Tíminn - 03.09.1977, Page 5

Tíminn - 03.09.1977, Page 5
Laugardagur 3. september 1977 5 á víðavangi Um frjálsa verzlun Aö undanförnu hefir litils háttar verið rætt við Morgun- blaðið um gildi frjálsrar verzl- unar og stöðu einkaverzlunar annars vegar og samvinnu- verzlunar hins vegar. Morgunblaðið viðurkennir nú, aö einkaverzlunin hafi farið halloka úti á landi. Þeir telja að ástæðan sé sú, aö mjólkurbú hafi neitað að láta einkaverzlanir fá mjólk til sölu. Morgunblaðið segir ,,að viða um landið hafi einka- verzlanir gefizt upp vegna þess, að neytendur hafa af eðlilegum ástæðum ieitað til þeirra verzlana, sem hafa al- mennar neyzluvörur á boð- stólum og mjólkurkaupum fylgja kaup á öðrum vörum”. Málið er sem sé taliö mjög einfalt. Mjólkin — eða mjólkurleysið — á að blaðsins dómi rlkastan þátt i flótta kaupmanna frá verzlunar- og þjónustustörfum f þágu al- mennings úti a' landi. Nú séu hins vegar upp runnir betri timar. Morgunblaðinu séstyfir eitt. Þeirra menn hafa átt ein- faldan leik til að tryggja sér betri aðstöðu en þeir segjast hafa átt við að búa. Þeir gátu byggt „góð” mjólkurbú og á þann hátt tryggt sér næga mjólk. Hvers vegna gerðu þeir það ekki? Gæti hugsazt að ástæðan hafi verið sú, að peningafurst- um Morgunblaðsmanna hafi fundizt það langsótt að fá arð af þeim peningum, sem lagðir voru I byggingu mjólkur- stöðva? Gr ástæðan kannski sú, að steinsteypa i Reykjavik sé arðvænlegri og traustari gróðavegur en uppbygging þjónustumiðstöðva fyrir framleiðslu landbúnaðarins? Svo mikið er vist, að bændur og samtök þeirra hafa oröib að bera hita og þunga þessara framkvæmda og hvorki notið tii þess stuðnings eða vel- vildar einkaverzlunar eða peningaaðals Morgunblaðs- ins. Þegar taka þarf ákvörðun um byggingu mjólkurús og fjárfestingar i þvi sambandi, er gagnlegt að gera sér grein fyrir tvenns konar viðhorfum sem að baki liggja. Ráðandi sjónarmið einkahyggjumanna er, hvort það borgi sig að leggja peninga i slikt fyrir- tæki. Ef peningar þeirra — eða lánsfé sem þeir geta komizt yfir — getur skilaö meiri ágóða með annarri ráðstöfun, þá er stokkið i þá áttina. Samvinnumenn lita hins vegar fyrst og fremst á þörf- ina. Sé hún rik, bæði vegna framleiðenda og neytenda, þá hefir verið og er ráðizt I slikar stórframkvæmdir sem mjólk- urbú eru, jafnvel þótt i upphafi hafi ekki verið fullljóst hvernig færi meö fjármagns- útvegun. Það er regin mis- munur á þessum viðhorfum. Vonin um auðtekinn gróða hefir jafnan verið leiðarljós sérhyggjumanna. Þeir hafa svo sem framast er auöið valið sér verkefni samkvæmt þessari lifsskoðun. Af þessum ástæðum hafa þeir oft og einatt hlaupið frá vanda- sömum verkefnum lands- byggðarinnar en ekki vegna mjólkurleysis eins og Morgun- blaöið lætur það nú heita. Hagkvæmir vöruflutningar Morgunblaðsmenn látast ekki vita það, aö skip Sam- bandsins halda uppi beinum siglingum erlendis frá til hafna úti á landi. Það virðist hafa farið framhjá þeim, að upplýst hefir verið að yfir 70 prósent af innflutningi, sem kemur með Sambandsskip- unum.er fluttur beint til hafna úti um land. Skip samvinnu- manna sigldu til 52 hafna utan Reykjavikur á s.l. ári. Við- komur þar voru rösklega 1100. Meginhluti innflutnings með þessum skipum mun vera þungavarningur svo sem byggingarvörur. fóðurvörur, áburður, matvara og aörar sekkjavörur. Landsbyggðin nýtur þessara siglinga I rikum mæli og með stofnun og rekstri Skipadeildar SIS var efnt til samkeppni sem rik þörf var fyrir. Neyzluþjóð- féiagi okkar fvlgir