Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 25.10.1971, Blaðsíða 8

Mánudagsblaðið - 25.10.1971, Blaðsíða 8
Stmiss flýgur — Windson-frúin og fegurðin — Curd Jiirgens bíómasali — Pompidou forseti siðar hefðarfrúr Svifasein þerna _ „Ný“ Ragusl Welch — George Pompidou, 60, forseti Frakklands, hefur orðið að grípa í taumana varðandi klæðaburð ráð- herrafrúnna. Eftir að eiginkonur tveggja ráðherra, Chalandons og Malauds, komu til veizlu í forseta- höllinni íklæddar aðskornum stutt- buxum, barst honum alda mót- mælabréfa frá ölium hlutum Frakk- lands. Hann lét þá siðameistara sinn tiikynna ráðherrafrúnum að hann mælti með „klassískum klæða- burði" hér eftir. Dagmar Koller, . 26, söngkona og dansmær á í miklu stríði við nýja þernu sína. Hlutverk þernunnar er að sjá um búninga hennar, en hún er svo svifasein að það hefur oftar en einu sinni legið við að dansmær- in kæmi of seint fram á sviðið. í síðustu söngferð sinni spurði hún þernuna hvort hún vissi ekki að neitt væri til sem héti fljótt. Hún svaraði um hæl: „Jú, en ég verð því miður svo fljótt þreytt". Gila von Weitershausen, 27, og maður hennar leikarinn Martin Lúttge, 29, fluttu nýlega úr íbúð sinni í Múnchen. En þeir góðborg- arar sem fluttu inn í íbúðina á eft- ir þeim hafa þó ekki haft mikla ánægju af henni. Það er sífellt ver- ið að hringja dyrabjöllunni dag og nótt. Fyrir dyrum standa vinir hjón- anna og biðja um húsaskjól, því að sá orðrómur hafði gengið meðal leikara og hippa að Gila og Martin hefðu jafnan opið hús fyrir ferða- menn. Frægt - ríkt - umdeilt fólk Curd Jiirgens, 55, hinn frægi þýzki leikari, skýrði nýlega frá leynilegu áformi sínu. Hann ætlar að bjóða mönnum „áskrift að rósum". „Áskrifendurnir" eiga að fá sendar rósir einu sinni á viku frá ræktunar stöð hans í Vence (í Suður-Frakk- landi). Júrgens ætlar að byrja á því að safna áskrifendum í Ham- borg, en þó ekki fleiri en 200, því að þetta á ekki að vera fyrir fjöld- ann. Tilkynning Athygli innflytjenda skal hér með vakin á því, að samkvapmt auglýsingu viðskiptamálaráðuneytisins, dags. 23..des. 1970, sem birtist í 1. tbl. Lögbirtinga- blaðsins 1971, fer 3. úthlutun gjaldeyris- og /eða innflutningsleyfa árið 1971 fyrir þeim innflutnings- kvótum, sem taldir eru í auglýsingunni, fram í nóv. 1971. Umsóknir um þá úthlutun skulu hafa borizt Landsbanka íslands eða; Útvegsbanka íslands fyrir 31.október n. k. LANDSBANKI ÍSLANDS ÚTVEGSBANKI ÍSLANDS. Franz Josef Strauss, 55, leiðtogi Kristilegra demókrata er enn að læra. Eftir að hafa lært að fljúga eins hreyfils flugvél hefur hann nú fengið réttindi til að fljúga tveggja hreyfla flugvél. í próffluginu flaug hann frá Núrnberg til Bruck. Farah. 32, drottning íranskeisara, gaf borgarráðsmönnum í höfuð- borginni Teheran nýlega góða hug- mynd, þegar þeir voru að leita að nafni fyrir götu. Borgarráðsmenn- irnir mundu eftir því að drottning hafði einu sinni komið á slysstað við þessa götu og orðið svo hrærð að hún grét hástöfum. Þess vegna stungu þeir upp á því að skýra göt- una: „Götu drottningartáranna". Farah samþykkti þetta. Ruth-Maria Knbitschek, 39, varð fyrir grimmdarlegri aðsókn manna, sem báðu hana um eiginhandarrit hennar, þegar hún var stödd í Linz am Rhein. Hún varð alveg ringluð í kollinum, þegar allir flykktust utan um hana. Jóhannes Schaaf, leikstjóri, kom í humátt á eftir henni og fékk eiginhandaráritun hennar án þess að hún tæki eftir því hver þessi „aðdáandi" hennar var. Wallis, Hertogaynja af Windsor, 75, lét nýlega gera á sér mjög sárs- aukafulla andlitsaðgerð gegn ráðum lækna sinna. Hún skýrði einni vin- konu sinni frá ástæðunni: „Ég verð að vera eins lengi falleg fyrir Ed- ward og auðið er", þess vegna . . . Rupert Davies, 55, sem hefur leik- ið hinn fræga Maigret lögreglufor- ingja í kvikmyndum eftir sögum Simenons, má nú búast við því að fá leynilögreglumann innan fjöl- skyldunnar. Sonur hans, Tim, 22, hefur lokið prófi, sem gerir honum kleyft að gerast lögreglumaður. En hann er þó þegar búinn að gera sér grein fyrir því að hann verður að láta raka sitt mikla skegg og klippa sitt síða hár áður, annars