Tíminn - 15.02.1978, Side 3
Miðvikudagur 15. febrúar 1978
3
Frá vigslu fyrsta áfanga fþróttamiðstöðvarinnar i Borgarnesi
Gufubað
um borð
í togara
SJ —Leiðir fréttanna eru stund-
um krókóttar. I ágústlok I sumar
kom nýr togari, Kambaröst, til
Stöðvarfjarðar og gegnir hann nú
mikilvægu hlutverki i atvinnulifi
þar. Skýrt hefur verið frá komu
togarans til landsins og árangri
veiða. Hins vegar lásum við það i
Fishing News, sem gefið er út i
London að skipið væri búiö sána-
baði áhöfninni til aukinna þæg-
inda.
Skipið er smiðað hjá
Svolvaer Skibsverft i Noregi Tólf
klefar fyrir átján manna áhöfn
eru i skipinu og geta skipverjar
brugðiðsér i gufu þegar þeir hafa
staðið sinar vaktir.
Iþróttaaðstaða í
Borgarnesi bætt
Stjórn Landsambands
vörubifreiðastjóra
mótmælir hækkun
dísilskatts
Fyrsti áfangi iþróttamið-
stöövarinnar i Borgarnesi var
tekinn i notkun sl. laugardag. í
þeim áfanga er sundlaug með til-
heyrandi búnings- og baðaðstöðu,
áhorfendasvæði, aðstaða fyrir
starfsfólk o.fl. Framkvæmdir við
grunn Iþróttamiðstöðvarinnar
hófustsiðla árs 1973, en aðalbygg-
ingarframkvæmdirnar hófust
1974. 1 siðari áfanga Iþrótta-
miðstöðvarinnar er iþróttasalur
ásamt áhorfendasvæði aðstaða
fyrir ýmsa félagsstarfsemi o.fl.
Sá áfangi er vel á veg kominn og
standa vonir til að hægt verði að
JB— Timinn hafði samband við
Guðmund P. Valgeirsson bónda i
Trékyllisvik á Ströndum, sem er
einn fréttaritara blaðsins úti á
landsbyggðinni, og spurði hann
fregna úr heimabyggð hans. Kom
þar fram, að lifiö gengi sinn
vanagang og litið væri að frétta
sem til stórtíðinda teldist. Fólki
liði yfirleitt vel nema hvað krank-
leiki hefur verið i fólki og verið
mörgum til meins. En annars fór-
ust Guðmundi orð á þessa leið:
— Það er bjart hjá okkur i dag
og sólskin, en i gær var stormur
og snjókoma. Tiðarfariö hefur
verið þolanlegt það sem af er,
það hefur slegið á annað slagið
með éljagangi og frost hafa verið
mikil, hefur aldrei komið bloti af
neinu gagni. Við erum alveg teppt
hér, nema hvað flugið heldur okk-
Hér á landi er nú staddur I boði
Alþýðusambands tslands Gleb
Simonenko forstjóri Trygginga-
deildar Alþýðusambands Sovét-
rikjanna. Með heimsókn hans er
Alþýðusamband Islands að end-
urgjalda boð frá Alþýðusambandi
Sovétrikjanna.
Meðan á dvölinni stendur mun
Gleb Simonenko heimsækja
vinnustaði og stofnanir bæði i
Reykjavik og nágrenni og á Akur-
eyri, en þar verður hann i tvo
daga. Þá heimsækir hann Félags-
taka hann i notkun á þessu ári.
Jens Einar Þorsteinsson, arki-
tekt, teiknaði bygginguna og úti-
bú Verkfræðistofu Sigurðar Thor-
oddsen i Borgarnesi sá um verk-
fræðiþjónustu. Þorsteinn Theó-
dórsson, trésmiðameistari, var i
upphafi aðalverktaki við húsið og
hann hefur annazt alla trésmiði,
Haukur Arinbjarnarson, raf-
virkjameistari, sá um raflögn,
Jón Kr. Guðmundsson, pipulagn-
ingarmeistari, um pipulagnir,
Magnús Thorvaldsson, blikk-
smiðameistari, um blikksmiði,
Agúst Guðmundsson, múrara-
ur i sambandi við umheiminn.
Heilsufar hefur verið upp og of-
an hér i sveitinni. Það er að ganga
þrálátt kvef og alls kyns pestir en
ég held mönnum liði þó yfirleitt
sæmilega. Viö fengum lækni frá
Hólmavik og var hann veður-
tepptur hér i tvo daga. Annars
kemur hann einu sinni i mánuöi
og fer um sveitina, og geta þá þeir
hitt hann sem með þurfa, þannig
að Við erum ánægð eftir atvikum
með læknisþjónustuna.
Af búskapnum er litið að segja
það eru allar skepnur á gjöf eins
og ætið á þessum tima árs. Reki
hefur ekki verið neinn i vetur, en
það er þó oftast slangur á þessum
tima árs, þannig að þetta er með
allra minnsta móti, — sagði Guð-
mundur.
málaskóla alþýðu i ölfusborgum,
en þar verða rúmlega tuttugu
manns við námsstarf næstu tvær
vikur. Þá mun hann eiga sérstak-
ar viðræður við forystumenn Al-
þýðusambandsins.
Gleb Simonenko mun halda op-
inberan fyrirlestur á fimmtu-
dagskvöld 16. febrúar að Hótel
Loftleiðum (Vikingasal) og hefst
fyrirlesturinn sem er öllum opinn
kl. hálf niu, Þar mun hann fjalla
um sovézk verkalýðsmálefni.
