Tíminn - 10.06.1978, Blaðsíða 3

Tíminn - 10.06.1978, Blaðsíða 3
Laugardagur 10. júnf 1978 3 afkoma sjávar- afurða- deildar SÍS 1977 Aöalfundur Félags Sambands fiskframleiðenda (SAFF) var haldinn i Reykjavik fyrir skömmu. 1 skýrslu Sigurðar Markússonar, framkvæmda- stjóra Sjávarafurðadeildar SIS kom m.a. fram, aö árið 1977 reyndist Sjávarafurðadeild gott ár. Þá varð áframhald á þeirri hagstæðu þróun, sem um nokkurt skeið hefúr sett svip sinn á fisk- markaðinn í Bandarikjunum. Lika var haldið afram af miklum þrótti þvi uppbyggingarstarfi, sem undanfarið hefur verið hjá sölufyrirtækinu Iceland Products Ins., og er óhætt að fullyrða, að fyrirtækið býr nú við traustari stöðu en nokkru sinni fyrr á þess- um þýðingarmesta útflutnings- markaði íslendinga. Þá jókst freðfiskframleiðsla verulega i magni, og útflutningur sömuleiðis. Mjölsölur á vegum deildarinnar tvöfölduðust i magni og útflutningur á freðfiski til So- vétrikjanna jókst nokkuð. Veru- leg aukning varð á útflutningi frystra afurða til Vestur-Evrópu- landanna, og ber þar sérstaklega að nefna fryst þorskflök og aðrar bolfiskafurðir til Bretlands og frysta sild til Vestur-Þýzkalands, Hollands og fleiri landa. Allan siðari hluta ársins var skreiðar- markaður I Nigeriu lokaður, og var það ekki fyrr en á þessu ári, að hann opnaðist aftur. Heildarvelta Sjávarafurða- deildar á árinu 1977 varö 14.916 millj. kr., sem er 71.1% aukning frá 1976, þegar veltan varð 8.719 millj. kr. Hér er um verulega mikla veltuaukningu að ræða, sem á sérýmsarorsakir, en þrjár eru þó helztar. I fyrsta lagi varð nokkur magnaukning og mikil verðmætisaukning i útflutningi frystra afurða. 1 öðru lagi tvö- földun magns og þreföldun verð- mætis i mjölviðskiptum. 1 þriðja lagi er svo að nefna þær breyting- ar á gengi islenzkrar krónu gagn- vart erlendum gjaldmiðlum, sem urðu á árinu. Arið 1977 var hlutdeild sjávar- afurðadeildar i heildarvöruút- flutningi landsmanna, miðað við útflutningsverðmæti fob., 13.2% og i heildarútflutningi sjávaraf- urða 17.8%. Hlutdeild deildarinn- ar í heildarútflutningi á freðfiski miðað við magn, var 25.3% á móti 24.4% árið á undan. Miðað við freðfiskinn, þá voru Banda- rikin sem fyrr þýðingarmesti markaðurinn, en þangað fóru 83.2% af öllum freðfiskútflutningi deildarinnar. Næst I röðinni voru Sovétrikin, þangað fóru 12.1% og til annarra landa fóru 4.7%, og er þá miðaö viö útflutt magn. Sameiginlegir framboðsfundir á Vesturlandi Hafnir eru sameiginlegir framboðsfundir frambjóðenda allra flokka i Vesturlandskjör- dæmi. Þegar hafa verið haldn- ir fundir í Stykkishólmi og Grundarfirði, en nú i dag, laugardaginn 10. júni, veröur fundur i Röst á Hellissandi og hefst kl. 14.00. 1 næstu viku verður fundur I Dalabúö i Búöardal nú á mánudagskvöldið, 12. júni, og hefst kl. 21.00. Siöan verður fundur á fimmtudagskvöldið, 15. júni, i félagsheimilinu Breiðablik I Miklaholtshreppi og hefst kl. 21.00. Mánudaginn 19. júni verður fundur i Logalandi i Reyk- holtsdal og hefst kl. 21.00. Daginn eftir, þriðjudag 20. júni, verður fundur i Sam- komuhúsinu i Borgarnesi, einnig kl. 21.00 og siðasti fund- urinn verður loks i Bióhöllinni á Akranesi fimmtudaginn 22. júni og hefst kl. 21.00. Karlakórinn Jökuli hélt hljómleika I félagsheimilinu á Seltjarnarnesi s.l. fimmtudagskvöid og á föstu- dagskvöid i Aratungu. Um helgina syngur kórinn á maraþonhljómleikunum, sem listahátlö gengst fyrir I Laugardalshöll. Stjórnandi kórsins er Sigjón Bjarnason. Myndin er tekin er kórinn söng á Seltjarnar- nesi. Tímamynd GE. r ............................... Tveggja ára hússtjórnarbraut í Húsmæöraskóla Suðurlands: Móðgun við matreiðslumenn Félag matreiöslumanna lýsir undrun sinni yfir þvi að menntamálaráðuneytið skuli telja fólki trú um, að tveggja ára nám i Hússtjórnarskóla Suöurlands veiti þvi rétt til aö starfa i löggiltri iöngrein, en áætlað er að starfsemi hús- stjórnarskólans verði breytt á næsta vetri, þannig aö stofnuð veröi við skólann ný tveggja ára hússtjórnardeild þar sem áætlað sé að veita nemendum menntun til að annast forstööu smærri mötuneyta og til aö vera aðstoðarráðsmenn i stór- um mötuneytum. Orðrétt segir I fréttatilkynn- ingu Félags Matreiðslu- manna: Það, að ráðuneytiö skuli standa að sliku meðan Hótel- og Veitingaskóli Islands er sveltur fjárhagslega, er