Tíminn - 16.03.1978, Side 19
Fimmtudagur 16. marz 1978
19
flokksstarfið
Framsóknarfélag Akureyrar
Framvegis verður skrifstofan opin á milli kl. 3 og 18 virka dága.
Stuðningsfólk Framsóknarflokksins er hvatt til að lita inn og
kynna sér starfsemina.
Mýrasýsla
Félagsmálanámskeið verður haldið i Snorrabúð Borgarnesi i
marz. Námskeiðið tekur 7 kvöld og verður haldið á þriðjudags-
og föstudagskvöldum. Þátttaka tilkynnist i sima 7297 eða 7198
eftir kl. 20.00.
Framsóknarfélögin i Mýrasýslu.
Framsóknarfélag Sauðárkróks
Næstu mánuði verður skrifstofan i Framsóknarhúsinu opin milli
17 og 18 á laugardögum. Stuðningsfólk Framsóknarflokksins er
hvatt til að lita inn á skrifstofuna. Stjórnin
Akranes
Þeir sem ætla að taka þátt i skoðanakönnun vegna bæjar-
stjórnarkosninga eða vilja koma með ábendingar, hafi samband
við Andrés Ólafsson Kirkjubraut 11, simi 2100, fyrir 19. þ.m.
Kosninganefndin
Kópavogur
Skrifstofa Framsóknarfélaganna að Neðstutröð 4 verður fyrst
um sinn opin mánudaga til föstudaga frá kl. 17.15 til kl. 19.15.
Stjórnir féiaganna.
Grindavík
Áriðandi fundur i Festi -litla sal- fimmtudagskvöld kl. 8,30.
Framáóknarfélag Grindavikur.
Rangæingar!
Þriðja spilakvöld Framsóknarfélags Rangæinga verður föstu-
daginn 17. marz n.k. að Hvoli, og hefst kl. 21. Ræðumaður
kvöldsins verður séra Sváfnir Sveinbjarnarson. Góð verðlaun.
Stjórnin.
Aðalfundur V.-Skaftfellinga
Aðalfundur Framsóknarfélags V-Skaftfellinga verður haldinn i
Vikurskála, þriðjudaginn 21. marz kl. 21.
Venjuleg aðalfundarstörf.
A fundinum mæta alþingismennirnir Jón Helgason og
Þórarinn Sigurjónsson.
Stjórnin
0 Alþingi
Þróunarsjóð 1% gjald af fullunnu,
útfluttu lagmeti, en skv. núgild-
andi lögum er um magngjald á
fullunnið lagmeti að ræða. Þessi
breyting leggur ivið þyngri byrð-
ar á framleiðendur lagmetis til
útflutnings en nú er gert skv. gild-
andi lögum, en með þessum hætti
leggja þeir á sig hliðstæðar álög-
ur og framleiðendur hrognanna.
Að meðaltali þrefaldast hráefni i
verði sem fullunnið lagmeti og er
i þvi 1% gjald á fullunna vöru
hliðstætt 3% gjaldi á hráefni. Þótt
samkeppnisaðstaða framleið-
enda lagmetis til útflutnings sé
mjög erfið um þessar mundir,
hafa þeir samþykkt að leggja á
sig þessar auknu byrðar til þess
að tryggja öflugt starf Þróunar-
sjóðsins i næstu 3 ár.”
þvi að færaákvörðunarvaldið nær
fólkinu. Jafna ber aðstöðu sveit-
arfélaga, efla samtök þeirra, fela
þeim aukin verkefni og veita
þeim tekjustofna i samræmi við
það.
Brýna nauðsyn ber til þess, að
málsmeðferð i stjórnkerfinu
verði gerð fljótvirkari ogum leið
opnari með þvi að veita f jölmiðl-
um og öðrum sem þess óska að-
gang að málsskjölum. Jafnframt
þarf að veita stjórnvöldum meira
aðhald.
Flokksþingið vill að ísland fylgi
sjálfstæðari utanrikisstefnu er
miðist við það að tryggja stjórn-
arfarslegt og efnahagslegt sjálf-
stæði landsins. Sigurinn i land-
helgismálinu ber vitni um ágæti
slikrar stefnu. Halda ber áfram á
sömu braut, ekki aðeins á sviði
hafréttarmála, heldur og á öðrum
sviðum utanrikismála.
