Tíminn - 10.06.1978, Blaðsíða 1
Slðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavik • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 ; Kvöldsímar 86387 & 86392
( Aðalmál kosninganna: )
Á að greiða fullar verð-
lagsbætur á hæstu laun?
Það kemur nú stöðugt
gleggra og gleggra í Ijós,
hvert verður höfuðmál
kosningabaráttunnar og
kjósendur dæma um fyrst
og fremst við kjörborðin
25. júní.
Stjórnarandstæðingar,
Alþýðubandalagið, Al-
þýðuflokkurinn og Sam-
tökin, hafa fengið því á-
gengt með áróðri sínum,
að kaupgja Idsmá lin
munu verða aðalmál
kosninganna. Eftir að
efnahagsaðgerðir ríkis-
stjórnarinnar hafa verið
lagfærðar með bráða-
birgðalögunum og lág-
launafólk hefur fengið
fullar verðlagsuppbætur,
stendur ekki eftir nema
eitt meiriháttar deilu-
atriði, því að auðvelt á að
vera að ná samkomulagi
um eftirvinnukaupið.
Atriðið sem deilan snýst
nú fyrst og f remst um, er
það, hvort fullar verð-
lagsbætur skuli greiddar
á öll laun eða aðeins lægri
launin.
Samkvæmt efnahags-
löggjöf ríkisstjórnarinn-
ar fá þeir, sem hafa lægri
laun, fullar verðlagsbæt-
ur, en hinir, sem hafa
hærri laun, aðeins hálfar.
Samkvæmt því, sem
stjórnarandstæðingar
beita sér fyrir, fá allir
fullar verðlagsbætur.
Eftirfarandi dæmi
skýrir þetta nánar.
Verkamaður, sem hefur
120 þús. króna mánaðar-
laun, fær fullar verðlags-
bætur samkvæmt efna-
hagslögunum, eins og þau
eru nú. Forstjóri, sem
hefur 360 þús. króna
mánaðarlaun, fær hins
vegar hálfar verðlags-
bætur. Ef full verðlags-
Benedikt Gröndal
uppbót væri t.d. 10%,
myndi verkamaðurinn fá
12 þús. i verðlagsbætur á
mánuði eða 144 þús. krón-
ur yfir árið. Forstjórinn
fær aðeins helminginn af
Lúövik Jósefsson
verðlagsuppbótinni, þ.e.
5%. Hann fær samkvæmt
þvi 18 þús. kr. á mánuði
eða 216 þús. krónur yfir
árið. Fengi hann fullar
verðlagsbætur, eins og
stjórnarandstæðingar
hafa gert að höfuðmáli
sinu, myndi hann fá 36
þús. krónur á mánuði eða
432 þús. krónur yfir árið.
Hann fengi m.ö.o. þrefalt
meiri verðlagsbætur en
verkamaðurinn.
Sú afstaða ríkisstjórn-
arinnar að draga úr verð-
lagsbótum til hinna hærra
launuðu, er gerð með
tvennt fyrir augum. I
fyrsta lagi er stefnt að
því að draga nokkuð úr
verðbólguhraðanum og
treysta þannig atvinnu-
öryggið. I öðru lagi er
stefnt að því að fá meira
til skiptanna fyrir lág-
launafólkið.
Ef stjórnarandstæðing-
um tekst með blekkingum
sínum að efla fylgi sitt og
knýja fram fullar verð-
lagsbætur fyrir alla, mun
Framhald á bls. 19.
Nýr meiri-
hluti i
Borgar-
nesi
A hreppsnefndarfundi í Borgar-
nesi i gær var ákveðið að nýjan
meirihluta i hreppsnefnd myndi
Framsóknarflokkur og Sjálf-
stæðisflokkur. Oddviti var kjör-
inn Guðmundur Ingimarsson og
örnSimonarsontil vara. Húnbogi
Þorsteinsson var kjörinn sveitar-
stjóri.
r
Vita krat-
arnir ekki
hve hár
ellilifeyr-
irinn er?
Ekki kunna kratarnir sér
hófþegar þeir veltast um af
sjálfsánægju yfir gengi
fiokksins á siðustu mánuð-
um. Ekki verður þess vart að
þeir hafi hugleitt það að
„illur fengur illa forgengur”,
en eins og alþjóð er kunnugt
tókst þeim fyrst að vekja at-
hygli á sér með ósanninda-
vaðli og rógi um ábyrga og
framsýna stjórnmálamenn.
