Tíminn - 03.12.1977, Qupperneq 24

Tíminn - 03.12.1977, Qupperneq 24
 í _ HREVFILL Sími 8 55 22 Vmmmt Laugardagur 3. desember 1977 i f. ■ Auglýsingadeild Tímans. HÚfiQÖQII TRÉSMIDJAN MEIDUR i \ ' : SÍÐUMÚLA 30 • SÍMl: 86822 \ / Fulltrúar og stjórn Fiskifélags tsiands á Fiskiþingi I gær. Þinginu iýkur f dag. Samþykkt Fiskiþings: Atvinnuvegirnir stöðvast ef ekki verður tekið fyr- ir öran vöxt verðbólgunnar GV — 36. Fiskiþingi Fiskifélags tslands lýkur í dag, og hafa aðal- mál þingsins að þessu sinni verið afkoma sjávarútvegsins og stjórnun fiskveiða. Siðdegis f gær lá fyrir samþykkt um afkomu sjávarútvegsins, og átti þá eftir að ræða tillögur og samþykkja ályktun þingsins um stjórnun fiskveiðanna. Að sögn blaðafull- trúa þingsins var von á miklum umræðum um það mál. En hér á eftir fer samþykkt þingsins um afkomu sjávarútvegsins. 1. 36. Fiskiþing haldið I Reykja- vik i nóv. 1977 vekur athygli á, að veröbólga á Islandi hefur undan- farin ár verið eitt stærsta vanda- mál stjórnvalda. Siöustu 5 árin hefur verðbólgan vaxið meö þeim ógnarhraöa að voði blasir við. Allar likur benda til enn stórauk- innar veröbólgu á næsta ári. Útflutningsframleiðslan, sem háð er verölagi þvi, sem fæst fyrir framleiðsluna á erlendum mörkuðum, veröur hvað haröast úti vegna ört vaxandi verðbólgu. Fyrirsjáanlegur er stórhalla- rekstur hjá fiskvinnslunni, sem Þjóðhagsstofnun hefur staðfest meö áætlunum sinum og forráöa- menn vinnslugreina hafa gert stjórnvöldum grein fyrir. Jafn- framt er fyrirsjáanlegur aukinn halli á rekstri fiskiskipanna, svo sem sýnt hefur verið fram á af Þjóðhagsstofnun og forsvars- mönnum útgerðarinnar. Til þess að mæta þeim mikla vanda sem nú steðjar aö, telur þingið óhjákvæmilegt, að breytt verði um stefnu i fjármálum rikisins, m.a. með þvi að dregiö veröi úr eyðslu og óaröbærri fjár- festingu og stöðvuð verði hin stöðuga þensla rikiskerfisins. Verði ekki hægt á vexti verö- bólgunnar, munu atvinniivegirnir stöðvast vegna fjárskorts og hallareksturs. Þingið leggur áherzlu á, að stjórnvöld taki þessar ábendingar til greina við afgreiöslu fjárlaga fyrir árið 1978. 2. Við þær aöstæður, sem fisk- dagur til jóla Jólahappdrætti SUF: Vinningur dagsins kom upp á nr. 1503. Vinningsins má vitja á skrif- stofu SUF aö Rauðarárstig 18 I Reykjavik. Slmi 24480. veiðar og fiskvinnsla eiga við að búa telur þingið óhjákvæmilegt að afurðalán verði I það minnsta 90% af afreikningsverði afurö- anna. 3. Þingið telur nauösynlegt að hagur linuútgerðar verði bættur, og bendir á að viðbótarverð það, sem rikissjóður greiöir á linufisk veröi fært til sama hlutfalls við fiskverðið og þaö var þegar þess- ar greiðslur hófust. SKJ — Eitt aðalatriðið i almennum stuðningsaðgerðum við iðnað I ná- grannalöndum okkar er svæðis- og byggðaþróun, þar sem unnið er að eflingu uppbyggingar á þróunarsvæðum með lánum á Iágum vöxtum og styrkjum. Hvað stærð varðar liggur Byggöasjóður milli Direktoraret for Egnsudvikling í Danmörku og Distrikternes At- byggningsfond I Noregi, en hér er átt við samanburð miðað við fjölda starfandi manna hjá þessum þrem þjóðum. Gifurlegur munur er á starfi þessara sjóða og mismunurinn kemur glögglega fram þegar at- hugað er til hvaða atvinnugreina er lánaö, þvl að tiltölulega svipaður hundraðshluti þjóðanna hefur framfæri sitt af iönaði Danski sjóðurinn lánar um 90% af útlánum til iðnaðar, sá norski um 70% en aðeins 4-30% útlána Byggðasjóðs fara til iðnaðar. Lán til byggingar iðngarða sveitarfélaga er meðal hlutverka byggðasjóðs á Norðurlöndum, en slikt hefur hvorki verið tekið upp af Byggðasjóði hér á landi né öðr- um sjóðum. Þó virðist sem sllkt myndi ýta undir eðlilega byggða- þróun i landinu. Bein aðstoð er veitt bæði I Noregi og Danmörku. 