Fréttablaðið - 15.08.2006, Blaðsíða 25
ÞRIÐJUDAGUR 15. ágúst 2006 3
Enn er hægt að leigja fótbolta-
sali í Sporthúsinu í Kópavogi
en í íþróttahúsum skólanna í
Reykjavík er eftirspurn meiri
en framboð.
Fjölmargir taka sig saman og
leigja sal yfir vetrartímann til
hvers konar boltaleikja. Ný tenn-
ishöll er risin í Kópavogi og því
losnuðu tveir af minni sölunum í
Sporthúsinu í Kópavogi til iðkunar
fótbolta, fyrir utan salinn sem
fyrir er í útleigu og er með gervi-
gras á gólfi. Það er því enn mögu-
leiki á að festa sér tíma, að sögn
Magna Fannberg sem hefur
umsjón með völlunum. Hann segir
Sporthúsið opið frá 6 til 23.
Um 230 hópar leigja tíma í
íþróttahúsum skólanna í Reykja-
vík og þau eru fullsetin því eftir-
spurn eftir slíkum tímum er meiri
en plássið leyfir, samkvæmt upp-
lýsingum Steins Halldórssonar,
sem sér um útleigu salanna fyrir
hönd Íþróttabandalags Reykjavík-
ur. Hann segir eftirspurnina góðs
viti því hún beri vott um áhuga
almennings á hreyfingu og hreysti.
„Í þessum tímum er stundað blak,
karfa, fótbolti, bandí og handbolti,
já, bara allt sem nöfnum tjáir að
nefna,“ segir Steinn ánægður. - gg
Ásókn í íþróttasali
Bandí er ein þeirra íþrótta sem stundaðar
eru í sölum Íþróttabandalags Reykjavíkur.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Gelgjubólur eru leiðinlegur fylgifiskur
unglingsáranna og há reyndar mörg-
um oft langt fram eftir aldri. Það
hefur ekki verið hægt að benda á til-
teknar orsakir fyrir unglingabólum en
mörg ráð koma að notum í barátt-
unni gegn þeim. Það getur til dæmis
verið gott að þvo húðina tvisvar
sinnum á dag með mildri, súrri sápu.
Í apótekum fást líka ólyfseðilsskyldar
vörur sem vinna á bólum, svo sem
Clerasil og Silicol Skin. Ef húðin er
mjög slæm er ráðlagt að snúa sér til
læknis sem skoðar húðina og getur
þá mælt með tiltekinni lyfjameðferð
ef þörf þykir vera á.
Ráð gegn
gelgjubólum
ÞAÐ ERU ÝMSAR LEIÐIR Í BOÐI TIL
AÐ VINNA BUG Á ÞESSUM LEIÐIN-
LEGA VANDA.
Gott er að þvo húðina með mildri sápu.
Margir lenda í því að eiga við
svefntruflanir að stríða, hvort sem
þær eru tímabundið eða viðvarandi
vandamál. Orsakir fyrir svefntrufl-
unum geta verið margar, svo sem
streita, líkamlegir þættir eins og
bakverkir og liðagigt og umhverfi svo
fátt eitt sé nefnt. Ýmis ráð eru við
svefntruflunum en af þeim má nefna
reglulega hreyfingu, að minnka
neyslu efna eins og koffíns og
áfengis, sérstaklega seint á kvöldin,
þægilegt umhverfi og slaka vel á
rétt fyrir svefninn. Ef erfitt reynist að
vinna bug á vandanum má snúa sér
til læknis. -rve
Sigrast á
svefntruflunum
GÓÐUR SVEFN ER GRUNNUR AÐ
ANDLEGRI VELLÍÐAN.
Lille Collection