Tíminn - 09.11.1977, Síða 10
10
Miðvikudagur 9. nóvember 1977
HESTAMANNAFÉLAGIÐ
Fræðslufundur verður á
Fólkvangi, miðvikudaginn
9. nóvember kl. 20,30.
Brynjólfur Sandholt flytur erindi og
Svanur Halldórsson sýnir m.a. kvik-
myndir frá kappreiðum á Kjalarnesi.
Fræðslunefnd.
Götur þorpa og kauptúna hafa
tekið miklum stakkaskiptum
á undanförnum árum. Þessa
mynd tók Pl» í Þorlákshöfn fyrir
skömmu. Gataner óseyrarbraut.
<--------------^
Þorlákshöfn:
36% gatna
með varanlegt
slitlag
áþ-Rvik. 1 sumar var lagt malbik
á 1,6 kilómetra vegalengd á Þor-
lákshöfn. Einnig var malbikað
3000 fermetra plan við félags-
heimilið. Landshöfnin i Þorláks-
höfn malbikaði tæpan kilómetra,
þannig að um það bii 36% af
gatnakerfinu á staðnum hefur
varanlegt slitlag.
— Ég gæti trúað að þessar mal-
bikunarframkvæmdir hafi kostað
okkur 30 til 35 milljónir, sagði
Þorsteinn Garðarsson sveitar-
stjóri. — Það má ségja að þær
hafi verið fýllilega innan fjár-
hagsáætlunar. Það var Loftorka
sem sá um útlagningu og þjöppun
á malbikinu, en við sáum um all-
ar lagnir og undirbyggingu.
Malbik var lagt á óseyrarbraut
og Selvogsbraut, en gata sú er
Landshöfnin sá um, heitir Hafn-
arskeið.
Electropower
Lokaorð
Þegar rikisstjórnin tók við
völdum fyrir rúmum þ'remur ár-
um varð við mjög alvarlega efna-
hagsöröugleika að etja vegna
stórfelldrar veröbólgu og við-
skiptahalla við útlönd. Rikis-
stjórnin setti sérþaðmeginmark-
mið að vinna bug á þessum tvi-
þætta vanda, en þó án þess að
stefna atvinnuöryggi almennings
Ihættu..Ekki verður um það deilt
að stefna rlkisstjómarinnar hefur
reynzt árangursrik 1 öllum þess-
um greinum þótt ekki hafi alls
staðar jafn vel tekizt. Mikilvæg-
ust eru þau miklu umskipti sem
oröið hafa i stöðu þjóðarbúsins út
ávið. 1 staðhins geigvænlega viö-
skiptahalla áranna 1974-1975 hef-
ur á þessu og siöasta ári tekizt að
koma viðskiptahallanum niður i
1-2% af þjóðarframleiðslu. Rfkis-
fjármálin hafa átt sinn þátt I
þessu. Tekizt hefur aö snúa þeim
úr halla sem nær 3% af þjóðar-
framleiðslu 1974 og 19751 þvi nær
hallalaust horf á siöasta ári og
þessu ári. Þetta er mikilvægur
árangur sem við verðum nú að
varðveita. Sé litið til nálægra
landa eru fá dæmi um svo gagn-
gerð umskipti I rikisfjármálum
og utanríkisverzlun i átt til jafn-
vægis á þessum árum, einkum
þegar þess er gætt að allt þetta
timabil hefur tekizt að tryggja
hér fulla atvinnu, og á undan-
förnu ári hefur jafnvel frekar
borið á vinnuaflsskorti og óhóf-
legri yfirvinnu en atvinnuleysi.