Það má hins vegar segja
að næsta langt sé gengið þeg-
ar einn af fulltrúum þeirra I
sjónvarpskynningu, Jóhanna
Sigurðardóttir, telur sæma
að tala um ellilif eyris-
greiðslur, eins og þær séu
miklu lægri cn þær eru I raun
og veru. Ekki ber það vitni
mikilli þekkingu að ætla sér
að bjóða fólki upp á beinar
rangfærslur um hluti sem
það sjálft þekkir.
------- J
Miðbæjarskólinn er ein þeirra bygginga, sem setur sérstakan og þægi-
legan svip á hverfin, sem liggja að Tjörninni. Hann hefur verið kiæddur
nýju bárujárni, eina byggingarefninu, sem dugar á tslandi, og hér er
smiður að ganga frá niöurfallinu, þvi hver býst ekki við slagviðri f
Reykjavik?
Áhyggjur í Alþýðubandalaginu:
Svíkur foryst-
an til að
komast upp í
hjá íhaldinu?
Forysta Alþýðubandalagsins
hefur að undanförnu lagt á það
sérstakt kapp að ryðja ilr vegi öll-
um „hindrunum”,semgætu orðið
til þess að girða með öllu fyrir
s t j ó r n a r s a m s t a r f við
Sjálfstæðisflokkinn að kosningum
loknum. Sást þetta m.a. með um-
mælum gömlu kempunnar,
Einars Olgeirssonar, i blöðum
eftir bæjarstjórnakosningarnar á
dögunum.
Sjálfstæðismenn hafa marg-
sinnis lýst þvi, að afstaða Alþýðu-
bandalagsins til utanrikis- og
varnamála stæði einkum I vegi
fýrir samstarfi þessara flokka,
sem fyrir vikið hafa hingað til
kosið sér hvor annan að
„uppáhaldsó vini ”.
Nú hefur forysta Alþýðubanda-
lagsins á undanförnum mánuðum
lagt á það ofurkapp að sýna fram
á að flokkurinn muni ekki gera
þessi efni aö neinu skilyrði fyrir
stjórnarþátttöku.
Þetta hefur mælzt misjafnlega
vel fyrir i herbúðum Alþýðu-
bandalagsmanna svo sem við var
að búast, enda þótt slikt hafi
náttúrulega ekki minnstu áhrif á
foringjana, Lúðvik og kompani.
1 Þjóöviljanum f gær birtist
merkileg grein um þessi efni eftir
Arna Björnsson þjóðhátta-
fræðing. Arni er orðinn hræddur
um að flokkur hans ætli sér að
vikja ,,af vegi” i þessum málum.
Arni hefur ekki mikla trú á
efnahagsúrræðum Alþýðubanda-
lagsins. Hann segir:
„Hið eina umtalsverða sem
Alþýðubandalagið gæti afrekaö i
efnahagsmálum með stjórnar-
þátttöku nú, værifrestun á innrás
erlends auðmagns I tengslum við
stóriöjuframkvæmdir.”
Hann hefur sem sé, og rétti-
lega, ekki mikiö fyrir hástemmd-
ar yfirlýsingar foringjanna um
„islenzka” efnahags og atvinnu-
málastefnu.
Arni Björnsson telur að foringj-
ar Alþýðubandalagsins séu i svo
litlum tengslum við hinn almenna
flokksmann að þeir viti ekki
hvað hann hugsar:
„Það er ofurskiljanlegt að
forystu Alþýðubandalagsins sé
ekki vel ljóst hversu skeleggir
kjósendur þess eru i herstööva-
málinu.”
Og hann álitur að það sé
sérstaklega nauðsynlegt að menn
fjölmenni i Keflavikurgönguna til
þess að sýna Alþýöubandalaginu
svart á hvitu hvern hug menn
bera til herstöðvamálsins En
Arni varar áérstaklega við þvi
hver áhrif það hefði ef þátttaka i
göngunni verður litil:
„Ef viðhins vegarsýnum þetta
ekki þá getum við sjálfum okkur
kennt ef Alþýðubandalagið „svik-
ur” i herstöövamálinu”.