Tíminn - 16.03.1978, Side 6

Tíminn - 16.03.1978, Side 6
6 Fimmtudagur 16. marz 1978 Matthias Á. Mathiesen: Svigrúm til tækni- nýjunga í bókhaldi — framsaga ráðherra fyrir stj órnarfrumvarpi Matthias A Mathiesen fjármálaráðherra mælti á fundi efri dcildar Alþingis I gær fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um bókhald. Er hér um stjórnarfrumvarp aö ræöa og felast i þvi tviþættar breytingar á bókhaldslögum frá árinu 1968. Fara hér á eftir athugasemdir sem frumvarpi þessu fylgja, en þær eru efnislega samhljóöa framsöguræöu fjármálaráö- herra: „Á siðustu árum hafa orðið miklar og örar breytingar á sviði bókhalds og reikningsskila. Tækniframfarir i gerð bókhalds- og skýrsluvéla og á sviði vilmu- gerðar gera það kleift að beita i æ rikara mæli vélum, sjálfvirkni og myndtækni við færslu, úrvinnslu og geymslu bókhalds og bókhalds gagna. Arsreikningar fyrirtækja hafa einnig tekið breytingum og meira samræmi er orðið i gerð þeirra og algengara verður að þeir hafi að geyma margs konar skýringarog yfirlit auk efnahags- og rekstrarreiknings. Handfærsla ársreiknings i fyrirfram innbundna og löggilta efnahagsbók er þannig orðin all* viðamikil og að ýmsu leyti óhentug, a.m.k. hjá stærri fyrirtækjum. Gildandi bókhaldslög gera ráð fyrir notkun vélbúnaðar við færslu bókhalds en heimila hins vegar ekki undan- tekningu frá þeirri reglu að bæk- ur og bókhaldsgögn skuli geymd i sinni upprunalegu mynd i ákveð- inn tima. Breytingartillögur frumvarps þessa eru tviþættar: 1 fyrsta lagi er skilyrðið um innbundna og löggilta efnahagsbók gert undanþægt. Með þvi er stefnt að þvi að opna þann möguleika að i stað handfærslu og innbindingar efnahagsbókar geti komið geymslubindi, sem ársreikn- ingurinn yrði lagður i eða bundinn. Færslu efnahagsbókar mun nú almennt vera þannig háttað hér á landi að i hana er aðeins færður rekstrar- og efnahagsreikningur. Með þessari breytingu er stuðlað að þvi að ársreikningar Matthias A. Mathiesen. fyrirtækja veröi varðveittir með þeim skýringum og skýrslum sem nú eru almennt að verða óað- skiljanlegur hluti ársreikninga. 1 reglugerð yrði að setja ,ákveðin skilyrði fyrir notkun slikra geymslubinda i stað innbundinna bóka, m.a. um öruggan frágang Gunnar Thoroddsen: A fundi neðri deildar Alþingis i gær voru veitt afbrigöi til heim- ildar fyrstu umræöu um frum- varp til laga um breyting á lögum um Sölustofnun lagmetisiönaöar- ins. Þurfti afbrigöi til umræöunn- ar, þar sem frumvarpið var svo nýlega fram lagt. Gunnar Thor- oddsen iðnaöarráöherra haföi framsögu fyrir frumvarpinu. Fer hér á eftir hluti af athuga- semdum er frumvarpinu fylgja og eru efnislega samhljóöa ræðu ráöherra i gær: „Með lögum nr. 48, 26. mai 1972 um Sölustofnun lagmetisiðnaðar- ins var stofnuninni lagt til óend- urkræft framlag úr rikissjóði, 25 milljónir króna ár hvert, fyrstu fimm starfsárin. Ennfremur var ákvæði i lögunum um stofnun sér- staks sjóðs til eflingar lagmetis- iðnaðinum og útflutningi hans. Sjóður þessi hlaut nafnið Þróunarsjóður Lagmetisiðnaðar- ins. Tekjur hans voru ákveðnar öll útflutningsgjöld af niðursoðn- um og niðurlögðum sjávarafurð- um og söltuðum grásleppuhrogn- um næstu fimm ár frá samþykkt laganna. Með lögum nr 69/1974 um breytingu á lögum nr. 48/1972 var lögfest að lagmetisiðnaðurinn skyldi undanþeginn öllum út- flutningsgjöldum af niðursoðnum og niðurlögðum sjávarafurðum og söltuðum grásleppuhrognum, en þó skyldi innheimta útflutn- ingsgjöld