Tíminn - 03.09.1977, Blaðsíða 20

Tíminn - 03.09.1977, Blaðsíða 20
I * 18-300 Auglýsingadeild Tímans. f BaWrnl s Marks og Spencer HEIMSÞEKKT GÆÐAMERKI UNDIREATNAÐUR Nútíma búskapur þarfnast bhuer haugsugu^^ ),J ý Heildverzlun SfOumúla Xgfef ^£4 Sfmar 85694 & 85295 Alvar- legt vinnu- slys í Kópa- vogi F.I. Reykjavik. — Mjög alvar- legt vinnuslys varö i Kópavogi um kl. 18.30 i gær, þegar tveir menn féllu niður af vinnupalli fimm hæöir niður. Voru þeir þegar fluttir á Slysadeild Borgarspitalans og eru báöir taldir I lifshættu. Mennirnir tveir voru aö vinna viö háhýsi I Kópavogi, er slysiö varö og mun festing á einum vinnupallanna hafa gefiö sig meö fyrrgreindum afleiöingum. Ungur maöur, sem var aö vinna meö þeim, bjargaöist naumlega. Ú tihlj ómleikar á Lækjartorgi Hljómsveitin Eik skemmti göngumóöu fólki á Lækjartorgi I gærdag. Þó erillinn sé mikill og margir aö flýta sér, voru þeir einnig margir, sem gáfu sér næöi og stöldruöu viö til aö hlusta á hljómsveitina eins og myndin ber meö sér. Þaö eru lög af nýútkominni hljómplötu hljóm- sveitarinnar sem Eik var aö kynna þarna meö þessum hætti. Þeir voru hinsvegar daglegt brauö sumariö sem stéttin kom á torgiö. Þaö er eins og þaö er, annað hvort of eöa van. Þaö var Gunnar, Ijósmyndari Tfmans sem tók þessa mynd þegar hann átti leiö um torgiö I gær. Kópaskersbuum finnst á hlut sinn gengið — vilja sitja einir ad rækjumiðum sínum KEJ-Reykjavik — Ráöherra hefur tekiö sfna ákvöröun og lýst þvi yfir viö okkur aö henni veröi ekki haggaö Reiöin sýöur hér I mönnum og ég veit hreiilega ekki til hvaöa ráöa þeir grfpa, sagöi Kristján Ármannsson, kaupfé- lagsstjóri á Kópaskeri, I samtali viö Tfmann i gær. — Ég held aö mér sé óhætt aö segja, aö þetta sé eini staöurinn á landinu þar sem heimamenn sitja ekki einir aö rækjumiöum sinum. Aflakvótinn á miöunum i ár er 650 tonn, og er okkur úthlutaö helming á móti Húsvikingum, þrátt fyrir aö viö getum auöveldlega veitt og verk- aö allan þennan afla og teljum okkur eiga fullan rétt á þvf. Þá benti Kristján, á að ekki aðeins gildirsú regla allsstaðar á landinu að heimamenn sitji enir að rækjumiðunum geti þeir full- nýtt þau sjálfir, heldur liggur það i augum uppi, aö húsvikinga get- ur ekki munað um þessi litiu 300 tonn.Þar ernæga atvinnu að hafa og möguleikar á hvers kyns fisk- veiðum, enda telur veiðifloti þeirra skuttogara og marga stóra báta. Sagöist Kristján ekki skilja á hveða forsendum þessi ákvörðun væri tekin. Þó þeir hafi ekki getað veitt upp i allan kvótann i fyrra sem þá var 500 tonn fyrir Kópa- sker og eins fyrir Húsavik, þá horfir málið allt öðru visi við núna. Kvótinn er mun minni nú og Kópaskersbúar undir það búnir að nýta hann allan. Við munum að sjálfsögöu mót- mæla þessu formlega, sagði Kristján, þrátt fyrir að ráðherra hafi sagt að hann muni ekki breyta afstöðu sinni i þessu máli. Menn eru frá sér af reiði hér um slóðir, og ég veit sannast að segja ekki hvað þeir gera með þessar reglugerðir, þó hingað til hafi verið okkar háttu að virða slikt Kristján tók það fram að lokum, að þeir væru ekki að mrftmæla minni aflakvóta, þar sem þeim væri i' mun að mið þeirra eyði- leggðust ekki vegna ofveiöi, hins vegar taldi hann það ekki ná nokkurri átt að br jóta þessa reglu á Kópaskersbúum sem annars gildir þó um allt land. Timann haföi I gær samband við Matthias Bjarnason sjávarút- vegsráöherra og innti hann eftir forsendu þessarar ákvörðunar, sem Kópaskersbúum er svo mjög i nöp við. Svaraði Matthias þvi til, að Húsvlkingar hafi stund- aö veiðar þarna allt frá þvi að rækja fannst þar og hann hefði ekki hugsað sér að standa fyrir breytingum á þvi og kærði sig ekki um að ýta út einum fyrir annan. Kvað hann kvótann vera minnkaðan nú að ráði Hafrann söknastofnunarinnar. Hitt væri annað mál að kvótarnir væru oft endurskoðaðir og hann kynni verða stækkaður og hlutur Kópa- skers þá rétturað einhverju leyti. Fjórðungsþing Norðlendinga: 4 MEGINMAL Á DAGSKBÁ Timinnáþ-Reykjavik. Atjirula F jóröungsþing Norölendinga veröur haldiö i Skagafiröi á morgun. Fyrir þingsetningu veröur guösþjónusta i Hóiadóm- kirkju kl. 2 e.h. Sér Gunnar Gisla- son, héraösprófastur prédikar. Eftir þingsetningu I Hóladóm- kirkju flytur Haukur Jörundars- son, fyrrverandi