Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 20.09.1971, Qupperneq 1

Mánudagsblaðið - 20.09.1971, Qupperneq 1
ðIoSfyrir alla 34. tölublað Mánudagur 20. sept. 1971 23. árgangur Ferðaskrifstofa n lögð niður? Falla undir Ferðamálaráð — Starfs- grundvöllur enginn — Úlfúð í starfs fólki — Mistök í þjónustn. Það virðist nú, satt bezt sagt, allt í háalofti hjá svokallaðri Ferðaskrifstofu rikisins, stofnun sem raunverulega er löngu gengin sér til húðar i þeirri mynd sem upprunalega var fi! ætlazt að hún starfaði. Forstjórinn er nú að hætta sökum ald- urs og heilsubrests, en úlfúð og stjórnleysi ríða þar húsum. SPAUILEGAR HLIÐAR Þetta hefur sínar spaugilegu hliðar. Til dæmis starfa þarna þrjár kerlingar, sem ekki mega sjást, og fýkur oft illilega í pils um þar í vinnutíma, enda kerl- ingar óværar. ÓFARIR BÁHAI- TRÚARMANNA Utan Eddu-hótelanna, sem sum eru mjög prýðilega rekin hefur verið kvartað yfir þeim rekstri Ferðaskrifstofunnar, sem snýr að ferðafólki og þjón ustu við það. Má þar nefna hrakfarir Báhai-trúarflokksins sem fjölmennti hingað til lands ins, eftir að hafa tryggt sér t Rekin af Þjóðviljanum? Einkennileg og tortryggi- leg mannalát hafa átt sér stað á Þjóðviljanum. Um næstu mánaðamót munu þessir blaðamenn hafa hætt eða verið sagt upp á blaðinu, og eru sumir þegar hættir — án eftirmæla flest- ir: Magnús Kjartansson, ivar Jónsson, Sigurður Friðþjófsson, Ásmundur Sigurjónsson, Vilborg Harðardóttir, Guðrún Þ. Egilson, Rannveig Haraldsdóttir. Það eina sem er auðskil- ið er „fráfall“ Magnúsar, en öll hin hafa verið ágætt starfsfólk og prýðis blaða- menn og vissulega þjónað lélegu málefni af trú- mennsku og dyggð. Það er því máske ekki að ástæðulausu að Mbl. talar um hreinsanir. Gallinn er bara sá; eru slíkar hreins anir ekki einn öruggasti þáttur í starfi kommúnista um heim allan? þjónustu Ferðaskrifstofunnar, sem ríkisbákns. Fór sú þjón- usta öll í handaskolum, sem lauk með því, að forráðamenn Báhaí-manna fóru kvartandi í ráðuneytið til að fá nokkra leið réttingu, sem reyndar ekki fékkst. FERÐASKRIFSTOFUNNI OFAUKIÐ Tilgangur Ferðaskrifstofu ríkisins er ekki lengur fyrir hendi. Nú eru starfandi marg- ar ferðaskrifstofur t.d. flugfé- laganna beggja, Zoéga og svo sólarlanda-agentarnir sem ,,spesíalíséra“ í spönskum sól arströndum. Ferðaskrifstofa ríkisins er með öllu ofaukið, nema þá í rekstri hótelkeðju eins og Eddu-hótelanna. TEKUR FERÐAMÁLARÁÐ VIÐ Það á tvímælalaust að leggja niður Ferðaskrifstofu rikisins, er núverandi forustu- maður hennar hættir og leggja hana undir Ferðamálaráð, sem hins rétta aðila til að taka við þessu bákni. Ýmsir góðir starfskraftar eru viðloðandi stofnunina, sem eflaust má nýta vel hjá Ferðamálaráði, en núverandi fyrirkomulag á að hætta sem bráðast. Sprengja og hundar Eins og menn muna, þá var hringt á skrifstofu Lofi- leiða í New York og sagði rödd í símann, að sprengju hefði verið komið fyrir i einni af flugvélum félags- ins. Af þessu varð talsverð töf og gaf félagið þessa skýringu á töfinni. Hinsvegar láðist að geta þess, að röddin í símanum sagði einnig, að ástæðan fyrir sprengjunni væri sú, að í ráði væri að aflífa alla hunda í Reykjavík, og þvi- líkt miskunnarleysi og ill- mennska verðskuldaði ekki annað. En hefði sprengjan verið um borð og ekki fund- izt, þá hefðu borgaryfirvöld in máske keypt líf hund- anna aðeins of dýru verði. Leikfang Mánudagsblaðsins Útvarp Reykjavík Einka- og einokunaríyrírtæki Stórt skarð er þegar höggv- ið i raðir þeirra manna, sem fyrstir hlustuðu á útvarp hér á landi. Sú stund var flestum stór stund og ógleymanleg. Jafnvel þeim, sem hana muna, er útvarp nú löngu orðið sjálf- sagður hlutur. Fyrr meir sátu menn við tæki sín og drukku í sig allt efni, sem flutt var, í forundran yfir tækninni. Það i viðhorf