þessi til ársloka 1977 og þau renna til fyrrnefnds Þróunar- sjóðs lagmetisiðnaðarins. í lögunum er og ákvæði þess efnis, að þegar framlög rikissjóðs og ákvæði um útflutningsgjöld falla niöur, skuli meirihlutaaðild rikissjóðs aö stjórn stofnunarinn- ar, sem jafnframt er stjórn Þró- unarsjóðs lagmetisiðnaðarins, ireytast og aðilar stofnunarinnar ilnefna þrjá stjórnarmenn af imm. 1 frumvarpi þessu, sem flutt er, ásamt athugasemdum, að beiðni stjórnar Sölustofnunar lagmetis, er lagt til, að Þróunarsjóði lag- metisiðnaöarins verði í næstu þrjú almanaksár tryggðar sam- bærilegar tekjur og hann hefur haftaðundanförnu og að hlutverk sjóðsins verði skilgreint nánar en nú er gert. Ekki er lagt til að aðr- ar breytingar verði gerðar á lögun- um eri nauðsynlegar eru vegna framangreind. Reynslan sýnir, þrátt fyrir batahorfur nú, að ekki hefur á s.l. 5 árum tekizt að efla útflutning á islenzku lagmeti að þvi marki er vonir stóðu til i upphafi. Þar hefur margt komið til, svo sem tolla- stefna EBE gagnvart Islending- um i kjölfar fiskveiðideilna, efna- hagssamdráttur i mikilvægum markaðslöndum og ýmislegt fleira, sem nánar verður vikið að i þessari greinargerð. Af þessum ástæðum hafa samtök lagmetis- framleiðenda og stjórn S.L. farið þess á leit, að stofnunin hljóti næstu 3 árin stuðning við útflutn- ing, vöruþróun og markaðsöflun lagmetis i þvi formi að tekjur Þróunarsjóðs verði þetta timabil hliðstæðar þvi sem nú er, en þó verði þeirra aflað á annan hátt. Meginbreyting á tekjuöflun Þróunarsjóðs lagmetisiðnaðarins skv. þessu frv. er sú, að gert er ráð fyrir að leggja 3% fullvinnslu- gjald bæði á útflutt söltuð grá- sleppuhrogn og söltuð eða fryst alþingi þeirra og geymslu. 1 öðru lagi er opnuð heimild til þess að setja reglugerðarákvæði um geymslu bókhaldsbóka og bókhaldsgagna á filmu og annarri jafngildri eftirmynd. Heimild til færsluog geymslu bókhaldsgagna á filmu hefur nú veriðlögleidd víða um heim, m.a. á Norðurlöndum. Með notkun slikrar tækni er oft hægt að spara verulegt húsrými og pappir, auk þess sem leit upplýsinga i eldri gögnum getur orðið aðgengilegri og jafnvel öruggari. Hér er ekki aðeins um að ræða notkun á film- um til geymslu á upplýsingum fylgiskjala eða annarra hlið- stæðra gagna heldur er i æ rikari mæli farið að nota sérstakar örfilmur (mikrofilmur) fyrir tölvuútskrift i bókhaldi i stað útskriftar á pappir. Heimild i reglugerð til notkunar á slikri tækni verður þó að vera háð ströngum skilyrðum varðandi alla framkvæmd, gerð filmuefnis, skráningu og geymslu til að tryggja fyllsta öryggi um með- ferð og geymslu upplýsinga.” FuUvinnslugj ald á grá- sleppu- og þorskahrogn — renni til Þróunarsjóðs lagmetisiðnaðarins Gunnar Thoroddsen Tvær millj - ónir í stað 600þús. Matthías Bjarnason sjávar- útvegsráðherra mælti i gær fyrir stjórnarfrumvarpi til breytinga á iögum um Fiskimálasjóð. í greinargerð með frumvarpi þessu segir: „Fé Fiskimálasjóðs skal verja til eflingar sjávarútvegi, skv. 3. gr. laganna. Til styrkveitinga samkvæmt 4. gr. og til lánveit- inga samkvæmt 5. gr. Lögin hafa bundið hverja lánveitingu við tiltekna hámarksupphæð. Þessi hámarksupphæð hefur verið hækkuð á nokkurra ára fresti eftir aðstæðum og getu' sjóðsins. Siðast var þessi hámarksupphæð hækkuð i kr. 600 000 árið 1971. Stjórn Fiskimálasjóðs er sammála um, að geta sjóðsins og aðrar aðstæður leyfi, að þessi upphæð verði nú hækkuð i kr. 2 000 000.” þorskhrogn, en hverfa frá 6% út- flutningsgjaldi á útflutt grá- sleppuhrogn, sem runnið hefur i Þróunarsjóð. 