Á alþjóðavettvangi skipi Islend
ingarséri þann þjóðahópsem vill
hjálpa þróunarlöndum til
sjálfsbjargar og jafnréttis við
efnaðar þjóðir. Draga þarf úr við-
sjám i heiminum og stuðla að
sáttum og langþráðum friði með
almennri afvopnun og auknum
kynnum milli þjóða eins og gert
er ráð fyrir i Helsinkisáttmálan-
um frá 1975.
Flokksþingið áréttar fyrri
stefnu i öryggis- og varnarmál-
um. Að óbreyttum aðstæðum
verði Islendingar áfram aðilar að
varnarsamtökum vestrænna
þjóða en minnt skal á þann fyrir
vara, sem gerður var af okkar
hálfu er við gerðumst aðilar að
Atlantshafsbandalaginu: Að á
Islandi yrði ekki her á friðartim-
um, að það væri algerlega á valdi
Islendinga hvenær hér væri er-
lendur her og að Islendingar
hefðu ekki eigin her og ætluðu
ekki að setja hann á stofn. Sam-
kvæmt þessu vill Framsóknar-
flokkurinn vinna að þvi að varn-
arliðið hverfi úr landi.
Flokksþingið visar á bug hvers
kyns hugmyndum um að Islend-
ingar geri dvöl varnarliðsins að
féþúfu.
o Ályktun
fara harkalega að þessum flug-
mönnum, þvi þeir væru það góðir
hljoðvarp
Fimmtudagur
16. mars
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
9.15: Guðrún Ásmundsdóttir
heldur áfram að lesa ,,Litla
húsið I Stóru-Skógum” eftir
Láru Ingalls Wilder (13).
Tilkynningar kl. 9.30.
Þingfréttir kl. 9.45. Létt lög
milli atriða. Til umhugsun-
arkl. 10.25: Karl Helgason
stjórnar þætti um áfengis-
mál. Tónleikar kl. 10.40.
Morguntónleikar kl. 11.00:
Hans Deinzer og hljóm-
sveitin Collegium Aureum
leika (án stjórnanda)
Klarinettukonsert i A-dúr
( K 6 2 2 ) e f t i r
Mozart/Ungverska
filharmóniusveitin leikur
Sinfóniu nr. 56 i C-dúr eftir
Haydn, Antal Dorati stjórn-
ar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. A frivaktinni.
Sigrún Sigurðardóttir kynn-
ir óskalög sjómanna.
14.30 Kristni og þjóðlif. Þáttur
i umsjá Guðmundar Einars-
sonar og séra Þorvalds
Karls Helgasonar.
15.00 Miðdegistónleikar.
Tékkneska filharmóniu-
sveitin leikur forleik að
óperunni „Hollendingnum
fljúgandi” eftir Wagner,
Franz Konwitschny stjórn-
ar. Leontyne Rrice og
Placido Domingo syngja
dúetta úr óperunum
„Otello” og „Grimudans-
leiknum” eftir Verdi. Kim
Borg syngur ariur úr óper-
unni „Boris Godunoff” eftir
Mússorgský.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Tónleikar.
17.30 Lagið mitt. Helga Þ.
Stephensen kynnir óskalög
barna innan tólf ára aldurs.
18.10 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál. Gisli Jóns-
son menntaskólakennari
talar.
19.40 tslenskir einsöngvarar
og kórar syngja.
20.10 Leikrit: „Konungsefnin ”
eftir Henrik Ibsen, — fyrri
hluti. Aður útv. á jólum
1967. Þýðandi: Þorsteinn
Gislason. Leikstjóri: Gisli
Halldórsson. Persónur og
leikendur: Hákon
Hákonarson konungur
Birkibeina: Rúrik Haralds-
son, Inga frá Varteigi, móð-
ir hans: Hildur Kalman,
Skúli jarl: Róbert Arnfinns-
son, Ragnhildur.kona hans:
Guðbjörg Þorbjarnardóttir,
Sigriður, systir hans: Helga
Bachmann, Margrét, dóttir
hans: Guðrún Asmunds-
dóttir, Nikulás Arnason
biskup i ósló: Þorsteinn 0.
