Tíminn - 04.08.1977, Side 3

Tíminn - 04.08.1977, Side 3
Fimmtudagur 4. ágúst 1977 3 Niðurstaða væntanleg — en enn er óvíst hvort grunnskólakennarar fá greiddan kostnað til jafns við menntaskólakennara gébé Reykjavik — Skýrt var frá þvi i Timanum fyrir stuttu að menntaskólakennarar utan af landi, fengju ekki aðeins dagpen- inga þegar þeir sækja námskeið við Háskóla tslands i Reykjavik, heldur og einnig ferðakostnað greiddan. Grunnskólakennarar, sem sóttu nákvæmlega sama námskeið fengu hins vegar ekki neitt. Timinn hafði samband við Höskuld Jónsson, ráðuneytis- stjóra i fjármálaráðuneytinu i gær til að grennslast fyrir um hvort nokkuð hefði verið gert i máli þessu. — Jú, við höfum rætt saman ég og formaður Félags há- skólamenntaðra kennara um þetta mál. Ég á von á að niður- staða komi innan tiðar, cn eínnig þarf að ræða við menntamála- ráðuneytið um þetta, sagði Hösk- uldur. Frétt þessi birtist I Timanum. þann 14. júli, og var tilefnið að menntaskóla- og grunnskóla- kennarar sóttu þá sex vikna nám- skeið við Háskóla íslands i upp- eldis- og kennslufræðum. Fjöl- margir kennarar tóku þátt i nám- skeiðinu og þá ekki sizt kennarar utan af landi, en þaðan komu um 20 kennarar. Þeir eru i Lands- sambandi framhaldsskólakenn- ara og Félagi háskólamenntaðra kennara, þ.e.a.s. sjö kennarar af þessum tuttugu, sem kenna við grunnskóla úti á landi. Mennta- skólakennarar eru hins vegar i Félagi menntaskólakennara. Samningar þessara félaga eru svo til samhljóða, nema bókun i samningi siðastnefnda félagsins, sem tekur sérstaklega til kostn- aðs er hlýzt af námskeiðum. 1 stuttu máli sagt, þá fengu menntaskólakennarar utan af landi greidda 2/3 hluta dagpen- inga opinberra starfsmanna á meðan á namskeiðinu stóð, og auk þess greiddan ferðakostnað. Grunnskólakennararnir fengu ekki neitt, og eiga aö sjálfsögðu erfitt með að sætta sig við það, og þeir biða með óþreyju eftir að mál þetta verði tekið upp. Það skal þó tekið fram i þessu sam- bandi að bæði júli- og ágústmán- uður eru þeir mánuðir, sem flest- ir taka sér sumarfri, og svo á einnig við um starfsmenn i ráðu- neytum og mun þvi að einhverju leytiað kenna að afgreiðsla þessa máls hefur gengið hægt. Höskuldur Jónsson Nýr flokkur spariskír- teina ríkissjóðs Föstudaginn 5. ágúst n.k. hefst sala spariskirteina rikis- sjóös i 2. fl. 1977, samtals að fjárhæð 1.100 milljónir króna. Byggist útgáfan á fjárlaga- heimild og heimild um útgáfu spariskirteina i stað þeirra sem innleyst hafa verið, að viöbættri verðlagsuppbót. Kjör skirteinanna eru hin sömu og undanfarinna flokka. Höfuðstóll og vextir eru verð- tryggðir miðaö viö breytingar á byggingarvisitölu. Skirtein- in eru bundin fyrstu fimm ár- in, en frá 10. september 1982 eru þau innleysanleg hvenær sem er næstu fimmtán árin. Skirteinin, svo og vextir af þeim og verðbætur, eru skatt- frjáls og framtalsfrjáls á sama hátt og sparifé. Skirteinin eru gefin út i þremur verðgildum, 10.000, 50.000 og 100.000 krónum og skulu þau skráð á nafn meö nafnnúmeri eiganda. Sér- prentaðir útboðsskilmálar fást hjá söluaðilum, sem