Tíminn - 18.07.1978, Side 15
Þriðjudagur 18. júli 1978
15
oooooooo
að taka Ragnar Gislason, bak-
vörð, út af til aö bæta viö sóknar-
leikmanni — Hannesi Lárussyni,
til að reyna að riöla vörn Vals-
manna. Þetta bragð ætlaöi aö
takast á 70 min., en þá komst
Arnór Guöjohnsen einn inn fyrir
vörn Valsmanna, en hann klúör-
aði gullnu marktækifæri, meö þvi
aö reyna aö' leika á Sigurö
Haraldsson, markvörö Vals, sem
náöi aö góma knöttiníi. Þarna
hefði Arnór áttaöláta skot riöa af
timanlega, áöur en Siguröur kom
út á móti honum.
Eftir þetta héldu Vikingar
áfram aö sækja stift, á kostnaö
varnarinnar, þvi aö á 28. min. ná
Valsmenn skyndisókn. Ingi
Björn, Guömundur Þorbjörnsson
og Albert Guðmundsson geystust
upp völlinn meö knöttinn, og voru
aöeins tveir Vikingar til varnar,
þeir Magnús Þorvaldsson og
Adólf Guðmundsson, og áttu þeir
viö ofúrefli aö etja. Guðmundur
sendi knöttinn til Alberts, sem
sendi knöttinn i gegnum klofiö á
Diöriki, markveröi, sem var
kominn út úr markinu — knöttur-
inn hafnaöi örugglega I netinu og
sigur Valsmanna varö staöreynd
3:0.
Eins og fyrr segir var leikurinn
skemmtilegurog vel leikinn. Dýri
Framhald á bls. 19.
Skagamaðurinn
Andrés Ólafsson, gerði
það gott i Kópavogi, þar
sem íslandsmeistarar
Akranessunnu öruggan
sigur — 3:0 yfir Blik-
unum. Andrés kom inn á
sem varamaður fyrir
Matthias Hallgrimsson
— hljóp beint inn i vita-
teig Breiðabliks og skor-
aði strax með góðu
skoti, eftir homspyrnu.
Andrés skoraði með
fyrstu spyrnu sinni i
leiknum.
Þaö er greinilegt aö Skaga-
menn ætla sér aö fylgja Vals-
mönnum fast á eftir í baráttunni
um Islandsmeistaratitilinn —
þess minnugir, að þeir hirtu titil-
inn af Valsmönnum sl. keppnis-
timabil á lokasprettinum. Þeir
áttu ekki i erfiöleikum meö Blik-
ana, sem veittu þeim þó keppni i
fyrri hálfleik og átti þá Þór
Hreiöarsson gulliö tækifæri til aö
skora, þegar hann stóö einn meö
knöttinn fyrir framan mark
Skagamanna — skot hans hafnaöi
þá i stöng.
Kristinn Björnsson kom Skaga-
mönnum á bragöiö I seinni hálf-
leik og siðan skoraöi AndréS hiö
eftirminnilega mark sitt. Pétur
Pétursson gulltryggöi siöan sigur
Skagamanna — 3:0, rétt fyrir
ieikslok, þegar hann skoraði meö
skalla.
Mennirnir á bak viö þennan
góöa sigur Akraness voru þeir
Karl Þóröarson og Jón Alfreös-
son, sem byggöu upp flestar
sóknarlotur Skagamanna.
Maður Leiksins: Jón Alfreös-
son.
Framarar missa
tvo leikmenn
Þorvaldur Hreinsson, ungl-
ingalandsliðsmaöur I knatt-
spyrnu, sem lék nokkra leiki
meöFram-liöinu I sumar, hef-
ur aftur gengiö I raðir Aftur-
eldingar I Mosfellssveit. Þá
hefur Kristján Sigurgeirsson,
fyrrum leikmaður Vest-
mannaeyjaliðsins, einnig
gengið úr Fram f Aftureld-
ingu, en hann þjálfaði og lék
með Aftureldingu áður en
hanngekkyfir I Fram sl.sum-
ar.
Það er mikill missir fyrir
Fram, að Þorvaldur hafi fariö
frá félaginu, þvi að hann er
mjög efnilegur leikmaöur.
Ástæðan fyrir þvl aö Þor-
valdur yfirgaf herbúðir Fram
var sú að hann fékk ekki tæki-
færi til að spreyta sig að ráði.
og sigraði
kom, sá
— hann skoraöi með sinni fyrstu spyrnu, þegar Skagamenn
lögðu Blikana að velli 3:2
GUÐMUNDUR KJARTANSSON... átti mjög góðan lelk I Valsvörninni
— hér hefur hann betur I viðureign við Arnór Guðjohnsen. Tlmamynd
Tryggvi)
Gunnar Blöndal
hetja KA-liðsins
— sem vann dýrmætan signr (1:0)
yfir FH-ingum á Akureyri
Siglfirðingurinn marksækni
Gunnar Blöndal, sem leikur meö
Akureyrarliöinu KA, var hetja
Akureyringa á laugardaginn,
þegar KA-liðið vann dýrmætan
sigur 1:0 yfir FH-ingum I 1.
deildarkeppninni. Gunnar skor-
aði sigurmark KA-liðsins með
föstum skaila eftir hornspyrnu
Gunnars Gunnarssonar.
Jóhannes Atlason.jþjálfari KA-
liðsins tefldi djarft fyrir leikinn
gegn FH, þvi aö hann setti þrjá af
fræknustu leikmönnum sfnum út
úr liöinu — þá Sigbjörn Gunnars-
son, Armann Sverrisson og
Jóhann Jakobsson, — leikmenn-
ina sem hafa skorað nær öll mörk
KA-liösins i 1. deild. Þetta ,,út-
spil” Jóhannesar heppnaöist
mjög vel, þvi að ungu leikmenn-
■irnir sem tóku stööur þremenn-
inganna böröust grimmt og gáfu
ekkert eftir.
STAÐAN
Valur — Vikingur 3:0
Breiðablik — Akranes 0:3
Þróttur — Fram 0:1
KA —FH 1:0
Valur 11 11 0 0 31:5 22
Akranes 11 9 1 1 31:10 19
Fram 11 6 1 4 14:13 13
Vestm.ey 10 424 14:15 10
Þróttur 11 254 15:17 9
Vikingur 11 4 1 6 18:22 9
FH 11 245 17:23 8
KA 11 245 9:20 8
Keflavik 10 235 11:16 7
Breiðablik 11 1 1 9 9:29 3
Markhæstu menn:
IngiBjörn Albertsson, Val Matthias Hallgrimsson, 11
Akranesi 10
Pétur Pétursson, Akranesi 8
KA-liðiö vann sanngjarnan sig-
ur, sem heföi getað oröiö stærri,
meö smáheppni. Akureyringar —
Óskar Ingimundarson og ólafur
Haraldsson áttu skot sem skullu á
þverslá marks Hafnarfjaröar-
liösins. FH—ingar áttu einnig
skot i þverslá — Ólafur Danivals-
son, sem var besti leikmaður
vallarins — ógnaöi leikmönnum
KA hvaö eftir annaö meö hraöa
sinum og leikni, en aftur á móti
bar litiö á Janusi Guölaugssyni,
sem var I strangri gæslu.
Maöur leiksins: Ólafur
Danivalsson.
ÓLAFUR DANIVALSON... átti mjög góðan lelk með FH-liðinu á Akur-
eyri. (Timamynd Tryggvi)