Tíminn - 15.02.1978, Blaðsíða 5
Mi&vikudagur 15. febrúar 1978
5
Friðrik vann Smejkal í skemmtilegri skák
í jafnteflislausri umferð í gærkveldi
Larsen hefur nú einn og hálfan vinning í forskot . . .
Eftir niundu umferðina á
Reykjavikurskákmdtinu hefur
Larsen nú tekiö örugga forystu og
hefúr nú einn og hálfan vinning
fram yfir næstu menn, þá Miles
og Friörik sem hafa fengið sex
vinninga.
Margar skemmtilegar skákir
voru tefldar i gærkvöldi og nú
gerðist það I fyrsta sinn á þessu
móti, að ekki eitt einasta jafntefli
varð. Fyrirfram beindist athygli
manna að skákum þeirra Frið-
riks og Smejkals og Jóns L. Arna-
sonar sem tefldi við ekki minni
spámann en Larsen. Larsen tók
engum vettlingatökum á Jóni og
gaf hann skákina i 27. leik. Friö-
rik tefldi afar spennandi skák við
Smejkal og þar sem staðan var
ákaflega opin og margir menn á
borðinu virtist mörgum staðan
bjóða upp á jafna mörguleika.
Þegar Friðrik og Smejkal höfðu
lokið um 20 leikjum áttu báðir
eftir naman tlma. I timahrakinu
kom til uppskipta, þar sem
drottningarnar beggja fuku af
borðinu. Eftir það var Friðrik
með tvo biskupa, sem voru ákaf-
lega sterkir i þessari stöðu, ridd-
ara, einn hrók og tveimur peöum
meira en Smejkal sem var með
tvo hróka, riddara og biskup.
Smátt komu yfirburðir Friðriks i
ljós og þrengdi hann svo að smej-
kal, að hann sá sitt óvænna að
gefast upp og lauk þar með
skemmtilegri skák.
Browne vann Hort i fallegri
skák, en Browne hafði hvitt á
móti Hort. Upp kom kóngsind-
verskvörn. Browne tefldi öruggt
fékk Hort engin sóknarfæri gegn
Bandarikjamanninum, sem
byggði markvisst upp trausta
stöðu og var ekki um annað að
Staðan
Staðan á Reykjavikurskákmót-
inu eftir niu umferðir er nú þessi
1. Larsen
2. -3. Friðrik
2.-3. Miles
4. Browne
5. -6. Hort
5.-6. Polugaevsky
7. Lombardy
8. -9. Guðmundur
8.-9. Kuzmin
10. Smejkal
10.-11. Helgi
10.-11. ögaard
12. Jón L.
13. Margeir
7l/2v.
6 v.
6 v.
5 1/2 + biðsk.
5 1/2 v.
51/2 v.
4 v. + biðsk.
4 v.
4 v.
31/2 v.
3 v.
3 v.
11/2 v.
2 v.
ræða fyrir Hort að gefa skákina i
30. leik.
Ekki lét Browne sig muna um
að leggja hort, heldur snaraðist
hann skömmu eftir skák þeirra
inn i skýringasalinn og tók að sér
að skýra út skák þeirra áhorfend-
um til óblandinnar ánægju.
önnur úrslit i gærkvöldi sem
hér segir:
Polugaevsky — Helgi 1:0
Margeir — Kuzmin 0:1
ögaard — Guðmundur 0:1
Miles —Lombardy 0:1
Tiunda umferð verður tefld i
kvöld og eigast þessir þá viö:
Friðrik og Margeir, Helgi og
Smejkal, Lombardy og Polu-
gaevsky, Larsen og Miles, Hort
og Jón L., ögaard og Browne og
Guömundur og Kuzmin.
Larsen er nú efstur á Reykjavikurskákmótinu og hefur sem stendur öruggt forskot eftir sigur sinn gegn
Jóni L. Árnasyni i gærkveldi, en myndin var tekin er skák þeirra var að hefjast.
Timamynd: Gunnar
Svipmyndir frá Heykj avíkur skákmótinu
m - :
Hvað skyldi ’ann nú gcra næst? mætti lesa úr svip þessara manna,
sem rýna i skjáinn og velta fyrir sér stööunni, en sjónvarpstæki eru
bæöi á göngum og I skákskýringasölum á Loftleiðahótelinu, þar sem
frekar gefst kostur að rabbá samá'n um skákina eða það sem upp á
kemur.
Úr keppnissalnum. Standandi á meðai keppenda sjáum við Friðrik ólafsson t.v. og Lombardy prest
úr Vesturheimi, en þaö er mikill siður hjá keppendum að stjákla um gólf meöan andstæðingurinn er
að hugsa sig um.
Timamyndis: Róbert
Það er fólk af öllum stærðum og geröum sem sækir Reykjavikur-
skákmótið eins og sést vel á þessari mynd, enda er skákáhugi ekki
tengdur einum þjóðfélagshóp fremur en öðrum.
Liflegar skákskýringar er ein helzta forsenda þess að fólk komi á
svona mót, þær bæði'skýra ýmislegt sem annars hefði faríð fram hjá
fákunnandi I listinni, og koma oft af stað fjörlegum umræöum og
skeytasendingum um þveran sal. A myndinni sjáum viö dugmikinn
skákskýranda, Ingvar Asmundsson, standa uppi á sviöi og skýra af
miklum möð.
fljúgið í frnð
ICELAXDAIR
mim icnmic