5-10% af heildarráðstöfunarfé danska SVR vill f á 40-50% hækkun áþ — Þessa dagana er verið að vinna að fjárhagsáætlun Reykja- vikurborgar. Ýmsar stofnanir borgarinnar s.s. Hitaveita Reykjavikur, Raf magnsveita Reykjavikur og SVR, hafa farið fram á mjög verulegar hækkanir á sinum gjaldskrám. Eflaust kæmi þaö sér illa fyrir pyngju margra, ef fallizt yrði á hækkunarbeiðnirnaS'. óbreyttar. Samkvæmt þeim uppiýsingum, sem blaðið hefur aflað sér, vilja forráðamenn SVR fá 40 til 50% hækkun á fargjöldum. Þrátt fyrir aö þessi hækkunarbeiðni fengist samþykkt, þyrfti Reykjavikur- borg samt að leggja fram um 300 milljónir króna til þess aö endar næðu saman. Ef hækkunarbeiðn- inni yrði algjörlega synjað, þyrfti Reykjavikurborg sennilega aö leggja fram um 500 milljónir króna. Framangreindar upphæðir eru miðaðar við óbreyttan rekstur. 1 þeim er ekki gert ráð fyrir að SVR auki við vagnakost sinn. sjóðsins fer til beinnar aðstoðar, en endurgjaldslaus aðstoð norska sjóðsins nemur 31% af heildar ráðstöfunarfé. Tekið skal fram, að danski sjóðurinn ræður yfir 400 millj. D.kr. að viðbættum 200 millj. D.kr. til rekstrarlána, en norski sjóðurinn ræður yfir einum milljarði norskra króna. Byggða- sjóður lánaði út 1.137 milljónir króna 1976, en rikisframlag nam 1.123 milljónum. Ekki er raunhæft að bera sam- an vaxtakjör, nema þegar um 100% gengistryggð lán er að ræða, en þar sem samanburður á við eru vaxtakjör naumlega 1/3 lakari hér en i Noregi og rúmlega 1/4 lakari hér en i Danmörku. Sá lánstimi athugaður, þar sem um 100% gengistryggingu er að ræða, er lánstiminn almennt 10-12 ár hjá Byggðasjóði, 10-20 ár- hjá norska sjóðnum og I einstaka til- fellum 30 ár bæði I Noregi og Dan- mörku. Lán til framleiðsluiðnaðar námu 4% af ráðstöfunarfé Byggðasjóðs, en sé fiskiðnaði bætt við er hlutfallið 26%. Lán til skipasmiða og útgerðar geta hækkað prósentuhlutfallið upp i 30-35%. Af ofangreindu er ljóst að islenzkur iðnaður býr við lakari fyrirgreiðslur, en þekkist I ná- grannalöndunum. Ólafur Jóhannesson Páll Pétursson Stefán Guðmundsson 0 1 Guðrún Benediktsdóttir Mikil þátttaka í próf- kjöri Framsóknarflokksins í Norðurlandskjördæmi vestra áþ — Mjög mikil þátt- taka var i prófkjöri Framsóknarflokksins i Norðurlandskjördæmi vestra. 2313 manns tóku þátt i prófkjörinu, en 2012 greiddu Fram- sóknarflokknum at- kvæði i siðustu kosn- ingum. Er það um 14% aukning. Efstu menn á lista Framsóknar- flokksins voru Ólafur Jóhannesson, Páll Pétursson og Stefán Guðmundsson. Ólafur Jóhannesson hlaut 1869 atkvæði I fyrsta sætið eða 94,4%. Hann hlaut 165 atkvæði I annað sæti og samtals 2136 atkvæði. Páll Pétursson hlaut 1408 at- kvæði i tvö efstu sætin, en sam- tals hlaut hann 1864 atkvæði. 1 þriöja sætinu er Stefán Guö- mundsson. Hann fékk 1122 at- kvæði og 530 i tvö neöstu. Guðrún Benediktsdóttir hlaut samtals 1053 atkvæði i fjórða sæti, en 501 i fimmta sæti. Bogi Sigurbjörnsson, Magnús Ólafsson og Brynjólfur Svein- bergsson skipuðu þrjú neðstu sætin á listanum. Bogi hlaut 1524 atkvæði, Magnús 1009 at- kvæði og Brynjólfur 998 at- kvæði. Prófkjörið er ekki bindandi, en stjórn Framsóknarflokksins i Norðurlandskjördæmi vestra hefur orðið ásátt um að bera fram tillögu á kjördæmisþing- inu um að listinn verði eins og að framan greinir. Iðnaður afskiptur - I svæðis-og byggðaþróun á íslandi

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.