Mánudagsblaðið - 20.12.1971, Qupperneq 16
ÚR 211
í ANNAÐ
Gerfipatríótar og ættjarðarlögin — llla klæddar trygginga-
stúlkur — Læknirinn og hitamælirinn — Afbrýðisemi að
óþörfu — Lélegt skemmtiatriði — Heppinn bílstjóri.
HÁSKÓLABORGARARNIR, þessir gerfipatríótar, sem hæst
hafa 1. des. sýndu alþjóð hve illa þeim fer þetta gaspur sitt
á þessum degi. Utan allrar vitleysunnar um varnarliðið, þá
skorti ekki eldheita ættjarðarást piltanna þ. e. kommúnist-
anna 200 og bítlaliðsins, sem skreyttir háskólann okkar..Einna
bezt sannaðist föðurlandsástin þegar háskólanemar vildu
syngja ættjarðarlögin frægu. Það var ekki fyrr en söngstjórinn
hafði ítrekað spurninguna til söngvaranna, um hvort þeir hefðu
nú ALLIR fengið blaðið með Ijóðinu ,,Ég vil elska mitt land“,
að þessir ættjarðarvinir gátu hafið upp raust sína og kyrjað
skammlítið gegnum þetta Ijóð. Sem betur fer heyrði öll þjóð-
in, sem nennti að hlusta á útvarpið, þessa skömm.
„ÞAÐ ER UNDARLEGT" skrifar ein, sem er trúlofuð „hversu
illa klætt starfsfólkið, einkum kvenfólkið, er hjá Tryggingar-
stofnun ríkisins. Þessar stelpur ganga í hreinum lörfum skitn-
um peysum, sem fara auk þess illa, gallabuxum, pokalurfum
og öðrum slíkum klæðum, sem venjulega hanga utan á ræksn-
islýð og flækingum. Þetta er opinber stofnun og þó allar séu
ekki sekar, þá eru þær of margar. Hvernig er það með
opinbert starfsfólk: getur það ekkert annað en heimtað hærra
kaup en hefur engar sjálfsagðar skyldur né almennar um-
gengnisvenjur? Það var mun skárra fyrir nokkrum árum".
•-----------------------
ALLT SKEÐUR hjá læknunum okkar, a. m. k. flest. Stúlka ein,
ung og falleg, kom til læknis til rannsóknar og þurfti meðal
annars að leggjast allsnakin á grúfu á sjúkraborð meðan rann-
sóknin fór fram. Allt í einu hvíslaði hún feimnislega: „Læknir,
þér hafið sett hitamælinn í ramm-vitlausan stað“. Hún varð
dálítið undrandi þegar læknirinn svaraði:
„Hann er ekki á vitlausum stað — auk þess, sem þetta er
ekki hitamælir".
OG ÞESSI er beint úr Playboyreiginkona nokkur sleppti sér
alveg þegar hún kom að manni sínum í rúminu með ungri,
Ijöshærðri stúlku, greip öskubákka ög aetláði að' keyra- hann
f hausinn á honum þegar hann sagði: „Hún er bara fátæk
flækingsstúlka sem ég pikkaði upp í bílinn minn á þjóðvegin-
um. Hún var hungruð svo ég gaf henni að borða hér heima.
Þá sá ég að sandalarnir hennar voru ónýtir svo ég gaf henni
gamla parið, sem þú hefur ekki farið í, í tólf ár. Næst sá ég,
að skyrtan hennar var rifin, svo ég gaf henni gömlu blússuna,
sem þú hefur ekki virt viðlits síðan 1969. Nankinsbuxurnar
hennar voru allar bættar svo ég gaf henni siðbuxur, sem þú
aldrei brúkar. En þegar hún var að fara þá spurði hún: er
það nokkuð fleira, sem konan þín brúkar ekki?“.
