Tíminn - 09.06.1978, Blaðsíða 24

Tíminn - 09.06.1978, Blaðsíða 24
Sýrð eik er sígild eign A A IIMjR TRÉSMIDJAN MEIDUR SÍÐUMÚLA 30 ■ SÍMI: 86822 N Gagnkvæmt tryggingafélag % Föstudagur 9. júní 1978 120. tölublað —62. árgangur QISTING MORQUNVERDUR ^__.. Yij'f ll - * 1 raudarárstIg llPEITl ÍL SÍMI Itzhak Perlman I anddyri Hótel Sögu i gær. „Hefekki áður leik- ið undir stjórn Ashk- enazys” segir Itzhak Perlman fiðluleikari FI — Einn af beztu flðiuleikur. um í heimi Itzhak Perlman kom til landsins i gær i tilefni Listahátiðar og ætlar hann að leika i kvöld i Laugardalshöll ásamt Sinfóniuhljómsveit islands, perlu allra fiðlukon- serta, — svo aö notuð séu orð hans sjálfs, Fiðlukonsert i e-moll op 64 eftir Mendels- sohn. Perlman sagði eftir æfingu i Laugardalshöll I gær, aö sér litist vel á allar aðstæð- ur. Þetta er i þriðja skipti sem hann kemur til islands, en i fyrsta sinn sem hann leikur undir stjórn vinar sins til langs tima, Vladimirs Ash- kenazy. Perlman varö fyrst heims- frægur, þegar hann hlaut hin eftirsóttu Leventrittverðlaun i Bandarikjunum árið 1964, þá 18 ára að aldri, en fiðluleik hafði hann stundað frá þvi að hann var barn. Hann var al- vanur að koma fram opinber- lega, þegar hann var aðeins 10 ára og 13 ára liggur leið hans til Bandarikjanna, þar sem hann siöar ilengdist. Hann segist aöeins eiga góðar minn- ingar frá þessum fyrstu árum álistabrautinni. „Það er fyrst nú, sem þaö er erfitt aö vera til, þegar lifiö er skipulagt mörg ár fram i timann. Já, þaö er visst ófrelsi i lista- mannslifinu eftir allt”. Perlman segist anda léttar á Islandi og gefur Reykjavik sérstaklega góöa einkunn. Hann saknaöi þess mest að hafa orðið aö skilja eiginkon- una eftir i New York vegna veikinda, en bjóst við aö hitta hana ásamt börnum þeirra þremur i Tel Aviv, en þangað er förinni heitiö strax á laugardaginn. I Tel Aviv biöur hljómleikahald með israelsku sinfóniunni. Einleikari meö Sinfóniu- hljómsveit íslands i kvöld fyrir utan Perlman er banda- riski sellóleikarinn Lynn Harrel. Breytingar á mataræði landsmanna síðustu 40 árin Neysla á brauði og fiski hefur minnkað, en aukist á og gosdrykkj um SJ — Hefðbundinskipan máltiöa hefur mjög riðlazt á heimilum miðað við fyrri tið, og er viöa mikU óregla á þessum málum. Neyzla mjólkur og mjólkuraf- urða hefur aukizt um þriöjung frá 1938 og flskneyzla er aðeins þriðjungur af þvi sem þá var. Utan heimilis hefur neyzla auk- izt, en þar er aðallega um að ræða ýmiskonar gosdrykki og sælgæti. Þessar eru nokkrar af helztu niðurstööum neyzlukönnunar i nokkrum barna og unglinga- skólum Reykjavikur, sem gerö var á vegum Manneldisráðs sl. vetur. Eftir eraö ljtika við hlið- stæðar mataræöisrannsóknir úr fleiri skólum, m.a. utan Reykja- vikur. Fyrsta tirvinnsla tir rann- sóknunum gefur til kynna Iskyggilega lágt gildi járns, A- og D-vitamina i dagfæðinu. Þetta eruallt efni sem likaminn getur safnaö forða af til langs tima, oger þvi rétt að taka þess- ar niðurstöður meö nokkrum fyrirvara. Þó má segja aö neyzla spendýralifrar og sildar við og við auk sláturs ætti að veragóðtrygging. Þaðmáheld- ur ekki vanrækja árstiðar- bundnar fæðutegundir, svo sem fisklifur og hrogn annarsvegar og grænmeti svo sem grænkál o.fl. meöan fæst. Loks verður aö telja að B1 sé I algjöru lág- marki. Þá er rétt að benda á aö aukin notkun heilkorns gæti bætt úr B-vitamín skorti og járnskorti aö miklu leyti. Brauöneyzla hefur farið minnkandi og neyzla grauta minnkaö mikiö, en i staðinn hefur komiö ýmisskonar tilbtiið „morgunkorn”, sem telja veröur afturför. Kjötneyzla hefur aukizt um helming á siðustu 40 árum. Grænmetisneyzla er svipuö, en hlutur kartafla hefur minnkað. Neyzla ávaxta var nær engin fyrir strið og C vitamin þvi i lágmarki, nti hefur C vitamin i dagsfæði fjórfaldazt. Aður voru gerðar rannsóknir á mataræði Islendinga árin 1938—39 — neyzlukönnun I skólum og fjölskyldukönnun. Þessar rannsóknir voru einnig á vegum Manneldisráðs. Það var mikil mildi að ekki skyldu verða slys á mönnum, en