Tíminn - 03.12.1977, Síða 21

Tíminn - 03.12.1977, Síða 21
 Laugardagur 3. desember 1977 HHÍJ.ÍIÍÍíJ n<: 21 Athugasemd frá Málm- og skipasmiðasam bandi Islands Vegna fréttagreinar i Timan- um 1. des. 1977. 1 dagblaðinu Timanum hinn 1. des. s.l. er á bls. 3 innrömmuð fréttagrein merkt Jóni Sigurðs- syni ritstjórnarfulltrúa með út- listingum á innihaldi kjara- samninga sem stéttarfélög launþega i málm og skipasmiði gerðu i júni s.l. við viðsemj- endur sina þ.e. Samband málm- og skipasmiða en i þeim sam- tökum eru m.a. öll stærstu at- vinnufyrirtæki i málmiðnaði og skipasmiði. 1 þriðju málsgr. i þessari fréttagrein Timans seg- ir svo: „Menn minnast þess að i hin- um almennu kjarasamningum sl. vor var kveðið á um það að 2,5% yrðu tekin i svo kallaðar sérkröfur einstakra félaga og landssambanda. Iðnaðarmenn sömdu hins vegar sin i millum flestir um það að brjóta gegn þeirri launajöfnunarstefnu sem i þessu fólst og tóku sér allt að 10% i sérkröfurnar. M.a. átti þetta við um rafverktaka og málm- og skipaiðnaðinn”. Engra heimilda er getið fyrir þvi sem Jón Sigurðsson rit- stjórnarfulltrúi Timans full- yrðir i þessari tilvitnuðu máls- grein i fréttagrein sinni, enda erfitt að geta heimilda fyrir órökstuddum fullyrðingum. Vegna þessarar fréttagreinar Jóns Sigurðssonar og rangra fullyrðinga, sem felast i til- vitnaðri málsgrein er óhjákvæmilegt að láta eftirfar- andi upplýsingar koma fram: Kjarasamningar málm- iðnaðarmanna og skipasmiða eru gerðir annars vegar milli launþegafélaga i málmiðnaði og skipasmiði sem eru um 25 viðs vegar um landiðog samtaka at- vinnurekenda og stórfyrirtækja i málmiðnaði og skipasmiði, Sambands málm og skipa- smiðja, hins vegar. Þau samtök eru með áhrifamestu aðilum i Vinnuveitendasambandi ts- lands. Stéttarfélög málmiðnaðar- manna og skipasmiða hafa aldrei hvorki fyrr né siðar, fengið neina kjarabót hjá at- vinnurekendum i málmiðnaði Vinnu veitendasambandi ts- lands eða Vinnumálasambandi S.I.S. nema eftir harða og lang- vinna verkfallsbaráttu. Iðnaðarmenni málmiðnaði og skipasmíðum semja þvi ekki sfn imillum eða innbyrðis um kaup og kjör sin um þau þurfa þeir að semja við atvinnurekendur og eigendur málmiðnaðarfyrir- tækja eins og aðrir launþegar. Félagasamtök málmiðnaðar- manna og skipasmiða hafa frá upphafi virt svokallaða „launa- jöfnun” sem meginstefnu og siðustu kjarasamningar þeirra brutu I engu gegn henni, enda hafa kaupaukar fyrir erfiða og óhreininda vinnu i málmiðnaði og skipasmiðum verið skertir um 50%. 011 starfsgreinasamböndin i ASI notuðu 2,5% vegna sér- krafna á hliðstæðan hátt. Málm og skipasmiðasamband íslands notaði 2,5% til nýrrar starfsaldurshækkunar sem kom til um 20% málmiðnaðarmanna og skipasmiða og var jafngildi 0.8% og til meistaraálags sem kom til um 34% málmiðnaðar- manna og skipasmiða og var talið jafngildi 1,7% þ.e. 0,8% + 1,7% = 2,5%. Á sambærilegan hátt var 2,5% skipt upp hjá verkamönnum, verkakonum, iðjufólki verzlunarfólki og öðrum. Hins vegar er vitað að þar sem laun eru reiknuð og greidd samkvæmt bónus eða uppmælingakerfum hvort sem er hjá atvinnurekendurr) al- menns verkafólks eða bygg- ingaverktökum er svokölluð „launajöfnunarstefna” þver- brotin án afskipta Verðlags- eftirlitsrikisinssem virðist hafa tekið að sér að sjá um fram- kvæmd launajöfnunar á þann hátt að uppmælingartaxtar fái sérstaka fyrirgreiðslu sam- kvæmt frásögn i fréttagrein Jóns Sigurðssonar. Af þvi sem hér hefur verið rakið er ljóst að fullyrðingar Jóns Sigurðssonar i fréttagrein Timans frá 1. des. eru með öllu ósannar og hljóta að byggjast á vanþekkingu eða andúð á laun- þegum i málmiðnaði og skipa- smiðjum. Hér fylgir með kauptaxti málmiðnaðarmanna og skipasmiða sem gildir frá 1. des. 1977 sem vér óskum sér- staklega eftir að verði birtir. 