Tíminn - 01.02.1978, Síða 10
10
Mi&vikudagur 1. febrúar 1978
SJ — Á laugardag tók Vilhjálm-
ur Hjálmarsson fyrstu skóflu-
stunguna aó nýju Þjóðarbók-
hlöðunnisem risa mun á mótum
Birkimels og Hringbrautar,
Þjóðarbókhlaöa mun leysa mik-
inn húsnæöisvanda þriggja
safna, Landsbókasafns og Há-
skólabókasafnser flytjastmunu
i nýja húsið og Þjóöskjalasafn
sem fær til afnota allt Safnahús-
ið við Hverfisgötu, þegar
Landsbókasafnið flyzt i Þjóöar-
bókhlöðu.
1 framkvæmda- og kostnaðar-
áætlun frá sl. vori er gert ráð
fyrir að bókhlaðan verði fúll-
gerö á fimm árum og heildar-
kostnaður verði 2.090 milljónir
króna. Aætlað er að kostnaður
við húsið uppsteypt verði orðinn
350 milljónir króna. A þeim
áfanga aö vera lokið i árslok
1979.
Hagstætt tilboð i upp-
hafsframkvæmdir
A fjárlögum 1978 eru 220
milljónir króna ætlaðar til
framkvæmda við bókhlöðuna en
eftir eru 44 milljónir af fyrri
fjárveitingum. Fyrsti áfanginn
girðing lóðar, gröftur og lagnir
aö húsinu hefur verið boðinn út
og sér Völur h.f. um verkið. Til-
lnngangur i Þjóöarbókhlöðuna verður að sunnanverðu á annarri hæð.
boð Valar var mjög hagstætt,
24,5 milljónir, en áætlun
hljóðaði upp á 50 milljónir.
Undirbúningur byggingar
Þjóöarbókhlöðu hófst 1956, en
féll siðar niöur um skeið. Þegar
i upphafi þótti rétt að sameina
Landsbókasafn og Háskóla-
bókasafn, þar sem skipulags-
lega og fjárhagslega óhagstætt
væri að halda uppi tveim
visindalegum bókasöfnum.
1 byggingarnefnd þjóðarbók-
hlööu eiga nú sæti Guðlaugur
Þorvaldsson háskólarektor,
Hörður Bjarnason húsameistari
rikisins og Finnbogi Guðmunds-
son landsbókavöröur sem for-
maður.
Tveir sérfræðingar, þeir
Harald L. Tveterás háskóla-
bókavörður i Osló og Edward J.
Carter bókavörður og arkitekt
frá Bretlandi komu hingað tvis-
var 1969-1970 á vegum Menning-
ar- og fræðslustofnunar Sam-
einuðu þjóðanna, islenzkum
bókavörðum og byggingar-
■------------------------V
Séð ofan á Þjóðarbókhlöðuna
4 HJÓLA DRIF
QUATRATRACK
4 CYL. 86 HA
HÁTT OG LAGT DRIF
16" FELGUR
ÞRIGGJA DYRA
Pöntunum veitt móttaka
Áætlað verð kr. 2,4 milj.
Biíreiðar & Landbúnaðarvélar hí.
Sudiirlandshraiil 14 - ll<\kj<ml. - Simi :miilMi
Miðvikudagur 1. febrúar 1978
11
A þessu korti sést afstaða Þjóðarbókhlöðu til Melatorgs, Hótel Sögu,
Háskólans o.sv.frv.
nefnd til halds og trausts og
lögðu þeir fram mikilsverðar
tillögur.
