Tíminn - 11.04.1978, Side 1

Tíminn - 11.04.1978, Side 1
Síðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavik • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla 86481 • Áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392 VERKAMANNASAMBANDIÐ KLOFIÐ? JB — 1 lok fundar tiu manna nefndar ASI sem haldinn var i gærmorgun, var samþykkt aö beina þvi til aðildarsamtakanna innan Alþýðusambandsins, að þau flýttu athugunum sinum á frekari aðgerðum en þegar hafa verið ákveðnar, Fundurinn i gær var haldinn að ósk Karls Steinars Guðna- sonar, formanns Verkalýðs og Sjómannafélags Keflavikur og nágrennis, i þvi skyni að reyna að samræma viðhorf Suður- nesjamanna og stjórnar Verka- mannasambandsins varðandi útflutningsbannið. Gerði Karl Steinar Guðnason 10 manna nefndinni grein fyrir þeim umræðum, sem farið hafa fram á Suðurnesjum um þátttöku þeirra i aðgerðum Verka- mannasambandsins, en Suður- nesjamenn gerðu eins og menn muna, fyrirvara um hana. Hvað það snertir að samræma viðhorf þessara aðila, varö fundurinn árangurslaus. Suðurnesjamenn hafa ekki enn tekið lokaafstöðu i málinu, en þeir hafa lagt á það áherzlu, að fleiri félög en aðeins aðilda- félög Verkamannasambandsins taki þátt i aðgerðum verkalýðs- hreyfingarinnar. Ríkissjóður: Skuldin við Seðlabankann 21.978 millj. „Skuldir rikissjóðs við Seðla- bankann námu 14.928 milljónum króna i ársbyrjun 1978 og i marz- lok 21.978 milljk króna. Að'auki hækkuðu erlend endurlán Seðla- bankans til rikissjóðs um 2.728 milljónir vegna gengis- uppfærslu”, segir i fréttatilkynn- ingu fjármálaráðuneytisins um afkomu rikissjóös á fyrsta árs- fjórðungi 1978, sem Timanum barst i gær. Þá segir að greiðsluáætlun A-hluta rikissjóðs geri ráð fyrir jöfnuði i rikisfjármálum i árslok 1978. Fjárþörf rikissjóðs er hins vegar breytileg eftir mánuðum þar sem tekjur inn heimtast yfir- leitt siðar á árinu en gjöld falla til. „Fjárþörf rikissjóðs til að brúa slik bil tekna og gjalda var 7.050 milljónir króna i lok fyrsta árs- fjórðungs þessa árs, sem er 635 milljónum króna hærri upphæð en greiðsluáætlun rikissjóðs gerir ráð fyrir. Frávik þetta má fyrst og fremst rekja til greiðslna Rikisábyrgðasjóðs vegna skuldar Rafmagnsveitna rikisins við Landsvirkjun og uppgjörs út- flutningsuppbóta á landbúnaðar- afurðir vegna fyrri ára.” „I greiðsluáætlun rikissjóðs fyrir árið 1978 er gert ráð fyrir lántökuþörf rikissjóðs i Seðla- banka að fjárhæð 7 milljarðar króna vegna reksturs A-hluta stofnana fyrstu sex mánuði þessa árs, en viðlokþriðja ársfjórðungs hafi lántökuþörfin lækkað i 3,6 milljarða króna og jöfnuður hafi náðst i árslok.” Skákþing Islands í kvennaflokki: Guðlaug teflir ekki sst — Skákþing Islands i kvenna- flokki hófst á laugardag og eru sterkustu skákkonurokkarmeðal keppenda að undanskilinni Guðlaugu Þorsteinsdóttur, sem hætti við þátttöku á siðustu stundu. Þátttakendur i Skák- þinginu eru þessir: Ólöf Þráins- dóttir, Birna Norðdahl, Sigurlaug Friðþjófsdóttir Aslaug Kristins- dóttir og Svana Samúelsdóttir. Á laugardag voru tefldar þrjár skákirog urðu úrslit þessi: Ólöf — Sigurlaug 1/2-1/2, Birna — Svana 1/2-1 /2 og Sigurlaug — Svana 1/2-1/2. I gærkvöldi tefldu þær saman Svana og Aslaug og Birna og Sigurlaug, en ekki er kunnugt um úrslit. Keppni i kvennaflokki lýk- ur á föstudag. Eldur í húsi áföstu Ásgrímssafni 