Tíminn - 01.02.1978, Síða 8

Tíminn - 01.02.1978, Síða 8
8 Miövikudagur X. febrúar 1978 iiMilI'Íí' REGNBOGINN og réttur borgaranna Undanfarna daga hafa orðiö nokkur skrif i dagblöðum um kvikmyndahúsiö Regnbogann á Hverfisgötu 54, en þar var staö- iö mjög óvægilega aö málum af hálfu borgarstjórnar og kann þetta aö vera upphaf aö nýjum stjórnarháttum, þar sem ráösk- azt verður með varnarlausa borgara á lokuöum fundum pólitikusanna, án þess aö nokkr- um vörnum verði viö komið. Reyndar má segja, aö staðsetn- ing kvikmyndahússins þarna sé nýr óvæntur leikur i þeirri við- leitni borgaryfirvalda að eyöi- leggja miöbæ Reykjavikur, en þar hefur þegar mikiö áunnizt. Það er hins vegar nýtt tillag i málinu, þegar ráðizt er beint á borgara meö þvilikum hætti og þarna er gert, svo að þeim veröi i senn gert ómögulegt aö búa á sama staö og ómögulegt að fara þaöan.t Hverfisgatan skipulagsrústasafn Hverfisgatan, önnur mesta umferðargatan i Reykjavlk, er oröin aö eins konar skipulags- rústasafni. Frá Arnarhóli blasir viö i vestri Morgunblaðshúsiö, sem er reist á fyrrum fyrir- hugaöri götu, þar fyrir framan eru gömul hús, sem á aö rifa, svo að teiknaöir Reykvfkingar njóti þar lifsins i tómstundahöll. Við tekur göngugata, þar sem enginn á erindi eftir lokunar- tima verzlana og banka. Göngu- gatan endar i þvi, sem einu sinni var Lækjartorg. Þar fyrir vest- an má lita hina fyrirhuguöu hraöbraut, sem liggur i gegnum Tollhúsið. Ofar viö Hverfisgötu er danska sendiráöið. Garöur þess var skertur um þrjá metra frá götu, þvi þaö stóö til aö breikka Hverfisgötuna. Þá átti einnig að mynda súlnagöng i gegnum steinhúsin fyrir vegfar- endur, og má greina þau i húsi Skrifstofuvéla h/f. Á lengjunni á milli Vatnsstigs og Frakkastigs áttu að risa þriggja hæða há pakkhús aö noröanveröu, sem eigendur fasteignanna áttu að sameinast um að byggja. Þar andspænis áttuað vera fjögurra hæöa há hús fyrir léttan iðnaö og skrifstofur. Nú hefur núverandi borgar- stjóri óvenjulegan áhuga á skipulagi borgarinnar. A sein- asta ári hélt hann sjálfur marga hverfafundi um skipulagsmál og borgin hélt sýningu á Kjar- valsstöðum, þar sem seinustu afrek á þeim vettvangi voru kynnt borgurunum, þvi vel skal þaö vanda, sem lengi á aö standa. Borgararnir voru hvatt- irtil aöláta i ljós álit sitt, og allt átti aö vera með sem lýöræöis- legustum hætti. Pólitískir fulltrúar, sem eru kosnir i almennum kosningum vegna stefnu sinnar og þeirra flokka, sem þeir eru fulltrúar fyrir fara með yfirstjórn borgarinnar. Agreiningsmálin eru mörg og hart barizt. Þaö er oftast erfitt aö taka veigamiklar ákvaröanir i borgarmálum, þvi mörg eru sjónarmiðin og hagsmunirnir, og rekast gjarnan á. Til að tryggja að mál séu skoðuö ofan i kjölinn eru fjölmörg embætti og nefndir á vegum borgarinnar, og er leitað álits þeirra, þegar mynda á sér skoöanir á einstök- um málum. Áhrif kvikmyndahúss á umhverfi sitt Bygging kvikmyndahúss er meiri háttar ákvöröun, þvi bæði er það, að slikt hús er dýrt, hef- ur mikil áhrif á umhverfi sitt og tryggja verður öryggigesta. En á þvi hefur veriö misbrestur, eins og nýlegt dæmi sýnir, þeg- ar neyðarútgangar voru óvirkir aöhluta, þegar brunikom upp i kvikmyndahúsi i Reykjavik. Ahrif slikrar starfsemi á um- hverfi sitt eru m.a. mikil um- ferð bila og vegfarenda á meðan á sýningum stendur. Þegar skipulagssýningin stóö yfir að Kjarvalsstööum, kom mikill fjörkippur i byggingar- framkvæmdir á lóöinni að Hverfisgötu 54, en þar haföi þá litið gerzt i lengri tima. Þaö spurðist strax, að þarna ætti aö risa