Tíminn - 16.03.1978, Side 7

Tíminn - 16.03.1978, Side 7
Fimmtudagur 16. marz 1978 7 Útgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.), og Jón Helgason. Rit- stjórnarfulltrúi: Jón Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Stein- grimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmda- stjórn og auglýsingar Siðumúla 15. Simi 86300. Kvöldsimar blaðamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verð i iausasölu kr. 90.00 Áskriftargjald kr. 1700 á mánuði. ... . ... Blaðaprent h.f. Meginstefnan Meðal þess, sem ólafur Jóhannesson fjallaði um i flokksþingsræðu sinni á sunnudaginn voru nokkur meginatriði eða grundvallarsjónarmið i stefnu Framsóknarf lokksins. „Framsóknarflokkurinn vill byggja landstjórn á lýðræði og þingræði” sagði hann „og telur það meg- inmarkmið sitt að standa vörð um stjórnarfarslegt, efnahagslegt og menningarlegt sjálfstæði þjóðar- innar. Framsóknarflokkurinn er frjálslyndur framfara- flokkur, sem vill, að atvinnulif landsmanna byggist á framtaki og sjálfsbjargarviðleitni einstaklinga og félaga, sem leysa sameiginlegt verkefni á grund- velli samtaka, samvinnu og félagshyggju. Hann vill skipuleggja uppbyggingu atvinnulifs. Framsóknarflokkurinn vill byggja á jafnrétti og jafnræði allra þjóðfélagsþegna. Þess vegna vill hann, að öllum þjóðfélagsþegnum gefist jöfn tæki- færi til að þroska og nýta hæfileika sina við nám og starf. Þess vegna vill Framsóknarflokkurinn fram- för þjóðarinnar allrar og öfluga byggðastefnu. Hann vill óskert yfirráð landsmanna sjálfra yfir auðlindum landsins, atvinnutækjum og atvinnu- rekstri. Frmsóknarflokkurinn leggur áherzlu á félagslegt öryggi, bæði i veikindum og vegna örorku, elli og áfalla af völdum náttúruhamfara. Framsóknarflokkurinn er andvigur öfgastefnum og kreddutrú, hvort sem er til hægri eða vinstri, og vill veita viðnám gegn ofstjórn og óþörfum rikisaf- skiptum. Hann vill tryggja einstaklingum rétt til persónufrelsis og tjáningarfrelsis.” Þetta sagði Ólafur, að væru nokkur þau megin- atriði, sem flokkurinn væri reistur á — forsendur hans sem sérstaks og sjálfstæðs stjórnmálaflokks. Fyrr i ræðu sinni hafði hann komizt svo að orði: „Það er viðeigandi við þetta tækifæri að reynt sé að skyggnast fram á veginn og reynt sé að gera grein fyrir þvi hvernig Framsóknarflokkurinn skuli snúast við þeim viðfangsefnum sem liklegt er. að til úrlausnar komi. Eins og endranær er hið ókomna alltaf háð óvissu, bæði atburðarás og að- stæður. Það er einmitt hlutverk þessa flokksþings að marka stefnu Framsóknarflokksins, bæði i grundvallaratriðum og i einstökum málum og málaflokkum, eftir þvi sem við verður komið. Að sjálfsögðu er þar um að ræða stefnuyfirlýsingar, sem miðstjórn, þingflokkur og framkvæmdastjóri hljóta að móta nánar i framkvæmd. Grundvallaratriði og meginmarkmið, sem Fram- sóknarflokkurinn byggir stefnu sina á, hljóta að mestu að verða hin sömu og áður. í flokksþings- samþykktum verður þvi fyrst og fremst um að ræða undirstrikun þeirra, fyllri útfærslu eða nákvæmari orðum. Það má ef til viH smiða þeim nýjan ramma þó að myndin verði eftir sem áður hin sama”. t lok ræðunnar sagði Ólafur: „íslenzkt þjóðfélag hefur tekið miklum stakka- skiptum á undanförnum