Stephensen, Dagfinnur
bóndi, stallari Hákonar:
Guðmundur Erlendsson,
Ivar Broddi hirðprestur:
Pétur Einarsson, Végarður
hirðmaður: Klemenz Jóns-
son, Guttormur Ingason:
Erlingur Svavarsson,
Sigurður ribbungur: Jón
Hjartarson, Gregorius
Jónsson, lendur maður:
Baldvin Halldórsson, Páll
Flida, lendur maður: Jón
Aðils, Pétur, ungur prestur:
Sigurður Skúlason, Séra
Vilhjálmur, húskapellán:
Sigurður Hallmarsson,
Sigvarður frá Brabant,
læknir: Jón Júliusson, Þul-
ur: Helgi Skúlason,
22.10 Orgelsónata nr. 4 i e-moll
eftir Johann Sebastian
Bach. Marie-Claire Alain
leikur.
22.20 Lestur Passiusálma.
Anna Maria ögmundsdóttir
nemi i guðfræðideild les 44.
sálm.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.50 Frá Tónlistarhátið i
Hitzacker 1975. Þýskir tón-
listarmenn og
Kammersveitin i Pforzheim
flytja tónverk eftir Mozart
og Hugo Wolf. Stjórnandi:
Gunther Weissenborn.
Guðmundur Gilsson kynnir.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
starfsmenn. Vaéri þetta hreint út-
lendingadekur, þvi þessir sömu
menn hafi getað sagt upp 10
islenzkum flugmönnum á sinum
tima, þegar Flugfélagið og Loft-
leiðir voru sameinuð. Bentu flug-
mennirnir ennfremur á að banda-
riskum og islenzkum flugmönn-
um væri stðrlega mismunað i
launum.
Það sem flugmenn Loftleiða
kjósa nú, er að þeir taki að sér
alla yfirvinnu, sem flugfélögin
hafa þurft að borga þeim banda-
risku fyrir. Telur Félag Loftleiða-
flugmanna sig hafa sýnt stjórn
Flugleiða fram á það með óyggj-
andi rökum, að væru islenzkir
flugmenn fengnir til að annast
Bahama flugið hlytizt af bæði
aukin hagræðing og sparnaður
fyrir félagið, og miklu betri nýt-
ing fengist úr vinnutima þeirra.
—Við höfum tekið að okkur allt
aukaflug, sem komið hefur i sam-
bandi við leiguflug Flugleiða og
oft tekið á okkur heilmikla auka-
vinnu vegna þess, en nú verður
þvi sem sé hætt. Þvi verða Fiug-
leiðir nú að semja við flugmenn
um þau leiguflug sem i hönd fara
og sækja allt til okkar i þvi sam-
bandi, - sagði Þórður.
Þá tók hann það fram, að hags-
munir þeirra og flugfélagsins
færu saman og vildu þeir þvi sjá
aukningu og útþenslu i starfsemi
flugfélaganna. Hins vegar yrðu
þeir að gæta hagsmuna islenzkra
flugmanna gagnvart erlendum og
treysta atvinnuöryggi þeirra.
O Páskaferdir
Samvinnuferðir verða með
ferðir til Kanarieyja og Irlands en
iþeim ferðum verða 250 farþegar.
Einnig taka Samvinnuferðir á
móti 80-100 manna hópi frá
írlandi, sem mun dvelja hér um
páskana.
A vegum Ferðamiðstöðvarinn-
ar verða 180 tslendingar erlendis
um páskahelgina, en Ferðamið-
stöðin er með ferðir til Spánar og
London.
Hjá Flugleiðum fengum við þær
upplýsingar, að um 290 manns
yrðu á vegum félagsins á Kanari-
eyjum i samvinnu við ferðaskrif-
stofurnar Otsýn, Landsýn og Or-
val um páskana. Einnig yrðu 40
manns á skiðum í Austurríki en
þær ferðir nytu sivaxandi vin-
sælda.
Ferðaskrifstofan Orval er með
ferðir um páskana á sdlarstrend-
ur erlendis, en ekki fékkst upp-
gefið i gær hve margir farþegar
færu með Úrvali utan.
Ferðaskrifstofan Landsýn
verður með ferðir til Kanarieyja
og írlands i samvinnu við aðrar
ferðaskrifstofur og Flugleiðir.
