Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 20.12.1971, Síða 12

Mánudagsblaðið - 20.12.1971, Síða 12
12 Mánudagsblaðið Mánudagur 20. desember 1971 Rósir og frostrósír Rósin í glugganum, augasteinn konunnar, lifir aðeins í yl stofunnar — úti er íslenzk veðrátta — hún á líf sitt undir einni rúðu. CUDO-GLER veitir tvöfalt öryggi, (ytri og innri þétting) þolir snöggar hitasveiflur, (yfir 39° á klst.) rramleitt meö erlendri tækni, þróað við íslenzka staðhætti í meira en áratug . . . ... til þess að öllum megi vera hlýtt inni, blómin í glugganum lifi,— nema auðvitað frostrósirnar. CUDO CUDOGLER HE SKÚLAGÖTU 26, SlMI 20650 JÓLATRÉ LANDGRÆÐSLUSJÓÐS AÐALÚTSÖLUSTAÐIR: Laugavegur 7 og Fossvogsblettur 1. Aðrir útsölustaðir: Vesturgata 6 Bankastraeti 2 Blómatorgið við Birkimel * Sjóbúðin við Grandagarð Laugavegur 95 Miðbær við Háaleitisbraut Blómabúðin Runni, Hrísateig Háaleitisbraut 68 Laugarnesvegur 70 Valsgarður við Suðurlandsbraut Blómabúðin Míra, Suðurveri Bióm og grænmeti, Langholtsvegi við Bústaðakirkju við Breiðholtskjör í KÓPAVOGI: Blómaskálinn, Kársnesbraut Gróðrarstöðin Rein, Hlíðarvegi. VERÐ Á JÓLATRJÁM: 0,75—1,00 m 1,01—1,25 m 1,26—1,50 m 1,51—1,75 m 1,76—2,00 m 2,01—2,50 m kr. 190,00 kr. 230,00 kr. 290.00 kr. 330.00 kr. 390.00 fcr. 520,00 Birgðastöð Fossvogsbletti 1 — símar: 40300 og 40313. Furu- og grenigreinar seldar á öllum útsölustöðum. ADELNS FYRSTA FLOKKS VARA TIL BLADSINS Framhald af 5. síðu. í þessuxn dálki, að valdamesti mað- ur Bandaríkjanna hefði verið A1 Capone, glæpamannaleiðtogi í Chicago. Auk þess var því haldið fram, að jafnvel bandaríski forset- inn hefði óskað þess að hann hefði völd á við þetta úrhrak. Mér er ókunnugt hvers konar lýð þér ætl- uðuð að trúa svona fjarstæðu en þér gerið enga lágmarkskröfu til sumra lesenda ef þér ætlið þeim að kyngja þessu. A1 Capone var glæpamaður í þess orðs verstu merkingu. Uppi var hann á bann- Skrýtla Á heræfingum skipaði herforing- inn svo fyrir, að á einni brúnni væri sett spjald sem á stæði: „Þessi brú hefur verið eyðilögð með loft- árásunum". Stuttu seinna sá hann nokkra fótgönguliða fara yfir brúna í mestu rólegheitum. Hann sendi hermann til þeirra og heimtaði skýringu á hvers vegna þeir hefðu ekki tekið neitt tillit til áletrunar- innar á spjaldinu. Sendiboðinn kom stuttu seinna aftur og sagði: „Það er í lagi, her- foringi. Hermennirnir bera spjald sem á stendur „Við erum að synda" árunum en þá var valdatími hans mestur og hryðjuverkin flest og viðurstyggilegust unnin vestra. Capone réði borgárhluta í Chicago (South Side) og hélt sig innan þeirra takmarka að mestu, því hon- um var bæði óhollt og hált á að fara mikið út fyrir landamæri sín, því á einni slíkri reisu var hann nær drepinn en á annarri handtek- inn af lögreglunni og dvaldi ár í tugthúsi. Bjór- og áfengisóþverra framleiddi hann og seldi þyrstum íbúum Chicago, hann rak tugi hóruhúsa, fyrirskipaði tugi ef ekki hundruð morða en var loksins handtekinn, dæmdur að vísu fyrir skattsvik, en var hrakinn úr glæpa- heiminum og geyspaði golunni á Florida-skaga (að vísu í luxuslífi) og var endanlega urðaður í Chi- cago. Völd hans náðu aldrei út yfir glæpahringinn í Chicago, hann var valdalítill meðlimur Mafíu-samtak- anna Cosa Nostra, fyrirlitinn og réttilega kailaður úrhrak jarðar- innar. Hvaðan þið fáið upplýsing- ar um völd hans er mér hrein ráðgáta. J. Hannesson. Allar eru þessar upplýsingar réttar um Capone. Þetta „úrhrak" lifði og drapst í þeirri vilpu viðbjóðs og 'xillvirkja sem gerðu nafn hans al- rcernt og borg hans eins konar samnefnara fyrir gjörspillta staði á jarðríki. Loksins tókst svokölluð- ttm „federal men" réttnefni, skatt- heimtumönnum ríkisins að negla hann fyrir skatta ógreidda og dóm hlaut hann upp á níu ár. Eliot Ness, hét einn aðal-angursmaður Al Capones og reyndar sá sem endan- lega kom honum í hendur skatts- ins, en naut þar auðvitað hjálpar annarra opinberra stofnana. Um hann var gerð kvikmynd, TJ:e Un- touchables, rómantísk œsimynd, starfi þessarra manna algerlega ósamboðin. Mánudagsblaðið birtir þennan skemmtilega frétta- og kjaftadálk sem lið af afþreyingar- efni blaðsins og viðar að sér upp- lýsingum úr ýmsum evrópskum og amerískum blöðmn. Téð frétt ttm Capone okkar var í þýzku blaði. Sagt var þó, að einn af forsetum Bandaríkjanna meðan Capone var uppi og illrœmdur um öll Banda- ríkin, hafi verið í sumarfríi í Elorida og dvalið þar á hóteli sem Capone var líka gestur. Svo vildi þó til að þegar sjálfur forsetinn gekk í lobby hótelsins og bjóst við að allir gestir myndu lita við og skoða sig af forvitni og aðdáun, þá lá leið glcepaforingjans líka um lobbý- ið og lýðurinn hópaðist kringum Jorœdýrið en lét forsetann lönd og leið. Sagt er að forsetinn hafi þá sagt, sennilega í afbrýðiskasti, við menn sína: „Tell the feds, that I want tJois Capone fellow taþpn care of" eða: segið Joinni opinberu lögreglu, að ég vilji, að séð verði um að koma Capone fyrir kaéfyrncf. (Auð- vitað á löglegan hált, þótt glcepa- lýðurinn legði aðra merkingu t „taken care of"). Má vera, að þessi saga, sem eflaust er ósönn, sé fót- urinn fyrir hinum miklu völdnm Al Capones, sem í greininni birtist. ■—- Ritstj.

x

Mánudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.