2. desember 1977 Guðjón Jónsson járnsmiður KAUPTAXTAR GilHí-p frá l.desember 1977 (ífekkun kr. 3.304 á viku) Starfs- aldur Taxtar Alags- grunnur Kaup með viÓgerðar og. þungaálagi. 1. ár Vikukaup 14.320 27.568 Dv. kaup 358 689 Ev. kaup 501 965 Nv. kaup 644 1.240 ■ 1. og Vikukaup 14.890 28.138 Dv. kaup 372 703 3. ár Ev. kaup 521 984 Nv. kaup 670 1.265 4. og Vikukaup 15.796 29.145 Dv. kaup 395 729 5. ár Ev. kaup . 553 1.021 Nv. kaup 711 1.312' Eftir Vikukaup 16.428 29.980 Dv. kaup 411 750 5. ár Ev. kaup 575 1.050 Nv. kaup 739 1.350 - Starfsaldur skal miÖasf viÖ starf sem sveinn í iÖninni. Ictóis og flutningsgjald greiÖist fyrir alla daga sem unnir eru, en þaÖ er kr. 342 á dag ( kr. ],.710 fyrir 5 daga vinnuv.) og ta?tist viö útborgaÖ kaup Sveinar sem hafa meistarabréf skulu fá 5% álag á útborgaö kaup. Hjá skipasmiÖum er verkfæraleiga kr. 33 á klst. (kr. 1.320 fyrir 40.stund£ vinnuviku), og bætist sú upphæÖ viÖ ofángreindan taxta'. Hjá þeim félögum er miÖa félagsgjald viÖ lægsta útborgaÖ tíma)<aup, er. félagsgjald kr. 690 á viku frá og meÖ 1. desember 1977 óvænt jólagjöf Jólahappdrættið þegar uppselt Helgi Kjartansson Hvammi JS— Sala jólahappdrættis Sam- bands Ungra Framsóknarmanna hefur gengið mjög vel, og er það nú þegar uppselt, örfáum dögum eftir að sala hófst. Mjög eigulegir vinningar eru I GV — Siðasta kvikmyndin sem sýnd verður á sósiallsku kvik- myndavikunni er sovézka kvik- myndin Járnflóðið. Myndirnar hafa verið sýndar i tilefni 60 ára afmælis Októberbyltingarinnar. Kvikmynd þessi er byggð á samnefndri skáldsögu eftir Alex- ander Serafimovitsj. Leikstjórier J. Dzigan. Tónlistin er eftir V. Múra deli. 1 Járnflóðinu er sagt frá göngu- ferð þúsunda hermanna úr röðum byltingarsinna og rauðliða og fjölskyldna þeirra um hálendi Kákasus. Þetta gerðist á árinu 1918, á dögum borgarastriðsins i Rússlandi, þegar ráðstjórnin átti boði i þessu jólahappdrætti. Þannig er t.d. aukavinningurinn á aðfangadag reiðhjól frá Erninum hf., Spitalastig 8 i Reykjavik, að verðmæti kr. 60.000. i vök að verjast gegn árásum hvitliða og innrásarherja. Eftir miklar þolraunir meöan á göng- unni stóð tókst fólkinu, sem flest var illa búið, matarlitið og ör- magna, að sameinast meginfylk- ingu Rauða hersins. Það sem i fyrstunni virtist agalaus lýður varð um siðir að beittum her — sannkölluðu jámflóði byltingar- innar. Höfundur sögunnar Alexander Serafimovitsj, var uppi frá 1863 til 1949 og kunnur fyrir skáldsög- ur sinar. Járnflóðið er frægasta verk hans og að margra dómi það bezta. Kvikmyndin er nokkurra ára gömul. Við kynnumst öll ýmsum manngerðum á lifsleiðinni. Sam- ferðafólkið verðurokkur misjafn- lega minnisstætt og kemur þar margt til kynni verða mismikil og kostir manna misjafnir. Sumir eru þeim hæfileikum búnir að hafa góð og varanleg áhrif á þaö fólk sem þeir umgangast, svo og það umhverfi sem þeir starfa i. Einn þeirra manna sem ég tel að hafi verið þeim kostum búinn, er nú nýlátinn. Helgi Kjartansson var fæddur 20. júli 1895 að Hvammi i Dölum. Foreldrar hans voru hjónin frú Sigriður Jóhannsdóttir og sr. Kjartan Helgason sem þá var presturi Hvammi. Arið 1905flutt- ist sr. Kjartan með fjölskyldu sina að Hrauna i Hrunamanna- hreppi og þjónaði þvi prestakalli það sem eftir var starfsævinnar eða til ársins 1930. Börn prestshjónanna i Hruna voru sjö og var Helgi næstelztur þeirra systkina. Auk þess ólu þau upp tvö fósturbörn, Marenu Ell- ertsdóttur og Emil Asgeirsson bónda i Gröf. Emil ernú einn á lifi i þessum hópi. Það hefur þvi verið mannmargt i Hruna á þeim árum, sem Helgi var að alast upp, þvi auk fjöl- skyldunnar var alltaf margt vinnufólk á staðnum. Þau fóstur- systkinin báru það öll með sér, aö