Fréttablaðið - 15.08.2006, Blaðsíða 19
ÞRIÐJUDAGUR 15. ágúst 2006 19
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 5.394 +0,38% Fjöldi viðskipta: 205
Velta: 3.650 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 64,30 -1,08% ... Alfesca 4,24 +0,24% ... Atlantic
Petroleum 555,00 +0,00% ... Atorka 5,75 -1,71% ... Avion 31,80 -0,63% ... Bakkavör
50,80 -0,39% ... Dagsbrún 5,38 -0,74% ... FL Group 15,30 -0,65% ... Glitnir 17,70
+0,57% ... KB banki 706,00 +0,43% ... Landsbankinn 21,50 +2,38% ... Marel 81,50
+3,17% ... Mosaic Fashions 17,00 +0,00% ... Straumur-Burðarás 15,90 +0,00% ... Össur
114,00 +3,64%
MESTA HÆKKUN
Össur +3,64%
Marel + 3,17%
Landsbankinn +2,38%
MESTA LÆKKUN
Atorka -1,71%
Actavis -1,08%
Dagsbrún -0,74%
Umsjón: nánar á visir.is
Hreinar eignir lífeyrissjóðanna
voru komnar í 1.358 milljarða
króna í lok júní og jukust um tæp
tvö prósent á milli mánaða.
Á fyrri hluta ársins hækkuðu
eignir sjóðanna um 147 milljarða
króna, sem jafngildir 12,1 pró-
senta hækkun, en á síðustu tólf
mánuðum nemur hækkunin alls
278 milljörðum króna samkvæmt
tölum frá Seðlabankanum.
Erlend verðbréfaeign lífeyris-
sjóðanna hækkaði um 24 milljarða
króna í júní og nam alls 401 millj-
arði króna í lok júní. Það gerir um
29,5 prósent af heildareignum
sjóðanna. - eþa
1.358 milljarðar
í hreinni eign
Sportvörurisinn Nike ætlar að
halda áfram samstarfi við sínu við
Juventus þrátt fyrir að ítalska
knattspyrnuliðið hafi verið sent
niður um deild eftir hneykslismál-
ið fræga.
Nike gerði tólf ára samning við
Juventus árið 2003 og greiðir fyrir
liðið einn milljarð á ári. Ekki
kemur fram í tilkynningu Nike
hvort samningurinn hafi verið
endurskoðaður.
Beðið er eftir því hvað líbíski
olíuframleiðandinn Tamoil gerir
en hann ber nafn sitt á treyjum
Juventus.
Hlutabréf í Juventus hækkuðu
um átta prósent við tíðindin og
hafa nú tvöfaldast í virði eftir að
þau hrundu í kjölfar hneykslistíð-
indanna. - eþa
Nike styður
Juventus áfram
NIKE FRAMLEIÐIR ÁFRAM BÚNINGA JUVE
Zlatan Ibrahimovic Zlatan leikmaður JuJu-
ventus sést hér fagna í búningi frá Nike.
Kona mun í fyrsta sinn setjast í
forstjórastól bandaríska gos-
drykkjaframleiðandans Pepsi í
október næstkomandi.
Forstjórinn verðandi heitir
Indra Nooyi og er af indversku
bergi brotin. Nooyi, sem er fimm-
tug, hefur starfað hjá Pepsi síðan
árið 1994, þar af sem fjármála-
stjóri fyrirtækisins síðastliðin
fimm ár. Hún tekur við af Steve
Reinemund, sem lætur af störfum
af persónulegum ástæðum.
Fjölmiðlar segja valið á for-
stjóranum ekki koma á óvart en
sex héruð á Indlandi hafa bannað
sölu á gosdrykkjum Pepsi og Coca
Cola vegna orðróms um eitur í
þeim. - jab
Kona í forstjóra-
stólinn hjá Pepsi
FL Group tapaði 118 milljónum
króna á öðrum ársfjórðungi sam-
anborið við 1,9 milljarða hagnað
á sama tímabili í fyrra. Á fyrri
hluta ársins hagnaðist félagið alls
um rúma 5,7 milljarða króna.
Spár markaðsaðila voru ólíkar
en niðurstaðan er öllu betri en
bæði Glitnir og Landsbankinn
reiknuðu með.
Tap FL skýrist af lækkun á
hlutabréfamörkuðum á öðrum
ársfjórðungi en fjárfestingatekj-
ur voru neikvæðar um 862 millj-
ónir króna en jákvæðar um nærri
10,5 milljarða króna á þeim
fyrsta. Félagið hagnaðist veru-
lega á jákvæðum gjaldeyrisjöfn-
uði í erlendri mynt á fyrri árs-
helmingi.
Heildareignir FL Group í
skráðum hlutabréfum voru um
148 milljarðar þann 30. júní.
Tekjur rekstrarfélaga námu
um 45 milljörðum króna á fyrri
árshelmingi en afkoma rekstrar-
félaganna Icelandair Group og
Sterling var æði ólík. Rekstrar-
hagnaður Icelandair fyrir
afskriftir (EBITDA) var 1,3
milljarðar króna sem er besta
afkoma í sögu félagsins. Sterling
skilaði hins vegar yfir 1,8 millj-
arða tapi á fyrri hluta ársins sem
féll alfarið til á fyrsta ársfjórð-
ungi. Rekstrartap Sterlings nam
2,2 milljörðum króna. - eþa
Viðsnúningur hjá FL Group
Tap á 2. ársfjórðungi. Metafkoma Icelandair en Sterling tapaði 1,8 milljörðum.
AFKOMA FL GROUP Á ÖÐRUM
ÁRSFJÓRÐUNGI OG SPÁR
MARKAÐSAÐILA *
Tap FL Group -118
Spá Glitnis -721
Spá KB banka 1.398
Spá Landsbankans -2.084
Meðaltalsspá -469
* Í milljónum króna