er börnum dagsins í dag eins framandi og spen- volg nýmjólk. RUDDI BRAUT Enda þótt það sé mál flestra manna, að útvarpið hafi hér byrjað giftusamlega, sem enn býr að, er líklegt að virðingin fyrir hinum nýja galdri og nokk uð óskilgreind aðdáun a galdramönnunum í útvarpinu, hafi sljógvað eggjar biturrar gagnrýni á efni og flutning. Gætir þessa ennþá um útvarp og ekki siður sjónvarp, enda þótt ólíkt sé upphaf þess í höndum íslenzkra vegna Kefla víkursjónvarpsins, sem að vissu leyti ruddi því braut og kynnti hina nýju tækni lands- mönnum á þéttbýlasta hlutan- um. Hins vegar er það svo, að samfara æ magnaðri og lengri sendingum til landsmanna hafa útvarpsráðamenn þeim Kvöldsöludeilan: Hvi ekki morgunþjónustu? Öneitanlega er þægilegt að geta farið í búðir fram eftir kvöldi. Ekki hefur þetta þó verulega þýðingu fyrir þorra fólks. Aðalatriðið er að hata í þessu efni viðhlítandi reglu, sem innkaupum er síðan hag- að eftir. Ekki er oss kunnugt um boð eða bönn um hvenær verzlanir skuli eða megi vera opnaðar að morgni. Ein helzta röksemd kaupmanna fyrir kvöldsölu er sú, að með henni sé bætt þjón usta. Full ástæða er til að spyrja: Er ekki hægt að færa eitthvað af þessum þjónustu- vilja yfir á morgnana? Það er líka til morgunfólk í Reykjavík. Þeir, sem þurfa að vera mættir til vinnu kl. 8.15 eða fyrr geta alls ekki náð sér í kaffi, te, heitt brauð, mjólk, eða yfirleitt ætan bita af nokkru tagi áður en heiman &r farið, að ekki sé talað um að gera almenn matarinnkaup að morgni. Það hefur ekki svo vitað sé verið talin minnsta ástæða til að taka í þessu efni tillit til verkamanna, iðnaðarmanna, kennara og fjölda skólafólks á öllum aldri, sem byrja daginn fyrr en flestir aðrir, að ekki sé nú minnst á húsmæðurnar á heimilum þessa fólks. Það þyk ir kannske ástæða til að snobba fyrir fótaferðartíma stjórnarráðsstarfsmanna, sem nú nýverið eru farnir að hefja störf fyrr á morgnana en áður hefur tíðkazt. Enginn þreytir sig lengur á að kvarta undan dreifingunni á svokölluðum „morgunblöð- um“. Það kemur manni bara í illt skap. Kaupmenn: Morgunstund gefur gull í mund. mun óbrigðulli tappa í eyrum fyrir allri gagnrýni o'g ábénÖ- ingum hlustenda. GAGNSLAUSIR TAKKAR Einu sinni var fundið upp allsherjarsvar við öllu slíku, og fólki bent á það í svívirði- legu purkunarleysi einokar- ans, að á hverju tæki væri takki, sem hægt væri að loka, með, ef menn væru ekki á- j nægðir með útvarpið. Ráða- menn útvarpsins og ýmiss kon ar fólk, sem af eiginhagsmuna ástæðum telur það þegn- skyldu að bera blak af hverri' svínastíu, trúa því, að þetta séu góð svör. Hlustendur útvarps og nú sjónvarpsáhorfendur eru í að- stöðu einyrkjans, sem varð að skipta við einn kaupmann eða eina verzlun og lagði þar inn u11 sína, lömb, fisk eða aðra nyt, án þess að geta haft nokk ur áhrif á verðlag afurða sinna. Líkaði honum ekki verð Framhald á 6. síðu. j Eysteinn ræður enn mestu „Þetta á að fara hljótt“, sagði háttsetur Framsókn- armaður nýlega, „en það er á allra vitorði, að Eysteinn Jónsson er bakvið allar ráða gerðir og yfirlýsingar ráð- herra okkar. Ólafur er nán- ast ekki annað en brúða sem Eysteinn kippir í streng ina, og Einar er enn of ung- ur til að hafa sig verulega í frammi. Halldór Sig. er sá eini, sem þorir að standa á meiningu sinni og Eysteinn lítt fús að fjalla um fjármál sem slík.“ Þetta eru hörð orð, en menn geta þó hugleitt ALLA framkomu Ólafs og séð, að manninum eru óeöli lega mislagðar hendur og fáránleg framkoma hans í sjónvarpi er vart einleikin. Hinsvegar nýtur Eysteinn þess, að hafa völdin, sem hann missti í einhverri mynd og ennþá er hann lang-sterkasti maður flokks ins, formaður þingflokks Framsóknar. Það er ýmislegt að tjalda baki hér.

x

Mánudagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.