Tíminn - 15.02.1978, Qupperneq 9

Tíminn - 15.02.1978, Qupperneq 9
Miðvikudagur 15. febrúar 1978 mmm 9 Að berjast til sigurs Þær efnahagsráðstafanir, sem ráðizt verður i, verða að vera réttlátar og engar mála- myndaráðstafanir. Fjárlögin gera ráð fyrir þvi, að erlend lán hækki ektó á árinu. Það verður að standa, og helzt heldur betur. I öðru lagi þurfum við að fá verðmeiri peninga i hendur — ti- falt verðmeiri —. Það mundi aukavirðingu flestrafyrir þeim peningum,erþeirhefðuhanda á milli, og gæti m .a. sparað prent- un á nýjum 10/þús.kr.seðli. Jafnframt ætti að fara fram eignakönnun og skipti á seðla- mynt. 1 þriðja lagi verður sem allra fyrst að lækka vexti. Þeir okurvextir, sem nú gilda eru eitt augljósasta merkið um fársjúkt efnahagslif, hvað sem allir seðlabankastjórar segja. Stund- um er áreiðanlega gott að láta brjóstvitið ráða, og jafnvei má hlusta á ráð þótt heimskur kenni. 1 fjórða lagi verður að gera róttækar ráðstafanir, nú þegar, til þess aö lækka vöru- verð — vaxtalækkun, tollalækk- un, söluskatts og vörugjalds- lækkun o .fl. kæmi þar til greina, sem siðan hefði afgerandi áhrif á visitöluna, stöðvaöi launa- skriðið og aðrar hækkanir, sem sifellt dynjayfir, svo innanekki langs tima færu að heyrast til- kynningar frá verðlagsyfirvöld- um, er boðaði lækkun á vörum og þjónustu, siðan fylgdu laun á eftir. Þetta er niðurfærsluleiðin, sem stjórnvöld, til þessa, hafa ekki viljað fara, en nú verður ekki hjá komiztað fara, þótt það krenki i einhverju möguleika þeirra mörgu, sem alltaf hagn- ast á verðbólgu. Það verður ekki hjá þvi komizt að strika þá út úr þessu heilsubótardæmi. Verði fjár vant við allar þess- ar aðgerðir, er vel forsvaran- legt að bjóða út innlent lán, það skilaði sér fljótt aftur, en lika verður að reikna með þvi að sparnaður i rikisbákninu létti hér mikið undir. Þar að auki er auðvelt að fresta, um eitt eða tvö ár ýmsum fjárfrekum fram- kvæmdum. Gangi rikisstjórnin og stuðn- ingsflokkar hennar að þessu lifshagsmunaverki islenzku þjóðarinnar, samstillt og með einurð, þarf ekki að óttast um dóm kjósenda. Þá hafa verkin talað.Og fullvist er, að hvernig sem veltist verður rikisstjórnin, og flokkar hennar, dæmd af verkum sinum. — JKr. Miklar byggingaf ram kvæmdir í Stykkis- hólmi fram við þessa skoðun, sem bend- ir ákveðið til að svo sé, en i haust fannst ein kind frá Böövarsholti i Staðarsveit með garnaveiki. X Þekkir þúguð? JB — Dagana 15.-19. febrúar verða haldin æskulýðskvöld i Laugarneskirkju , en þá verða samkomur i kirkjunni á hverju kvöldi sem einkum eru ætlaðar ungu fólki. Yfirskrift samkom- anna er spurningin: Þekkir þú guð? en samkomurnar eru haldn- ar á vegum KFUM og KFUK i samvinnu við sóknarprestinn. Samkomurnar hefjast klukkan hálf niu hvert kvöld og er dag- skráin fjölbreytt, Haldnar verða stuttar ræður, ávörp og viðtöl, leiknir helgileikir og mikið verður sungið og spilað á hljóðfæri. A fyrstu samkomunni á miðviku- dagskvöldið verður t.d. fluttur helgileikur um afturhvarf Páls postula, Erla Björk Jónasdóttir stúdent, leikur á fiðlu og Stina Gisladóttir, æskulýðsfulltrúi þjóðkirkjunnar talar. Sóknarpresturinn, séra Jón Dalbú