það, aö mannlegar þarfir eru marg- vislegar. Þrátt fyrir þessar beinu siglingar fer mikill hluti af 'neyzlu- og rekstrarvörum la ndsby ggða rinn ar um Reykjavlk. Það ætti hins vegar að vera öllum Ijóst, að hvorki Eimskipafélags- eða Sambandsskipin geta haldið uppi siglingum til Rúðardals eða staða með svipaða aðstöðu. Ýmis byggðarlög búa þvi við óhagstæðari verzl- unaraðstöðu en höfuðborgin. Viðurkennt er að samvinnu- hreyfingin hefur meö skipa- rekstri sinum reynt að jafna hlut dreifbýlis og margir kunna að meta það, þótt Morgunblaðsliðar séu ekki I þeim hópi. Tvö sjónarmið — Tvær reglur Fyrir nokkrum árum var skipulagt svæði fyrir iönaöar- byggingar I Sogamýrinni fyrir austan Grensásveg I Reykja- vlk. Þar er nú ýmiss konar verzlunarstarfsemi rekin og meðal annars stór vörumark- aður. Ekki virðist hafa staðið á samþykki borgarstórnar- meirihlutans til þess að gefa nauðsynleg leyfi fyrir þessari verzlunarstarfsemi. Ekki er annað sjáanlegt en aö vel takist að reka stórmarkaö i iðnaðarhverfi þessu. Morgunblaðið minnir á, að borgarstjórnarmeirihluti s j á 1 f s t æ ði s m a n n a hafi heimilaö Sambandinu aö byggja eitt myndarlegasta og stærsta hús, sem reist hefur verið á tslandi, við Holtaveg I Reykjavik: Það þegir hins vegar .um, að KRON var neitaö um leyfi til að reka vörumarkaöi I þessu sama húsi. Það hefir hér enn einu sinni á sannazt, að tvær reglur gilda hjá bórgarst jórnar- meirihlutanum I ReykjavíR: Nú er þaö vitaö aö vöru- markaðir eru byggðir upp með nokkuð öðrum hætti en almennar smásöluverzlanir og veita ekki sams konar þjón- ustu. Vöruverð er þar gjarna lægra en i almennri smásölu- búð. Jafnvel þótt KRON veitti félagsmönnum sinum 15 milljónir I afslátt á s.I. ári, má ætla að viðskiptamenn þess hefðu sparað margfalda þá upphæð árlega, hefði félagið átt þess kost, að koma upp stórmarkaði I þessu nýja húsi Sambandsins, svo sem fyrir- hugað var. Til þess mátti kaupmannaveldið ekki hugsa. Þess vegna var brugðizt hart við og fótur settur fyrir þetta áform KRON. Slikur stór- markaöur hefði orðið neyt- endum hagstæður. Þar hefði verðlag oröiö svo lágt, að konan að vestan sem Morgun- blaðinu hefur orðiö svo tiðrætt um, myndi jafnvel hafa lagt þangaö leiö sina ef hún hefði verið á ferð i Reykjavik. i VÓCSHCSfe Þeir sem hafa áhuga á að leigja salarkynni okkar á komandi hausti og vetri fyrir árshátíðir, fundi og/eða annan mannfagnað eru vinsamlega beðnir að hafa samband við veitingastjóra í símum 23333 — 23335 kl. 1 til 4. Sjúkrahót.el RauAa krossins •ru á Akureyri og i Raykjavik. RAUOIKROSSISLANDS SNOGH0J Nordisk folkehejskole ved Lillebæltsbroen • ogsa elever fra de andre nordiske lande. 6 mdr. fra nov. 4 mdr. fra jan. DK-7000 Fredericia tlf. 05-9422 19 Jacob Krogholt. Einn bíll á hverja þrjá ís- lendinga KEJ-Reykjavik — Bifreiða- eign landsmanna var i árslok 1976 7 3.410 eða 332,3 á hverja 1000 Ibúa. Fólksbifreiöaeignin var á sama tima 66.699 sem þýðir 301,9 fólksbifreiðar á hverja 1000 ibúa. Til gamans má geta þess, aö 1959 var bif- reiðaeignin 20.256 eða 116,5 á hverja þúsund ibúa en aöeins 83,7 fólksbifreiöar á 1000 ibúa. Mest hefur bilum lands- manna fjölgað á einu ári um 8000 árið 1974 en árið eftir, þ.e.a.s. 1975 fjölgaði bílum að- eins um tæpt hundrað. Svo litil fjölgun bifreiða hefur aðeins einu sinni átt sér stað frá þvi árið 1959, en þaö var land- flóttaárið 1969 þegar bílum fækkaði um ca 30. Kemur þetta fram i nýútgefinni Bif- reiðaskýrslu Hagstofu ts- lands. o Hellirinn grátt eða rautt, en