Tíminn - 16.03.1978, Side 8
\ {1\{ n i \{ n
Fimmtudagur 16. marz 1978
Srlce.# .VUr- z.
t- i* 'í*0**^?
Grimseyingar þekkja góuna of vel til þess að kvarta undan hcnni, en undanfarið hefur alls
ekki gefið á sjóinn fyrir netabáta.
Grímsey:
Milljón komin
í sundlaugarsj óð
Gæftir slæmar
FI Það er rysjótt tiðin hjá okkur
nú og gefur illa á sjóinn, sagði
Guðniundur Jónsson fréttaritari
Timans i Grimsey, þegar við töl-
uðum við hann i gær. Guðmundur
sagði fólk ekkert láta það á sig fá,
þótt vika og vika dytti úr á þess-
um tima — allir þekktu góuna of
vel til þess og ekkert þýddi að
kenna henni nýja siði. Tveir
slæmir kaflar hafa hindrað
sjósókn frá Grimsey að undan-
fórnu.
Heilsufarið i eyjunni hefur ver-
ið gott að sögn Guðmundar, að
undanskildum smákvefpestum og
góða loftið og hreyfingin veldur
þvi að menn geta borðað að vild,
þaðsem þeim sýnist, og enginn er
á undanrennukúr svo vitað sé.
Fólk helztlika i Grimsey og flýr
ekki i land, nema þá helzt til þess
að læra að synda, en á þvf mun
verða bót áður en langt um liður,
og um ein milljón króna hefur
þegar safnazt i sundlaugarsjóð.
Sá sjóður var stofnaður til minn-
ingar um litla drenginn, sem
drukknaði i höfninni i Grimsey sl.
sumar og hafa ýmis félagasam-
tök við Eyjafjörð sýnt málinu
góðan skilning. Einnig hafa sjó-
menn brugðizt vel við og lofað
drjúgum skildingi en 15 bátar róa
nú frá Grimsey.
íbúar i Grimsey eru nú nú um
100 og kvað Guðmundur það alveg
bráðnauðsynlegt að fá þribura við
og við, eins og strákana þrjá frá
þvi i fyrrasumar, sem vegnar
prýðilega og eru orðnir stórir og
sterkir. Tiu ibúðarhús hafa
sprottið upp á fáeinum árum i
Grimsey og i uppsiglingu er fisk-
verkunarhús, sem valda mun al-
gjörri byltingu.
Listasprangarar boða ekki oft
komu sina til Grimseyjar á vet-
urna, — eru sjálfsagt óttaslegnir
um að verða innlyksa i lengri
tima, en Grimseyingar fá allt sitt
úr sjónvarpinu, og varpar það
þolanlega á þessum slóðum. Guð-
mundur kvaðst ætla að sjö til átta
litsjónvarpstæki væru nú þegar
komin út i eyju og svart-hvitu
tækjunum spáði hann öllum feigð
að ári.
Hert á vörnum gegn
olíumengun sjávar
GV—„Hinn 20. janúar s.l. gengu i
gildi alþjóðlegar breytingar við
alþjóðasamþykktina frá 1954 um
varnirgegn oliuóhreinkun sjávar.
Island hefur staðfest þessar
breytingar og munu þær öölast
lagagildi hér þegarauglýsing þar
um hefur veriö birt i Stjórnartið-
indum.
1 þessum breytingum er kveðið
mun fastar á en i núgildandi regl-
um um varnir gegn oliuóhreinkun
sjávar, um takmarkanir á losun
oliu í sjó og losun úrgangsoliu frá
skipum i land, þannig að með
framkvæmd ákvæðanna mun
aukast verulega þörf fyrir mót-
tökuaðstöðu fyrir oliu og oliuúr-
gang i landi.” Ofangreint er tekið
úr grein Hjálmars R. Bárðarson-
ar siglingamálastjóra, sem birt-
ast mun i næsta tölublaði
Siglingamála. 1 greininni segir
siglingamálastjóri ennfremur, að
á næstunni verði gerð könnun á
söfnun á oliuúrgangi frá skipum i
höfnum landsins, og einnig hefur
Siglingamálastofnunin haft sam-
band við oliufélög, hafnaryfir-
völd, samtök útgerðaraðila og
skipafélög i landinu tii að kanna
viðhorf þeirra til móttöku oliu og
oliuúrgangs frá skipum i landi.
1 lok greinarinnar segir orð-
rétt: „Ennfremur vill siglinga-
málastjóri koma þvi á framfæri
við skipstjórnarmenn að sam-
kvæmt upplýsingum frá islenzku
oliufélögunum munu þau taka við
úrgangsoliu frá viðskiptavinum
sinum, þegar eftir þvi er leitað.
Vill siglingamálastjóri hvetja
alla viðkomandi til þess að nota
þessa þjónustu eins og þvi verður
við komið og eftir þvi sem þörf
krefur.”
Alþjóðlegur
siglingamáladag-
ur á morgun
GV — Á morgun er Alþjóðlegur
siglingamáladagur og er hann
helgaður Alþjóðasiglingamála-
stofnuninni, sem hefur þau verk-
efni meðal annarra, að vinna að
þeim málum sem varöa öryggi á
sjó, alþjóðlegar siglingar, sam-
skipti þjóðaum flutninga á sjó og
varnir gegn mengun sjávar.