eru sem fyrr bankar, sparisjóðir og nokkrir verðbréfasalar i Reykjavik. Fjölgun í bygg- ingariðnaðinum áþ-Reykjavik. Um árabil hefur Landssamband iðnaðarmanna, ásamt Félagi islenzkra iðnrek- enda staðið fyrir ársfjórðungs- legri könnun á ástandi og horfum i almennum iðnaði, sem nefnist ,,Hagsveif luvog iðnaðarins ”. Hingað til hefur þessi könnun ekki náð til by ggingariðnaðarins. Lamlssamband iðnaðarmanna stendur að þessari könnun i sam- ráði við Mcistarasamband bygg- ingarinanna. Könnunin nær til flestra stærstu fyrirtækja i bygg- ingariðnaði og margra smærri. I könnuninni kom i ljós að um Ætlaði Þjóðverj- inn að setjast að á íslandi? AÞ-Reykjavlk — Nú eru komnir til landsins tveir þýzkir lög- reglumenn tii að fylgjast með rannsókn i máli Ludwig Lug- meier sem handtekinn var um s.l. helgi. Annar þeirra er yfir- lögregluþjónn frá Frankfurt, en hanr. hefur unnið mikið við mál Lugmeiers. i gær voru þýzku lögreglumennirnir ekki sagðir vera I Reykjavik, en hvar þeir væru eða i hvað erindum vildi Hallvarður Einvarðsson hjá Rannsóknarlögregiu rikisins ekkj skýra frá. Lugmeier og Bandarikjamaðurinn sitja i Siðumúlafangelsinu. Verið er að rannsaka umsvif Þjóðverjans hér á landi og tengsl hans við Bandarikjamanninn. Rann- soknin er komin vel á veg, en aö sögn rannsóknarlögreglu rikis- ins erekki hægt að greina nánar frá henni i bili. Fram hefur komiö að Þjóð- verjinn hafði hug á að kaupa jörð hér á landi, og mun Banda- rikjamaöurinn hafa verið hon- um innan handar i þvi máli og e.t.v. i fleiri umsvifum. Kunn- ingsskapur mannanna tveggja er talinn hefjast þegar Lugmei- erkom hingað til lands frá Glas- gow annan marz s.l. Lugmeier bjó fyrst á hóteli, en leigði sér svo Ibúð í Breiðholti. Héðan fór hann aftur til Bretlands 10. júni „til að sinna sérstökum erind- um” eins og Ólafur W. Stefáns- son hjá dómsmálaráöuneytinu komst aö oröi er Tlminn ræddi við hann i gær. Hins vegar vildi Ólafur ekki greina frá þeirri för ineinum smáatriðum, enda var ekki búið að komast fyllilega til botns i þvi máli. Eins og áður sagði, þá er talið að Þjóðverjinn hafi haft hug á að komast yfir jörð hér á landi. Ólafur var þvi spurður hvort ekki hefði komizt upp um hann ef sú ráöagerð hefði heppnazt. Ólafur sagðist gera ráð fyrir að dómsmálaráðuneytið hefði kannað fortið mannsins að ein- hverju leyti ef hann heföi farið að fjárfesta á islandi. Hins veg- ar væri eins vist, aö enginn rannsókn hefði verið gerð ef Lugmeier hefði keypt sér ibúð. — Það er dómsmálaráðuneytið sem gefur útlendingum leyfi til að eiga fasteignir hér á landi, sagði Ólafur, — en yfirleitt er um að ræða útlendinga sem hafa búið hér um nokkurt skeiö og ekki sýnt neitt misjafnt af sér. Vegabréfaeftirlitið hefur und- ir höndum upplýsingar um ó- æskilegt fólk en ekki er vist að það hafi haft upplýsingar um þennan ákveðna mann á Kefla- vikurflugvelli. En viða erlendis er fullkomin tölvuútbúnaður á flugvöllum, sem getur gefið svar á augabragöi um hvort við- komandi maður sé eftirlýstur. Þá er það svo, að komi einhver frá Norðurlöndunum þarf hann