Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 25.10.1971, Page 1

Mánudagsblaðið - 25.10.1971, Page 1
 BIclÓfyrir alla 39. tölublað Mánudagur 25. október 1971 23. árgangur Til lesenda Við náðum tali af einni stúlkunni — sem ekki fékk að fara í „partý“. — Lesið viðtalið í næstu viku! Sjá grein um Tónabæ á 1. siðu. Kommar yfirtaka stjórnina: Magnús Umsvif Magnúsar Kjartanssonar, ráðherra, eru nú orðin slík, að engu er líkara en hinir ráðherrarnir, sem eiga að stjórna ráðuneytum sem máli skipta séu vikapiltar Magnúsar, sendlar sem, likt og valdalausir kóngar, klína undirskrift sinni á ákvarðanir Magnúsar. Nýlega hrifsaði Magnús öll völd af Einari Ágústssyni, utanríkisráðherra og Ólafur Jóhannesson er nálega ekki annað en einskonar fundarstjóri eða skrifstofu- stjóri á ráðuneytisfundum. Ofsi Magnúsar hefur margfaldazt síðustu vikur og hefur hann jafnan haldið reglulega fundi með rússneska ambassadornum, sem gefur þessu óskabarni kommúnismans á íslandi, fyrirmæli um stefnu og takmörk. UGGUR í FRAMSÓKN Svo er nú komið, að jafnvel þorri Framsóknarmanna eru orðnir uggandi vegna fljótræð is Ólafs Jóhannessonar um samstarf við komma. Að vísu var og er lítil hætta af hanni- balistum, enda ráðuneyti þeirra tiltölulega meinlaus. Hinsvegar hafa kommar yfir- ráð yfir umfangsmestu ráðu- neytunum og hafa nú lagt und- ir sig þau litlu úrslitavöld sem Framsókn hafði. LOFORÐ MAGNÚSAR Starfsmenn í ráðuneyti Marrar / fang- Jæja, þá marrar enn í fangelsisdyrunum í sambandi við bæjarfógeta austanlands, sem vikið hefur verið úr starfi. Þessi ungi maður hefur svo vendilega eytt sjóðum, sem embættinu var trúað fyrir, að þar ríkir auðn ein. Sjóðir þessir eru ekki aðeins opinberir, heldur og dánarbú, sjóðir ófjárráða barna, ekknasjóðir og fyrirtækja, sem voru í vörzlu bæjarfógetans. Málið er upp komið fyrir nokkru en hjól réttvísinnar snúast hægt. Þó er nú við búið að dyr dýflissunnar skelli í lás að baki hins ólukkulega fógeta. Leikfang Mánudagsblaðsins irifsar völd Einars Magnúsar telja hann ræða meira við fulltrúa Rússa hér á landi en íslenzka aðila, enda er all-langt síðan Magnús lof- aði austrænum yfirboðurum sínum, að koma landinu und- ir rússneskt áhrifasvæði ef næði völdum. Sá draumur er að rætast og sviftingar innan ríkisstjórnarinnar, þar sem Framsókn hefur beðið algjör- an ósigur sýna gleggst, að Magnús ætlar sér ekki að svíkja lánardrottna sína. HALLLOKA Einar Ágústsson hefur ekki haft í neinu tré við Magnúsi og er það að vonum. Einar er ó- reyndur en Magnús harðvítug- ur og miskunnarlaus með mikla r.eynslu að baki og ör- ugga hvatningu rússneska ambassadorsins, sem ekki er lakari í starfi sínu en þeir kol- legar hans og samlandar sem daglega eru að verða berir að njósnum og allskyns óheilind- um í löndum þeim þar sem þeir eru staðsettir. TIL MIKILS AÐ VINNA Það er ekki nein lygi, að draumur Rússanna er að koma íslandi undan vestrænu áhrifavaldi, koma hernum burtu og hleypa hingað aust- rænum mongólalýð, einum þekktustu illmennum nútíma hernaðar. Þá er það stað- reynd, að sá ambassador stað settur á íslandi, sem hér væri Framhald á 6. síðu. Píslarganga dr. Hafþórs i grjóturð hjálpseminnar Dr. juris Hafþór Guðmundsson birtir allstóra til- kynningu í Þjóðviljanum 15. þ. m., og þar kennir margra grasa. Er ritsmíð doktorsins svo forvitnileg