Tíminn - 16.03.1978, Page 5

Tíminn - 16.03.1978, Page 5
Fimmtudagur 16. marz 1978 iiiiAA ;i ;iu» 5 Áfengisneyzla veldur sköddun á fóstri Veruleg hætta er á aö drykkjusjúkar konur ali börn sem hafa skaddazt i móöur- kviði. Likur til þess eru 30-50% að áliti bandariskra sérfræð- inga. Sýnt er að það er áfengis- neyslan er skaða veldur en ekki aðrirþættir, svo sem vannæring sem algeng er meðal drykkju- sjúkra. Allt bendir til að fóstur- sköddunin sé affeíðing beinna eiturverkana áfengis á fóstrið sjálft. Hættulegasti timinn er þrir fyrstu mánuðir meðgöngu- timans. Rannsóknir hafa farið fram i mörgum löndum, Bandarikjun- um, Bretlandi, Frakklandi, Þýzkalandi — og nýlega einnig i Danmörku og Sviþjóð. Fram kom við rannsókn danskra lækna að öll börn þess hóps Fundur um sjávarútvegsmál Að tilhlutan Samtaka sveitarfé- laga i Vesturlandskjördæmi og i samvinnu við sjávarútvegs- ráðuneytiö verður haldin ráð- stefna i Hótel Stykkishólmi laug- ardaginn 18. marz nk. Tilgangur ráðstefnunnar er að ræða um framtið sjávarútvegs á Vesturlandi og nýja möguleika i Tveir verja doktors- ritgerðir Nú fyrir páska fara fram tvær doktorsvarnir við heimspekideild Háskóla fslands. Laugardaginn 18. marz 1978, kl. 14.00 mun George Houser, M.A. rithöfundur frá Winnipeg, verja ritgerð sina, Saga hestalækninga á tslandi, sem heimspekideild hefur metið hæfa til varnar viö doktorspróf. Andmælendur af hálfu heim- spekideildar verða dr. Bo Alm- quist, prófessor i þjóðsagnafræði við háskólann i Dublin, og Arni Björnsson, cand. mag. Miðvikudaginn 22. marz 1978, kl. 14.00, mun Gunnar Karlsson, cand. mag., lektor I sagnfræði við Háskóla tslands, verja ritgerð sina, Frelsisbarátta Suöur-Þing- eyinga og Jón á Gautlöndum.sem deildin hefur metið hæfa til varn- ar við doktorspróf. Andmælendur af hálfu deildar- innar verða Bergsteinn Jónsson, lektor og dr. Björn Sigfússon, fyrrv. háskólabókavörður. Doktorsvarnirnar fara báðar fram i hátiðasal Háskóla Islands. öllum er heimill aögangur. Starfsemi Flúðaskóla Eirikur Loftsson frá Steinsholti I Gnúpverjahreppi i Arnessýslu hefur verið i starfskynningu á blaðinu undanfarna daga. Eiríkur er fimmtán ára og er nemandi i Flúðaskóla, þar sem hann stund- ar nám i niunda bekk. Ilefur hann skrifað eftirfarandi frétt af starf- semi skóla sins, samkvæmt viðtali er hann átti austur i sveit- ir. EL— ,,í skólanum eru 145 nem- endur sem skiptast i 9 bekki og eru starfandi 12 kennarar við skólann”, sagði Sigurður Magnússon kennari við Flúöa- skóla i Hrunamannahreppi, er blaðið hafði samband við hann i gær. Að sögn Sigurðar hefur fé- lagslif við skólann verið með ágætum. Þar er starfandi skóla- félag, sem séð hefur um kvöld- vökur og „diskótek” hálfsmánað- arlega i vetur, og einnig hefur það gefið út skólablað. A hverjum vetri er keppt i iþróttum við tvo nærliggjandi skóla og i vetur tók skólinn þátt i Islandsmóti i blaki, grunnskóla- flokki. 1 þremur yngstu bekkjum skól- ans er svokallaður opinn skóli, þ.e.a.s. engin hefðbundin bekkja- skipting. 1 þessari viku eru nem- endur úr 9. bekk i starfsviku að kynna sér hin ýmsu störf i þjóðfé- laginu, en nemendur 7. og 8. bekkjar eru i nemendaskiptum við Viðistaðaskóla i Hafnarfirði, sem er nýjung hjá skólanum. Nemndur Flúðaskóla eru þannfg i fjóra daga i Hafnarfirði, en i vor koma nemendur úr Viðistaöa- skóla og verða hér i nokkra daga. veiðum og vinnslu sjávarafla. Ráðstefnan hefst kl. 10 og setur Arni Emilsson form. samtakanna hana. Matthias Bjarnason, sjávarútvegsráðherra flytur ræðu, dr. Jakob Magnússon deild- arstjóri i Hafrannsóknastofnun flytur erindi um nýja möguleika i fiskveiðum og dr. Björn Dag- bjartsson, forstj. Rannsókna- stofnunar fiskiðnaðarins, ræðir nokkrar hugmyndir um nýjar fiskvinnslugreinar. A eftir