Fréttablaðið - 15.08.2006, Blaðsíða 12
12 15. ágúst 2006 ÞRIÐJUDAGUR
MIKIÐ FJÖR Á hátíð sem haldin var í
Juigalpa í Níkaragva um helgina fylgdust
margir með þessum hetjum reyna að
klifra upp fituborinn trjádrumb. Áhorfend-
ur hvöttu þá ákaft áfram. FRÉTTBLAÐIÐ/AP
WASHINGTON, AP Vaxandi andstaða
meðal bandarískra kjósenda við
George W. Bush Bandaríkjafor-
seta gæti orðið frambjóðendum
repúblikana í þingkosningunum í
nóvember fjötur um fót. Nýleg
skoðanakönnun Associated press
bendir til þess að almenningur í
Bandaríkjunum muni nýta sér
þingkosningarnar til að láta í ljós
skoðun sína á forsetanum.
Stuðningur við Bush mælist
nú einungis 33 prósent og hefur
aðeins einu sinni mælst jafnlítill,
en það var í maí á þessu ári. Sam-
kvæmt skoðanakönnuninni eiga
nær allir málaflokkar sem for-
setinn hefur átt aðkomu að þátt í
minnkandi fylgi hans, og ber
Íraksstríðið þar einna hæst.
Athygli vekur að forsetinn virð-
ist meira að segja vera að glata
trausti íbúa Suðurríkjanna, sem
jafnan eru hallir undir Repúblik-
anaflokkinn. Þar hefur stuðning-
ur við forsetann minnkað úr 43
prósentum í síðasta mánuði í 34
prósent nú.
Hlutfall þeirra sem segjast
ætla að nýta atkvæðisrétt sinn til
að lýsa yfir andstöðu við Bush
hefur vaxið í 29 prósent úr 20
prósentum í síðasta mánuði.
Stríðið í Írak á ekki miklu
fylgi að fagna vestra, og sést það
best á því að Joseph Lieberman,
varaforsetaefni demókrata árið
2000 og stuðningsmaður Íraks-
stríðsins, tapaði nýverið í próf-
kjöri fyrir Ned Lamont, óreynd-
um stjórnmálamanni og
yfirlýstum andstæðingi stríðs-
ins.
Það er svo enn til að ýta við
repúblikönum að nítján prósent
þeirra sem studdu Bush í for-
setakosningunum árið 2004 segj-
ast tilbúin til þess að kjósa demó-
krata í nóvember.
Fylgi við þingið sjálft er enn
minna en við forsetann og mælist
einungis 29 prósent. Þetta hyggj-
ast frambjóðendur repúblikana
sem bjóða sig fram gegn sitjandi
þingmönnum demókrata nýta
sér í viðleitni til að halda meiri-
hluta flokksins á þinginu.
Demókratar þurfa að bæta við
sig fimmtán sætum í fulltrúa-
deild þingsins til að taka völdin
þar eftir tólf ára meirihlutaræði
repúblikana. Í ljósi minnkandi
stuðnings við forsetann er marg-
ur demókratinn bjartsýnn á að
það markmið náist loks í ár.
stigur@frettabladid.is
Repúblikanar
óttast um völd
Repúblikanar eru uggandi um að þverrandi stuðn-
ingur við Bush Bandaríkjaforseta muni fella þing-
meirihluta þeirra í kosningum í nóvember.
ÓVINSÆLL Vinsældir George W. Bush Bandaríkjaforseta fara minnkandi samkvæmt nýrri
skoðanakönnun og óttast flokksbræður hans að það geti reynst þeim dýrkeypt í þingkosn-
ingum í nóvember. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
NÁTTÚRA Berjaspretta gengur
hægt á Kinn í Þingeyjarsveit
vegna veðursins í sumar, að sögn
Ólafs Ingólfssonar bónda, en þar
er mikið berjasvæði. Berjatínslu-
menn fyrir norðan verða því að
bíða fram í lok ágúst með að fara í
berjamó.
„Þau eru ekki fullþroskuð
ennþá,“ segir Ólafur. „Þetta er
svona byrjað að blána aðeins, en
er mjög seint á ferð. Hér vaxa
krækiber, aðalbláber og bláber, en
bláberin eru ennþá bara gráleit og
ótímabært að tína þau.“ -sgj
Berin eru seint á ferð:
Bláberin enn
gráleit nyrðra
BLÁBER Landsmenn þurfa að bíða með
berjatínsluna, a.m.k. í nokkrar vikur enn.
NÁM Eiríkur Jónsson, formaður
Kennarasambands Íslands, segir
að í ljósi niðurstöðu nýútkominnar
OECD-skýrslu þurfi að skoða hvað
liggur að baki slæmum námsár-
angri Íslendinga, þrátt fyrir há
fjárframlög til menntamála. Ein
orsökin, að sögn Eiríks, er aga-
leysi í skólum.
„Munurinn á skólum hér á landi
og annars staðar kemur, að ég
held, fram í aga,“ segir Eiríkur.
