Tíminn - 09.09.1977, Page 19
Föstudagur 9. september 1977
19
Af fuglum og
fiskum
Jónína Guðnadóttir sýnir leirmuni
Dagana 3.-19.
september stendur yfir
sýning á steinleirs-
myndum Jóninu
Guðnadóttur i Sólon
Islandus i Aðalstræti.
Þetta er i senn óvenju-
leg og stór einkasýning
á leirmunum.
Jónina Guðnadóttir
er ung kona, sem aflað
hefur sér menntunar i
myndlist viða, svo og i
leirmunagerð.
Stundaði nám við Myndlista-
og handiðaskólann i Reykjavík
og framhaldsnám i Konstfach i
Stokkhólmi.
HUn lauk prófisem hönnuður i
keramik og gler árið 1967 og
hefur siðan árið 1969 starfað á
eigin verkstæði, við eigin leir-
munagerð, en hefur annars
kennt við Myndlista- og hand-
Iðaskólann eftirað þar var kom-
ið upp leirmunadeild árið 1969.
Hópfiug fugla og fiska
Sýning Jóninu Guðnadóttur i
Solon Islandus er bæði stór og
fjölbreytt, og henni er einkar
skemmtilega fyrir komið.
Frá myndlistarlegu sjónar-
miði er hópflug leirfugla ef til
vill skemmtilegast. Erfðafræðin
lét i gamla daga leiðir skiljast
hjá tegundunum á ögurstund á
fjörukambi.
Hlutidýrastofnsins stakk sér i
djúpið, afgangurinn hóf sig til
flugs. Fuglar Jóninu minna á
fiska og seli, en eigi að siður eru
þeir fuglar. Og þó selja megi
einn og einn fugl, litur maður
ósjálfrátt á hópinn sem eina
samstæða heild.
Meðal verka a áýningunni eru
skálar og diskar, svo og vegg-
myndir.
Þeir munir eru kannski ekki
neitt sérlega frumlegir, en eins
og fuglarnir varðveita tengslin
við ættina I djúpinu, þá eru
þessir munir lika i einhverju
samhengi við okkur sjálf: þeir
eru ekki framandi.
Það sem einkennir verk Jón-
Inu er vandvirkni og gott hand-
bragð. Hún flytur inn sendinn
leir, skreytir hann með hrauni
og lágbrenndum tegundum af
leir, er okkur sagt, og áferðin er
einkar skemmtileg.
Það sem maöur finnur helzt
að er liturinn, sem er einhæfur
brúnn tónstigi. A sýningu þarf
helzt að vera nokkur f jölbreytni
i lit, en það er auðvelt að bæta
siðar.
Leirmyndir hannar á vegg
vekja áhuga og er nær myndlist
en búsáhöldum.
Sérstaka athygli hlýtur að
vekja „vasi” á gólfi.
Minnir á gamla innkaupa-
tösku, sem hefuroröið að steini.
Þykk plata eða örk af leir er
lögð saman á jöörunum og
myndar ilát.
Þetta er einkar frumlegt, þvi
yfirborðið myndar bylgjur og
bogadreginform.Þaðsama er i
einhverju af veggmyndunum,
og ef til vill er þarna að finna
merki um nýja leiö og persónu-
legri, en hið aldagamla hring-
form, sem endurtekið hefur sig i
leirmunagerð gegnum tiðina.
Meö greiðari aögangi aö
skólum, hafa Islendingar nú
eignazt fjölefli af ungu fólki,
sem kann til verka i myndlist-
um.
Þetta mun hafa viðtæk áhrif á
smekk og hæfni þjóðarinnar i
fyllingu timans.
Hér á landi hefur vond leir-
munagerð verið landlæg, þvi
lengst af var þjóðin algerlega
fákunnandi á þessu sviði og að
þvi leyti til ólik flestum þjóðum
öðrum, sem eiga sér hefö I leir-
munagerð, þúsundir ára aftur i
timann.
Þvi hljótum við að fagna
sérstaklega, þegar leirkera-
smiðir sýna svona ágæt verk á
stórri sýningu.
Jónas Guðmundsson
fólk í listum
Athugasemd frá
Stéttarfélagi
barnakennara
í Reykjavík
í sjónvarpsviðtali 30. ágúst sl.
ræddi fræöslustjórinn i Reykja-
vik, Kristján J. Gunnarsson, um
þann vanda, sem skapazthefur i
grunnskólum borgarinnar f haust
vegna skorts á kennurum.
Spurður af fréttamanni um úr-
ræði, svaraöi fræöslustjóri þvf til,
aö um þrjá valkosti væri að ræða
til lausnar þessu máli. Þeir voru
þessir:
1) að ráöa fólk án réttinda til
kennslu,
2) aö ráða ekki fólk i stööurnar,
sem þýddi skerta kennslu hjá
nemendum i viökomandi skól-
um og
3) að flytja nemendur frá nýrri
skólum borgarinnar til þeirra
eldri, þar sem fátt er I bekkj-
um.
Stjórn og fulltrúaráð SBR.
(Stéttafélags barnakennara l
Reykjavik) tók fyrrnefnd atriöi
til umræðu á fundi I dag og voru
niðurstöður þeirra umræðna eft-
irfarandi:
I.