árum og áratugum. Það hefur verið i mikilli framför, þrátt fyrir ýmis vixl- spor. í þjóðfélagsframförunum eiga ýmsar fé- lagsmálahreyfingar eins og til dæmis verkalýðs- hreyfing og samvinnufélög mikinn þátt. En ég hygg þó, að umbóta- og framfarasinnuð stjórnmálaöfl eigi hér drýgstan þátt — já, stjórnmálaflokkar.” Brýndi ólafur fyrir mönnum, hversu úrslit kosn- inganna i sumar geta orðið mikilvæg fyrir landið i heild, sem og einstök byggðarlög. „Ég veit, að ekki þarf að eggja þá sem hér er staddir, til að leggja sig alla fram”, sagði hann. J.H. Wmwn Þar stóð timinn svo lengi i stað, að það bjargaði gömlu hverfunum: Svaneke hlaut al- þj óðleg verðlaun Fortiðarminjar, sem áður var keppzt við að afmá, orðnar einskonar heiðursmerki Þannig er umhorfs i gömlu hverfunum f Svaneke — frifiur og ró og fagurt samræmi, sem er ekki i ætt við neina reglustiku. Þegar alþýða manna losnaði úr kreppu hins gamla tima, ný þekking barst fólki upp i hendur og stórbrotin tækni mildaði stritið og margfaldaði afköstin, hætti mörgum til þess að lita það smáum aug- um, er áður hafði verið. Það varð jafnvel keppikefli þorra manna að afmá sem fyrst og rækilegast allt það, sem minnti á fyrri tið. Gömlu verk- færin voru borin á hauga eða brennd til ösku, hús og mann- virki, eljuverk fjölda kyn- slóða, voru jöfnuð við jörðu, ef þess var kostur án of mikillar fyrirhafnar. i krafti tækni sinnar, kunnáttu og getu skyldi koma nýr himinn og ný jörð, þar sem þess sæi helzt hvergi stað, er áður hafði ver- ið, þegar lifið var strangara og allt smærra i sniðum. Þessi timi er liðinn. Nú sjá margir, að ofgert var i öllu umbrotaæðinu, það hefur ver- ið höggvið skarð i menningar- sögu og margt farið forgörð- um, sem nú þykir að hinn mesti söknuður. Sitthvað, sem áður var ekki litið öðrum aug- um en þeim, aö það væri tákn fátæklegs tima, þegar fólk varðist i þröngri vök, telst nú til gersema, og ekki svo fátt af þvi, sem helzt engir vildu við lita um skeið, er nú vegsamað vegna fagurs verklags og full- komins samræmis við um- hverfi sitt. 1 samræmi við þetta hafa risið upp öflug samtök, sem sett hafa sér það mark aö standa vörð um það, sem ekki hafði unnizt timi til eöa farizt fyrir aö eyðileggja, áður en þessi siöustu straumhvörf urðu i hugsunarhætti og verö- mætamati. Bæjum og borgum, þar sem fleira hefur varðveitzt af forn- um svip en annars staðar, er sérstakur sómi sýndur, og þannig var til dæmis smábæ norðarlega á austurströnd Borgundarhólms, Svaneke, veitt alþjóðleg verðlaun nú eitt árið fyrir þaö, hversu þar væru stór og samfelld hverfi, þar sem svipmóti og andblæ gamla timans hefur ekki verið raskað. Svaneke er nokkuö gamall bær. Hann var farinn að myndast á fjórtándu öld, og ef til vill á hann sér eitthvað lengri sögu, þótt ekki séu um það heimildir. Lengi vel var Svaneke raunar aöeins þorp, til dæmis.voru ibúarnir ekki nema 663 árið 1801. Um miðja nitjándu öld flaut ibúatalan yfireittþúsund, en siðan fjölg- aði þeim afarhægt, einnig langt fram eftir þessari öld. Þar var þess vegna ekki mikið um nýbyggingar eða annað brambolt. Menn varðveittu gömlu húsin sin og gömlu grjótgarðana með sama svip- móti og þetta hafði haft um langt skeið. Þetta var ekki nein