Tíminn - 21.08.1977, Page 30
30
Sunnudagur 21. ágúst 1977
Nú-Tíminn
★★★★★★★★
Orðinn
stórskáld
hefði
ég ekki lent
í þessu vændi
— Jónas Friðrik í viðtali við Nú-Tímann
Það var f uppstyttu
eftir suddaveður á
Raufarhöfn að Nú-
Tíminn arkaði á fund
stórskáldsins þar i bæ,
Jónasar Friðriks,
textaskáldsins fræga
hjá Rió. Húsið heitir
Laufás og býr Jónas á
efri hæðinni hjá for-
eldrum sinum, en á
neðri hæðinni býr
bróðir hans með konu
sinni. Nú-Timanum var
boðið til stofu þar sem
innan um fjölskyldu-
myndir og litil lands-
lagsmálverk voru tvær
gullplötur á vegg.
,,Þeir voru ekkert að
gera upp á milli okkar
hjá Fálkanum og ég
fékk gull eins og hinir
sagði Jónas til skýring-
ar.
Jónas er at> tala um Ríó. Ég
spyr hann þá hiklaust hvort
nýja platan „Fólk” sé ekki
öðruvisi en hinar og hvort áhrifa
Gunnars Þórðarsonar gæti þar.
— öðruvisi, ja ætli þaö séu
ekki bara ellimörk. Þetta meö
Gunnar, nei ég held ekki, hann
er búinn aö vera meö okkur
meira og minna á öllum stóru
plötunum. En eins og þú segir,
ég hef oröiö var við aö fólki
hefur fundizt þetta svolitið
skri'tið við fyrstu áheyrn, ekki
alveg það sem það ætlaðist til af
þessari samkundu.
Hálfvitasámkoma
Hvernig vinnur þú svo
textana?
— Það er svolitið upp og ofan.
Yfirleitt fæ tónlistina senda á
bandi með nokkrum fyrirvara.
Síðan ligg ég eitthvað yfir henni.
Textarnir vinnazt bezt þegar
maður er orðinn pottþéttur á
lögunum. Og þegar fariö er til
upptöku er ég búinn að semja
einhverja texta, annars vinn ég
þetta jafnóðum og platan er tek-
in upp.
— Nei, ég geri sjaldan texta i
rólegheitum. Þó eru til undan-
tekningar eins og Helgi Hós sem
Gunni samdi lagið við eftir á.
Það má segja að þar hafi öllu
verið snúið við.
— Siðasta platan átti öll aö
vera um fólk eins og nafnið ber
með sér. Textarnir eru allir um
annarsvegar ákveðnar raun-
verulegar persónur sem allir
kannast við, eða ákveðnar per-
sónur sem einhver okkar hafði
sérstaklega i huga og hinsvegar
um ákveðna persónugervinga.
Annars voru vinnubrögðin
svipuð. Við vorum búnir aö
,kjaíta um þetta fram og aftur.
Siöan söfnuðumst við allir
saman hérna fyrir sunnan i
stúdiói. Útkoman byggist á
langri samvinnu okkar. Við
þekkjum orðið inn á hvern ann-
an og vitum hvað kemur bezt út.
Þegar við svo erum komnir
saman i hljóðritun skapast það
af sjálfu sér að þetta verður ein
allsherjar hálfvitasamkoma og
stemmingin á plötunni eftir þvi
létt, svipað þvi sem fólkið býst
við.
Þú sagðir að þið væruð búnir
að vinna lcngi sanian . hversu
lengi?
— Það eru að verða ein 10 ár.
(Mikið djöfull er maöur að
veröa gamall). Þeir komust I
samband við mig eftir ljóðabirt-
ingu iSamvinnunni. Hafa séð að
þetta væri hæfilega vitlaus
maður.
Og textafjöldinn i gegn um ár-
in?
— Eitthvert voðalegt bákn.
Sjálfsagt einir 100 með Rió og á
bilinu 150 textar i allt fyrir nú
utan ýmislegt sem dottið hefur
uppfyrir.
Fín kona
— Já, það er alltaf eitthvert
kropp fyrir aðra. Og það er
miklu erfiðara. Maður kveikir
ekki þegar maður þekkir ekki
flytjandann. En ég yrði fin kona
þvi ég hef aldrei lært að segja
nei.
— Að visu er enginn vandi að
búa til texta sem bókaö mál yrði
vinsæll. Formúlurnar eru fyrir
hendi. Það er formúla fyrir
Frivaktinni og lika sjúklingun-
um, ef maður bara vill.
Og textarnir þínir, um hvað
fjaila þeir?
— Yfirleitt þetta klassiska,
fyllirý, uppáfarir, framhjáhald.
