Tíminn - 16.03.1978, Page 9
Fimmtudagur 16. marz 1978
9
„Áfram á sigurbraut”
*
- lokaræða Olafs Jóhannessonar á flokksþinginu
17. flokksþingi Framsóknar-
manna lauk sem kunnugt er
seint á þriðjudagskveldi sl. Var
þingið mjög fjölmennt svo sem
fram hefur komið i fréttum og
einkenndistaf miklum áhuga og
málefnalegri samstöðu.
Eftir að lokið var afgreiðslu
álytkana og annarra málefna
þingsins flutti Ólfur Jóhannes-
son, ráðherra og formaður
Framsóknarflokksins, ræðu og
fjallaði um einkenni og árangur
flokksþingsins og þakkaði
mönnum þátttöku þeirra i störf-
um þess.
I upphafi ræðu sinnar v;ék
Ólafur Jóhannesson fyrst aö
stjórnarsamstarfinu við Sjálf-
stæðisflokkinn. Sagði hann það
eðlilegt að sitt sýndist hverjum
um samvinnu við Sjálfstæðis-
menn, en hann teldi að vinna
yrði eftir málefnum en ekki þvi
einu við hvaða stjórnmálaflokk
væri að eiga.
Ólafur benti á það, að á Is-
landi eru jafnan samsteypu-
stjórnir og allir stjórnmála-
flokkar hafa einhvern tíma
starfað saman i rikisstjórn.
Yrði ekki séð að samstarf við
einn aðila öðrum fremur væri
vænlegast til heilla eða árang-
urs, heldur yrði að skoða slikt i
ljósi málefna hverju sinni.
Ólafur Jóhannesson minntist
á það að stundum vill við bera
að menn óttist samstarf við
Sjálfstæðismenn eins og þeir
væru einhverjir ómótstæðilegir
„bragðarefir”, en þetta er
mesti misskilningur.
„Samkvæmt samþykktum
flokksþingsins ganga Fram-
sóknarmenn óbundnir til næstu
kosninga, en við skulum vera
þess minnug að innan annarra
stjórnmálaflokka i landinu eru
sterk öfl, sem vinna að þvi öll-
um árum að þau geti náð saman
irikisstjórn”, sagði Ólafur. „Ef
svo fer munu margir þeir, sem
nú eru óánægðir, sjá að á tima-
Ólafur Jóhannesson i ræðustóli á flokksþinginu.
bili núverandi rikisstjórnar hef-
ur vissulega verið staðið á verði
i f jölmörgum málum sem miklu
skipta, svo sem t.d. i landbúnað-
armálunum.
*
Alyktanirnar
eru vilja- og
stefnuyfir-
lýsing
ólafur Jóhannesson ræddi
siðan ályktanir þingsins. Að
sönnu væru ályktanir alltaf að
einhverju leyti óskalistar til
framtiðarinnar, „en samþykkt-
ir þessa flokksþings eru þó fyrst
og fremst vilja- og stefnuyfir-
lýsing sem er bindandi fyrir
fulltrúa flokksins i kosningum
og eftir þær, — þótt öllum sé
ljóst að ekki verður unnt að
koma öllu i framkvæmd”. sagði
Olafur. „Þetta flokksþing hefur
afgreitt afar margar og itarleg-
ar samþykktir, og eru sumar
þeirra nýmæli og eiga ef til vill
eftir að lýsa um langa framtið.”
1 siðara hluta ræðu sinnar vék
Tfmamynd Róbert.
Ólafnr að þeim samhug og mál-
efnaanda sem einkenndi þing-
störfin, og sagði hann þá m.a.:
„Þegar ég lit yfir þetta
flokksþing vil ég segja að það
hefur verið ánægjulegt þing,
sannkallað friðarþing. Þvi ber
sérstaklega að fagna að ungt
fólk hefur mjög sett svip sinn á
þingstörfin, og það hefur látiö
meira til sin taka um ályktanir
og samþykktir en oftast áður.
Það hefur einnig komiö fram að
konur sækja fram til jafnréttis i
stjórnmálaþátttöku. Hlutur
kvenna vex, en þátttaka þeirra
og áhrif skipta flokkinn miklu”.
Það þarf mik-
ið starf auk
vissu um góð-
an málstað
Undir lok ræðu sinnar fjallaði
Ólafur Jóhannesson um þær
tvennar kosningar sem nú eru
framundan, um kosningaundir-
búninginn og það mikla starf
sem vinna þarf. Um kosning-
arnar sagði Ólafur m.a.:
„Þar vinnst ekkert fyrir ekki
neitt. Það á enginn að fá neitt á
silfurdiski. Menn verða að vinna
og starfa til trausts fyrir flokk-
inn og þjóðina. Framsóknar-
menn eiga að ganga sigurvissir
fram til baráttunnar. Trúin á
málstaðinn og sigur skiptir máli
i átökum. En trúin ein nægir
ekki. Það þarf starf og mikla
vinnu auk vissu um góöan mál-
stað. Núeiga Framsóknarmenn
að hefja sókn. Þeir eiga aö fara
að öllu með gát, en sækja fram.
