Tíminn - 15.02.1978, Page 20

Tíminn - 15.02.1978, Page 20
Miövikudagur 15. febrúar 1978 r ] 8-300 Auglýsingadeild Tímans. Sýrð eik er sigild eign H U GiH TRtSMIDJAN MEIDUR SÍÐUMÚLA 30 • SÍMI: S6822 Moldöskubylur í Eyj- um og allt á kafi í snjó Guðdómlegt vedur fyrir norðan ESE-Allt var á kafi i snjó i Vest- mannaeyjum i gær og hið versta veður. Hjá lögreglunni fengum við þær upplýsingar að mest öll umferð lægi niðri, enda ekki nema von, þvi að úti væri 9-10 vindstig og svo mikill skafrenn- ingur að varla sér út úr augum. En verðrinu er misskipt muu landshluta, þvi að það vai sam- dóma álitþeirramanna, sem haft var samband við á Norðurlandi, allt frá Sauðárkróki til Raufar- hafnar, að veðrið þar væri frá- bært i alla staði, og sumir höfðu á orði, að um guðdómlegt veður væri að ræða. Færeyingar eignast verk- smiðjuskip fyrir rækju- veiðar og vinnslu SJ —Færeyingar hafa látið smiða sér skuttogara sérstaklega gerð- an fyrir rækjuveiðar og rækju- vinnslu. Auðveldlega má breyta togaranum i verksmiðjuskip fyrir flökun og saltfiskframleiðslu. Togarinn hefur hlotið nafnið Sel- berg og er eigandi Ellert Jacobsen. Skipið var teiknað hjá Fiskerstrand & Eidoy og smiðað hjá Smedvik Mek. Verksted i Tjörvaag. I skipinu er fullkomínn véla- búnaður til að flokka, sjóða, frysta, vikta rækjuna og pakka hana Afkastageta er 40 tonn af frystri rækju á 24 klst. Frysti- geymslur hafa 4- 30 gráðu hita- stig. „örninn flýgur fugla hæst” Ungoir örn á sveimi í Ölfusi FI — Þorlákur Kolbeinsson á Þurá í ölfusi fékk óvænta heim- sókn siðdegis á sunnudag, þvi aö yfir tún hans flaug örn nokkur ungur. Settist hann fyrst f rúm- lega 100 metra fjarlægð frá bænum, en flutti sig svo um set austur á túniö. Þar sat hann ró- legur í um þrjá stundarfjórö- unga og var eitthvaö aö maula i sig þennan tíma. Hrafnar sem flögruöu fkringog föluöust eftir bita, en þeir fóru bónleiöir til búöar. Þorlákur sagði i samtali við Timann, að þennan örn hefði hann áður séð á sveimi s.l. vor og haust. Tilbreyting væri að fá einn örn i Ölfusið, þvi að þar heföi ekki sézt slikur fugl um áraraðir. Mikið hefði verið af erni þar fyrir aldamótin og hefði þá verið talið, að hann legðist eitthvað á lömb. Sliku hefði ekki verið til að dreifa I seinni tiö og héldi örninn sig frekar þar sem fisks væri von. A um þaö bil miöri þessari mynd er sá staðurinn sem flugstöövarbyggingin á aö rfsa, skammt frá Nauthólsvfk. — Timamynd: Róbert. FLUGSTÖÐ í REYKJAVÍK Framkvæmdir hef jast á þessu ári SJ — Flugstöð verður á næstu ár- um byggð á austanverðum Reykjavikurflugvelli, suður undir Nauthólsvik. Til þessa hefur eng- in eiginleg flugstöö verið á flug- vellinum, nema þá helzt af- greiðsla Flugfélags Islands. I nýju flugstöðinni verður starf- semi flugfélaganna beggja F1 og Loftleiða, sameinuð á einn stað og umferð til og frá flugvellinum verður þá öll neðan öskjuhliðar og léttir þannigá umferðum Suð- urgötu. 