kvikmyndahús með fjórum sölum auk tveggja diskóteka. Fyrirspurnir hjá embættum borgarinnar sýndu þó hið gagn- stæða, þarna átti aö risa hús undir léttan iönaö. Svo spurðist þaö, að borgarráð hefði sam- þykkt það á lokuöum fundi, aö þarna skyldi samt verða kvik- myndahús. Umferöarnefnd Reykjavikur- borgar skilaði þvi undariega"v áliti, aö ekkert mælti á móti staðsetningu biósins. Næg bila- stæði væru innan seilingar. Skipulagsnefnd var ekki spurö. Stór kafli á járnbrautarleið- inni á milli Leningrad og Moskvu er sagöur beinn, ein- mitt þar sem landslag er mjög fjöllótt og erfitt til járnbrautar- lagnar. Sagan segir, að tækni- menn hafi átt i deilum um hvernig bezt væri aö laga braut- ina aö landslaginu. Málinu var skotiö til þess keisara, sem þá réöi málum. Hann ihugaði mál- iö um stund, tók siðan reglu- striku og teiknaöi beina linu og sagði: „Svona skuluðþið ieggja brautina,” sem var svo llka gert. Þetta var pólitisk ákvörð- un. Staðsetning og framgangur Regnbogans er, þótt undarlegt megi telja, einnig pólitisk ákvörðun. Strax þegar spuröist, hvaö væri á döfinni, var leitaö til allra borgarfulltrúa og þeirra nefnda og embætta, sem málið var skylt. Nóg var af rökum, sem mætlu á móti þeirri stað- setningu, og má þar nefna: Alls engin bilastæði: Mikil og óæskileg truflunfyrir ibúa nágrennisins vegna um- ferðar bila, vegfarenda og húss- ins sjálfs. Auk þess voru ekki nema einar neyðardyr á húsinu. Viöbrögð borgarfulltrúanna vorumeð ýmsum hætti, en sam- mála voru þeir um, aö málið væri þess eölis, að ekki yröi við spornað og bióið hlytí að fá viðurkenningu. i munnmælasögum segir, að undir enda regnbogans sé mikill sjóður falinn og sé hann eign þess, sem hann finnur. Ágizkan- ir eru um það, að þegar séu komnar 200-300 millj.kr. i húsiö en enn eru tvær hæöir óinn- réttaöar. Þessum peningum var dælt með þeim hraða i hús- skrokkinn, að kvikmyndagagn- rýnandi lét svo um mælt, aö þarna væri kraftaverk á ferð- inni og sannarlega var mikill fyrirgangur á meðan á bygg- ingu stóð. Unnið var dag og nótt með stórvirkum tækjum, og ekki gátu starfsmenn fundið sér bílastæði frekar en aðrir, þar sem þægilegt var að leggja, og lögðu þá bilum sinum á gang- stéttir, strætisvagnastæði, þversum á götunni, eða bara einhvers staðar, alla tima sólar- hrings og alla daga, jafnvel á jóladag. Þegar þeim hamförum lauk og bióiðtók til starfa, varkveikt á miklu ljósaskilti, sem lýsir nótt og dag inn um glugga gagn- stæðra húsa, biógestir leggja bflum sinum alls staðar, eins og starfsmennirnir gerðu og gera, og sýningum lýkur fyrst kl. 1.30 að nóttu. Asgeir Leifsson. Búið er að koma fyrir búkkum á gangstéttum á móti Regn- boganum. Ibúar þar geta þvi hvorki tekið leigubil, né farið i sjúkrabil. Engin stæði eru fyrir gesti og stöðugt ónæði af bió- gestum fram á nótt. Lögreglu- þjónar hafa staðið fyrir framan bióið seinustu þrjár vikur og reynt með litlum árangri að stugga viö ólöglega lögðum bil- um. Þetta hafa sjálfsagt allir ibúar Reykjavikur séð siðan Regnboginn tók til starfa, og ef ekki þá gefst þeim kostur á þvi dag hvern, þegar háannatimi er hjá bióinu. Hagsmunir þeir, sem meta átti og vega, þegar veitt var leyfi fyrir bióinu, voru eftirfar- andi: 1) Hagsmunir þeirra, sem yfir- ráð höfðu yfir fjármagninu. 2) Hagsmunir borgarbúa. 3) Hagsmunir nágranna. Nú vil ég beina eftirtöldum spurningum til allra borgarfull- trúa og annarra sem tóku þátt i ákvarðanatöku þessari: 1. Hvernig voru hagsmunir metnir, þegar ákvörðun um kvikmyndahúsarekstur á þessum stað var tekin? 