TVEIR MENN sátu á bar þegar annar þeirra allt í einu tók
upp lítið píanó, músargrey og fiðrildi. Músin byrjaði þegar
að leika á píanóið og fiðrildið hóf að syngja aríu af fullum
krafti, hinum manninum til mikillar undrunar. „Þetta er stór-
kostlegt, sem þú hefur þarna, því reynirðu ekki að koma
þessu atriði inn á eitthvað ,,show“-ið í sjónvarpinu t. d. hjá
Flosa Ólafs.?“
„Flosi og Jón Þórarinsson mundu ekki vilja sjá það“ svar-
aði hinn súr á svip. „Sannleikurinn er sá, fiðrildið er nefnilega
ekki að syngja. Músarhelvítið er búktalari“.
•-----------------------
. . . og svo er það BSFi-bílstjórinn sem reyndi að forða
krakka og stoppaði svo snöggt að hann hafði næstum henzt
. . . úr dívaninum.
SJÓNVARP KEFLAVÍK
Laugardagur
9.00 Cartoon Carnival — Roger
Ramjet, Spunky and Tadpole
9.45 Captain Kangaroo
10.3} Sesame Street
11.35 Golden West Theater —
Roy Rogers
12.00 Red Skelton
1.00 The Osmond Brothers
1.30 Roller Games
2.15 Auto Racing — Loop
Motorcycles
3.15 National Airlines Open Golf
Tournament
4.20 Voyage To The Bottom Of
The Sea
5.15 Jonathan Winters
6.00 Information Show
7.00 The World Report
7.15 Greatest Fights — Zale vs.
Graziano
7.30 Mayberry RFD — Sensi-
tivity Training
8.00 Gunsmoke — Muley
9.00 Pearl Bailey — Guests Ethel
Waters, Robert Goulet
10.00 The Defenders — The
Tarnished Cross
10.55 Chaplain’s Corner
11.00 Final Edition News
11.05 Northern Lights Playhouse
— Sherlock Flolmes In
House Of Fear
12.15 Playboy After Dark —
Guests Rich Little, llobert
Goulet, Shari Lewis
Jónas Guðmundsson:
Hægur
sunnan sjö
„Hægur sunnan sjö" eftir Jónas
Guðmundsson, stýrimann, hefur
hlotið verðskuldað umtal manna á
meðal í undanförnu blaðaleysi.
Bókin er ómótstæðiloga læsileg,
full af lifandi myndum, sem hafa
meira og varanlegra gildi en bara
til einna jóla. Af skiljanlegum
ástæðum verður ekki nú gerð nein
bókmenntaleg úttekt á Jónasi. En
velkomin heim og til hamingju
Jónas.
Raquel mætir galvösk í næsta
blaði — og fleira frægt fólk.
Þct fáitf cillcif (íy99ifi9<if hjé okkuf
Samvinnutryggingar hafa starfaö í 25 ár. Bjartsýni og stórhugur ríkti við stofnun félagsins og fullyrða má, að flestar óskir
og vonir hafa rætzt.Viðskiptavinum fjölgar stöðugt og margbreytileg verkefni vaxa dag frá degi. Nauðsynlegar nýjungar hafa verið
teknar upp og áföllum verið mætt með festu og öryggi. Meginstefnan er og hefur verið hagkvæmar tryggingar og sanngjarnt
tjónauppgjör.,Á þessum tímamótum er því ástæða til að gleðjast yfir þeim árangri, sem náðst hefur, og horfa björtum augum til
framtíðarinnar. Félagið er enn ungt að árum, og framundan eru manndómsárin. Á því aldursskeiði má vænta beztra afreka, þegar
undirstaðan hefur verið lögð af kostgæfni og með ákveðið takmark í huga.
Á þessum tímamótum sendum við öllum viðskiptamönnum okkar beztu kveðjur og árnaðaróskir.
SAM'VI rVINUTRYGGirVGAR
ÁRMÚLA 3 - SÍMI 38500