Tíminn - 03.12.1977, Page 1

Tíminn - 03.12.1977, Page 1
GISTING MORGU NVERÐUR RAUOARARSTKj 18 SIMI 28866 270. tölublað —Laugardagur 3. desember—61. árgangur Fyrir vörubíla Sturtu- grindur Sturtu dælur Sturtu- - drifsköft Islendingar eiga 140 milljónir í dönskum bönkum áþ — Eins og kunnugt er hafa islendingar gert samninga viö hin Norö- urlönsin, þannig aö hægt er aö fá upplýsingar um tekjur, eignir og þ.h. á Norðurlöndunum. Bankar i Danmörku veröa aö gefa skattyfirvöldum nákvæmar upplýsingar um inneignir, ef þær fara yfir visst mark sem er 10 þúsund krónur danskar. Lög sem kveöa á um þetta gengu i gildi I fyrra, og nú hafa dönsk skattayfirvöld sent hingaö til lands upplýsingar um inneignir 80 islendinga. Kemur þar fram, aö eignir þeirra nema samtals 138,2 milljónum króna. Þessir einstaklingar eru allir búsettir hér á landi og greiöa sina skatta og skyldur til hérlendra yf- irvalda. Þeim hefur öllum veriö sent fyrirspurnarbréf og þeir inntir eftir þvi, af hverju eignirn- ar komu ekki fram á skattafram- tali. Þess skal strax getið, að óvist er að hver og einn einasti þessara 80 einstaklinga hafi framið ólöglegt athæfi. Hins veg- ar má hiklaust gera þvi I skóna, að einhverjir eigi i erfiðleikum með að útskýra hvernig á þvi stendur, að hann eigi yfir 10 þús- und krónur danskar. Framtöl þeirra eru nú I athugun hjá rikis- skattstjóra. Garðar Valdimarsson rlkis- skattstjóri sagði I viðtali við blað- ið að yfirleitt hafði viðkomandi ekki gefið upp inneignirnar til skatts. — Hvað gert verður við við- komandi fer eftir svörum þeirra, sagði Garðar. — Vel má vera að meirihlutinn geti gert grein fyrir sinum málum. En við höfum aldrei áður fengið svona viða- miklar upplýsingar frá neinu landi. Danir eru skyldugir til þess samkvæmt samningi, sem er nú I gildi milli Norðurlandanna. Aftur á móti hefur ekkert annað land þeirra gert svipaða ranpsókn og Danir. Island hefur gert mjög svipað- an samning við Bandarlkin og hann tók gildi fyrir skömmu. En ekki hefur reynt neitt á þann samning. Garðar kvað það lík- legt, að hægt væri að fá nákvæm- ar upplýsingar frá Bandarlkja- mönnum, hitt væri svo aftur ann- að mál hvort þær yrðu jafn ítar- legar og það sem nú hefur komið frá Danmörku. Áttæringur- inn Geir Hver ætli geti nú talist slöasti Staöhverfingurinn, ef þaö er ekki áttæringurinn Geir, sem Þór Magnússon þjóöminjavöröur og þrír gamlir og góöir Grindvíkingar eru þarna aö huga aö? Myndin er tekin I gær, I Bátalóni i Hafnarfiröi, en þar er nú unniö aö endur- byggingu Geirs. Þaö er Sjóminjafélag tslands, sem bjargaö hefur Geir frá glötun og hver veit áramótabrennu. Taliö er aö Eyjólfur bátasmiöur I Keflavlk hafi séö um smlöi bátsins, en ártal hefur ekki veriö grafiö upp. T.f.v, Þórhallur, Jón og Einar Kristinn Einarssynir ásamt Þór Magnússyni, þjóðminjaverði. Jón Einarsson var slðasti formaður á Geir. Timamynd Gunnar. Reynt að losa Dofra SSt — Reynt er nú aö losa borinn Dofra, sem veriö hefur látinn bora viö Laugaland Ihaust, en um hálfur mánuöur er liöinn siöan hann festist. Ekki haföi tekizt, aö losa hann I gær, er blaöiö haföi samband viö tsleif Jónsson, yfir- mann