2. Er von á annarri hávaöa- starfsemi, s.s. diskóteki, i húsinu? 3. Hvaða rétt eiga nágrannar Regnbogans, sem hafa alsak- lausir orðið fyrir þessum átroðningi? Og að lokum þetta. Ég óska þess, að hvorki borgarfulltrúar né aðrir verði fyrir þeirri sömu óþægilegureynslu og nágrannar Regnbogans, að missa rétt, án þess að eiga von á leiðréttingu, en sú hætta vofir yfir öllum i þessari borg meðan svona er staðið að málum. Reykjavik, 27. jan. 1978 Ásgeir Leifsson Kvikmyndahúsið Regnboginn viö Hverfisgötu. Gjöf Jóns Sigurðssonar Verðlaunanefnd sjóðsins „Gjöf Jóns Sigurðssonar” hefur auglýst eftir umsóknum um fjárveitingar úr sjóðnum árið 1978, en að þessu sinni er ráðstöfunarféð 3.1 millj. kr. Tilgangur sjóðsins er sá, að verðlauna vel samin visindaleg rit, styrkja útgáfur slikra rita og styrkja höfunda, sem hafa vis- indarit i smiðum. Oll skulu rit þessi „lúta aö sögu Islands, bók- menntum þess, lögum, stjórn og framförum”. A siðastliðnu ári veitti nefndin þrenns konar viðurkenningu, starfslaun, verölaun og útgáfu- styrk. Starfslaun hlutu þessir, 450 þús. kr. hver: Sigfús Jónsson landfræðingur til að semja rit um áhrif sjá- varútvegs á byggöaþróun á Islandi 1940—1975. Sverrir Tómasson cand. mag. til að semja rit um formála islenzkra sagnaritaraá miðöld- um, könnun lærðrar rithefðar. Þór Whitehead M.A. til að semja rit um Island i siðari heimsstyrjöldinni. Verðlaun, 225 þús. kr., hlaut Anna Sigurðardóttir i viður- kenningarskyni fyrir söfnun heimilda um sögu isle.nzkra kvenna. Otgáfustyrk, 225 þús. kr., hlaut Sigfús Haukur Andrésson cand.mag til að greiða kostnaö við að ganga frá handriti um islenzka verzlunarsögu 1774—1807. Umsóknir um verðlaun eða annan fjárstuðning úr sjóðnum 1978 skulu stilaðar til verðlauna- nefndar, en sendar forsætisráöu- k Framhald á bls. 9. * Lionsmenn skemmta sér í Atthagasal: Villibráðarát og lista- verkauppboð í fjáröflunar skyni fyrir drykkjusjúka SJ — Lionsklúbburinn Fjölnir efnir til árlegs Villibráðaráts i Atthagasal Hótel Sögu á föstu- dagskvöldið, 3. febrúar, og hefst það kl. 19. Um kvöldið fer fram uppboð á listaverkum eftir Baltasar, Guðmund Karl As- björnsson, Hring Jóhannesson, Jóhannes Geir, Ragnar Lár og Valtý Pétursson. Efnter til þessarar samkomu i I fjáröflunarskyni og eru allir velkomnir, Lionsfélagar sem aðrir, til gæsa-, anda-, lunda-, svartfugla-, rjúpna- og hrein- dýraáts meðan nokkur biti er eftir, en til að tryggja að skortur verði enginn, er rétt að panta miða i simum 72852, 13501 eða 83869 á kvöldin, þó ekki siðar en á fimmtudagskvöld. Veizlustjóri verður Richard Hannesson, aðalræðumaður Pétur Guðjónsson, en skemmti- kraftur kvöldsins verður Ómar Ragnarsson. Lionsklúbburinn Fjölnir hefur nú um árabil haft sem aðalverk- efni stuðning við vistheimilið i Viðinesi á Kjalarnesi, en til- gangur stofnunarinnar, sem er sjálfseignarstofnun, er að taka til dvalar drykkjusjúklinga, sem af eigin hvötum leita sér lækninga á drykkjuskap sinum. Vistheimilið starfar þvi sem sjúkrahús og endurhæfingar- stöð, þar sem vistmenn taka þátt i margvislegri starfsemi sem þar er rekin og temja sér á ný að lifa eðlilegu lifi. Með reglulegum heimsóknum klúbbfélaga i Viðines hefur skapazt náið samband við vist- menn, og úr llknarsjóði Fjölnis hefur verið lagt fé af mörkum til viðhalds, hljóðfærakaupa og uppbyggingar bókasafns svo nokkuð sé nefnt. Þótt aðalverk- efni Fjölnis sé Viöines, hefur liknarsjóður klúbbsins einnig látið verulegt fé af hendi rakna til annarra liknarmála.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.