rikismannabyggö, ekki neinn framfarastaður, og það ereinmittþað, sem komið hef- ur I veg fyrir, að gömlu hverfunum væri rutt burt og fortiöin þurrkuö út. Samt hafa komið þeir timar, að allt var þar lagt i rústir. En þaö er langt siðan. Arið 1610 brann mikill hluti þorpsins, og þegar sá skaði haföi veriö bættur, varð þar mikið tjón i miklum bardögum, sem Sviar og Danir háöu sin á milli. Fallegt þykir I Svaneke og þar I grennd. Hann stendur við og umhverfis þrjár klettahæð- ir, og eru frá þeim lágir hjall- ar niður á ströndina, en sker útifyrir. Þarna eru tvær smá- vfkur, og þar er allgóð höfn eða skipalægi, er orðiö hefur til þess, að þarna reis smábær. Sjálfur er þó bærinn perlan vegna svipmóts sins og sér- kennilegs byggingarlags, sem reynt verður I lengstu lög að varðveita, úr þvi að það stóð af sér allt öldurótiö, sem fariö hefur um löndin á þessari öld, og skaövænlegt hefur reynzt gömlum minjum. Nú er lika svo komið, að einmitt þessi gömlu, sviphýru hverfi eru orðin tekjulind, og það er ekki ónýtt i veröld, þar sem hagnaður og peningar skipa sæti gullkálfsins meðal fylgdarliðs Mósesar i eyði- merkurförinni I helgri skrift. Það svipmót, sem varöveitzt hefur i Svaneke, hefur sem sé oröið til þess að laða þangað sivaxandi fjölda ferðamanna, auk þess sem bærinn hefur þá kosti, að þar eru sólskins- stundir fleiri á sumrin en 1 nokkrum öörum bæ á Borgundarhólmi. Hús og götur i Svaneke bera það að sjálfsögðu meö sér, að þar hefur ekki veriö byggt eft- ir einhverjum strikum, sem dregin hafa verið innan fjög- urra veggja af einhverjum skipulagsfræöingum. Göturn- ar eru bæði krókóttar og óreglulegar, og mörg húsin eru litil og lág. Það er einnig sérkennilegt við göturnar, að margar þeirra eru þaktar sér- stakri tegund malar, I stað malbiks eða annars, sem al- gengast er annars staöar. All- breið gata, Stórgatan, liggur þvert i gegnum bæinn niður að höfninni, en annars eru marg- ar gatnanna harla mjóar, og sumar hafa, að minnsta kosti ekki til skamms tima, borið nein nöfn. Eigi aö siður eru nokkrar byggingar i Svaneke, sem þekktir húsameistarar hafa teiknaö, og eru það, eins og að líkum lætur, opinberar byggingar. Þar eru lika þrir allstórir almenningsgarðar og minnismerki hins kunna mál- fræðings, Madvigs, sem is- lenzkir skólamenn könnuðust mætavel við á einni tið. Fisk- veiðar hafa frá fornu fari ver- iöhelztiatvinnuvegur manna i Svaneke, en þar er einnig stundum fiskvinnsla, og þar eru handverksmenn og stein- höggvarar, og þar er sements- vinnsla. Svaneke er i næsta nágrenni við heimaslóðir eins af frægari rithöfundum Dana. Þaö er Martin Andersen-Nexö. Af bókum hans, sem sumar hverjar hafa verið gefnar út á islenzku og lesnar i útvarp, þekkja Islendingar talsvert til lifsins eins og það var á þess- um slóðum I uppvexti hans undir lok siöustu aldar. En það væri að sjálfsögöu annað fólk og annaö mannlif, sem ís- lendingar hittu fyrir, ef ein- hverjir brygöu sér til Svaneke. En hlutar af bænum eru hinir sömu og þeir voru á æskudög- um skáldsins á þessum slóð- um. Raunar var Svaneke um skeið eins konar keppinautur bæjarins Nexö, eins og gerist um slika grannbæi, með þeim rig, er þar heyrir til.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.