skólstjóri á Hól- um, ávarp og Gísli Magnússon i Eyhildarholti flytur erindi um Hólastaö i sögu og samtlö. A mánudag verður þinginu framhaldið i félagsheimilinu Mið- garði. Fluttar verða starfsskýrsl- ur og framsöguræður fyrir nefnd- arálitum milliþinganefnda á veg- um sambandsins. Fjögur megin málverða tekinfyrirl sérstökum framsöguerindum. Þorvaldur Garðar Kristjánssn alþingis- maður mun ræöa um landshluta- virkjanir og skipulag orkumála Árni Jónasson erindreki mun ræða um atvinnuval i sveitum, Guðmundur Einarsson fram- kvæmdastjóri ræðir um sjósam- göngur og skipulag samgangna og Leó Jónsson tæknifræðingur mun ræða um iðnþróun. Gert er ráð fyrir að þingið starfi f niu starfsnefndum, sem geri tillögur til þingsins um einstaka mála- flokka. Fjórðungsþinginu lýkur slðari hluta þriðjudags með af- greöslu mála og kosningu fjórö- ungsráðs og nefnda. Fyrir þinginu munu liggja niðurstöður ráöstefnu um félags- heimilamál og ráðstefnu um iðn þróun. Ennfremur munu niður- stöður fundar um framhaldsskóla ligga fyrir þinginu. Það fær til meðferðar fjárhagsa'ætlun og ársreikninga, auk fjölmargra til- lagna frá fjóröungsráði og milli- þinganendum. Meðal tillagna eru: Aukið verði atvinnuval i sveitum. Akveöin útgáfa ferða- mannabæklinga. Dreifing al- mennrar þjónustu. Áætlanagerð i heilbrigðism^lum og sambúðin við Reykjavikurborg útafskóla- kostnaöi. Þingiö mun sækja allt aö 90 full- trúar sveitarstjórna og sýslu- nefnda sem eiga rétt til setu á þínginu, auk gesta. Englendingur í Gallerí Suðurgötu 7 Laugardaginn 3. september kl. 20 opnar myndlistarmaöurinn John Liggins sýningu I Galleri Suöurgötu 7. John er Englending- ur aö þjóöerni en hefur starfaö lengst af I Hollandi sem mynd- listarmaður. Sýningin stendur til 14. septem- ber og veröur opin 6-10 virka daga en klukkan 2-10 um helgar. Þingiö veröur sett aö Ilólum i Hjaltadal, en þinghaldiö veröur I Miögaröi. VÍÐTÆK LEIT AÐ HORFNUM MANNI áþ-Reykjavfk. Vlötæk leit hefur veriögerö undanfarna daga aö 25 Kristinn Daviösson. ára gömlum manni, Kristni Daviössyni, og hefur ekkert til hans spurzt. Eru eigendur sumarbústaöa i nágrenni Reykja- vikur sérstaklega beönir um aö huga aö húsum sinum. Einnig er hver sá, sem einhverjar upp- lýsingar getur veitt beöinn um aö snúa sér til lögreglunnar Kristinn er til heimilis að Stóra- geröi 34 I Reykjavik. Hann er 178 cm á hæð, grannvaxinn með skol- litað hár, sem nær rétt niður fyrir eyru, siöan ennistopp, greiddan til hliöar. Hann hefurfíngert ung- lingsandlit er með rauöleita skeggrót. Þegar Kristinn fór að heiman frá sér klukkan 18 sl. sunnudag, var hann klæddur I grænbrúna VlR-hettuúlpu, ljós- bláar nankinsbuxur, sem hafa verið mikið þvegnar. Þá var hann isvörtum uppháum gúmmiskóm. DRANGSNESFRYSTI- HIJSIÐ VONANDI í GAGNIÐ í NÓVEMBER JA-Hólmavik. — Viö gerum okkur vonir um aö rækjuvinnsla Inýja frystihúsinu á Drangsnesi geti hafizt i nóvembermánuöi i haust. Þaö er aö vlsu seinna en þurft heföi aö vera, þar eö leyfi til rækjuveiöa veröa gefin út meö byrjun októbermánaöar. A hinn bóginn er mikill léttir aö þvi aö eygja, aö frystihúsiö get- ur komizt i gagniö innan óhóf- lega langs tima. Um þessarmundirernokkurn veginn rétt ár siðan frystihúsið brann, svo að byggingartíminn er I sjálfu sér ekki ýkjalangur, ogsem betur fer hefur ekki ból- aö að því, að fólk flyttist frá Drangsnesi vegna þeirra örðug- leika, sem frystihúsleysið haföi I för með sér. Framan af gekk endurbyggingin lika greitt, til dæmis var húsið steypt á skömmum tima. En úr fram- kvæmdahraðanum dró, þegar frá leið, vegna fyrirstöðu um út- vegum byggingafjár og einnig sökum ýmissa framkvæmdaat- riöa. Ennereftirað setja iiíður vél- ar í húsið, þótt sumt af þeim sé komið, og auk þess sitthvað sem að frágangi lýtur. Æskilegast hefði að sjálfsögðu verið, að frystihúsið hefði verð orðið starfhæft um þaö leyti, er rækjuveiðarnar hefjast, en á hinn bóginn má vel við una, ef þær vonir rætast, að það geti tekið til starfa I nóvember mán- uði. Þá er enn mikið eftir af rækjuveiöitimanum, sem staðiö hefur fram i marzmánuð að undanförnu, svo að mikil vinnsla ætti að geta átt sér stað I nýja frystihúsinu, ef allt fer eins og við væntum nú.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.