Tíminn - 21.08.1977, Qupperneq 27
Sunnudagur 21. ágúst 1977
27
AGUÐS
GINN 24. JÚLÍ SÍÐAST LIÐINN
með-vitundin um handleiðslu
Guðs seitli mér að hjartarótum
um siðir.
önnur leið virðist liggja að
sama marki, raunar skyld hinni
fyrri: Sá dagur rennur i lifi þinu,
að þér verður það ljóst, hve f jarri
þvi fer, að þú hafir eigin örlög i
hendi þér. Kringumstæðurnar,
sem lif þitt er unnið úr, hvernig
eru þær til komnar? Ekki spannst
þú þann þráð sjálfur nema að litlu
leyti einu. „Hver er sinnar gæfu
smiður”, rétt mun það að
nokkru. En hvernig stóð á þvi, að
þér tókst að timbra upp eigin
gæfu? Hver lagði þér til efnið og
hæfileikana til að vinna úr þvi?
Igrundaðu þessar spurningar.
Minnstu þess, að orðið „gæfa” er
af sömu rót og „gjöf”. Það sem
þú og aðrir hafa úr að spila ævi-
langt er gjöf til manna, en ekki
réttur þeirra, lán, en ekki eign.
Gakktu siðan feti framar og
þakkaðu honum, sem ljær og
gefur, honum sem telur höfuð-
hárin og varðveitir spörfuglinn.
Þessi leið er fær og mörgum
trúlega þeim mun nærtækarisem
lengra á ævina liður. Reyndu þá
leið. Æfðu þig i þessari trú. Gerðu
þér far um að vegsama hann, sem
gefur og tekur. Þú munt komast
að þvi, að hann er á næsta leiti,
' hvort sem þú gerðir þér það ljóst
eða ekki. og þú munt sannreyna,
að þér er hentara að þakka hon-
um og tilbiðja hann en að stimp-
ast við hann og standa uppi i hár-
inu á honum. Hið siðara er óhollt
fyrirsálarfrið þinn og þar að auki
vita tilgangslaust. Hann nær þér
að lokum, hvort sem þú vilt eða
ekki. Og það þarf engan að
undra: Hann hefur nefnilega ver-
ið ekki aðeins á hælum þér, held-
ur við hönd þér og feti framar en
þú, allt frá þvi þú steigst- fyrstu
skrefin.
IV
Við öll, sem saman söfnumst á
sunnudegi i helgidómum Drottins
um viða veröld, eigum margs að
biðja og margt aö þakka. Þau
bænarmál og þá þakkargjörð
heyrir Kristur, þótt flutt sé I
hljðði. Það sem þú aö þinu leyti
hefur við hann að segja, er einka-
mál ykkar tveggja, og hann mun
ekki brjóta á þer trúnað. Hitt
skiptir þó mestu, að við eigum i
tilteknu efni eina gjöf saman,
kristnir menn um alla jörð, —
eina hamingju, —■ eina þökk:
Sameiginlega þökkum við Guði
það, að hann skóp okkur og bar i
þennan heim, að hann sendi okk-
ur son sinn til endurlausnar, að
hann kenndi okknr að leita trúar
og finna hana, að hann reisti
kirkju sina undir sólunni og
teygði arma hennar um heims-
kringluna alla.
Við sem hér erum saman komin
i Skálholti i dag, tökum undir
þakkarorð annarra kristinna
manna fyrir þessa handleiðslu
alla. En við berum fleiri efni
sameiginlega fram fyrir Drottin á
Skálholtshátíð, þessum stærsta
degi ársins hér á staðnum, þess-
ari fornu þjóöhátið, sem öldum
saman var helg haldin i minningu
hins blessaða Þorláks biskups og
sótt var af mönnum „um allt
land”, eins og komizt er að oröi I
áreiðanlegri heimild frá þeim
tima. Við þökkum Guði fyrir
islenzka kristni fyrr og nú, fyrir
kirkju þessa lands, — og siðast en
ekki sizt, — fyrir Skálholt.
Það er löngum erfitt að koma
auga á handleiöslu Guös, þegar
menn eru staddir i miðri rás
hraðra viðburöa og á ymsu geng-
ur. En eftir á rennur það þrás -
innis upp fyrir öllum þeim, er hlut
áttu að máli, að þegar krappast
var siglt, var um stjórnvölinn
haldið styrkastri hendi.
Þegar litið er til meira en niu
hundruð ára sögu þessa staðar, til
fyrri viðburða, til hinna miklu
alda islenzkrar kristni og
islenzkrar menningar, lútum við
höfði i orðlausri þökk. — Þegar
skyggnzt er um öxl yfir sögusvið
siðustu áratuga, þar sem Skalholt
ris úr lægingu, stig af stigi, til
nýrra og nýrra verkefna, orðið til
i upphafi úr engu nema endur-
minningu og trú, þá þarf mikla
sjónskekkju til að láta sér sjást
yfir nærveru og vegsögn hans,
sem einn gefur vöxtinn.