hér sést hvar bifreiðin endaöi ferðina á stofuglugganum að Lundarbrekku 8. Tímamynd Róbert. BÍLL INN UM STOFUGLUGGA GEK — Það var mikil mildi að ekki skyldi verða stórslys þegar mannlaus fólksbifreið rann af stað i brekku i Kópavogi um klukkan 7:30 á miðvikudags- kvöldið. Bifreiðin endaði ferð sina á stofuglugga kjallaraibtiðar að Lundarbrekku 8, eftir að hafa runnið stjórnlaust i gegnum tré- girðingu sem umlykur htisið. — Mér brá óneitanlega i brtin, þegar glerbrot og flisar þeyttust yfir mig þar sem ég sat inni i stofu og var aö horfa á ensku knattspyrnuna i sjónvarpinu, — sagði Agnar Már Sigurðsson, eig- andi kjallaraibUöarinnar, i sam- tali við Timann i gær. Sagði Agnar, að þaö heföi verið mikil mildi, aö kona hans var ný gengin Ut Ur stofunni ásamt barni þeirra hjóna, þegar óhappið varð, en sjálfur slapp hann ómeiddur, enda sat hann gegnt glugganum sem bifreiðin braut. Ennfremur sagði hann, að það hefði verið einskær heppni að enginn varö fyrir bilnum, en börn eru oft að leika sér i brekkunni fyrir utan htisið. — Annars er þetta ekki i fyrsta skipti, sem svona nokkuð kemur fyrir, — sagði Agnar — þvi strax daginn eftir aö við fluttum inn i i- búðina, fengum við barn, sem haföi verið að renna sér á fleka i brekkunni, inn um svefnherberg- isgluggann og upp i rtimið okkar!- — Ég vona bara að þessu sé hér meö lokið, — sagöi Agnar að lok- um, og geta vist allir tekið undir þau orð. Það var mikil mildi að ekki skyldu veröa slys á mönnum, en hér sést hvar bifreiðin endaði ferðina á stofuglgganum að Lundarbrekku 8 Timamynd Róbert Beiðni V-list- ans hafnað GEK — í gærmorgun Urskuröaði Þorsteinn Thorarensen borgarfó- geti lögbannsbeiðni V-listans i Rey kjaneskjördæmi. Var Urskurður hans, á þann veg, að ekki bæri að taka kröfu þeirra til greina. Aðstandendur V-listans gerðu þá kröfu að lagt yrði lögbann við framboðsþáttum sem fyrirhugað- ir voru i sjónvarpinu á næstu dög- um og vikum, en i þeim þáttum er aöeins gert ráð fyrir þátttöku þeirra lista sem fulltrUa eiga á Alþingi. I fréttatilkynningu sem Eining- arsamtök kommUnista—ml hafa sent frá sér er þeirri ákvörðun Ut- varpsráðs að takmarka tima þeirra flokka og samtaka sem ekki bjóða sig fram i öllumkjör- dæmum harðlega mótmælt. Hvetja Einingarsamtökin ein- staklinga og samtök til að berjast gegn þessari ákvörðun. Urskurðaðir í gæzluvarðhald GEK —Siðdegis i gær kvað saka- dómur Reykjavikur upp tæplega tveggja mánaða gæzluvarðhalds- tirskurð yfir tveimur 16 ára göml- um piltum. Auk gæzluvarðhalds- ins var piltunum gert að sæta geðrannsókn. Piltarnir sem báðir eiga að baki litríkan afbrotaferil voru hand- teknir siðast liðinn miövikudag vegna rannsóknar á árás, sem gerö var á næturvörð Hrafnistu dvalarheimilis aldraðra sjó-’ manna. Piltarnir játuðu fljótlega aö hafa ráöizt á næturvörðinn sem er karlmaður 66 ára að aldri, barið hann með tréhnúðum af fána- stöngum og skilið hann eftir i blóði sinu. Piltarnir tveir eiga til samans 26 afbrotamál aö baki, sem öll eru framin á þessu og siðasta ári. Islandskynning í Bandaríkjunum 50 -60.000 treflar í verðlaun í söluherferð fyrir sápulög? SJ — 1 ráði er að Pðlarprjón á Blönduósi framleiði á næstunni 50-60.000 Islenzka ullartrefla fyrir bandariskt fyrirtæki, 'sem framleiðir ullarsápulögin Wool- ite. Að sögn Zophoniasar Zoph- oniassonar framkvæmdastjóra Pólarprjóns h.f. hefur þó enn ekki verið gengið frá samning- um um málið. Woolite fyrirtæk- iö mun ætla að nota treflana sem e.k. happdrættisvinning eða verðláun i sambandi við söluherferö á sápuleginum, sem fara á fram i sumar. Btiast má við að þetta geti orðið ein stórkostlegasta kynning á is- lenzkri ullarvöru og íslandi, sem farið hefur fram 1 Banda- rikjunum. Islenzkir ullarvöru- framleiðendur binda vonir viö væntanlega söluherferð, Ullar- iðnaðurinn sem 1500 manns starfa við.á nU i erfiðleikum m.a. vegna erlendrar sam- keppni og þess að heildarstefna hefur ekki veriö mörkuð fyrir islenzkan ullariönað.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.