A blaðamannafundi sem
Hjálmar R. Bárðarson siglinga-
málastjóri efndi til af þessu til-
efni, kom fram að þetta er f fyrsta
skipti i sögunni, sem þessa al-
þjóðlega siglingamáladags er
minnzt, þar sem á siðasta þingi
Alþ jóðasi glin gam álastof nunar-
innar, IMCO, sem haldið var f
London 7.-18. nóvember s.l., var
ákveðið að framvegis skyldi dag-
urinn 17. marz ár hvert vera al-
þjóðlegur siglingamáladagur
(World Maritime Day), en þann
dag áriö 1958 tók stofnskrá IMCO
gildi. Nánar verður greint frá
stöfum Alþjóðasiglingamála-
stofnunarinnar i blaðinu á morg-
un.
Kjörnir á mið-
s tj ór narfundi
og flokksþingi
Eins og sagt er frá á forsiðu blaðsins, voru á miðstjórnarfund-
inum i gær allir endurkjörnir i framkvæmdastjórn Framsóknar-
flokksins, blaðstiórn Timans oe einn maður i stiórn Húsbygg-
ingasjóðs. Fara nöfn þeirra hér á eftir.
í framkvæmdastjórn eiga sæti, sjálfkjörnir:
ólafur Jóhannesson, form. flokksins
Einar Agústsson, varaformaður
Magnús Ólafsson, form. S.U.F.
Steingrimur Hermannsson, ritari
Tómas Arnason, gjaldkeri
Kjörnir af miðstjórn:
Eggert Jóhannesson
Erlendur Einarsson
Eysteinn Jónsson
Guðmundur G. Þórarinsson
Hákon Sigurgrimsson
Helgi Bergs
Jónas Jónsson
Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir
Þórarinn Þórarinsson
Varamenn:
Halldór Asgrimsson
Gerður Steinþórsdóttir
Hannes Pálsson
í blaðstjórn Timans voru kjörnir:
Einar Ágústsson
Eysteinn Jónsson
Erlendur Einarsson
Gerður Steinþórsdóttir
Jón Kjartansson
Magnús Bjarnfreðsson
Ólafur Jóhannesson
Pétur Einarsson
Steingrimur Hermannsson.
Varamenn:
Magnús Olafsson
Halldór Ásgrimson
i stjórn Húsbyggingasjóðs:
Steingrimur Hermannsson.
A flokksþingi Framsóknarmanna sl. þriðjudag fór fram kosn-
ing til miðstjórnar, og birtust nöfn aðalmanna i blaðinu i gær.
Talningu atkvæða i ksoningu varamanna i miðstjórn var ekki
lokið þegar blaðið fór i prentun i fyrrakvöld, og var þvi ekki unnt
að birta nöfn þeirra fyrr en nú.
Þessir voru kjörnir varamenn i miðstjórn til næsta flokksþings
Framsóknarmanna:
1. Jónas Jónsson, Reykjavik
2. Björn Axelsson, Höfn i Hornafirði
3. Hafsteinn Þorvaldsson, Selfossi
4. Þorvaldur Jóhannsson, Seyðisfirði
5. Pálina Skarphéðinsdóttir, Gili, Skagafirði
6. Eggert Jóhannesson, Selfossi
7. Arnþrúður Karlsdóttir, Reykjavik
8. Jón Þ. Guðmundsson, Vopnafirði
9. Kristján Friðriksson, Reykjavik
10. Jón Sigurðsson, Kópavogi
11. Þóra Hjaltadóttir, Akureyri
12. Hrafnkell Karlsson, Hrauni, ölfusi
13. Jón Kjartansson, Reykjavik.
14. Jóhanna Karlsdóttir, Akranesi
15. Hilmar Rósmundsson, Vestmannaeyjum
16. Egill Olgeirsson, Húsavik
17. Heiðar Guðbrandsson, Súðavik
18. Geir V. Vilhjálmsson, Reykjavik
19. Friðjón Guðröðarson, Höfn, Hornafirði
20. Olafur Sverrisson, Borgarnesi
21. örlygur Hálfdánarson, Reykjavik
22. Egill Gislason, Súðavik
23. Jónas Gestsson, Ólafsvik
24. Jónas Jónsson, Melum, Hrútafirði
25. Leó Löve, Hafnarfirði.
Keflavikurflugvöllur:
Ratsjárflugvél
gj ör eyðilagðist
í eldsvoða
ESE — Þaö óhapp varð á Kefla-
vikurflugvelli i gærmorgun að
eldur kom upp i ratsjárflugvél frá
Varnarliðinu. Vélin sem var að
búa sig undir flugtak, fuöraði upp
á skömmum tima og var það mik-
il mildi að áhöfnin komst úr vél-
inni heil á húfi, en það mun hafa
verið á siðustu stundu.
Flugvélin, sem var á leið á eft-
irlitsflug var fullhlaðin eldsneyti.
Gjöreyðilagöist hún af völdum
eldsins.
Nú siöar á þessu ári mun vera
von á tveim nýjum ratsjárflug-
vélum til landsins og munu þær
verða af nýjustu og fullkomnustu
tegund. Þeim flugvélum mun
vera ætlaö að leysa hinar gömlu
af hólmi.
Höföingleg gjöf
FI — Heyrnleysingjaskólanum
hefur borizt stórhöfðingleg gjöf
frá félaginu Vinahjálp, en þar er
um að ræða vandaða kvikmynda-
sýningarvél, sem bætir úr brýnni
þörf, og hljómtæki, sem gera það
mögulegt að veita nemendunu
miklu fullkomnari kennslu i takt
og hrynjandi en hægt hefur verð
tuþessa, og meiri heyrnarþjálf un
Að sögn Brands Jónssona:
skólastjóra Heyrnleysingjaskól
ans fylgir gjöfinni tækjasam
stæða sem i eru þráðlaus hljóð
nemasendir, tvö viðtæki, tengi
tæki fyrir „audiolup” og hleðslu
tæki fyrir búnaðinn.