1 siðustu viku skipaði sam- gönguráöuneytið byggingamefnd flugstöðvarinnar sem nú hefur haldið fyrsta fund sinn. 1 henni eru Birgir Guðjönsson, deildar- stjóri i samgönguráðuneytinu sem er formaður, Gunnar Sig- urðsson, flugvallarstjori Reykja- vikurf lugvallar og Jón E. Böðvarsson deildarstjóri i fjár- málaráöuneytinu, fjárlaga- og hagsýsiustofnun. Veiðar Vestf jarðarbáta í janúar: 5.539 tonn af bolfiski á land rækjuaflinn minni en á sama tíma í fyrra SKJ — Heildarafli Vestfjarðar- báta í janúar var 5.539 lestir, en var 4.903 lestir á sama tima i fyrra. Stunduðu samtals 43 bátar bolfiskveiðar frá Vest- fjörðum, 32 réru með linu, 10 með botnvörpu og 1 með net. Aflahæsti linubáturinn i mánuð- inum var Vestri frá Patreksfirði með 148 lestir i 20 róðrum. Gyll- ir frá Flateyri var aflahæstur togaranna með 395 lestir. Stöð- ugir umhleypingar voru i janú- ar og settú mjög svip sinn á sjó- sóknina. Einnig kvarta sjómenn undan þvi að fiskislóðin út af Vestfjörðum sé nú óvenju lif- vana. Afli linubátanna var i heild 2.649 lestir i 527 róðrum eða 5 lestir að maðaltali i róöri. Afli togaranna var nú 2. 788 lestir eða 50% heildaraflans i mánuð- inum. 1 janúar var mestum afla landað á Isafirði samtals 1.409 lestum. ÁPatreksfirði var land- að 1.085 lestum, 810 lestum i Bolungavik, 690 lestum á Suður- eyri og 525 lestum á Flateyri. Þessar aflatölur eru miðaðar við óslægðan fisk. 55 bátar stunduðu rækjuveið- ar á þrem veiðisvæðum við Vestfirði i janúar, Arnarfirði, Isafjarðardjúpi og Húnaflóa. Heildaraflinn i mánuðinum var nú 602lestir,en vará sama tima i fyrra 665 lestir. Sjö rækjubátar réru frá Bíldudal og öfluðu 53 lestir. Aflahæsti báturinn var Visir með 13,7 lestir og Helgi Magnússon með 12,0 lestin Frá verstöövunum við ísafjarðar- djúp réru 38 bátar og öflUðu 342 lestir, en frá Hólmavik og Drangsnesi reru 10 bátar og öfl- uðu 207 lestir. Enn eitt slys á Kringlumýrarbraut: Ekið á 79 ára gamla konu ESE — Igær kl. 14.30 var ekið á 79 ára gamla konu á gatnamótum Kringlumýrar- og Háaleitis- brautar. Konan var á leiö vestur yfir Kringlumýrarbraut, en bill- inn sem ók á hana, mun hafa ver- ið á leið noröur eftir götunni á vinstri akrein. Konan var flutt á slysadeild, en reyndist við skoðun vera óbrotin og fékk fljótlega aö fara heim aftur. — Það hefur lengi verið brýn þörf fyrir flugstöð hér sagði Gunnar Sigurðsson i samtali við Timann, — en ekki hefur fengizt fjárveiting fyrr en nú á þessu ári, 70 milljónir króna. — Ég hef litið um málið að segja það er á frumstigi. Nokkur undirbúningsvinna hefur farið fram á vegum flugmálastjóra og byggingarnefndin vonast til að framkvæmdir geti hafizt við byggingu flugstöðvarinnar siðar á þessu ári. — Ertu ánægður með fjárveit- inguna? — Fjárveiting er alltaf fjárfest- ing og nú er þó hægt að byrja á verkinu. Eldur í íbúð við Mörðufell — húsbóndínn fluttur á slysa- deild vegna reykeitrunar ESE — Um kl. 9.58 i