framsöguerindunum verða almennar umræður og fyr- irspurnum svarað. Fundurinn er opinn öllu áhugafólki um sjávar- útvegsmál. drykkjusjúkra kvenna, er fylgzt var með, höfðu einkenni fóstur- sköddunar vegna áfengisneyzlu á meðgöngutima Er það i fyrsta sinn sem læknar telja sig sjá slik einkenni á öllum börnum þeirra mæðra er nota áfengi daglega i miklum mæli. Aðaleinkenni eru: Mjög ein- kennilegur andlitssvipur, mjög dregur úr vexti á fósturskeiði, bæði að lengd og þyngd, og möguleikar til áð bæta það upp eftir fæðingu eru skertir, i mörgum tilvikum sérstaklega litið höfuð, ennfremur vansköp- un, geðrænar truflanir, heila- skemmdir og hjartagallar. Einn þeirra manna, er mést hafa unnið að nefndum rann- sóknum, bandariskur sérfræð- ingur i barnasjúkdómum David W. Smith, hefur varað við hættu, er stafað geti af áfengis- neyzlu sem telst innan viður- kenndra marka i samkvæmis- lifi, og sagt að æskilegast sé fyr- ir hið ófædda barn að ekki sé um neina áfengisneyzlu móður að ræða á meðgöngutima. Nýlegur bandariskur bæklingurum þetta efni nefnist: „Þegar þú notar áfengi, gerir barn, er þú berð undir brjósti, það einnig” Þar segir að enginn viti hvert magn áfengis sé of mikið i þessu sambandi og að ekki eigi saman að nota áfengi og ganga með barn. Frá Áfengisvarnaráði. Lærðu um skotvopn og sprengiefni Dagana 7.-9. marz var haldið námskeið á vegum Lögregluskóla rikis- ins fyrir lögreglunienn til að kynna lög nr. 46/1977 um skotvopn sprengiefni og skotelda og reglugerö nr. 16/1978 um skotvopn. Nám- skeiðið sóttu lögregluþjónar og fulltrúar viðs vegar að af landinu. Meðfylgjandi mynd er frá námskeiöinu. Þú byggir upp lánamöguleika þína Iðnaðarbankinn hefur opnað nýjar leiðir fyrir alla þá sem vilja undirbúa lántöku með því að spara um lengri eða skemmri tíma. Um tvenns konar lán er að ræða: IB-lán, sé stefnt að lántöku eftir 6 eða 12 mánuði. Og IB-veðlán, sé stefnt að háu láni innan 2-4 ára. Könnum þau nánar,- Iðnaðarbankinn lánar þér jafnháa upphæð og þú hefur sparað með því að leggja ákveðna upphæð inn á IB-reikning mánað- arlega. Lánið hækkar því í réttu hlutfalli við tíma og mánaðarlega innborgun. Sparað er í tvö, þrjú eða fjögur ár. Tökum dæmi: 35.000 kr. eru lagðartilhliðar í 3 ár. Innstæðan verður þá orðin 1.260.000 kr. Bankinn lánar sömu upphæð. Með vöxtum af innstæðunni hefur þú þá til ráð- stöfunar 2.900.766 Lánið er endurgreitt með jöfnum greiðslum afborgana og vaxta á jafnlöngum tíma og sparað var. Fyrir IB-veðláni þarf fasteignaveð. Síðast en ekki síst: Hámarksupphæð mánaðargreiðslu má hækka einu sinni á ári í hlutfalli við almennar verðlagsbreyt- ingar. Þannig er hægt að tryggja að lánið komi að þeim notum sem ætlað var í upp- hafi. Taflan sýnir nánar þá möguleika sem felast í IB-veðlánum. Sýnd er hámarksupphæð í hverjum flokki og þrír aðrir möguleikar. Velja má aðrar upphæðir. Allar frekar upplýsingar veita IB-ráð- gjafar Iðnaðarbankans. SPARNAÐAR TfMABII. 24 mán MÁNAfiARLEG INNBORGUN 36 mán 48 mán 10.000 20.000 30.000 40.000 15.000 25.000 35.000 50.000 20.000 30.000 40.000 50.000 SPARNAOUR f LOK TfMABILS 240.000 480.000 720.000 960.000 540.000 900.000 1.260.000 1.800.000 960.000 1.440.000 1.920.000 2.400.000 IÐNAÐARBANKINN LÁNAR 240.000 480.000 720.000 960.000 540.000 900.000 1.260.000 1.800.000 960.000 1.440.000 1.920.000 2.400.000 RÁDSTÖEUNARFf: 522.727 1.047.443 1.571.660 2.096.376 1.242.120 2.071.688 2.900.766 4.144.877 2.337.586 3.507.140 4.676.680 5.846.720 MÁNAÐARLEG ENDURGREIÐSLA MED VÖXTUM 12.930 25.860 38.789 51.719 21.757 36.261 50.766 72.522 32.368 48.552 64.736 80.920 ENDUR GREIÐSLU TfMABIL 24 mán 36 mán 48 mán Bankiþeirra sem hyggja að framtfðinni Iðnaðaitankinn Lækjargötu 12, Sími 20580

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.