Heim heldur Simonenko n.k.
þriðjudag.
meistari, um múrverk, Einar
Ingimundarson, málarameistari
um málningu og Jón Helgi Jóns-
son um járnsmiði.
Umsjónarmaður iþróttamið-
stöðvarinnar hefur verið ráðinn
Jóhann Waage, trésmiðameist-
ari. Kosin hefur verið þriggja
manna nefnd, sem á að sjá um
rekstur iþróttamiðstöðvarinnar.
Formaður hennar er Húnbogi
Þorsteinsson, sveitarstjóri, og
aðrir i nefndinni Eyjólfur
Magnússon, kennari, og Bjarni G.
Sigurðsson, verkstjóri.
Mikiil áhugi er fyrir þvi i
Borgarnesi að nýta sem bezt þá
góðu aðstöðu, sem verður i
iþróttamiðstööinni.
SJ — Vinsældir flugfreyjustarfs-
ins hafa ekki minnkaö á þeim
áratugum, sem liðnir eru frá þvi
farþegaflug hófst. Systurfélögin
Flugfélag Islands og Loftleiðir
auglýstu nýlega eftir flugfreyj-
um. 230 stúlkur sóttu um starf
hjá Flugfélaginu en aðeins 20
verða ráðnar. Fjöldamargar um-
sóknir bárust einnig um flug-
freyjustörf hjá Loftleiðum, en
ekki var vitað nákvæmlega hvað
margar.þar verða einnig ráðnar
Stjórn Landssambands vöru-
bifreiðastjóra samþykkti á fundi
sinum nýlega eftirfarandi and-
mæli, sem send hafa verið til fjár-
málaráðuneytisins:
„Landssamband vörubifreiða-
stjóra leyfir sér að andmæia
sterklega hækkun disilskatts af
bifreiðum um 82, 6% og hækkun
mælagjalds um sömu prósentu.
Hér er um að ræða óhóflega
skattlagningu. sem lendir með
fullum þunga á atvinnutækj’-m og
eykur þar með framleiðslukostn-
að atvinnuveganna, er þurfa á
flutningsþjónustu að halda. Það
vekur athygli, að hækkun gjald-
um 20 flugfreyjur.
Stulkurnar 230, sem sóttu um
starf hjá Flugfélaginu hafa geng-
izt undir skriflegt próf og siðan
farafram munnleg viðtöl við ein-
hverjar þeirra. Þær útvöldu um
eða yfir 20 fara siöan á námskeið,
sem hefst i næstu viku til undir-
búnings starfinu.
Flugleiðir auglýstu einnig eftir
flugmönnum nýlega og sóttu 70
um starf. Ráðnir verða 7-8, 2-3 til
F1 og 7 til Loftleiða.
anna er riflega tvöfalt meiri en
almennar verðhækkanir i landinu
voru á siðasta ári. 1 rauninni má
segja að vörubifreiðaeigendur
séu lagðir i einelti af hálfu rikis-
valdsins með óhóflegum gjald-
tökum og þvingunaraðgerðum i
formi vaxtalausra vinnulána um
sömu mundir og atvinnuleysis
gætir i æ rikari mæli meðal þeirra.
Landssamband vörubifreiða-
stjóra fer þess eindregið á leit að
framangreindar gjaldahækkanir
verði teknar til endurskoðunar
þviannars er rekstri vörubifreiða
stefnt I mikla tvisýnu.”
Stjórnin
hélt velli
— i kosningum I
Starfsmanna-
félagi Reykja-
vikurborgar
ESE — Talningu atkvæöa i
stjórnarkjöri Starfsmannafélags
Reykjavikurborgar lauk i fyrri-
nótt.
Orslit urðu þau að listi uppstill-
ingarnefndar SFR bar sigur úr
býtum og formaöur var kjörinn
Þórhallur Halldórsson með 796
atkvæðum. Aðrir i stjórn eru:
Guðmundur Eiriksson sem hlaut
1185 atkvæði, Eyþór Fannberg 836
atkv., Arndis Þórðardóttir 811
atkv., IngibjörgM. Jónsdóttir 783
atkv. og Ingibjörn Agnars sem
hlaut 758 atkvæði.
Gunngeir Pétursson formanns-
efni „Nýrrar hreyfingar”, sem
stóð að mótframboði við þessar
kosningar, fékk 600 atkv. til for-
mannsembættis. Aðrir á lista
„Nýrrar hreyfingar” hlutu at-
kvæði sem hér segir: Helgi Egg-
ertsson 618atkv„ Anna K. Július-
dóttir 605 atkv., Jónas Engil-
bertsson 539 atkv., og Þorgerður
Hlöðversdóttir sem fékk 528
atkvæöi. Alls voru 2366 manns á
kjörskrá en atkvæði greiddu 1441
eða um 62,5%. Auöir seölar og
ógildir voru 21.
Þakkar k veðj a
frá SVFÍ
Slysavarnarfélag Islands þakkar
hlýjar óskir og kveðjur i tilefni 50
ára afmælis félagsins hinn 29.
janúar sl. öll sú mikla velvild og
vinátta er félaginu var sýnd á
þessum merku timamótum, mun
verða þvi hvatning til aukinna
starfa á vettvangi slysavarna- og
björgunarmála.
Stjórn SVFÍ
Krankleiki
þjakar fólk á
Ströndum
Forstjóri Tryggingadeildar
Alþýðusambands
Sovétríkjanna
— staddur á íslandi i boði
Alþýðusambands íslands
Draumastörfin
enn eftirsótt