Að loknum þessum og öðrum
undirbúningi svosem samningu
forsagnar um bókhlöðuna er út
kom i nóvember 1971 og að stóðu
ásamt óla J. Asmundssyni arki-
tekt,aðstoðarmanni byggingar-
nefndar, þeir Finnbogi Guð-
mundsson og ólafur Pálmason
úr Landsbókasafni og Einar
Sigurðsson frá Háskólabóka-
safni var arkitektunum Man-
freð Vilhjálmssyni og Þorvaldi
S. Þorvaldssyni falið að teikna
bókhlöðuna en sem ráðunautur
var fenginn H. Faulkner-Brown
arkitekt frá Newcastle,
viðkunnur fyrir teikningar
bókasafnsbygginga af þvi tagi
sem hér um ræðir. Til liðs viö
arkitektana voru ráðnir bygg-
ingarverkfræðingarnir Bragi
Þorsteinsson og Eyvindur
Valdimarsson, Sigurður Hall-
dórsson rafmagnsverk-
fræðingur, Kristján Flygenring
vélaverkfræðingur og Reynir
Vilhjálmsson garðarkitekt. Þá
hefur Karl Guðmundsson
verkfræðingur unnið siðustu
mánuðina með hönnuðunum,
verið þar tengiliður og drif-
fjöður. Lfkan bókhlöðunnar
hefur smiðað Guðlaugur Jör-
undsson likansmiður.
Miklar vonir voru lengi
bundnar við að unnt yrði að
hefja byggingarframkvæmdir á
þjóðhátiðarárinu 1974 en ýmsar
tafir m.a. vegna samningsgerð-
ar við Reykjavikurborg um
Birkimelslóðina, ollu þvi að
fresta varð þeim enn um sinn.
Sjálfbeini og sveigjan-
leiki í notkun.
Þjóðarbókhlaöa veröur fjórar
hæöir auk kjallara. Gengið er
inn i bókhlöðuna að sunnan á
annarri hasð. A þeirri hæð verða
spjaldskrár safnsins og marg-
visleg önnur hjálpargögn, aðal-
afgreiðsla vegna útlána, starfs-
deildir safnsins svo sem að-
fangadeild, flokkunar- o|
skráningardeild og miðstöð les-
enda- og stofnanaþjónustu, enn-
fremur stjórnardeild. A þeirri
hæð verður og fatageymsla,
sýningaraðstaða fyrirlestrasal-
ur og kaffistofa gesta.
Af hæðinni veröur gengið
niður á jarðhæð hússins sem
ætluð er svokallaðri þjóðdeild
safnsins. Þar verður sérspjald-
skrá um islenzka bókakostinn
ennfremur handbækur hvers
konar, lestrarsalur, handrita-
salur, hið merka Benediktssafn
er Benedikt S. Þórarinsson gaf
Háskóla Islands á sinum tima,
kortasafn o.fl. Bókageymslur
Þjóðdeildar verða á þessari hæð
en jafnframt i kjallara þar sem
verður einnig aðalgeymsla
handrita. 1 nánum tengslum viö
þjóðdeild verður bókbandsstofa
þar sem einnig verður aðstaða
til handritaviðgerða, og ljós-
myndastofa, búin fullkomnum
tækjum.
Af inngönguhæð hússins
veröur gengið upp á tvær efri
hæðirnar, þar sem gert verður
ráð fyrir svokölluðum sjálf-
beina, þ.e. gestir hafa hér
frjálsan aðgang að verulegum
hluta bókakostsins og geta setzt
i námunda við þau rit er þeir
þurfa einkum að nota. Verður
þar fjölbreytt lestraraðstaða,
ýmist i lesbásum eða við stærri
eða minni borð. Þá er á efstu
hæð ætlað rými til kennslu i
bókasafnsfræðum.
Gert er ráð fyrir að i húsinu
öllu rúmist hátt i eina milljón
binda bóka og lessæti verði um
830. Vegna hins mikla sveigjan-
leika hússins er hægt að breyta
bókageynslurúmi i lestrarrými
eða öfugt, eftir þvi sem þurfa
þykir. Má segja að krafan um
sveigjanleika hafi ráðið mjög
miklu um alla gerð bókhlööunn-
ar.