og furðuleg, að Mánudagsblaðið hefur ákveðið að kanna sannleikann og grundvöllinn fyrir þessari einstæðu „tilkynningu til almennings og fyrirtækja“. Blaðið hefur leitað liðsinnis kunnugra af þessu til- efni, og mun birta upplýsingar þær, sem væntanlegar eru á næstunni, til fróðleiks fyrir almenning. Hörm- ungar þær sem blessaður doktorinn hefur orðið að þola, samkvæmt eigin frásögn hans, eru svo alvarleg- ar, að ekki sæmir að láta kyrrt liggja. Hafþór kveðst hafa misst heilsuna, neyðst til að selja húseign sína fyrir smánarverð, og misst símaaðstoð, auk annars; og Framhald á 6. síðu. Smábarnahneykslið í Tónabæ „Annan eins viðbjóð hefi ég ekki séð“, varð einum ágætum borgara að orði, þegar hann sótti dóttur sína í Tónabæ þ. e. þar sem hún ásamt hundruðum unglinga stóð utan við þetta fyrirmyndar skemmtiheimili Æskulýðsráðs. Telpan er 12 ára. „Hópar telpna og pilta frá 12—15 ára hímdu þarna utan húss- ins, fermingarpiltar með gosflösku og vínblöndu, hálfdrukkn- ir, undir húsgaflinum, stelpurnar drekkandi og reykjandi, „fleðandi“, en á hlaðinu óku skellinöðrur á fullri ferð innan um börnin“. „ÓRÓI 1971“ Þetta er lýsing föðurs á ástandinu utan þessa rómaða griðastaðar æskunnar. Til þess að fullvissa okkur fórum við á staðinn á fimmtudags- kvöldið, og þá var augljóst að faðirinn hafði ekki tekið of djúpt í árinni. Við gengum um meðal barnanna og sýnilegt var að ,,órói“ ársins 1971 hafði gripið um sig hjá þeim aldurs- flokki sem fyrir skömmu var dúðaður bleyjum. ALLIR I PARTY Utan dyra var ekkert að- hald, hvorki lögregla eða sá frómi hópur, sem telur sig ábyrgan fyrir börnum, hafði engan fulltrúa. Asarigning var og hópurinn óhrjálegur, en eldri „menn" allt að 16 ára, gripu þær af stelpunum sem þroskaðastar voru og teymdu þær afsíðis. Var þar margt baukað, sem foreldrum hefði þótt miður. Oft var hrópað upp: — viljið þið koma í party — nóg af djúsi (juice) allir koma sem vilja. LEIGUBÍLAR Stúlkurnar og strákar, sem ekki komust í dýrð Tónabæjar tóku þessum boðum með fögnuði, en ,,eldri“ strákarnir völdu gjarna úr þær þekkileg- ustu og „klárustu". Nokkrum varvísað frá með harðri hendi, og svo virtist að „partý-pilt- arnir" hefðu öll ráð á leigu- bílum fyrir þær, sem í það skiptið nutu velþóknunar. ÖMURLEG SLAGSMÁL Undir gaflinum upphófust slagsmál, þau ömurlegustu sem sézt hafa. Fullir, en al- gjörlega þróttlausir piltar, sem Framhald á 6. síðu. Dyngja, Bgilstöðum á refilstigum Iðnaðartízkan virðist stund- um draga dilk á eftir sér. Það heyrist orðið lítið um hið stór- snjalla skóiðnaðaræfintýri á Egilsstöðum, en um tíma var í ráði að þetta öndvegisþorp Austfirðinga skóaði ekki að- eins alla íslendinga heldur megnið af Evrópubúum og slatta af Afríkubúum, þeim hluta þeirra sem, yfirleitt, brúka skó. ★ Nú berast, að sögn, fréttir af öð*-u snilídarfyrirtækinu eystra, Dyngju á Egilsstöðum. Sú frétt læðist um, að Dyngja hafi hvorki meira né minna, en náð undir sig litlum 15—18 milljónum af fé Búnaðarbanka- útibúsins þar. Það fylgir að höfuðbankinn hér í Reykjavrk, hafi sent eftirlitsmann og rann- sóknara til að komast til botns í þessum fjármálum. Þarna er sennilega ekkert óheiðarlegt, en bara undarlegt fyrirbrigði, sem ráðamenn hér syðra í bankanum eru ekki alls kostar ánægðir með.

x

Mánudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.