getur hann ekki fengið neinn lögreglu- hjálm við sitt hæfi. Patrick Curtis, 36, sem uppgötvaði kynbombuna Raquel Welch og er enn giftur lienni, sást nýlega í London með nýjustu „uppgötvun" sinni, Judy Loren, 20, leikkonu frá New York. Curtis var fús til að láta ljósmynda sig með henni, en þegar hann var spurður að því hvort hann ætlaði að skilja, svaraði hann: „Þið ætmð heldur að spyrja Raquel". Um samband sitt og Judy Loren sagði hann: „Við erum aðeins góðir vinir". Judy trúði blaðamönnunum hins vegar fyrir því að þau elskuðu hvort annað. úr EINUI ÍANNAÐ Frumsýningagestir og nýnæmi — Úldið pakk í anddyrinu — Lögreglan, börnin og Tónabær — Safamýrin aðalbraut — Eru þeir stikkfrí? — Þjónar og fullir gestir — Fóstureyðingar og Bjarni Guðna. SATT ER ÞAÐ, ekki leggur frumsýningafólkið í Reykjavík mikið á sig til að skoða nýnæmi. Fáir, ef nokkrir, stóðu í bið- röð til að ná sér í miða á Senegalballettinn. En spyrja má enn einu sinni: Er það hægt hjá Þjóðleikhúsinu, slag í slag, að neita frumsýningargestum um miða sína vegna gesta- leiks? Þetta fólk greiðir miða sína allt leikárið, verzlar mikið við Leikhúskjallarann og eru beztu viðskiptavinir stofnunar- innar. Þegar eitthvað sérstakt skeður, þá eru miðarnir teknir af því. Eru peningar þess ekki eins góðir og lýðsins? Þjóð- leikhússtjóri hefur skapað þarna furðulegt fordæmi en ástæð- an er engum Ijós. •—----------------------- TIL AÐ SÝNA það sem að ofan getur má benda á það fólk sem Þjóðleikhússtjóri vill sýnilega að sæki stofnunina. Á frumsýningarkvöldinu s.l. mánudag gat að líta ungt par, Ijótt og skítugt, klætt eins og betlarar stórborganna, úfið hárið í kleprum og úldið á svipinn. Þetta voru sjálfskipaðir orginal- ar stórborgarinnar, ákaflega fyndið og frumlegt fólk, sem át brauðsneið, eflaust stolna, í anddyri musterisins. Dyraverðir tóku þetta gott og gilt, en sjá mættu menn svipinn á dyra- vörðum Bolsoi-leikhússins, ef þvílíkur rumpulýður skreytti anddyrið þar. ÞAÐ ER SENNILEGA heppilegra að bíða eftir almennilegum árekstri hjá bifreiðum sem aka Safamýrina, én brátt kemur að því, ef ekki götustubbar þeir, sem að Safamýrinni liggja, verða ekki látnir hlýða stöðvunarskyldu áður en^bejr aka inn á aðalgötuna. Það er hreinlega glæpsamlegt hversu hörmu lega umferðarnefnd gegnir hlutverki sínu í þessum efnum, jafnvel þótt sannað sé að slíkar götur, sem liggja að aðalum- ferðaræð, séu ekki annað en slysagildrur. Það er eins og persónuleg móðgun við umferðaryfirvöldin, ef þeim er bent á eitthvað sem betur mætti fara. Það hlýtur að vera nautn, að geta státað af slysum, en því ekki þá að hætta að væla um ástæðuna. •------------------------ LÖGREGLAN er all-upptekin af því að uppræta aukinn drykkjuskap hjá ökumönnum og er það vel. Þó væri gaman að vita hvort þeir, sem sækja cocktail-boð hins opinbera séu undanteknir? Fyrir stuttu síðan var „skipulagssjeníum árið 2000“ gefin vínblanda í ráðherrabústaðnum og komu all- margir á bílum sínum. Þessir hinir sömu óku hiklaust burtu úr boðinu án þess, að lögreglan skipti sér nokkuð af því. Það er sko gott að þurfa ekki að óttast lögin. •—----------------------- SVEINN skrifar: ,,Það er undarlegt með svonefnda yfir- þjóna. Það kemur varla fyrir ,að þeir taki nokkurt tillit til þess þótt fullir gestir ónáði aðra við borðin á veitingastöðum. Þjónn á að hafa vakandi auga með hegðan gesta og skilja, að það er erfitt fyrir gesti að standa í stímabraki við ótínda dóna, sem undir áhrifum áfengis og með þeirri afsökun að áfengi leyfi allt, eru til ófagnaðar á veitingahúsum. Þjónaskólinn ætti að taka þennan þátt þjónustunnar inn á kennsluskrá sína. Það yrði mjög vel þegið.“ ÞÁ VILL Bjarni Guðnason óska þess nú að meira frjálslyndi verði látið ríkja í eyðingu fóstra. Þetta er eflaust ágæt hug- mynd, þegar eitthvað er að, en þó mun íslenzka þjóðin ein af fáum, sem þarf aukinn fólksfjölda til að geta sómasam- lega búið í svo stóru landi. Tillaga um hömlulausar fóstur- eyðingar — nú þegar pillan er til — eru alveg út í bláinn. Næsta stórmál frjálsþýðinga?

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.