Tíminn - 09.06.1978, Qupperneq 3

Tíminn - 09.06.1978, Qupperneq 3
Föstudagur 9. júni 1978 iUÍ.fiil 3 Rætt við þjóðminjavörð um störf á vegum safnsins i sumar Vopnfirzk verzlunarhús reist í Árbæjartúni Á sama tíma að ári —á Vestf jörðum Leikflokkur Þjóöleikhússins hefur nú sýnt bandariska gamanleikinn Á sama tima aö ári yfir 70 sinnum á ferö sinni um landiö. Á föstudaginn veröur lagt af staö i siöasta áfanga leikferöarinnar og far- iö til Vestfjaröa þar sem sýnt verðurtil 19. júni. Þaö eru.þau Bessi Bjarnason og Margrét Guömundsdóttir sem fara meö hlutverkin tvö i sýning- unni en leikstjóri er GIsli Al- freösson. Sýningarnar veröa sem hér segir: Laugard. 10. júni: Búöardal, sunnud. 11. júni: Króksfjaröarnesi, mánud. 12. júni: Patreksfiröi, þriðjud. 13. júni: Bildudal, miðvikud. 14. júni: Þingeyri, fimmtud. 15. júni: Flateyri, föstud. 16. júni: Bolungarvik, laugard. 17. júni Suöureyri, sunnud. 18. júni: Hnifsdalur, mánud. 19. júni: Hnifsdalur. AM—í gær ræddi blað- ið við Þór Magnússon, þjóðminja vörð, og spurði hvaða fyrirætl- anir safnið hefði varð- andi rannsóknir og varðveizlu á fornminj- um i sumar. Þjóðminjavöröur sagöi, aö á þessu sumri væri ætlunin aö grafiöyrði einkum á tveim stöð- um, en þeir eru Hrafnseyri i Arnarfirði og Stóra Borg undir Eyjafjöllum. Hér er um viða- mikil verkefni aö ræða, sem lik- ur eru á að muni endast forn- leifafræöingum sem viðfangs- efni næstu árin. Á Hrafnseyri verður haldiö áfram við uppgröft frá siðasta sumri, en þar er um rústir frá söguöld eða frá lokum vikinga- aldar að ræða. Þarna hefur þeg- ar verið grafinn upp skáli og tvö hús að auki, en i sumar mun og ráðizt i uppgröft rústa fleiri húsa, sem á staönum eru. Ef til vill verða og hafnar rannsóknir á svonefndu Hrafnsnausti, sem er fornt naust, og kennt við Sturlungaaldarhetjuna Hrafn Sveinbjarnarson eins og staður- iiin sjálfur, þótt ekki sé hægt að ábyrgjast að kempan hafi sjálf lagt skipum sinum til nausta einmitt þarna. Þór Magnússon sagði, að fátt muna hefði fundizt við þennan uppgröft á Hrafns- eyri og þvi færra sem kalla mætti merkt. Guðmundur ÓlafSson, fornleifafræðingur, mun hafa yfirumsjón með þessu verki. Fornminjum forðað undan sjógangi Að Stóru Borg er um að ræöa Grafið á Hrafnseyri og að Stóru Borg bæjarrústir frá miðöldum og fram til 1840, en þá var bærinn fluttur á þann staö, sem hann stendur nú á. Þessar minjar hafa verið i hættu vegna ágangs sjávar og veðra og hafa ýmsir búshlutir komið i ljós, þar sem sjór hefur skolað burt jarðveg- inum. Margt þessara muna hef- ur Þórður Tómasson i Skógum tekið i sina umsjá. Uppgreftrin- um að Skógum stjórnar Mjöll Snæsdóttir, fornleifafræðingur. Gengið frá gólf- og hitalögn i Viðeyjar- stofu Senn mun haldið áfram viö- gerð á Viðeyjarstofu, og sagði þjóðminjavörður að i sumar væri ætlunin að leggja i húsið gólflögn og hitalögn, en ekki væri þar með sagt að hiti kæm- ist í húsið að sinni. Aö viðgerö- um á þaki var unnið i fyrra og hittiðfyrra og mætti segja að frágangi hússins að utan væri lokið, að útihurð frátalinni. Rétt er að minna hér á til fróðleiks þeim, sem ekki kynnu að vita það, eða hefðu gleymt þvi, að Viöeyjarstofa var reist árin 1752-4 afSkúla Magnússyni eftir teikningu danska arki- tektsins Nikolaj Egtved, sem reisti margar þekktar bygging- ar i Danmörku, þar á meðal sjálfa Amalienborg. Kvernhús og kjöthús i Árbæjarsafn