þau hafa farið vel nestuð úr föð- urgarði að þekkingu og atorku. Skólaganga Helga var ekki löng á nútimamælikvarða. Hann stundaði barnaskólanám i far- skóla eins og þá tiðkaðist og siðar fór hann á Bændaskólann að Hvanneyri. Auk þess dvaldist hann rúmt ár i Noregi og vann þar að, og kynnti sér landbúnað. Helgi var góðum gáfum gæddur og hefur vafalaustáttkost á lang- skólanámieins og sum af systkin- um hans, en trúlega hefur Helgi alltaf ætlað sér að verða bóndi jafnhugleikinn og öll ræktunar- störf voru honum. Helgi kvæntist eftirlifandi konu sinni, Elinu Guðjónsdóttur frá Gröf, 20. júni 1926 og dvöldu þau fyrstu árin i Hruna. Ungu hjónin fengu siðan hlut úr landi Grafar, jarðar Guðjóns, föður Elinar, og stofnuðu þar nýbýli og hlaut það nafnið Hvammur. Nafngiftin sýn- ir vel þann hug sem Helgi bar til æskustöðvanna. Hvammur mun vera fyrsta nýbýlið sem stofnað var hér i sveit og með þeim fyrstu sem stofnuð voru hér á landi eftir gildistöku nýbýlalaganna. Fljót- lega voru hafnar byggingafram- kvæmdir á hinu nýja landi og þar reistu þau myndarlegt ibúðarhús ásamt fjósi og hlöðu. Arið 1930 fluttust þau svo að Hvammi og hófu þar búskap. Frumbýlingsár in reynast mörgum erfið og hygg ég að þau hjónin hafi ekki farið varhluta af þeim erfiðleikum. En hyggindi Helga og samstilltur vilji þeirra hjóna kom þar að góð- um notum og ekki leið langur timi þar til Hvammur var kominn i tölu góðbýlanna. Helgi sá strax hvaða auður var falinn i hveraorkunni og notfærði sér hana sem kostur var á. Ibúð- arhúsið i Hvammi mun vera eitt af fyrstu húsunum hér i sveit, sem hitað var upp með hvera- gufu. Fljótlega eftir að Helgi settist að i Hvammi, hóf hann ræktun á matjurtum og notfærði sér þá staði þar sem jörð var hæfilega volg til að flýta fyrir gróðrinum. Matjurtaræktin óx og varð fljót- lega stærsti liðurinn i búrekstrin- um. Ég tel, að Helgi hafi verið einn af brautryðjendum á þessu sviði búskapar það er, útiræktun matjurta ræktin óx og varð fljót- lega stærsti liðurinn i búrekstrin- um á þessu sviði búskapar, það er útiræktun matjurta sem atvinnu- grein. Þess má geta hér, að Helgi var einn af stofnendum Sölufé- lags garðyrkjumanna og átti sæti i stjórn þess um árabil. önnur grein ræktunar var Helga mjög hugleikin, en það var skógræktin. Sennilega hefur áhugi hans fyrir skóginum vaknað þegar hann dvaldist i Noregi. Hann hóf fljót- lega að gróðursetja tré i ásnum fyrir ofan bæ sinn og er það nú fallegur trjáreitur, sem verður honum lengi minnisvarði. Auk þess leiðbeindi hann bæði félög- um og einstaklingum á sviði trjá- ræktar. Hann átti um tima sæti i stjórn Skógræktarfélags Arnes- sýslu og var heiðursfélagi þess. Það fór ekki hjá þvi aö Helga yrðu falin ýmis opinber störf fyrir sveit sina. Hann átti sæti i hreppsnefnd, skattanefnd, sýslu- nefnd o. fl. en um það munu aðrir mér færari skrifa, en ekki efa ég að Helgi hefur af alhug unnið aö þeim málum sem máttu verða sveitinni og ibúum hennar til heilla. Börn þeirra Elinar og Helga urðu fjögur —-elzta barn þeirra dó i fæðingu. Þau sem komust til fullorðins ára eru: Jóhannes, bóndi i Hvammi, kvæntur Krist- inu Karlsdóttur frá Reykjavik, Kjartan bóndi og hreppstjóri i Hvammi kvæntur Björgu Björns- dóttur frá Reykjavikog Guðrún i- þróttakennari, búsett i Reykja- vik, var gift Steinari Lúðvikssyni en þau skildu. Barnabörn þeirra hjóna eru 9 talsins og barna- barnabarn eitt. Þaö var vorið 1942 sem ég kom að Hvammi, þá 15 ára að aldri. Það var i mér nokkur kviði um það hvort ég gæti skilað þeim störfum sem mér yrðu falin svo i lagi væru. Þetta var margþættur búskapur og ég fákunnandi á þeim sviðum. Fljótlega fann ég Framhald á bls. 23 Járnflóðið

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.