Verðbólgan er hins vegar það
vandamál sem erfiðast hefur
reynzt úrlausnar. Þóttdregið hafi
um nær helming úr hraða verð-
bólgunnar hér á landi á undan-
förnum þremur árum, var hann
þó enn á fyrri hluta þessa árs yfir
26% á mælikvarða framfærslu-
kostnaðar. Hafðiþvi miðaö I rétta
átt þótt hægt fari, og var vissu-
lega ástæða til að vona að fram-
hald gæti orðið á þeirri þróun. Þvi
miöurhafa þær vonir nú brugðizt
I bili. Verðum við að vona aö hér
sé aðeins um hlé að ræða, hlé til
þess að undirbúa öfluga sókn
gegn verðbólgunni. Þess vegna er
nú vissulega þörf aðgæzlu I rikis-
fjármálum. Með þeim launa-
samningum, sem gerðir hafa ver-
ið á þessu ári, hafa viðhorf I verö-
lagsmálum breytzt. Nú er hætta á
þenslu i þjóðfélaginu og gegn
þeirri hættu þarf að beita rikis-
fjármálunum. Leggja verður
fram tillögur meðan þetta frum-
varp er til meöferðar til þess að
treysta fjárhag ríkissjóös 1978
frekar en fram er komið. Mikil-
vægt er að glata þvi ekki, sem á-
unnizt hefur á slðustu þremur ár-
um á sviöi rlkisfjármálanna. Vel
má vera, að nauðsynlegt sé að
gripið verði til svokallaðra ,,óvin-
sælla ráðstafana” I efnahagsmál-
um þjóðarinnar, en undan þeirri
ábyrgö getur hvorki rlkisstjórn
né Alþingi vikizt.
Kraninn meö innbyggt þermóstat er hvildarlaust á
veröi um þægindi heimilisins, nótt og dag afstýrir hann
óþarfa eyöslu og gætir þess, aö hitinn sé jafn og
eðlilegur, því aö hann stillir sig sjálfur án afláts eftir
hitastigi loftsins i herberginu. Fyrir tilstilli hans þurfió
þér aldrei aö kviöa óvæntri uþþhæö á reikningnum, né
þjást til skiþtis af óviöráöanlegum hita og kulda i eigin
íbúö, af þvi aö gleymdist aö stilla krana eöa enginn var
til aö vaka yfir honum.
BYGGINGAVÖRUSALA
SAMBANDSINS
Suðurlandsbraut 32 Reyk|avik sími 8 20 33
EIGUM JAFNAN TIL RAFMÓTORA
1400 - 1500 sn/mín lns fasa: 1/3 - 3 hö. 3ja fasa: 1/3 - 20 hö.
GÍRMÓTORA
Ymsa snúningshraða 3ja fasa: 1/3 - 15 hö.
Utvegum allar fáanlegar stærðir og gerðir.
FÁLKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
0 Alþingi
gjöldum útflutningsiðngreina
(fiskiðnaður ekki meðtalinn).
Rikisstjórnin hefur ákveðið aö
endurgreiða á árinu 1978 áætlað-
an uppsafnaðan söluskatt af út-
flutningsvörum samkeppnis-
iðnaðar á árinu 1977 og er sölu-
skattsáætlun 1978 við það miöuð.
Tollamál
Samkvæmt heimild i XV. tl. 6.
gr. fjárlaga fyrir árið 1977 hefur
fjármálaráðuneytið siðan 1. janú-
ars.l. felltniður að fullu sölugjald.
af nánar tilgreindum vélum, ■
tækjum vélahlutum og varahlut- (
um tíl samkeppnisiðnaðarins en
árin 1975 og 1976 náði sllk niður-
felling eða endurgreiðsla einungis
til helmings af söluskatti.
Frá árinu 1969 til ársins 1977
hefur hlutur tolltekna lækkað úr
31.5% I 17.0% á þessu tlmabili og
samkvæmt árlegum áætlunartöl-
um f járlagafrumvarps 1978 og
lækkunum samkvæmt tollskrár-
lögum mun þetta hlutfall lækka i
14.3% 1978 og 12.6% 1979. Arið
1980 gæti hlutfallið verið komið i
11-12%.
Rlkissjóði verður á einhvern
hátt að bæta þá tekjuskerðingu er
af lækkun tolla leiðir. 1 nágranna-
löndum okkar hafa svokallaðir
punktskattar eða vörugjöld verið
tekin upp i vaxandi mæli ásamt
viröisaukaskatti til aö mæta
minnkandi tolltekjum.
Sjálfvirki ofnkraninn
Ný gerö- öruggur-einfaldur-smekklegur
GÍRMÓTORAR
RAFMÓTORAR