Þó að Háskóli Islands muni i
hinunýja safni fá miklar úrbæt-
ur bæði aö þvi er varðar lestrar-
og rannsóknaraöstöðu kennara
og nemenda og alla þjónustu við
þá, mun Háskólinn vitaskuld
eftir sem áður hafa allmörg litil
sérsöfn innan sinna vébanda i
deildum, stofnunum og lesstof-
um. Þau verða rekstrarlega
hluti aðalsafns, aðföng til þeirra
fara að mestu leyti um það enda
annast aðalsafnið skráning
bókakostsins, uppsetningu hans
og viðhald, siöar ennfremur
grisjun þegar rýma þarf fyrir
öðrum ritum nýrri.
Gert er ráð fyrir sjálfvirkri
loftræstingu i allri bókhlööunni.
Stigar, lyftur, snyrtiherbergi
og allar lóðréttar lagnir verða i
kjörnum eöa turnum viö útveggi
bókhlöðunnar, en það eykur
mjög á það svigrúm sem þannig
fæst á hinum einstöku hæðum.
Hæðirnar fjórar verða 10.141
ferm. eða 45.403 rúmmetrar,
kjallarinn hins vegar 2.632 ferm
eða 8.136 rúmmetrar.
Lofthæð frá gólfi i gólf veröur
3.60 m á 1., 3. og 4. hæð, 3.90 m á
2. hæð og 2.95 m i kjallara.
Gólf veröa borin uppi af súl-
um er standa munu með 6.80 m
millibili.
Aherzla er lögð á að bygging
bókhlöðunnar gangi safnkvæmt
áætlun ogstanda vonir til að svo
verði þvi einhugurhefur rikt um
málið á þingi og þvi einsýnt að
tryggt verði nægilegt fjármagn
til að hagkvæmasta
framkvæmdahraða veröi
haldið.
*
Askorun
um
breytingu
á lögum
um ís-
lenzkan
rikisborg-
ararétt
1 lögum nr. 10023. des 1952 um
islenzkan rikisborgararétt segir
svo m.a. „1. gr. Barn öðlast Is-
lenzktrikisfangvið fæöingu 1. ef
það er skilgetið og faðir þess er
islenzkur rikisborgari 2. ef það
er skilgetið og fætt hér á landi
og móðir þess er islenzkur rikis-
borgari, enda eigi faöir þess
hvergi rikisfang eða barnið fær
ekki rikisfang föðurins við
fæðingu 3. ef þaðer óskilgetið og
móöir þess er islenzkur rikis-
borgari...”
Samkvæmt framangreindri
tilvitnun er meginreglan sú, að
skilgetin börn fái rikisfang
föður en óskilgetin rikisfang
móður. 1 þessu felst ekki aöeins
misrétti kynjanna á báða bóga
heldur er einnig gerður greinar-
munur á stöðu barnsins hvort
það er skilgetið eöa óskilgetiö.
1 kjölfar langanna um jafn-
rétti kvenna og karla sem Al-
þingi samþykkti 31. mai 1976
hlýtur aö þurfa aö breyta lögun-
um um rikisborgararétt til sam-
ræmis þannig að afkomandi is-
lenzks foreldris, hvort sem þaö
er föður eöa móöur, fái islenzkt
rlkisfang við fæöingu. Slik lög
gilda t.d. i Þýzkalandi, Frakk-
landi og Bandarikjunum. Hins
vegar rikir sama misrétti og hér
á hinum Norðurlöndunum og i
Bretlandi — þótt ótrúlegt megi
virðast.
Hér er um einfalt mannrétt-
indamál að ræða sem varla þarf
að deila um og ætti þvi að geta
fengið skjóta afgreiöslu Al-
þingis.
Virðingarfyllst
Laufey Vilhjálmsdóttir
3. janiíar 1978
MEST SELDA TÆKI LANDSINS
1977 og 1976 Þetta eru meðmæ/i.
1978 ÁRGERÐIN KOMIN
BÚÐIINI
Verð frá kr. 135.600 ti! 199.500
CROWN RADIO CORP. japa
■ r I