Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 20.12.1971, Qupperneq 3

Mánudagsblaðið - 20.12.1971, Qupperneq 3
Mánudagur 20. desember 1971 Mánudagsbíaðið 3 JÓLABÆKUR Oscar Clausen: Hftur í aldir III. Enn er út komin á vegum Skuggsjár nýtt sagnakver eftir hinn kunna sagnaþul Oscar Clausen og er þetta hið þriðja í röðinni. Oscar Clausen er sjór af gömlum fróð- leik kann skemmtilega að segja frá og styðzt við merkar heimildir og færir afbragðsvel í búning. Hann raðar ekki efni sínu eins og háttur er heldur drepur niðri á ýmsum öldum um allt landið og frá ólík- legustu viðburðum er sagt eins og höfundur hafi þar sjálfur verið við- staddur. Margt af þessum sögum hefur Oscar séð og lifað sjálfur en aðrar hefur hann sótt í heimildir safna eða til sögu manna, fært í búning og gert lifandi fyrir augum Iesandans. Greina beztar eru auðvitað sagnir hans að vestan þar sem hann ólst upp og kennir hvern bæ og þúfu, gjörþekkir ýmsa atburði, sem skeðu fyrir nokkrum áratugum eða, sum- ir, fyrir 50—60 árum og geymast enn vel í minni höfundar. Á þess- um árum voru miklar breytingar í uppsiglingu, einkum í þorpum og kaupstöðum á æskuslóðum höfund- ar, enda voru þá margir stórmerkir menn uppi, sem rík áhrif höfðu á samtíð sína þróun í ýmsum mikils- verðum málum og brutu nýjar brautir. En höfundi eru líka hugleiknir ýmsir aðrir atburðir sem lengra eru sóttir aftur í tímann. Hann lýsir skemmtilega og skilmerkilega bruna tveggja höfðingjasetra, Hvít- árvalla og Staðarfeilsbrunanum, svo og þætti af hinum stórbrotna höfð- ingja og stórbokka Bjarna sýslu- WOTEL miBÐIR 4 t. aKnc TOREA FRÁ TAHITI SKEMMTA BORÐUM HALDIÐ TIL KL. 21,00 1 DANSFLOKKURINN TOREA FRÁ TAHITI manni á Þingeyrum, „innréttingun- um" kappanum á Víðimýri Sæm- undi bónda, Ólöfu í Skarði, gömlu búðarstöðunum í Reykjavík, fátækraframfærslu fyrir 100 árum og öllum hinum óskyldustu atburð- um, sem fyrir kunna að koma. Eins og í fyrri bókum Clausens þá er stíllinn jafn lifandi og léttur og einkanlega hispurslaus Sunnu- dagur á kaupmannsheimili er þátt- ur af höfundi sjálfum er hann vann við verzlunarstörf vestra og gaman væri að vita til verzlunarmanna sem vildu búa við sömu kjör í dag. Þó virtust menn ánægðir þá. Oscar var þekktur hestamaður fram eftir árum, hefur átt yfir 100 reiðhesta sjálfur, verið hrossasali og þekkir vel til hesta almennt. í bókinni eru þættir af hestum, Vitrir hestar, sem fjallar um þekkta hesta og ein- kennileg atvik í sambandi við þá. Víða gætir gamansemi í þáttum Oscars og fullyrða má, að engum ungum né gömlum mun leiðast að lesa þessar fjölbreyttu og fróðlegu frásagnir eins af vinsælustu fræða- þulum okkar sem nú eru uppi. Bók sem engan svíkur. — A. B. Mark Twain: Iréf frá Jörðu Mark Twain setur sig í spor Sat- ans og gefur erkienglunum Grabíel og Mikael skýrslu um furðulega íbúa jarðarinnar —um yfirgengi- lega framkomu þeirra og forkostu- legt dramb — auk trúarhreyfingar þeirra, serh hafi komið þeim til að finna upp himin og helvíti. Hann birtist okkur einnig sem Ari fróði, sem lítur yfir og skýrir atvikin í aldingarðinum Eden, allt frá upphafi sögu til flóðsins mikla. Hann þýðir dagbækur Adams og afkomenda hans allar aldir til Shems, Metúsalems og geggjaða spámannsins. Hann notfærir sér kunnáttu 19. aldar rithöfundar, þegar hann fjall- ar um ritverk James Fenimore Cooper. Hvorki ensk húsagerðarlist og styttur, né menning Frakka, til- ögur til einfaldari stafsetningar eða jamanmynd af siðgæðisvenjum fara fram hjá honum. Allt er þetta ádeila á mannkynið hábölvaða og óhemjulegu heimsku þess. Roger Butterfield segir um þessa bók: Þessi handrit um mannlegar að- stæður eru ómótstæðilegar. Sumir telja sig víst fá sönnun hér með þess efnis, að Mark Twain hafi verið svartsýnismaður, en ég tel að þetta sýni, að hugur og sál sem hans gleymist hvorki né deyr um aldur og ævi. Vestar-Skaftfell- ingar 1703—1966 Björn Magnússon prófessor hef- ur samið þetta merka rit, sem verð- ur í fjórum bindum. — í ritinu verða nafngreindir allir þeir, konur og karlar, sem taldir eru til Vestui Skaftfellinga og skráðir fundust i embættisbókum þeim, skjölum og bréfum, sem talin eru í skrá óprent- aðra heimilda. Þetta er einstætt heimildarrit — ekki aðeins fyrir Skaftfellinga, held ur og fyrir alla þá, sem áhuga hafa á íslenzkum fræðum. Valur vandar vöruna □ SULTUR □ ÁVAXTAHLAUP □ MARMELAÐI □ SAFTIR □ MATARLITUR □ SÓSULITUR □ EDIKSÝRA □ BORÐEDIK □ TÓMATSÓSA □ ÍSSÓSUR □ BÚÐIN GSDUFT SENDUM U M ALLT LAND Gleðileg jól! Farsælt nýtt ár. Þökkum viðskiptin á líðandi ári. Efnagerðin Valur h.f' Kársnesbraut 124 — Sími 40795. ijii imydj ■ tOl iUj i Sölusamband íslenzkra fiskframleiðenda REYKJAVIK. Frjáls samtök íslenzkra saltfiskíramleið- enda, sem hafa með höndum sölu á framleiðslu félagsmanna. Símnefni: UNION REYKJAVIK.

x

Mánudagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.