„Þó það eigi við minnihluta nem-
enda eru hér agavandamál sem
þekkjast ekki annars staðar. Til
þess að auka árangur í skólum
þarf að taka á þessu og það er ekki
bara vandamál skólanna, heldur
fyrst og fremst málefni heimil-
anna. Það sem nemandinn fer með
í skólann verður til á heimilinu.“
Eiríkur segir þó margt hafa
áunnist í agamálum. „Heitar skóla-
máltíðir hafa dregið úr agavanda-
málum. Að nemendur séu vel
nærðir eykur vellíðan, því þeir
sem eru svangir verða pirraðir.
Það hefur verið gert átak á undan-
förnum árum sem mun væntan-
lega skila sér í betri líðan nem-
enda í skólum,“ segir Eiríkur.
„Ef kennari þarf að standa í því
að skilja að tvo nemendur sem eru
í slagsmálum getur hann búist við
því að fá kæru frá foreldrum fyrir
að leggja hendur á barnið. Svoleið-
is mál hafa komið upp,“ segir
Eiríkur. - sgj
Formaður KÍ kallar eftir samstarfi heimila og skóla:
Segir agaleysi vera
orsök slæms gengis
EIRÍKUR JÓNSSON OG MENNTAMÁLARÁÐHERRA Eiríkur segir að ekki megi alltaf kenna
skólanum um ef eitthvað fer miður í agamálum.
Braust inn í apótek Nítján ára
maður var handtekinn á vettvangi
innbrots í apótekið í Iðufelli í fyrrinótt.
Hann er einnig grunaður um að hafa
brotist inn í Lyf og heilsu við Álfabakka
fyrr um nóttina. Maðurinn mun hafa gist
fangageymslur lögreglu margoft áður.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Til læknis eftir árás Karlmaður réðst
á annan mann vegna ágreinings þeirra
í milli á Strandvegi í Vestmannaeyjum
um helgina. Sá sem ráðist var á þurfti
að leita til læknis eftir árásina. Árásin
hefur verið kærð en málið er í rannsókn
lögreglu.
Tvisvar ölvaður við akstur Tveir
voru stöðvaðir á Ísafirði á laugardags-
kvöld grunaðir um ölvunarakstur. Um
nóttina var annar mannanna aftur
stöðvaður ölvaður við akstur, en fátítt
mun vera að sami maður aki ölvaður
oftar en einu sinni á sólarhring.
Vatnsleki veldur tjóni Slökkvilið
höfuðborgarsvæðisins var kallað að
húsi í Borgartúni í gærmorgun vegna
vatnsleka. Þar hafði lekið mikið úr upp-
þvottavél og lak meðal annars á milli
hæða. Tjónið af vatnsflaumnum mun
vera töluvert.
SLÖKKVILIÐ
SRÍ LANKA, AP Bardagar héldu
áfram í gær á norðausturhluta Srí
Lanka. Minnst fimmtíu manns létu
lífið í loftárás stjórnarhersins á
svæði tamílanna. Að sögn tals-
manns Tamílatígranna voru 43
skólastúlkur meðal hinna látnu, og
sextíu stúlkur til viðbótar hefðu
særst.
Ajantha Silva, málsvari stjórnar-
hersins, heldur því fram að herinn
hafi gert loftárás á bækistöðvar
uppreisnarmanna og segist hafa
sannanir fyrir því. Hins vegar var
haft eftir ónafngreindum starfs-
manni norrænu eftirlitssveitanna í
samtali við Associated Press að
húsið sem sprengt var hefði verið
munaðarleysingjahæli og að stúlk-
urnar hefðu virst vera nemendur
undir tvítugsaldri. Starfsmaðurinn
bað um nafnleynd vegna þess hve
ástandið er viðkvæmt í landinu.
Nokkrum tímum eftir loftárás-
ina sprakk sprengja við fjölfarna
götu í höfuðborginni Colombo.
Sprengingin var líklega tilræði við
Basir Ali Mohammed, háttsettan
stjórnarerindreka frá Pakistan, en
hann átti leið hjá þegar sprengjan
sprakk. Minnst sjö manns létust,
en Mohammed komst leiðar sinnar
heill á húfi. Hann kenndi Tamílatí-
grunum um tilræðið, en stjórnvöld
í Pakistan sjá stjórnarher Sri Lanka
fyrir vopnum.
Búist er við ákvörðun íslensku
ríkisstjórnarinnar um framtíð
íslenskra eftirlitsmanna í landinu
síðar í þessari viku. - kóþ
Átökin á Srí Lanka mögnuðust enn þegar bardagar héldu áfram í gær:
Fjörutíu skólastúlkur myrtar
SPRENGINGIN Í COLOMBO Leigubíll sprakk í
höfuðborginni er bíll stjórnarerindreka Pakist-
ans ók fram hjá. Minnst sjö manns biðu bana,
en erindrekann sakaði ekki. FRÉTTABLAÐIÐ/AP