Undanfarin ár hefur fjöldi þess
fólks farið vaxandi viða um land,
sem stundar kennslustörf við
grunnskóla án tilskilinna kenn-
araréttinda. Fræðsluyfirvöld
hafa ráðið fólkiö, og aðstandend-
ur barnanna orðiö að sætta sig viö
það, en samtök kennara mótmælt
aftur og aftur árangurslaust. A
þennan hátt hefur kennaraskort-
urinn verið „leystur” að mati yf-
irvalda.
Fram til þessa hefur aðsókn
kennaramenntaðs fólks aö barna-
deildum grunnskóla Reykjavikur
veriö það mikil aö unnt hefur ver-
ið að ráða kennara i allar stöður.
Nú steðjar það vandamál aö
fræðsluyfirvöldum Reykjavfkurr
borgar að ekki sækir nægilega
margt kennaramenntað fólk um
þær stöður, sem lausar eru.
Stjórn og fulltrúaráð SBR mót-
mælir eindregið þeirri hugmynd
að leysa kennaraskortinn i borg-
inni á sama hátt og gert hefur
veriö á ýmsum stöðum til þessa.
Samtök kennara hafa margoft
bent á veigamestu ástæðurnar
fyrir kennaraskortinum I landinu
og vill stjórn og fulltrúaráð SBR
enn á ný taka undir þær.
Stjóm og fulltrúaráð SBR trúir
þviekki, að fræösluyfirvöld borg-
arinnar hafi i hyggju að ráða rétt-
indalaust fólk til kennslu I barna-
deildum grunnskóla I vetur.
II.
St jórn og fulltrúaráð SBR bend-
ir á, að undanfarin ár hefur ekki
verið framfylgt ákvæðum náms-
skrár i mörgum skólahveriom
borgarinnar. Hafa kennarar
undrazt mjög það tómlæti, sem
forráöamenn nemenda hafa sýnt i
þvi máli.
Ef nú á enn að skeröa náms-
tima nemenda I grunnskólum
borgarinnar eða flytja þá i skóla-
vögnum fram og aftur til að
„leysa” þann vanda, sem skapazt
hefur vegna skorts á kennurum,
verður sú ráðstöfun einungis til
að auka það misrétti, sem nem-
endum hefur þegar verið búiöhér
I borginni. Einkum virðist þetta
eiga að lenda á nemendum i einu
hverfi borgarinnar, Breiðholts-
hverfinu. Þaö er ærinn vandi fyrir
og ekki minnkar hann með að-
gerðum sem þessum. Stjórn og
fulltrúaráð SBR telur úrræði sem
þessi óverjandi, og varar sterk-
lega við þeim.
Þau koma fyrst og fremst niður
á nemendum sjálfum og heimil-
um þeirra, auk þess, sem þau eru
fræðsluyfirvöldum borgarinnar
til mikils vansa.
Ef gripiö veröur til fyrrnefndra
ráðstafana hljóta forráðamenn
nemenda að láta mál þetta til sin
taka og mun Stéttarfélag barna-
kennara í Reykjavik styöja þá
einhuga.
Stjórn ogfulltrúaráðSBR
TEXAS Instruments VASATÓLVUR
T157:
150 prógramm skref
8 minni — 9 svigar
auk urmuls annarra
reikningsaðferða.
Hleðslutæki fylgir.
Áætlað verð: 27.000.00
SOLID STATE
SOFTWARE
forrita eining eykur
skrefafjölda allt að
5000 skref.
PC100A
Prentari fyrir
T158 og T159
T159:
960 prógramm skref/
100 minni — 9 svigar
Solid State Software
forrita eining fylgir
Yfir 175 vísinda og
statistiskar aðferðir.
Hleðslutæki fylgir.
Aætlað verð: 120.000.00
T158:
480 prógramm skref/
60 minni — 9 svigar
Solid State Software
forrita eining fylgir
Yfir 170 vísinda og
statistiskar aðferðir
Hleðslutæki fylgir
Áætlað verð: 56.000.00
P
H
1=
SÍMI B15DD
c
TEXAS ER ALLTAF Á UNDAN ftflEÐ NÝJUNGAR
J
Motorola Álternatorar
i bíla og báta.
6/12/24/32 volta.
Platfnulausar transistor-
kveikjur i flesta bíla.
HOBART rafsuðuvélar.
Haukur og Ólafur hf. Armúia
32, Simi 37700.
Bílaleiga
Höfum til leigu Vauxhall
Viva.
Sparneytinn, þægilegur,
öruggur.
Berg s.f. Skemmuvegi
16 Kópavogi.
Simi 7-67-22.
Kvöld og helgar simi 7-20-58.
{ AuglýsicT S
• íTimanumi
Ráðskona
óskast í sveit
Upplýsingar i sima 4-48-92, eftir kl. 8. á
kvöldin.
Hef opnað
lækningastofu
að Laugavegi 43,
Reykjavik.
Viðtalsbeiðnir i sima 7-6665, kl. 10-12 virka
daga
Kristján Baldvinsson, læknir.
Sérgrein: Skurðlækningar.