úr lofti og veggjum hanga dropasteinar, nokkurs konar hraungrýlukerti, sumir fagurrauöir en aðrir grá- leitir. Ekki voru þeir stórir, þeir stærstu um 30 sm. Eitt er sér kennilegt við þessa dropasteina, það er að þeireru holir aö innan. Útlenzkur maður, Hjelmkvist aö nafni, hefur efnagreint dropasteina sem þessa, og kom- iztaö þviað þeireru miklu járn- rikari en bergið i kring. Þá- hafa jarðfræðingar veitt þvi athygli að dropasteinar i lofti og hellisgólfum standast iöulega á og bendir það til þess aö þeir myndist i lok storkn- unarinnar, viðbráðnun bergsins viö mikinn hita. Viö héldum áfram um þessa dimmu ranghala, en þar kom að þvi að hann endaöi, grátt bergið lokaði veginum. Hellirinn endaði hér. 145 m að lengd. Þá varekkium annaö að ræða en snúa við, rannsaka hellinn betur I baka leiðinni, og siðast en ekki sizt mæla lengd hans. Hann reynist vera 116 stikur, stika er 125 cm, og hellirinn þvi 145 metrar aö lengd. En hvernig veröa hellar sem þessir til? Samkvæmt kenning- um jarðfræðinga þá myndast allir hraunhellar á sama hátt, og eru þeirflestir ilangir. Þetta gerist i hraunflóði þegar berg- kvika i þröngri rás, meö full- storknað þak, rennur fram úr henni og eftir stendur þakið þ.e. hellirinn. Hraundrýli En nú erum viö komnir aftur upp úr og búnir aö fá nóg af hellastandi. Við kveðjum girö- ingarmennina með victum, nema þau Greip og Kristinu matráðskonu, sem einnig ætla með niður I byggð. A leið okkar vekur athygli hraunstrýta, sem stendur i miðju Lambahrauninu. Viö ök- um að henni og komumst að þvi að þarna er um hraundrýli að ræða. En það eru hraunstrýtur sem myndast við uppstreymis- op nálægt eldgigum þegar gos- gufur rifa meö sér hraunslettur upp á yfirborðið. A þennan hátt geta smátt og smátt myndast háir hraundrýlar en þeir stærstu hér á landi eru þeir tveir sem standa við Lækjarbotna. Þaö sem er sérstakt við hraun- drýla, er að þeir eru holir aö innan, og sést það greinilega ef þeir eru athugaðir vel. Á heimleið. En það tjóar ekki að slóra. „Timinn kallar”, og nauðsyn- legt er aðhalda heim á leið. Viö ökum sœnu leið til baka. Hoss- umst yfir Lambahraun, niður eftir Efstadalsfjalli. Það keðj- um við Má, bilstjórann okkar, Greip óg Kristinu, en siðan er haldið I hendingskasti til Reykj avikur. Til jarðfræöilegs-bragöbætis er rétt að geta þess, að Gutt- ormur Sigurbjarnarson, jarð- fræðingur telur aö Lambahraun sé 3600 ára gamalt, og þá lang- yngsta dyngja á Islandi. Stærstu hellar á ts- landi. En hverjir eru stærstir hella á Islandi? Surthellir er langstærstur eða um 1600 metra. Þá má nefna Viðigelmi og Stefánshelii sem báðir eru um 800-900 m hvor. Nú, Raufarhólshellir er um 800m langur og um hann hefur skrifaö l/TMungerm .a. i Lesbók Morgunblaðsins 16. jan. árið 1955. Þessir fjórir hellar, sem nefndir hafa veriö, eru lang- stærstir á Islandi. Þá má nefna minni hella svo sem hellana i Gullborgarhrauni, sem Sigurður Þórarinsson hefur lýst i Lesbók Morgunblaðsins, og endurprentað hefur verið i Arbók Fí, Borgarhellir sem er 430 m langur, en i honum eru dropasteinar allt 1 m að lengd, Vegghellir, sem er 185' m að lengd, og Flórhellir sem er 60 metra að lengd, og er fegurstur hellana i Gullborgarhrauni. Gjábakkahellir er 309 m lang- ur, en honum hefur Hjörtur Björnsson frá Skálabrekku lýst i Arbók FI. Að endingu skal nefndur Karelshellir i Heklu- hrauni frá árinu 1947 og Guð- mundur Kjartansson hefur lýst i Náttúrufræðingnum áriö 1949. — Kás

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.