Tíminn - 17.06.1978, Qupperneq 12
12
Laugardagur 17. júni 1978
SPARIÐ BENZÍN OG KAUPIÐ
HAFIÐ SAMBAND VIÐ SÖLUMENN OKKAR,
SEM VEITA ALLAR UPPLÝSINGAR UM BÍLINN,
VERÐ OG GREIÐSLUKJÖR.
Góðir greiðsluskilmálar
ef samið er strax
Datsun 120 Y Station
Rúmgóður — Hár
Sparneytinn
INGVAR HELGASON
Vonarlandi v/Sogaveg — Símar 84510 og 8451 1
, .Takmark, — Htift fréttabréf um heilbrigftis-
mál”, er gefift út í örkum, sem safna má I snyrti-
lega möppu, sem sést á myndinni.
Sameinast
íslendingar um
,,reyklausan
dag” í okt. n.k?
Ot er komið 2. tölublað þriðja
árangs af fréttabréfinu ,,Tak-
mark, —li'tiðfréttabréf um heil-
brigðismál”. í blaðinu er viðtal
við Vilhjálm Hjálmarsson,
menntamálaráðherra, og nefn-
ist það: ,,Éghef alltaf haft óbeit
á reykingum.” Þá er skýrt frá
könnun á reykingavenjum i
grunnskólum i Reykjavik og
sagt frá viðurkenningu, sem 86
bekkir i skólum viða um land
hafa hlotið fyrir að vera reyk-
lausir. Loks er skýrt frá fýrir-
ætlunum um að efna til reyk-
lauss dags um allt land i októ-
bermánuði. Er hugmyndin að
sameina Islendinga um að
reykja ekki þennan dag, hvað
sem þeir geraendranær. Verður
þessi reyklausi dagur haldinn i
kjölfar ráðstefnu um reykingar
og reykingavarnir i september.
17. júni á Seyðisfirði
Dagskrá hátiðarhaldanna 17.
júni á Seyftisfirfti verftur i höndum
tþróttafélagsins Huginn efta 17.
júni nefndar þess, og hefur okkur
nú borizt frétt af þvi helzta sem til
skemmtunar verður.
Kl. 8.00 verða fánar dregnir að
húni en fyrir hádegi mun svo
lagður blómsveigur á leiði Björns
Jónssonar. Bifreiðaáhugamenn
fara i hópakstur og dagskrá
verður i sundhöll staðarins.
Kl. 13.30 verður svo kappsigling
á kajökum á Fjarðará og kl. 14.00
hátiðardagskrá i skrúðgarðinum,
þar sem samkórinn Bjarmi syng-
ur ma. Þá verður farin skrúð-
ganga á iþróttavöll þar verður
sérstök skemmtidagskrá m.a.
hópreið hestamanna. Bilásýning
verður á vegum bifreiðaáhuga-
manna við barnaskólann og kl.
17.00 dansleikur fyrir börn og
unglinga i Félagsheimilinu
Herðubreið, þar sem hljómsveitin
Dolfall leikur fyrir dansi.
Kl. 22.00 um kvöldið er svo al-
mennur dansleikur i Herðubreið
og leikur hljómsveitin Amon Ra
fyrir dansi.
Búizt er við að fjölmennara
verði við hátiðarhöldin nú en oft
áður vegna komu fólks sem ætlar
að taka sér far með Smyrli.
FUNA
OFNAR
Höfum hafift framleiftslu nýrra miftstöftvar-
ofna úr stálprófílsrörum. Ofnarnir eru sér-
staklega gerftir fyrir islenskar aftstæftur,
verk islenskra fagmanna. Leitift tilbofta,
mjög stuttur afgreiftsiufrestur og hagkvæm
kjör.
Ofnasmiója
Suóurlands
Hveragerói
Simar: 99-4454 og 99-4305.
Auglýsingadeild Tímans Ritstjórn, skrifstofa og afgreiðsla
.Ástundun mannúðar’
Norræn ráðstefna um húmaniska
sálar- og uppeldisfræði
Dagana 23. juni-l. júli verður
haldin hér á landi norræn ráð-
stefna um húmaniska sálar- og
uppeldisfræði. Meginkjörorð ráð-
stefnunnar er „Astundun mann-
úðar — 1 átt að mannúðlegra
þjóðfélagi” og mun fara fram við
Háskóla tslands og Melaskólan-
um i Reykjavik.
Um 270 manna hópur, sálfræð-
inga, uppeldisfræðinga, þjóð-
félagsfræðinga, lækna o.fl. er
væntanlegur frá löndum
Skandinaviu. Þekktir sérfræðing-
ar er halda fyrirlestra um ýmis
efni eru m.a. sænski þjóðfélags-
fræðingurinn Rita Liljeström,
indverski jóginn Ac. Karunan-
anda Avt., Peter Ceddy frá Find-
homog Erik Hakonsson o.fl., auk
kunnra Islendinga. Reynt verður
að gera grein fyrir fræðilegum
bakgrunni húmanisma i tengslum
við störf ráðstefnunnar i daglegu
lifi þátttakenda og með tilliti til
islenzks þjóðfélags og stofnanna
þess.
Grunnhópar munu starfa á
meðan á ráðstefnunni stendur og
vinna saman að ýmsum verkefn-
um. öllum þeim er áhuga hafa á
markmiðum ráðstefnunnar er
heimil þátttaka. Frekari upplýs-
ingar eru véittar að Laugavegi 42
3h. i sima: 29434 milli kl. 5-7 alla
daga vikunnar nema sunnudaga.
Fá ekki að ljúka
við stífluna fyrir
smáfiskinum
Washington-Reuter. Hæstiréttur
Bandarikjanna ákvað i gær, aö öll
vinna við Tellico stifluna, sem er
115 milljón dala fyrirtæki, yrði
stöövuö á þeim forsendum að
stiflan ógnaði lifriki á svæðinu og
gæti drepið sjaldgæfa tegund af
smáfiski, sem þar lifir. Dómar-
arnir greiddu atkvæöi, sem féllu 6
gegn 3, um málið og visuðu til
laga frá þvi 1973 um verndun
sjaldgæfradýra, og sögðu þeir aö
stiflan, sem á að vera við Litlu
Tennesse á i Tennesse i Banda-
rikjunum, myndi eyðileggja lff-
svæði nefndrar fisktegundar.
Að þvi er segir i frétt frá Reuter
merkir dómur þessi þaö aö
tegúndir, sem eru i þeirri hættu
að deyja út, skuli vera rétthærri
en ýmsar framkvæmdir — meira
að s eg ja þær sem nærri þv i er lok-
ið við, nema þá að þingið
samþykkiað breyta lögunum.