að mati matreiöslumanna ósvifin árás á stétt þeirra og móðgun við þá sem eiga að fá fæði I hinum smærri mötuneytum, enda verður ekki séð að þeir eigi ekki rétt á jafnvönduðu fæði og þeir sem fá fæði I stærri mötuneytum. Félag Matreiðslumanna skorar á ráðuneytiö aö sjá svo til að hætt verði viö áform þau sem Hússtjórnarskóli Suöurlands hefur boðað og að eftirleiöis verði haft samráð viö þá aðila sem hafa faglega þekkingu á þessum málum áður en ákvarðanir eru teknar. Frá aðalfundi Sláturfélags Suðurlands Heildarveltan 6.9 milljarðar sl. ár Aðalfundur Sláturfé- lags Suðurlands var haldinn fimmtudaginn 7. júni að hótel Sögu. Full- trúar á fundinum voru 87. Formaður stjórnar Gisli Andrésson á Neðra-Hálsi og forstjóri Jón H. Bergs, gerðu grein fyrir rekstri og af- komu félagsins árið 1977. I yfirhtsræðum þeirra kom fram, aö heildarvelta S.S. var á sl. ári tæplega 6.9 milljarðar og var það aukning um 8.9% frá fyrra ári. Þar af var velta verzl- anaog vörumarkaðar 41.7% kjöt- vinnslunnar 18.1% afuröadeildar 36.7% og sútunarverksmiðju 4.2%. Samtals námu vaxtagjöld S.S. á árinu rúmum 250 milljónum kr. Fastráðið starfsfólk var 549 þvi hafði fjölgað um 27 manns á ár- inu. Flest var starfefólk i slátur- tiðinni 1436 manns. Slátrað var i 7 húsum á sl. hausti 162 þús. fjár, en þaö var 4500 færra en árið áður. Mest var slátrað á Selfossi, 35.849 fjár, en minnst i sláturhúsinu viö Laxá, 9364 fjár. Innvegið kindakjöt reyndist vera 2.242 tonn, þar af dilkakjöt 1985 tonn. MeöalfaU- þungi dilka var 13.32 kg. Greiðsl- ur vegna afurðainnleggs árið 1976 fóru fram i júnl og október. Auk sauðfjár var slátraö 7.678 nautgripum, 2409 svinum og 1542 hrossum hjá félaginu og var það nokkru minna en árið áöur. All- mikið vantaði á að S. S. gæti ann- að eftirspurn á verðmestu flokk- um nautakjöts og á svinakjöti. A fundinum voru flutt tvö er- indi: Sigurður Sigurðarson dýra- læknir ræddi um búfjársjúkdóma og Andrés Jóhannesson kjötmats- formaður flutti erindi um,,Hegiu gerðum mat og meðferð sláturaf- urða”. A fundinum vargerö mótmæla- áiyktun gegn hárri verölagn- ingu á dýralyfjum oggegn hækk- un á rafmagnsverði til húsahitun- ar. Markvisst er unnið að gróðurvernd og uppgræðslu: Helmingur sauðf jár gengur í heimahögum A undanförnum árum hefur þvi verið haldið fram, aö sifellt gangi á gróöurlendi og þar væri um að kenna ofbeit búfjár á afréttina. Litið hefur verið dregið inn i þær umræður margvislegar ráðstaf- anir, sem hafa veriö gerðar til að bæta afréttina og þær aðgerðir,- sem bændur hafa staðið að, til að minnka álag I sumarbeitilöndum. Landnýtingarráðunautur dr. Ólafur Dýrmundsson hefur nú starfaðhjá Búnaðarfélagi lslands itæptárog hefur hann m.a. unniö I samvinnu viö sveitastjórnir að könnun á fjölda búfjár, sem talinn er ganga I afréttum. Þar hefur komið I ljós, að veru- legur hluti sauðfjár gengur I heimalöndum jaröa yfir sumar- mánuðina. Yfir landiö allt virðist þaö vera um helmingur sauðfjár- ins..Aætlað er, að á Suðurlandi |engi um 80% af sauðfénu i heima- högum, þannig að á þvi svæði — en þar er gróðureyöing talin hafa verið einna mest — hefur beitar- álagið á afréttum farit minnkandi á siöari árum. Hrossum er víöast hvar beitt á heimalönd og I flest- um upprekstrarfélögum er bann- að að reka hross á afrétti. Þeim sveitarfélögum hefur farið fjölgandi, sem setja reglur um upprekstur sauðfjár i afrétti sina. Algengast er að banna upp- rekstur seint i júni eða byrjun júli. Fylgzt er meö fjár- fjplda ..yiö afréttargirðingar siöla sumars og rekið tii byggða ef þurfa þykir i lok ágúst eöa I byrj- un september og i mörgum •sveitarfélögum hefur göngum og réttum verið flýtt. Með Landgræðslu rikisins og fjölmörgum sveitafélögum i land- inu er ágæt samvinna um mark- vissa gróðurvernd og upp- græðsluaðgeröir áf ýmsu tagi. Að dómi dr. ólafs eru það ýkjur þeg- ár þvi er haldiö fram, að heilar sýslur, eöa jafnvel heilir lands- hlutar séu ofbeitarsvæði. Nærri sanni sé að ræða um afmarkaðri svæði i þessu sambandi. A sama hátt viröist sú fullyrðing eiga sér litla stoð I raunveruleikanum, að beitarþol úthaga hafi aldrei veriö minna en nú. Vert er aö minnast þess, að vetrarbeit sauðfjár er aö mestu hætt og fénu er viöast hvar mikið beitt á ræktað land vor og haust.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.