gærmorgun var slökkviliðið kvatt að Möðru- felii 15 hér i bæ, en þar hafði kom- ið upp eldur i ibúð á fyrstu hæð hússins. Þegar slökkviliðið kom á vett- vang var mikill reykur i ibúöinni og hafði hann breiðst út um stíga- ganga hússins. Eldsupptök voru i barnaherbergi ibúðarinnar, og er talið aö þar hafi börn verið að fikta með eld. Oll húsgögn i herberginu voru ónýt, er tekizt hafði að slökkva eldinn, og ibúðin þó nokkuð skemmd af völdum reyks. Einn maður var fluttur á slysa- deild en hann haföi fengið væga reykeitrun. Mikil mildi var að ekki fór verr en raun varð á, þvi að reykgufur af brennandi húsgögnum eru ban- eitraðar. einkum er um er að ræða nælonefni. Framleiðsla skepnufóðurs úr slógi og öðrum ónýttum f iskúrgangi i athugun hjá sjávarútvegs ráðuneytinu Eftirfarandi greinargerð hefur borizt frá sjávarútvegsráðuneyt- inu: Um miðjan janúar s.l. sam- þykkti rikisstjórnin að heimila Rannsóknastofnun fiskiðnaöarins að leigja verksmiðjuskip af danska fyrirtækinu Lumino, Es- bjerg tíl að framleiöa fljótandi skepnufóöur úr magurri loönu i lok loönuvertiðar i ár. Samningar þaraðlútandivoruundirritaöir þ. 27 janúar s.l. A árunum 1975-1976 var þróuð hjá Rannsóknastofnun fiskiönað- arins ný aðferð til vinnslu á fóður- efnum úrslógiog úrgangsfiski, en frekari aðgeröir strönduðu á markaðsmálunum þvi að vegna mikilla birgða af þurrmjólkur- dufti i Evrópu þdtti ekki koma til greina að leggja út i nauðsynlega fjárfestingu vegna fyrrgreindrar framleiðslu. Nokkur dönsk fyrir- tæki hafa um árabil framleitt ár- lega u.þ.b. fimmtiu þúsund tonn af meltu úr ruslfiski til fóðrunar á svi'num, kúm og kálfum. Danska framleiðsluaðferðin er einfaldari i framkvæmd en aðferð Rann- sóknastofnunar fiskiönaðarins, en hefur þann ókost að fita sem kann að vera til staöar i hráefn- inu, súrnar verulega meðan á framleiöslu stendur og nýtist þvi ekki svonokkru nemi. Danska að- ferðin hentar þvi bezt viö vinnslu á fiturýru hráefni. Ljóst er að hér gæti verið um mikilvægt mál aö ræöa bæði fyrir islenzkan sjávarútveg og land- búnað, en fóðurbætir í þessari mynd er langtum ódýrari en inn- fluttur fóöurbætir og fiskimjöl. Hagnýt samvinna gæti tekizt við hið danska fyrirtæki, sem hefur langa reynslu af framleiðslu, dreifingu og fóörun dýra, auk þess að vera kaupandi að 10-20 þús. tn.; af þessari vöru. Ráðu neytiö og Rannsóknastofnunin telja mikilvægt að ef vel gengur gætu hér með opnazt möguleikar til nýtingar á slógi og öörum ó- nýttum fiskúrgangi. Þótt fram- leiðslan fari þannig fyrst f stað fram um borð i danska verk- smiðjuskipinu verður auðvitað að þvi' stefnt að vinna hráefnið seinna f islenzkum landstöðvum og um borð i togurum. Þá hefur danska fyrirtækið lýst sig reiðu- búiðtil þess að aðstoða viö skipu- , lagningu á dreifingu á meltu til islenzkra bænda, enda er hér um innlenda kjarnfóðurframleiðslu að ræöa.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.