Tíminn - 04.08.1977, Blaðsíða 19

Tíminn - 04.08.1977, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 4. ágúst 1977 19 Skemmtiferð í Breiða- fjarðareyjar 14. ágúst Skemmtiferð: Kjördæmissamband Framsóknarmanna á Vestfjörðum efnir til skemmtiferðar með m/b Baldri um Breiðafjörð þann fjórtánda ágúst næstkomandi. Farið verður frá Brjánslæk kl. 11 f.h. og komið aftur um klukkan 18.00. Ölafur Jóhannesson ráð- herra flytur ávarp i Flatey, en Eysteinn P. Gislason Skáleyjum verður fararstjóri. Rútubill fer frá Isafirði á sunnudagsmorgun og tekur farþega á leiðinni. Upplýsingar gefa Kristinn Snæland Flateyri, simi 7760. Eirik- ur Sigurðsson Isafirði, simi 3070, Sigurður Viggósson Patreks- firði i sima'1201> og Jón Kristinsson Hólmavlk, sima 3112. Allir velkomnir. Rútuferðir verða frá Isafiröi bæði á laugardagsmorgun og sunnudagsmorgun. Vilhjálmur Hjálmarsson og Halldór Asgrimsson halda leiðar- þing á Mjóafirði föstudaginn 5. ágúst kl. 21.00. Á laugardag 6. ágúst halda þeir leiðarþing á Borgarfirði og hefst það kl. 21.00. Leiðarþing í Austurlands- kjördæmi Sumarferð Framsóknarfélaganna í Reykjavík 7. ágúst Aðalfararstjóri ferðarinnar verður Þórar- inn Þórarinsson alþm. Leiðsögumenn verða: Ágúst Þorvaldsson, fyrrverandi alþingis- maður Jón Gislason, póstfulltrúi Jón R. Hjálmarsson, fræðslustjóri Magnús Sveinsson, kennari Páll Lýðsson, bóndi Þór Magnússon, þjóðminjavörður Stefán Jasonarson, bóndi. Leiðarlýsing Ekið úr Reykjavik kl. 8.00 stundvislega, austur Hellisheiði, Ölfus, Fióa og Skeið. Siðan upp Eystri-Hrepp upp Þjórsárdal hjá Haga, Gaukshöfða og Bringum. Siðan iftn Þjórsárdalinn, inn Sandártungur, framhjá Hjálparfossi og Skeljabrekku inn að Sögualdarbænum og hann skoðaður, undir leiðsögn Þórs Magnússonar þjóð- minjavarðar. Siðan verður farið inn að Búrfellsstöðinni undir Sámstaðamúlan- um, inn að Stöng og Gjánni. Einnig verður farið, verði veður gott, inn að Reykholti og stanzað við sundlaugina þar um stund. Heim verður ekið sömu leið og beygt út af þjóðveginum hjá Reykjum á Skeiðum og ekið út að Skálholti og þar mun Þór Magnússon lýsa staðnum og sögu hans. Þaðan verður ekið upp hjá Torfastöðum flokksstarfið Magnús. Páll. Jón R. Jón. Þór. Stefán. upp Reykjaveg að Efri-Reykjum og farið þar yfir Brúará, og siðan út Laugardal, en þar er sérstaklega fagurt umhverfi og skemmtilegt að aka i góðu veðri. Siðan verður farið út Laugarvatnsvelli, og yfir Gjábakkahraun til Þingvalla. Um kvöldið verður ekið eins og leið liggur yfir Mos- fellsheiði til Reykjavikur. Áætlað að koma til Reykjavikur kl. 20.30. Áningarstaðir verða ákveðnir nánar á leiðinni, og fara þeir eftir þvi, hvernig veður verður og aðrar aðstæður. Á allri þessari leið, er margt að sjá og skoða, um- hverfi allt hið fegursta og margir sögu- frægir staðir. í bilunum verða kunnugir og reyndir leiðsögumenn, sem lýsa leiðinni. Miðar seldir á skrifstofu Framsóknar- flokksins, frá kl. 9.00 til 19.00. Rauðarárstig 18. Simi 24480. á Agúst. Útiskák- mótið í Lækjar- torgi — 10 til 15 landsliðsmenn munu taka þátt í því MÓL-Reykjavik. — Ætli það taki ekki svona 10-15 landsliðs- menn þátt i mótinu, sagði Kristinn Friðfinnsson starfs- maður hjá Skákfélaginu Mjölni er Timinn spurði hann hvernig undirbúningi útiskákmótsins liði, sem Mjölnir ætlar að gang- ast fyrir á Lækjartorgi i næstu viku. Eins og fram hefur komið i Timanum þá ákvað skákfélagið Mjölnir á sinum tima að efna til móts á Lækjartorgi til f járöf lun- ar fyrir skákfélagið. Munu 40 skákmenn tefla niu umferðir eftir Monrad-kerfi, 10 minútna skákir og verður hver skákmað- ur merktur i bak og fyrir nafni þess fyrirtækis sem hann keppir fyrir. Þá verður nafn fyrirtæk- isins kallað yfir áhorfendaskar- ann bæði fyrir og eftir hverja umferð. Ætti þvi' að fást ágætis- auglýsing fyrir þau fyrirtæki sem taka þátt i mótinu. Agóðan- um verður svo varið til þess að . efla unglingastarfsemi Mjölnis á vetri komanda. Að sögn Kristins verður há- talarakerfi komið fyrir á Lækj- artorgi meðan á þessu einstæða móti stendur, en áætlað er að það verði á föstudaginn eftir viku, — ef veður leyfir. Að lokum benti Kristinn á þá staðreynd að þetta mót yrði enn eitt dæmið um það að ísland væri að verða „Mekka skák- listarinnar” en viðbúið væri, að fréttir af þessu sérstæða móti bærusttilútlanda. Ekki ætti það að draga úr likum Friðriks Ólafssonar til að verða forseti alþjóðasambandsins Loðna um 80 sjómílur NN úr Straum- nesi. Við ætlum að fara norður og vestur fyrir flotann og siðan að halda suður á við og til Reykjavikur, sagði Jón. Við höfum farið allt austur fyrir Melrakkasléttu og norður á 69. gráðu, en ekkert fundið af loðnu nema það sem áður er nefnt. Ekki er vitað til að neitt leitar- skip verði meö loönuflotanum á miðunum næstu þrjár vikur. Norræn talar fil. dr. Margareta Wirmark um leikhúsið sem lifsform. Is- lenzkur leiklistarnemandi að- stoðar. bann dag verður væntan- lega sýnd islenzk kvikmynd. Aðgangur að öllum þessum dagskrárliðum er ókeypis og öll- um heimil. 1 sambandi viö kirkjudagana hefur frú Sigrún Jónsdóttir opnaö sýningu á 13 verkum. Eru það ýmis konar kirkjumunir. Á siðastliðnu ári var Sigrúnu Jónsdóttur boðið á vegum fræðslusambands sænsku kirkjunnar til Sviþjóðar til að hafa sýningar á verkum sinum. Sýndi hún i Stokkhólmi, Harnö- sand og Vasteras. Sýningum hennar var vel tekið og fékk hún pantanir á skreytingum fyrir m.a. banka og kirkjur. Um þessar mundir er staddur hér á landi hópur af kennurum og nemendum frá fræðslusambandi sænsku kirkjunnar og munu þeir halda viku námskeið á Tálkna- firði, þar sem kennd verður lita- og formfræði.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.