Hróbjartsson, mun stjórna samkomunum. Prentarar mótmæla ráöstöfunum ríKis- s tj ór nar innar Hið islenzka prentarafélag hef- ur látið frá sér fara eftirfarandi tilkynningu: Fundur fulltrúaráðs Hins islenzka prentarafélags, haldinn 13. febrúar 1978, mótmælir harö- lega ákvörðun rikisstjórnarinnar um að fella gengi islenzku krón- unnar og einnig og ekki siður þeim áformum að skerða visi- töluákvæði kjarsamninga, sem undirritaðirvorufyrir aðeins átta mánuðum. Fundurinn vill i þessu sam- bandi vekja athygli á, að vistölu- ákvæðin eru eitt af aðalatriðum siðustu samninga og eiga að verka sem trygging fyrir þvi að kaupmáttur launa haldist óbreyttur.Ef slik trygging er ekki lengur fyrir hendi, hlýtur verka- lýðshreyfingin að endurskoða af- stöðu sina til samninganna. Fundurinn skorar á verkalýðs- félög að halda vel vöku sinni gagnvart st jórnvöldum og öðrum, sem sifellt sjá það eina úrræði i svonefndum efnahagsvanda, að skerða kjör launþega og ógilda með lögum frjálsa samninga þeirra.” KG—Stykkishólmi. Héðan er allt sæmilegt að frétta, atvinna er næg og aflabrögð sæmileg. Það hafa sex til sjö bátar stundað hörpudiskaveiðar héðan og aflazt hefur vel, aðallega á miðunum, sem stutt er að sækja á fimm til tiu minútur. Aflinn er unninn i tveim vinnsluátöðvum hjá Sigurði Agústssyni h/f og Rækjuveri h/f. Fjórir bátar hafa verið á linu- veiðum, og þar hefur afli verið misjafn, þrir til fimm bátar að jafnaði. Sá afli er unninn hjá Þórsnesi h/f. Hér eru i byggingu tuttugu og fimm einbýlishús. Ennfremur er ákveðin bygging á grunnskóla nú á næstunni, ogmun vinna við hana hefjastnú eftir nokkrar vikur. Þá mun trésmiðja Stykkishólms stækka húsnæði sitt um helming á þessu ári og verður byrjaö á þvibráðlega. Ákveðin erbreyting og stækkun á sláturhúsinu hér og hefst vinna við það sennilega á næstu mánuðum. Þá er unnið við uppsetningu og byggingu nýrrar bilavogar við höfnina, og jatn- framt unnið við byggingu elli- heimilis, en þar er um að ræða breytingu á gömlu húsi, sem áður var heimavist. Áætlað er að það taki til starfa i mai eða júni n.k. Skoðun á sauðfé hefur staðið yfir hér að undanförnu vegna ótta um að garnaveiki sé komin upp vest- an varnargirðingarinnar úr Alftafirði. Ekkert hefur komið Óska eftir að kaupa 60 tommu jarðtætara Upplýsingar i simum 1-72-55 Og 1-40-05. Rafmagnsviftu- ofnar fyrirliggjandi, einnig rafmagnsþilofnar, allar stærðirnar. Raftækjaverzlunin Rafmagn Vesturgötu 10, sími 1-40-05. S !i] 3 S S El3 3 33 3 3 33 3 3 53 !3 3 3 3 3 33 3 3 ES 3 3 33 TMF/A1 — fyrir 35 hestafla traktor og stærri. TMF/B1 — fyrir 50 hestafla traktor og stærri. Þessi öflugu blásarar hafa nú um árabil veriö notaðir víða um land, meó góðum árangri. TEAGLE blásararnir eru háþrýstir, auð- velt er að tengja þá við traktorinn og flytja þá. Getum einnig afgreitt þessa blásara rafknúna Véladeild Sendið pantanir sem fyrst! ^ Sambandsins ' v Armúla 3 Reykjavík Sími 38900 E 3 E la E E E E E [jg [g [g [g |g [g [g [g [g [g [g [g [g [g [g [cj [g [g [g @ [Ej [Ej Teagle tm f/ai og bi Súgþurrkunarblásari Þessir sterkbyggðu blásarar eru boðnir í 2 stæröum.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.