1 ' * ’ Á Lækjartorgi Gamli söluturninn er nú aftur koininn i sitt lyiTa.uniliverfi ogsetur á ný svip sinn á miðborg It ev kjavikur. ESE — Snemma i gærmorgun kviknaði i rúmdýnu i kjallaraher- bergi að Bergstaðastræti 74a, en það hús er samfast Asgrimssafni. Það var eigandi hússins, sem gerði slökkviliðinu viðvart um það, að reykur kæmi úr læstu herbergi, en herbergið leigir hús- eigandinn út og er leigjandinn enginn annar en hinn landsfrægi Megas. Þegar eftir að slökkviliðið kom á vettvang var hurð herbergisins brotinuppog reynd- ist leigjandinn vera sofandi, en smá eldur var i rúmdýnu og sængurfötum. Var maðurinn þeg- ar fluttur á slysadeild, en hann mun ekki hafa sakað. Nokkrar skemmdir urðu á herbergi og innanstokksmunum, og þá aöal- lega af völdum reyks. Eins og áður segir er Asgrimssafn í sambyggðu húsiog vorulistaverk geymd i aðliggjandi kjallara- herbergi, ekki allfjarri elds- upptökum. Reykskynjarar, sem eru i safninu, gáfu þó ekki frá sér viövörunarmerki, en öllum má vera ljóst, að ef mikill eldur kemur þarna upp, er listaverkun- um i safninu bráð hætta búin. Einn af hugmyndafræöingum Alþýðubandalagsins gefur tóninn: .Samstjórn stéttanna’ — „en engu spáð um það hvernig kaupin gerast á eyrinni” „Samstjórn stéttanna — eins konar ný ogbreytt nýsköpunar- stjórn — væru stórpólitisk tið- indi. hún hefði forsendur til að geta stjórnað landinu án þess að til alvarlegra stéttaátaka kæmi,” segir Þröstur ólafsson hagfræðingur og Alþýðubanda- lagsforsprakki i grein i nýju hefti Timarits Máls og menn- ingar, og mun mörgum þykja mikið öl um vongleði hans og bjartsýni um samstarf við Sjálf- stæðisflokkinn að loknum kosn- ingum. 1 grein sinni fjallar Þröstur Ólafsson um ástand stjórnmála og efnahagsmála og kemst að þeirri niðurstöðu að Alþýðu- bandalaginu sé vænlegast að leita eftir samstarfi við Sjálf- stæðismenn að loknum kosning- um riú i vor. Að vonum notar Þröstur uppskrúfað marxista- tungutak og segir: Verkalýsstéttin stendur þannig frammi fyrir tveimur valkostum: Annars vegar að standa utan við allar stjórnir... Hins vegar að mynda nýja sam- stjórn stéttanna sem semdi frið meðan verið væri að koma á jafnvægi.” Eins og kunnugt er hafa for- ráðamenn Alþýðubndalagsins mikinn hug á þvi að komast i náið samstarf við Sjálfstæðis- menn að loknum Alþingiskosn- ingum nú i vor. og hafa þó fáir þeirra kveðið svo skyrt að orði sem Þröstur ólafsson gerir i þessari grein sinni. Er það eftirtektarvert að grein þessi skuli birt nú.einmitt þegar framboðshrvöjunumerað Ijúka og flokksbræður Þiastar búast til að setja saman kosn- ingaloforð sin. Verður að lita svo á að greinin sé framlag Þrastar til þess bræðings. Af raunsæi sinu viðurkennir Þröstur Ólafsson að ýmislegt geti slæðzt i veg fvrir hið ákjós- anlegasta „nýsköpunarsam- starf" eða „samstjórn stétt- anna”. eitis og hann kallar stéttasamvinnustjornsina. I lok greinar sinnar segir hann þvi hin spámannlegu orð: ..Hér verður engu spáð um það hvernig kaupitt gerast á eyrinni að loknum kosningum. en verkalýðshreyfingin" — þ.e.a.s. flokkurinn — „verður að athuga vel sinn gang og grann- skoða þau skilyrði sem hún set- ur fyrir þátttöku sinni i nýrri rikisstjórn." Mikið skal sem sé til mikils vinna. og varast of mikla kröfu- gerð um stefnumálin.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.