1 þessu frv. er að sjálfsögðu ekki kveðið á um hvort umræddu 6% útflutningsgjaldi á grásleppuhrogn verði jafnframt haldið og það látið renna i sjóði sjávarútvegsins til þess að sjó- menn, sem veiða grásleppu, njóti beirra á hliðstæðan hátt og sjó- menn, sem stunda aðrar veiðar' Hugmyndiri um framangreint fullvinnslugjald sem tekjustofn fyrir Þ.l. kom fram i áliti nefnd- ar sem skipuð var fulltrúum iðnaðarráðherra, sjávarútvegs- ráðherra og S.L. sbr. fiskj. nr. 1, en þar er nánar grein gerð fyrir gjaldinu og útreikningum á þvi. Jafnframt þvi að i frv. er gert ráð fyrir álagningu fullvinnslu- gjalds á grásleppu- og þorsk- hrogn i stað útflutningsgjaldsins áður, er ráðgert að innheimta i Framhald á bls. 19. Matthias Bjarnason: Breytingar á starfs- háttum Verðlagsráðs s j ávarútvegsins framsaga ráðherra fyrir stjórnarfrumvarpi Sjávarútvegsráðherra, Matthias Bjarnason, mælti i gær fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Verð- lagsráð sjávarútvegsins. Er hér um stjórnarfumvarp að ræða og segir i greinargerð, efnislega samhljóða framsöguræðu ráð- herra: „Með frumvarpi þessu er lagt til að gerðar verði tvær breyt- tingar á lögum um Verðlagsráð sjávarútvegsins. önnur breyt- ingin er sú, að Verðlagsráðið skuli framvegis ákveða verð á sildarúrgangi en ákvörðun verðs á honum hefur ekki heyrt udnir Verðlagsráðið til þessa, sbr. upphaf 2. mgr. 3. gr. Um verðá sildarúrgangi hefur verð samið milli sildarsaltenda og þeirra verksmiðja, sem kaupa hann. Meðan leyfð var veiði á sild til bræðslu var það sam- komulag milli aðila, að verð á sildarúrgangi skyldi vera á- kveðið hlutfall af verði si'ldar til bræðslu. Eftir að veiðar á sQd voru leyfðar að nýju til mann- eldis, hafa veiðar til bræðslu hins vegar verið bannaöar. Af þeim sökum hefur verð á sild til bræðslu ekki verið ákveðið und- anfarin ár og framangreind hlut- fallsregla um verð á slldarúr- gangi þvi verið ónothæf Komið hefur i ljós að töluvert misræmi er á þvi' verði, sem greitt er fyr-( ir sildarúrgang á ýmsum stöð- um. Hafa sildarsaltendur sér- staklega óskað eftir þvi, að Matthlas Bjarnason. Verðlagsráðið ákveði verð á sildarúrgangi framvegis og er samkomulag um það i ráðinu að það skuli gert, en með þessu frumvarpi er leitað heimildar fyrir ráðið til þess. Ekki þykir ástæða til að breyta skipulagi ráðsins af þessari ástæðu að öðru leyti en þvi að i stað full- trúa fisksöluaðila i fiskúrgangs- deild komi fulltrúi sildarsalt- enda við verðlagningu á sildar- úrgangi. Hin breytingin er sú, að lifur frá veiðiskipum verði framvegis verðlögð i fiskúr- gangsdeild. Frá þvi að byrjað var að verðleggja lifur frá veiði- skipum i ársbyrjun 1975, hefur sú verðlagning farið fram i fiskideild, og er það i samræmi við það ákvæði laganna, að sú deild skuli ákveða verð á þeim sjávarafla, sem ekki er sérstak- lega falið öðrum deildum ráðs- ins, sbr. 1. mgr. 3. gr. laganna. Lifrarbræðslur eiga ekki sér- staka aðild að ráðinu. Fulltrúar i fiskideild eru fyrst og fremst fulltrúar söluaðila að þvi er varðar lifur, en lifrarkaupendur hafa þar enga fulltrúa. Eiga þeir erfitt með að sætta sig við þetta. Ekkiþykir ástæða til þess að setja að stofn sérstaka deild vegna þessarar verðlagningar enda munu lifrarkaupendur sætta sig við það að fulltrúar kaupenda i fiskúrgangsdeild gæti hagsmuna þeirra”.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.