Maður kom fram. Menn komu
fram. Þeir létu sér það ekki
lynda, að Skálholt, hið forna vigi
Guðs, lægi i rústum til efsta dags.
Hver blés þeim sliku óþoli i
brjóst? Hversendi þá? Hver opn-
aði augu og eyru annarra fyrir
máli þessara manna, rökum
þeirra og ögrun? Hver tendraði
elda i fjarlægum löndum? Hver
breytti orðum i verk, i fjármuni, i
veglegar byggingar, i nýtt guðs-
hús á fornhelgum grunni, i nýjan
skóla, þar sem eitt sinn var
menningarmiðstöð þriggja lands-
fjórðunga?
Handleiðsla Guðs er hvorki
öfugmæli né hugarburður.
Handleiðsla Guðs er heldur ekki
einungis sálarstyrkur, alefling
andans, þótt henni vissulega sé
einnig og i rikum mæli þann veg
farið. Handleiðsla Guðs er fólgin i
þeim áþreifanlegum hlutum, er
hann fær mönnum að gjöf og að
láni, svo lengi sem honum vel lik-
ar. Handleiðsla Guðs er þvi sýni-
leg og ótviræð i Skálholti siðast
liðinn mannsaldur.
V.
Þetta árið eru þeir hlutir fram
komnir, sem ekki verður hlaupið
yfir á feginsdegi Skálholts: Skól-
inn ungi, sem hér hefur fetað
fyrstu spor um hrið, er nú fyrir
tilverknað stjórnvalda grund-
vallaður til frambúðar. Leyfist
mér að lita á þann atburð sem
handleiðslu Guðs? — Leyfist mér
i nafni allra þeirra, er Skálholti
unna, að þakka Guði þá gjöf, jafn-
framt þvi sem ég sendi vinar-
kveðju hverjum þeim, er haft
hefur meðalgöngu um fram-
kvæmd sliks nauðsynjamáls?
Þess háttar kveöju fylgja
blessunaróskir islenzku æskufólki
til handa, svo og sérstök fyrirbæn
fyrir nemendum Skálholtsskóla
nær og fjær og þar með fyrir
áhugamönnum um lýðháskóla-
hald á landi hér. Sömu orð eru
fyrir hönd Skálholtsskóla send
velunnurum Þjóðkirkjunnar, vin-
um hennar og starfsmönnum öll-
um. Megi Skálholtsskóli aö sinum
hluta verða verkfæri i hendi
Guðs, til alhliða eflingar kristinni
trú og islenzkri þjóðmenningu.
Megi óbilgjörn orð aldrei frá hon-
um berast né um hann leika. Megi
friður rikja og grös gróa á þvi
menntasetri, sem ísleifur forðum
grundvallaði, en nú er á legg
komið að nýju eftir langan svefn.
VI
Skálholt hefur risið úr rústum
samtimis þvi, að Island allt tók
hamskiptum. Atvinnuvegir eflast
til lands og sjávar. Nýjar brautir
eru ruddar.Menningarlif blómg-
ast. öll er þessi þróun sundurleit-
um vandkvæðum bundin sem fyrr
greinir. Áhyggjan er ekki fjarri.
Togstreita og smáleitir árekstrar
valda og margháttaðri töf En ofar
aðsteðjandi örðugleikum,
skammsýnum skoðanaágreiningi
og þröngum einkahagsmunum
blasir við augum heildarskipan
hans, sem telur höfuðhárin og
hyggur að fuglum lofts, — hans,
sem einn teflir örlagatafl allra
manna til enda. Og eins og löng-
um fyrr i sögu tslands er Skálholt
á skákborðinu miðju, lýsandi
vitnisburður um taflstöðuna i
heild, — efling Skálholts tákn-
mynd eflingar tslands, — van-
virða Skálholts hið sama.
Við þökkum það á þessari
stundu, hversu mjög Drottinn
hefur um hrið teflt Islandi öllu og
þar með einnig Skálholti i hag.
Við biðjum þess, að svo megi enn
verða á komandi tima. Siðast en
ekki sizt biðjum við Guð að kenna
okkur að tefla með honum og
skynja stöðuna alla.i stað þess að
snúast um sjalf okkur á einum
reit i ástæðulausri örvæntingu
eða óvitagleði. Þvi aðeins hann
heyri þá bæn, munu okkur nýtast
gjafirnar góðu.
Gleðilega hátið i Jesú nafni.
Amen.
Höfum fyrirliggjand
farangurs-
grindur og
bindingar
á allar stærðir
f ólksbíla,
broncojeppa
og fleiri bila
Bílavörubúðin Fjöðrin h.f.
Skeifan 2, simi 82944.
Auglýsúf í Tímanum
Norska bordstofusettið
Nýtízkulegt
Fallegt Sterkt
Eigum þessi norsku borðstofusett
bæði í Ijósum og dökkum litum
Komið og skoðið okkar fjölbreytta
húsgagnaúrval
VERIÐ VELKOMIN!
16975 SMIDJUVEGI6 SIMI 44544