t sumar er ætlunin að dyttað Þór Magnússon verði að bæjarhúsunum að Laufási við Eyjafjörð og að Glaumbæ i Skagafirði, en þessi gömlu hús þurfa árvekni og al- úðar við, svo þau geti staðizt tönn timans svo vel, sem ætlazt hlýtur að verða til. Þá er ætlunin aö neðst i túni Arbæjarsafns, verði endurreist tvö gömul verzlunarhús frá Vopnafirði. Þessi hús munu verabyggð-á timabilinu 1840-60 og þótti sýnt að ekki væri um annað að ræða, en að endur- byggja þau i Reykjavik, ættu þau ekki- að eyðileggjast alveg. Hiö stærra þessara húsa bar á sinni tið nafnið Beykishús eða Kvernhús, en minna húsið var kallað Kjöthús eða Ullarhús. Striðsminjar og her- virki Núer nógu langt um liðið frá styrjaldarlokum til þess, að ýmsum hefur þótt vert að fara aö huga að einu og ööru sem minnir á umsvif enskra og amerískra herja á þeim árum, en flest af þessu hefur nú verið rifið eða er á góðri leiö meö að samlagast sandi og mosa, eöa er horfið undir gras, sem „grær yfir allt’ ’,eins og Carl Sandburg komst að oröi i ljóðinu. Þjóðminjavörður sagöi að engar ákvarðanir hefðu enn verið teknar i þessu efni, en þó hefði heyrzt minnzt á Hvitanes i Hvalfirði og hervirkin i öskju- hlið. Hann taldi að i Hvitanesi yrði mjög kostnaðarsamt að koma þessum minjum til fyrra horfs, en hvað öskjuhlið snerti væru likur á að hún yrði að ein- hverju leyti friðuð og varla mik- illa breytinga að vænta þar, svo ef til ví 11 mætti hugsa sér, að hinn gamli viðbúnaður þar gæti varðveizt. Annars væri eina áþreifanlega framtakið i þessa átt, enn sem komiö er, braggi einn, sem Arbæjarsafn hefur komizt yfir, en af-uppsetningu hans hefur ekki orðið enn. Keflavíkurganga GEK — Herstöðvaandstæðingar efna til Keflavikurgöngu næstkomandi laugardag 10. júni. Fyrirhugað er að gangan veröi með svipuðu sniði og sú sem farin var árið 1976. Lagt verðurafstaðfrá aðalhliði Keflavikurflugvallar um klukkan 8:30 að laugardagsmorgni og gengið sem leiö liggur til Reykja- vikur og lýkur göngunni með fundi á Lækjartorgi, þar sem haldin verður stutt ræða og ávarp miðnefndar herstöðvaandstæö- inga flutt. A leið göngunnar verður áð við Vogastapa, i Kúagerði, Straumi, Hafnarfiröi og Kópavogi, og verður sitthvað til skemmtunar á þessum stöðum. 1 fréttatiikynningu, sem Samtök herstöðvaandstæðinga hafa sent fra sér vegna göngunn- ar, segir meðal annars: „Nú eiga sér stað i landinu átök milli rikisstjórnar atvinnurek- endavaldsins og launafólks. Er þar tekizt á um það hvort rikisstjórnin eigi aö komast upp með aö skammta laun og reka með þvi grófustu arðránsstefnu sem nokkur rikiss'tjórn getur gert sig seká um.” Siðan segiri tilkynningunni aði nýsettum lögum rikisstjðrnarinn- ar sé freklega gengið á gerða kjarasamninga, og að launafólki sé ætlað að vúina kauplaust 5-6 vikur á ári. Telja Samtök her- stöðvaandstæðinga aö lögin séu gott dæmi um efnahagsráð- stafanir i þvi hagkerfi auðvalds- ins sem hernum sé ætlað aö standa vörð um. 1 lok tilkynningar Herstöðva- andstæðinga segir siðan orðrétt: „Samtök herstöðvaandstæðinga heita þvi á allt launafólk og aðra sanna tslendinga, aö vinna að þvi með oddi og egg að Island segi upp herverndarsamningnum við Bandariki Norður-Ameriku og aðildinni að Nató.” ,Það grær sem girt er’ BEKAERT GIRÐINGAREFNI Byggingavörur Sambandsins Suðurlandsbraut 32 • Simar 82033 ■ 82180

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.