Þannig eigum við að hefja starf-
ið. En kosningarnar eru þó aö-
eins orrusta og það þarf að
vinna striðið. Ef menn hafa trú
á málstaðinn munu nýir menn
og fylkingar taka við merkinu
og bera það fram.”
Að siðustu þakkaði Ólafur
fundarstjórum og öörum starfs-
mönnum þingsins og þeim
nefndum, sem störfuðu á þing-
inu, þá miklu vinnu sem innt
hafði verið af hendi. Enn fremur
minntist hann þess mikla undir-
búningsstarfs sem lá til grund-
vallar þinginu. „Siðast en ekki
sizt færi ég öllum þingfulltrúum
þakkir fyrir virka þátttöku i
störfum þingsins og mikinn á-
huga”, sagði Ólafur Jóhannes-
son að lokum.
JS
Um „Gler-
hallir”
JB — Islendingar i Þránheimi
hafa ályktað varðandi fyrirhug-
aðar framkvæmdir á Hótel
Islands planinu. í bréfi sem þeir
hafa samið og sent dagblöðum i
Reykjavik segir:
,,Við lýsum furðu okkar á til-
lögunni um „Glerhöllina” stóruá
Hallærisplaninu. Enn furðulegra
teljum við að slik tillaga hljóti
samþykkt skipulagsnefndar. Aö
iokkar mati gereyðileggst svipur
miðbæjarins, ef af þessum breyt-
ingum verður, og mótmælum viö
þeim harðlega.
Við vonumst til að sjá bæ með
svip Reykjavikur, en ekki há-
hýsaborg, við heimkomu okkar.”
Námskeið
í svæða-
meðferð
„Mundu nafnið þitt”
Sovézk-pólsk kvikmynd frá árinu 1975 „Mundu nafnið þitt!”verður
sýnd i MtR-salnum, Laugavegi 178, n.k. laugardag 18. marz kl. 15.
Mynd þessi er byggð á sannsögulegum atburðum og segir frá vist
sovézkrar konu og ungs sonar hennar i fangabúðum nazista i Aus-
witsch, aðskilnaði þeirra i fangelsinu skömmu fyrir uppgjöf Þjóðverja
og endurfundum tveimur áratugum siðar. Leikstjóri er Sergei
Kolossof, en i hlutverki konunnar er Lúdmila Kassatkina og hefur hún
hlotið verðlaun á kvikmyndahátiðum erlendis fyrir leik sinn i þessu
hlutverki.
Kvikmyndin er i sýnd með enskum skýringartextum. Aðgangur að
sýningunni i MlR-salnum er ókeypis og öllum heimil.
t dag kemur hingað til lands
stjórnandi Naturopatisk Institut i
Þrándheimi, Ilarald Thiis. Mun
hann halda námskeið I svæða-
meðferð, — zoneterapi — og i
þrýstinuddi, — akupressur —.
Tvær bækur hafa komið út á ts-
lenzku uin s væðameðferð, en
þrýstinuddið byggir á svipuðum
hugmyndagrundvelli og og nála-.
stunguaðferðin og er það nær
óþekkt heilsuræktarleið hér á
landi. Hairald Thiis er hér i boði
Rannsóknastofnunar vitundarinn-
ar og v.eitir hún einnig nánari
upplýsingar um námskeiðið.
Aðalfundur
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Staðan i kjaramálum.
3. Lagabreytingar.
4. Fyrirhuguð bygging orlofsheimilis.
5. önnur mál
Stjórnin
Áskorun til fasteignaskattsgreiðenda um
greiðslu fasteignagjalda i Reykjanesum-
dæmi frá SASÍR:
„Hér með er skorað á alla þá sem eigi hafa lokið greiöslu
alls fasteignagjalds innan 30 daga frá birtingu áskorunar
þessarar að ljúka greiðslu. En óskað verður nauðungar-
uppboðs skv. lögum nr. 49/1951 á fasteignum hjá þeim,
sem enn hafa eigi lokiö greiðslu gjaldsins hinn 15. april
n.k.”
Kópavogskaupstaður
Grindavfkurkaupstaður
Hafnahreppur
Vatnsleysustrandar-
hreppur,
Gerðahreppur
Mosfellshreppur,
Kjalarneshreppur,
Keflavíkurkaupstaður
Njarðvikurkaupstaður,
Miðneshreppur,
Bessastaðahreppur,
Seltjarnarneskaupstaður,
Garðabær,
Kjósarhreppur.
BÍLAPARTA-
SALAN
auglýsir
NYKOMNIR VARAHLUTIR I:
Fiat 128 Arg. 'jj
Fiat 850 Sport — '77
Volvo Amason _ 'g^
Land Rover _ 'gy
Volkswagen _ 'g8
BÍLAPARTASALAN
Höfðatúni 10 — Simi 1-13-97