflega þýð- ingarmikil eyja í N-Atlanzhafi, geri sig varnarlausa með einu pennastriki? Lék af sér Ólafur ióhannesson hefur tapað háðslega og hættulega fyrstu lotunni í fiskveiðilög- sögudeilunni. Hann hefur leik- ið af sér bezta útspili sem völ var á. Nú reynir hann að af- saka sig, en svo aum er af- sökun hans, að jafnvel komm- unum í ráðuneytinu blöskrar þetta „afrek“ Ólafs. Þá er langt gengið. Upplausn Framhald af 1. síðu. aa —ú Kommar kætast Menn taki eftir, að sjálfir kommúnistarnir hafa lagt fátt til þessa Natobrölts Ólafs, verið auðvitað sammála, en látið reiði almennings bitna á Framsókn og forustuliðinu þar. Síðustu daga hefur Ólafur verið að reyna að draga í land, reynt að kæfa bálið en farizt það eins óhönduglega og mögulegt var. Einar í sjáifheldu Nú hefur hann otað ágætum manni, Einari Ágústssyni, ut- anríkisráðherra, út í það öf- undlausa verk, að vera sá ráðherra, sem stóð fyrir slitum fslands við hinn vestræna heim. Mun enginn ráðherra vera verr klemmdur en Einar nú, en ofríki og einmuna heig- ulsháttur forsætisráðherra svífst einskis í að eyðileggja Einar. Stefnt í óefni Innan Framsóknar er nú kurrað illa og hafa sumir lagt til, að Ólafur gjörbreyti um stefnu nú, áður en það er um seinan, jafnvel þó það kosti stiórnarslit. Það er öllum Ijóst, að á tveim vikum hefur núver- andi stjórn stefnt utanríkismál- um okkar í voða. tapað 1 lotu í víkkun fiskveiðilöggjafarinn- ar. meðan kommadeildin er að undirbúa fjárhagslegt öng- bveiti með ábyrgðarlausum fiárútlátum og draumóra- kenndum ,,bjargar“-ráðstöfun- um. sem engin tekiulind hefur enn fengizt til að stvðia eða heimila í framkvæmd. Næstu vikur munu leiða í liós. að til bess að sýnast gera eitthvað bá hefur stiórnin, undir forustu Ólafs oq kröfum komma. ráðizt í verkefni sem útilokað er fyrir ríkissjóð að standa undir. ALLAR LEIÐIR I LITAVER Munstruð teppi • Keramik veggflísar • Allar tegundir af gólfdúkum • Veggfóður 10001 litir • Málning frá öllum framleiðendum • Kynnið yður söluskilmála vora og staðgreiðsluafslátt • Það skal tekið fram. að það er kjörverð Litavers á öllum ofangreindum vörum • Aðeins úrvalsvörur Ráðleggingar á staðnum LITAVER s.f. ERTU AÐ BYGGJA? VILTU BREYTA? ÞARFTU AÐ BÆTA? Grensásvegi 22-24 Símar 30280 og 32262

x

Mánudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.