ekki að sýna vegabréf, og getur dvalið hér um ótakmarkaðan tima. — Ég sé ekki ástæöu til að segja frá sambandi Bandarikja- mannsins og Þjóðverjans á þessu stigi málsins, sagði Hall- varður Einvarðsson, — en rann- sókn á þeim þætti málsins ætti að ljuka eftir nokkra daga. Þjóðverjinn og Bandarikja- maðurinn hafa verið úrskurðaö- ir i varðhald til 17. ágúst, en konunni sem var i bílnum með þeim, var sleppt að lokinni yfir- heyrslu. Svo virðist sem Banda- rikjamaðurinn hafi geymt pen- inga fyrir Þjóðverjann á meöan hann dvaldist úti. A.m.k. fund- ust miklar peningafúlgur undir bilsætihinsameriskaþegar þeir voru handteknir, en samtals höfðu þeir undir höndum 277 þúsund þýzk mörk og smávegis af íslenzkum peningum. 45% mannaflans starfar við byggingu ibúðarhúsnæðis, en um 20% við byggingar atvinnuhús- næðis, um 18% við bygg- ingar á vegum hins opinbera, og um 16% við aðra starfsemi. A fyrsta ársfjórðungi þessa árs störfuðu um 23% fleiri menn en árið 1975. Stærsti hluti þeirra, sem starfa við byggingariðnaðinn eru, eins og við mátti búast, iðnaðarmenn eða um 35%. Næst- stærsti hópurinn eru verkamenn eða um 35%. Aukning starfs- mannafjölda hjá þeim fyrirtækj- um, sem tóku þátt i könnuninni frá árinu 1975 til fyrsta ársfjórð- ungs 1977, er eins og áður sagði um 23% i heild, en talsvert mis- munandi eftir greinum. Þannig er aukningin hjá verktökum 20,7%, i húsasmiði 44,4%, en hins vegar er samdráttur sem nemur 19,0% i húsamálun, 50,4% i pipulögnum og 28,5% i raflögnum. Engin skýring önnur en árstimabundin sveifla i þessum greinum hefur komið I ljós, en i skýrslunni segir, að athyglisvert verði að sjá hvort sönnun fáist fyrir þvi á næsta árs- fjórðungi. 1 skýrslunni segir svo um horf- urnará öðrum ársfjórðungi þessa árs: — Fyrirtæki meö um 8% mannaflans gefa upp, að þau bú- ist við aukinni starfsemi á 2. árs- fjórðungi ársins. Þetta bendir til rr.jög litillar breytingar, þar sem munurinn er svo litill (43% meira 35 minna) og getur raunar brugð- ið til beggja vona ef miðað væri við magnbreytingu i framleiöslu. Þessi niðurstaða fyrir byggingar- iðnaðinn i heild er heldur lakari en við mætti búast miðað við árs- tima, en kemur hins vegar heim og saman við fyrri reynslu um hægari bata i byggingariðnaði en öðrum greinum, þegar efnahags- ástand er á uppleið úr öldudal. 1 verktakafyrirtækjum er niðurstaðan sú, að fyrirtæki með helming mannaflans búast við aukningu, en hinn helmingurinn býst við samdrætti, þannig að nettó niðurstaðan er óbreytt á- stand framundan. Fyrirtæki i raflögnum búast hins vegar við minnkandi starfsemi á 2. árs- fjórðungi. Hjá fyrirtækjum i húsasmið, málun og pipulögnum virðist hins vegar vera rikjandi meiri bjartsýni og búast t.d. öll fyrirtæki i málun við aukinni starfsemi með vorinu. 1 pipu- lögnum búast fyrirtæki með tæp 40% mannaflans við aukinni starfsemi, en i húsasmföi búast fyrirtæki með um 55% mannafl- ans við aukningu. 35% þeirra sem starfa I byggingariönaöinum eru iönaöarmenn en verkamenn eru um 25% mannaflans.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.