jaröboranadeildar Orku- stofnunar rlkisins. Þessi festa er að sögn Isleifs nokkuð sérstæð, þar sem borinn var aðeins á um 130 metra dýpi, þegar hann festist en holan sjálf er um 1960 metrar aö dýpt. Sagði Isleifur að ekki væri um það að ræða að holan hefði falliö saman, þvi hún væri opin fyrir hringrás vatns. t ráði er að Dofri bori eina holu til viðbótar að Laugalandi, en borinn Narfi hefur einnig verið þar við boranir að undanförnu. Enn leitað að fólki — við erfiðar aðstæður í Gautaborg Húsin sukku, hrundu saman og skekktust auk þess sem bllar og aörar eignir gjöreyöilögöust. Einar Ágústsson í Osló: „Tilgangurinnað sjá hungruðum heimi fyrirmat” SJ-Osló — „Ég trúi þvi að fisk- stofnarnir eflist svo aö viö getum einhvern tima I framtiö- inni leyft öörum þjóðum veiöar á íslandsmiðum. En eins og er veröum við aö takmarka afla okkar eigin fiskimanna. Til- gangurinn með friðun fiskimiö- anna er að sjá hungruðum heimi fyrir mat, en ekki einungis okkur i hag.” Svo fórust Einari Ágústssyni utanrikisráðherra orö á fundi með fréttamönnum i Osló i gær, en þá lauk opinberri heimsókn hans til Noregs. Meðan á heimsókninni stóð ræddi utanrikisráðherra m.a. við Knut Frydenlund utanrikis- ráðherra Noregs, Eyvind Bolle sjávarútvegsráðherra og Jení Evensen hafréttarráðherra. Einkum var rætt um fiskveiði- og hafréttarmál. A fimmtudagskvöld sátu Is- lenzku gestirnir veizlu norsku rikisst jórnarinnar, og var Frydenlund gestgjafi. A föstu- dag gekk Einar Agústsson á fund ólafs Noregskonungs. Um kvöldið hélt utanrikisráðherra gestgjöfunum veizlu I íslenzka sendiráðinu I Osló. I dag I býtið fór utanrfkisráð- herra ásamt fylgdarliði flug- leiðis til Tromsö. Þar skoða tslendingarnir svo nefnda tshafsdómkirkju, aðalstöðvar norsku strandgæzlunnar I Norður-Noregi I Olavsvern og gæzluskip hennar. Þá verður farið i Samasafnið I Tromsö og loks setin kvöldveizla Eyvind Bolle sjávarútvegsráðherra á Grand Nordic Hotel I Tromsö. A morgun, sunnudag, fer Einar Agústsson siðan til Helsinki. Gautaborg — Björgunarstarfi er haldið áfram I Tuve úthverfi Gautaborgar, en þar varö glfur- legt tjón þegar jarölög undir ibúöarhúsahverfi runnu af staö. Hætta var talin á nýjum skriöu- föllum, og 400 manns I nálægu hverfi voru þvl fluttir úr húsum sinum. Sú hætta er nú hinsvegar talin hverfandi, fólkið hefur snúið heim og björgunarstörf eru unnin óhindruð. Enn hefur ekki verið hægtað nota þungavinnuvélar viö leitina vegna þess hve illfært er um svæðið. Lögreglan heldur uppi ströngu eftirliti á svæðinu, en nokkuö hef- ur verið um gripdeildir. Stjórn Svlþjóðar hefur nú lýst því yfir aö hún hyggist bæta Ibúum Tuve allt það tjón, sem ekki er bótaskylt af hálfu trygginganna. Um 40 einbýlishús og raðhús i hverfinu eru gjörónýt, en tugir annarra stórskemmd og óibúðar- hæf. Enn er óvist hve margra er saknað, þvi ekki er vitað um tölu þeirra sem staddir voru i hverf- inu, en á þeim tima er slysið varð var þar talsverð umferð, og gæti umferðarþunginn átt sinn þátt i að leirlögin á svæðinu runnu niður hallann, með hinum skelfilegu afleiðingum.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.