Útkoman er breið mynd af
hversdagslegum atburðum í lifi
venjulegs fólks. Ég hef stundum
verið spurður hvers vegna ég
hafiekki samið texta um Rauf-
arhöfn. Sannleikurinn er sá að
textarnir minir eru uppfullir af
Raufarhöfn, lifinu og tilverunni
hérna. 1 þessu erþó Fólk nokkur
undantekning.
Nú lætur þér vel að semja
texta um lif fólksins þannig að
það finnur sig í þeim. Heldur þú
kannski að textarnir þinir hafi
gert útslagið um vinsældir Rid?
— Ja þarna kemur þú inn á
klasslskan rifrildisþátt hjá okk-
ur félögum. Þeir halda því sem
sagt fram að vinsældirnar stafi
af listrænum flutningi þeirra
(það ti'stireinhvers staðar langt
niðri I Jónasi), segja að þeir séu
svo fallegir og syngi svo vel aö
alveg sé sama hvað þeir fari
með. Ég segi aftur á móti að
sama hverjir gaulararnir væru,
ég gæti látið þá fá éfni sem gerði
þá vinsæla.
Jónas Friðrik og kötturinn
Nei staðreyndin er sú að þetta
er sambland sem sker úr. Bezt
aðþakka díkieinu öðrufremur.
Ábyrgðarleysi
Hver er skoðun þin, Jónas, á
textum þarsem fslensk málhefð
er að engu höfð?
— Mér þykir það bera vott
um voðalegt ábyrgðarleysi
þegar textar byggja á mál-
leysum. Ekkisi'zt þegarhafter i
huga að flytjandinn gerir ráð
fyrir að textinn verði vinsæll,
væntir þess a.m.k. og þá er
kannski stærsti hópurinn krakk-
ar og ungt fólk i litilli snertingu
viö vandað ritað mál sem er að
syngja hástöfum eitthvað sem
ekki er tungumál. Hitt gerir
minna til að jafnvel þriggja ára
krakki rauli „Flaskan min friö”
— gæti verið pelinn.
— Annars er ekki eingöngu
við okkur og tónlistarmennina
að sakast. Það ætti að vera
sjálfsögð skylda útgefandans að
hafa prófarkalesara til að yfir-
fara texta.
Hver er afstaða þin til text-
ans?
— Ég reyni yfirleitt að hafa
almennilega islenzku á þeim.
Þetta tekzt hér um bil en
stundum þó barnað fyrir mér i
flutningi eða á textablöðunum.
Ég nota stuöla og höfuðstafi og
rim, náttúrulega ekki alltaf
reglulegt enda eru til ýmsar
leiöir að yrkja rimað. En ég
sleppi þvi' aldrei.
Skjóta þá
— Raunar er þrennt i þessu
og eitthvað fæst ég við það allt.
Ljóð er ljóörænn texti sem fer
sinar eigin leiðir. Kvæðin eru
hin i'slenzka hefö i kveðskap og
þetta sem við köllum texta i dag
er þriðja formið. Meirihluti
þeirra er á lélegu máli og þetta
að þykjast vera að yrkja og
hamastvið að troða endarimi i
allar linur... Ég veitekkihvaö á
að kalla þessa menn en það ætti
að skjóta þá.
— Ljóðskrefst ákveöins valds
og meðferðar á máli. Steinn
Steinarr hefur orðað það þannig
að ljóð krefjist upphafins máls.
Telur þú að einhver texta
þinna geti staðið sem kvæði?
— Það er alltaf innan um. 1
flestum tilvikum eru þó vinnu-
brögðin allt önnur. Kannskiekki
formlega þvi ég skrifa einnig
mest bundið mál fyrir sjálfan
mig. Hins vegar fylgja textun-
um við lög og stef þar sem játazt
verður aö oft er gripin einfald-
asta lausnin. Kannski ég mundi
lita yfir textana ef kæmi til út-
gáfu. Ég er t.d. ágætlega
ánægður með Helga Hós.
Fæ kast
— Hvort ég yrki. Jú, ég fæ
kast, einkanlega á vetuma. Ég
mundi kannski skrifa meira
hefði ég ekkilent I þessari kliku.
Þó veit ég það ekki, er yfirleitt
voðalega latur og alltaf á
siðasta snúningi með textana.
Við höfum stundum verið aö rif-
ast um þetta félagar. Ég hef
haldið þvf fram að ég væri orð-
inn stórskáld hefði ég ekki lent i
þessu vændi að selja mig fyrir
peninga. Nú þeir segja að letin
hefði yfirbugað mig áður.
Að lokum Jónas er þaö satt aö
þú gerir út togara?
— Andskotans lygi. Þó mætti
kannski segja aö ég sé skrif-
stofustjóri á togara. Ég vinn al-
menn skrifstofustörf hérna hjá
Jökli á Raufarhöfn. Og þú mátt
taka það fram, aö ég vildi
hvergi fremur búa.
— KEJ