Ekki var alveg ljóst i gær hversu
margir farþegar hefðu tekið sér
far með Landsýn um páskana, en
þeir munu verða eitthvað á öðru
hundraðinu.
Auk þeirra ferðalanga sem að
framan eru taldir og taka sér far i
hópferðum með ferðaskrifstofún-
um, fara margir utan á þeirra
vegum einir sins liðs, þannig að
það lætur nærri að a.m.k. 1400 Is-
lendingar verði á erlendri grundu
á vegum ferðaskrifstofanna um
páskana.
I innanlandsfluginu verður að
fara fjölmargar aukaferðir og
lætur nærri að slikar aukaferðir
séu farnar til allra staða sem
Flugfélag Islands flýgur til inn-
anlands. Flestar ferðir verða
farnar til Akureyrar og tsafjarð-
ar, en auk þess verða óvenju-
margar aukaferðir til annarra
staða, og má i þvi sambandi
nefna t.d. Sauðárkrók.
Af framangreindu ætti að vera
ljóst, að landsmenn verða á far-
aldsfæti um páskahelgina, bæði
utanlands og innan.
O Krani sökk
og átti eitt burðarvirkið i linunni á
Grundartanga að vera úti i hólm-
anum f vatninu. Vatnið er á is, og
hugðu menn hann svo traustan,
að hann myndi bera kranann. En
svo var þó ekki, og sökk kraninn i
vatnið, þó ekki á kaf, þar sem það
er grunnt.
Eftir mikið stimabrak tókst að
ná krananum með þremur jarð-
ýtum og spili, og þó ekki fyrr en
tönn hafði brotnað af einni ýtunni.
Burðarvirkið i hólmanum er
enn óreist, þar eð kraninn komst
þangað ekki, og verður sennilega
að gera veg út i hann, ef það á að
komast upp.
VERÐLAUNAGRIPIR
OG FÉLAGSMERKI
Framleiðl alls konar verðlaunagripi og
félagsmerki. Hefi ávallt fyrirliggjandi ýmsar
staerðir verðlaunabikar^ og verðlauna-
peninga einnig styttur fyrir flestar
greinar íþrótta.
Leitið upplýsinga.
Magnús E. Baldvinsson
Laugsvegí 0 - Reykjavík - Sími 22804
O Hekstrarfé
á Þorláksmessu. Þessa tvo
mánuði sem eru liðnir siðan,
hefur rekstrarfé fengizt með
þvi að selja fasteignir fyrir-
tækisins, tæki og annað og af
afurðum frá árinu áður. En nú
er svo komið að það fé er þrot-
ið. Þá sagði Ómar einnig að
þessar 30 milljónir, sem svo
lengi hefur staðið á væru
smápeningar miðað við þann
hagnað sem gæti orðið af
framleiðslu verksmiðjunnar.
jSKIPAUTGCRB RIKISINS
M.s. Hekla
fer frá Reykjavik þriðjudag-
inn 21. þ.m. austur um land til
Seyðisfjarðar og tekur vörur á
eftirtaldar hafnir: Vest-
mannaey jar, Hornafjörð,
Djúpavog, Breiðdalsvik,,
Stöðvarfjörð, Fáskrúðsfjörð,
Reyðarfjörð, Eskifjörð, Nes-
kaupstað og Seyðisfjörð.
Móttaka
alla virka daga nema laugar-
dag til 20 þ.m.
M.s. Esja
fer frá Reykjavik 22. þ.m.
vestur um land i hringferð og
tekur vörur á eftirtaldar hafn-
ir: Isafjrörð, Akureyri, Húsa-
vik, Raufarhöfn, Þórshöfn,
Bakkafjörð, Vopnafjörð,
Borgarfjörð Eystri,
Seyðisfjörð, Mjóafjörð,
Neskaupstað, Eskifjörð,
Reyðarfjörð, Fáskrúðsfjörð,
Stöðvarfjörð, Breiðdalsvik,
Djúpavog og Hornafjörð.
Móttaka
alla virka daga nema
laugardag til 21. þ.m.
M.s. Baldur
fer frá Reykjavik meðviku-
daginn 23. þ.m. til Patreks-
fjarðar og Breiðafjarðahafna.
Vörumóttaka
alla virka daga nema laugar-
daga og aðeins til hádegis
miðvikudag.